Marilyn skrifaði:
I have finished one round of the pattern -24 rows. If I continue till work measures 26cm total length before armholes as stated that will be just 1 more repeat of pattern -another 24 rows. Is the 26cm measurement correct? It seems short. The photo of model looks like there could be up to 4 repeats. I have used 40g flora 20g kid silk so far and bought the amount stated on pattern for size small. Will there be sufficient wool to finish this lovely jumper if I do more than the 2 repeats?
08.01.2022 - 16:45DROPS Design svaraði:
Dear Marilyn, you should check the gauge. You should be working tighter than 24 rows in 13 cm. You should work approx. 3 1/2 repeats of the pattern in 26 cm. Working according to this gauge should allow you to finish the jumper with the amount of yarn stated. Still, this jumper is rather short, so if you would like to make it longer you may need more wool. Happy knitting!
10.01.2022 - 20:16
Susanne Westerbeek skrifaði:
De volgorde van het te breien patroon is fout. Het moet zijn : A1- A5-A6-A4-A3- A2 Ik heb al meer dan 20 cm gebreid en zie het nu pas😣 ik had nog nooit zoiets moeilijks gebreid en baal dat er fouten in het patroon staan ….
05.01.2022 - 16:17
Susanne Westerbeek skrifaði:
In het middenstuk liggen mijn kabels niet mooi bovenop het breiwerk. Ik heb de aanwijzingen op het patroon wel precies gevolgd, maar heb soms het gevoel dat de aanwijzing van 1 steek op kabelnaald, achter werk houden, 3 recht en dan 1 averecht van de kabelnaald verdraaid is met 3 steken op de kabelnaald, voor het werk houden, 1 averecht en dan 3 recht van de kabelnaald breien. Ik heb het niet zo geprobeerd, maar mijn werk ziet anders uit dan p de voorbeeld foto waar de gerstekorrel dieper is.
05.01.2022 - 16:00DROPS Design svaraði:
Dag Susanne,
Heb het nagekeken en de kabels met 3 en 1 steken kloppen wel. Je verplaatst daarmee als het ware een steek vanuit het gerstekorrel gebied naar buiten dat gebied (of andersom) en de kabel wordt daarmee in een bepaalde richting gestuurd. Misschien moet je even een tijdje op weg zijn voordat het er beter uitziet.
06.01.2022 - 09:36
L Scott skrifaði:
I have the same concerns as Ekaterina. The pattern calls for 26 cm from cast on edge until under arm separation. This seems too short. Is this correct? I\'m going to knit to 31 cm as I prefer a sweater looking enough to cover the waist
02.01.2022 - 21:31
Ekaterina skrifaði:
Dear Drops! Could you tell me about the size of the body- is it really just 26cm for M size. I've knitted the body part and it seems to me too short....
01.12.2021 - 20:38DROPS Design svaraði:
Dear Ekaterina, almost right, chart says 50 cm around body - make sure your tension is matching and keep the same tension. If you rather get positive ease for that jumper, maybe check the measurements in size L. Happy knitting!
02.12.2021 - 08:53
Celine skrifaði:
Wat is de borstomtrek van deze trui? Kan moeilijk uit het patroon halen. Gr, Celine
30.11.2021 - 04:57
Aranka skrifaði:
A leírás és a diagramok számozása nem egyezik, az A2 diagram a szövegben nincs is feltüntetve, Az A.4 jelű minta a szöveg szerint 9szem a diagram szerint 42. Ezt jó lenne javítani.
28.11.2021 - 16:22
Hana skrifaði:
Looks amazing. Hope will by translate to czech...
