Signe skrifaði:
Denne ble ikke fin, oppskriften er kort og selv om jeg strikket den litt lenger føles den klumpete og lite nett ut i dette garnet
01.08.2022 - 23:07
Ylva skrifaði:
Stemmer det at vestens bak- og framstykke skal strikkes helt likt?
13.07.2022 - 20:55DROPS Design svaraði:
Hei Ylva, For- og bakstykke er strikket likt fram til ermehullene. Etter det er de forskjellige. God fornøyelse!
14.07.2022 - 06:55
Heather skrifaði:
What does it mean on the back piece to “decrease 18 stitches over these stitches” what kind of decrease do I knit ???
29.06.2022 - 20:01DROPS Design svaraði:
Dear Heather, you knit the next 100 or 106 stitches working K2 together evenly a total of 18 times = 82-88 sts remain + the 2 edge sts = 84-90 sts on needle. Read how to decrease evenly here. Happy knitting!
30.06.2022 - 09:22
Helle skrifaði:
Hej! Hvorfor strikkes denne top ikke på rundpind op til ærmegab?
25.06.2022 - 20:07DROPS Design svaraði:
Hei Helle. For å tilfredstille alle som strikker vil noen oppskrifter skrives at det skal strikkes rundt og noen skrives at det skal strikkes frem og tilbake. Denne er skrevet at den skal strikkes frem og tilbake. Om du ønsker å strikke rundt fra vrangborden/spliten kan du fint gjøre det, men vi har ingen mulighet til å omskrive oppskriften. mvh DROPS Design
27.06.2022 - 09:52
Nicole Vandenberghe skrifaði:
Spanish blue sky
15.01.2022 - 13:18
TURPIN skrifaði:
Oceane
14.01.2022 - 16:19
Linda skrifaði:
Meadow
14.01.2022 - 09:18
Bayou Belle#bayoubelletop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 230-51 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur í byrjun á umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur í lok umferðar þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman á öxlum og í hliðum. Kantar á ermum og kantur í hálsmáli eru prjónaðir í hring á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 84-96-102-108-120-132 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris. Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 5 cm og næsta umferð er frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur prjónaðar og fækkaðar þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 14-20-18-18-22-22 lykkjur jafnt yfir næstu 82-94-100-106-118-130 lykkjur og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 70-76-84-90-98-110 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-24-25-26-27 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 66-72-76-82-86-98 lykkjur. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM. Nú er lykkjum fækkað fyrir handveg, en áður en úrtöku er lokið á einnig að fækka lykkjum fyrir hálsmáli. Sjá ÚRTAKA! Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu alls 12-13-13-15-15-19 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-36-37-39-40-42 cm og næsta umferð sé frá réttu, fellið af miðju 18-20-20-20-20-22 lykkjur fyrir hálsmáli. Axlir eru síðan prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Haldið áfram með úrtöku fyrir handvegi og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar sem fækkað er alls 5-5-6-6-7-7 sinnum – munið eftir ÚRTAKA. Þegar allar úrtökur fyrir handvegi og hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 21-23-24-25-26-27 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð sé frá réttu. Fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 66-72-76-82-86-98 lykkjur. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM. Nú á að halda áfram að fækka lykkjum fyrir handvegi og áður en úrtöku er lokið á einnig að fækka lykkjum fyrir hálsmáli. Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu fyrir handveg alls 12-13-13-15-15-19 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-30-31-33-34-36 cm setjið miðju 10-12-14-14-16-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Axlir eru síðan prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Haldið áfram með úrtöku fyrir handvegi og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til lykkjum hefur verið fækkað alls 9 sinnum – munið eftir ÚRTAKA! Þegar öll úrtaka fyrir handvegi og hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma og skiljið eftir 5 cm klauf neðst. KANTUR Á ERMUM: Byrjið við hliðarsaum og frá réttu, notið hringprjón 4 og prjónið upp ca 75-84-93-96-105-117 lykkjur í kringum allan kant á ermi – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við axlasauminn og frá réttu, notið hringprjón 4 og prjónið upp ca 93-102-105-108-111-117 lykkjur í kringum allan kant í hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði mitt að framan) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bayoubelletop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-51
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.