Sharon Hunt skrifaði:
Hi I have now inserted all markers. I am now about to increase at the 3. My question is am I supposed to increase then slip the marker or slip the marker then work the increase? Many thanks for your help.
25.02.2023 - 14:05DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, if you increase before the marker, then your increase will be the stitch right before the marker. If you are increasing after the marker, then you slip the marker and increase right after it. You increase BEFORE the markers at the 1st and 3rd markers and AFTER the markers at the 2nd and 4th markers. Happy knitting!
26.02.2023 - 20:58
Sharon Hunt skrifaði:
Hi! Am working on the neck warmer in this sett. To place the markers I knitting across the so stitches then placed the markers, this seems logical, but is it correct? I am wondering how would I know the end and beginning of the round? Am assuming the end of the round would be after knitting the 21 stitches which is now increased according to the instructions at the first and 4 marker? This is the first time am making a neck warmer this way so am not sure if what have done so far is correct.
18.02.2023 - 15:48DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, the markers are introduced without working. Start from the beginning of the round (the same beginning as in previous rounds) and introduce the markers as indicated for your size. If you are working the smaller size, insert as follows: 5sts, 1st marker, 7sts, 2nd marker, 11 sts (insert the mid-front marker after the 6th st, then count 5 more), 3rd marker, 7 sts, 4th marker, 6 sts remain until the beginning of the round (= 36 sts). Then, proceed to increase before or after the 4 markers as indicated in the pattern. The mid-front marker is not used for the increases. Happy knitting!
19.02.2023 - 22:20
Sharon Hunt skrifaði:
Hi! Could this hat be done in the round?
04.02.2023 - 12:35DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, yes, you could work it in the round; remember to remove the edge stitches. Happy knitting!
05.02.2023 - 23:06
Maggi Vermcrantz skrifaði:
I instruktionen står det tex strumpstickor nummer 12. Men i länken har stickorna inget nummer. Skall jag tolka nummer 12 som grovlek 12 mm?
26.12.2022 - 22:36DROPS Design svaraði:
Hei Maggi. Litt usikker på hva du mener med länken , men halsen strikkes med pinne 12 mm, det brukes både rundpinne og settpinner ( i str. 12 mm, kan også skrives som bare 12). mvh DROPS Design
02.01.2023 - 13:11
Maria Krbalová skrifaði:
Dobrý den. Prosím poraďte s určením lícové strany u cepic s ohrnutím: když si zvolím lícovou stranu na ohrnovací části, zbytek čepice je v tomto případě je rubová strana, protože před ohrnutím "lícová" strana ohrnovací části byla na rubové straně. Mám pak potíže si určit, v které řadě a jak mám ujímat. Děkuji
20.11.2022 - 13:50DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Mario, nejsnazší je podívat se na úplný začátek pletení, na nahozenou řadu. Z jedné strany je nahozený okraj tvořený řadou "čárek", z druhé strany má malé hrbolky. Tu stranu práce, která má v první řadě malé hrbolky, si v tomto případě označíme jako lícovou = po ohrnutí se hrbolatý lem schová a na lícu zůstane ten úhledný "čárkovaný" (který máme nyní na rubu) . Hodně zdaru! Hana
08.03.2023 - 10:25
SUZAN skrifaði:
Merhaba, bu siteden bakarak boyunluğu yaptım. Omuz arttırmayı öğrendim. Birçok proje var ve hepsi harika. Çok teşekkürler...
25.12.2021 - 10:22
Willow Winds#willowwindsset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa og hálsskjól úr DROPS Polaris. Stykkið er prjónað í stroffprjóni.
DROPS 225-39 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um hálsskjól): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), mínus lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 40-44 lykkjur á hringprjón 12 með DROPS Polaris. Prjónið stroff fram og til baka yfir allar lykkjur (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í þá hlið á stykki sem er með smá beyglur í fyrstu umferð á stykki = rétta, þetta er gert til að neðsti kanturinn á húfunni verði fallegur þegar kanturinn er síðar brotinn upp. Þegar stykkið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 1-2 lykkjur = 39-42 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), séð frá réttu. Prjónið þar til stykkið mælist alls 31 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (= hlið með prjónamerki). Fækkið nú lykkjum efst á húfu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 þar til 1-0 lykkja er eftir, prjónið 1-0 lykkju slétt = 20-21 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið frá röngu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 þar til 0-1 lykkja er eftir, prjónið 0-1 lykkja slétt = 10-11 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að . Saumið saman hliðarnar á húfunni í ystu lykkjubogana, passið að sauma frá réttu og að saumurinn verði flatur. Klippið þráðinn og festið. Brjótið uppá neðstu 12 cm á húfunni. ----------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður frá miðju að aftan. Fyrst er prjónað í hring þar til útaukning fyrir öxl hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 36-40 lykkjur á sokkaprjón 12 með DROPS Polaris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff svona í 10 cm. Setjið eitt prjónamerki eftir 18-20 lykkjur (= mitt að framan) – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir axlarsæti og verða að hafa annan lit en prjónamerki sem mælt er frá. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 5-6 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 7 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 11-13 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 7 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 6-7 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert af þessum prjónamerkjum. Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki - sjá ÚTAUKNING-1. Nú er einungis aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxlum verðu sá sami. Haldið áfram hringinn svona og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 6-7 sinnum = 60-68 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur fram að axlalykkjum, fellið af með sléttum lykkjum yfir 7 axlalykkjurnar – sjá AFFELLING, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 23-27 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir framstykki, fellið af næstu 7 axlalykkjur, prjónið að miðju að aftan. Klippið þráðinn. BAKSTYKKI: = 23-27 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar hálsskjólið mælist 20-21 cm frá prjónamerki sem var sett í eftir háls, aukið út um 5-5 lykkjur jafnt yfir – sjá garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (lykkjur í garðaprjóni eru felldar af með sléttum lykkjum). Bakstykkið mælist ca 24-25 cm frá prjónamerki við háls. FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 12 og prjónið á sama hátt og bakstykki. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #willowwindsset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.