11.10.2021 - 12:04
Helga Reisenwebber skrifaði:
Frozen landscape
24.08.2021 - 23:32
Tangled Willows#tangledwillowssweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-41 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 242 lykkjur) og deilið þeim lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 38) = 6,4. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er gerður uppsláttur til skiptis á milli ca 6. og 7. hverja lykkju. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri) þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ATH! Þegar ekki er lengur pláss fyrir heilan kaðal við laskalínu eru kaðlalykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í: Prjónið að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju (lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt og síðan jafnóðum inn í mynstur A.1. LEIÐBEININGAR: Þegar fella á af fyrir handveg á fram- og bakstykki og ermum, verður að passa uppá að það sé gert í sömu umferð í mynstri sem er merkt með A.x (kaðlar sem eru stakir). Þetta er gert til að hægt sé að snúa öllum köðlunum í sömu umferð í mynstri þegar prjónað er áfram. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg. Síðan eru ermar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 224-232-250-264-292-314 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Alaska. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 20-20-22-24-24-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 204-212-228-240-268-288 lykkjur. Prjónið eftir mynsturteikningu þannig: * Prjónið A.1 yfir 20-24-32-38-30-40 lykkjur, A.2 yfir 11-11-11-11-22-22 lykkjur (= 1-1-1-1-2-2 mynstureiningar með 11 lykkjum), A.3 (= 9 lykkjur), A.4 (= 42 lykkjur), A.5 (= 9 lykkjur), A.6 yfir 11-11-11-11-22-22 lykkjur (= 1-1-1-1-2-2 mynstureiningar með 11 lykkjum) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Setjið eitt prjónamerki mitt í lykkjurnar sem voru prjónaðar í mynstri A.1 (10-12-16-19-15-20 lykkjur með A.1 hvoru megin við hvort prjónamerki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið mynstur svona þar til stykkið mælist ca 26-26-27-27-27-27 cm frá uppfitjunarkanti – sjá LEIÐBEININGAR! Í næstu umferð eru felldar af 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki (= 6-6-8-8-10-10 lykkjur í hvorri hlið) fyrir handveg. Nú eru 96-100-106-112-124-134 lykkjur á framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 48-48-50-50-52-54 lykkjur á sokkaprjón 4 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Alaska. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist ca 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5, prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 54-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð, þetta prjónamerki er notað síðar þegar lykkjur eru auknar út mitt undir ermi. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu þannig: Prjónið A.1 yfir 9-9-10-11-12-13 lykkjur, prjónið A.3 (= 9 lykkjur), A.7 (= 18 lykkjur), A.5 (= 9 lykkjur) og prjónið A.1 yfir síðustu 9-9-10-11-12-13 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 8-8-8-8-7-7 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu með ca 5-4-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 6-8-11-11-13-15 sinnum = 66-70-78-80-86-92 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 39-38-37-36-35-33 cm frá uppfitjunarkanti munið eftir LEIÐBEININGAR! Fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur mitt undir ermi = 60-64-70-72-76-82 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt, en setjið prjónamerkið sem er mitt undir ermi í síðustu lykkju í umferð. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 312-328-352-368-400-432 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Síðan eru 2 lykkjurnar sem sitja hvoru megin við hvert prjónamerki prjónaðar í sléttprjóni, afgangur af lykkjum eru prjónaðar inn í mynstur eins og áður. Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 3-3-1-3-1-1 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Haldið áfram með mynstur eins og áður og byrjið úrtöku fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 22-24-27-28-32-34 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka eru 136-136-136-144-144-160 lykkjur í umferð og berustykkið mælist ca 23-25-26-28-30-32 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Í næstu umferð er mynstrið prjónað eins og áður, en yfir kaðla í mynstri eru prjónaðar sléttar lykkjur og lykkjum er fækkað jafnt yfir þannig: Fækkið um 6 lykkjur yfir kaðla á framstykki, fækkið um 3 lykkjur yfir kaðla á fyrri ermi, fækkið um 6 lykkjur yfir kaðla á bakstykki og fækkið um 3 lykkjur yfir kaðla á seinni ermi = 118-118-118-126-126-142 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 36-32-30-38-34-46 lykkjur jafnt yfir í umferð = 82-86-88-88-92-96 lykkjur. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist ca 11 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Brjótið hálsmálið niður að réttu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tangledwillowssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.