DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lightkeeper

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 224-2
DROPS Design: Mynstur ai-368
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60-80 cm fyrir mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60-80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Ef prjónað er með galdralykkju / Magic Loop þarf ekki sokkaprjóna.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með mynstri = 10 x 10 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón við hvert prjónamerki þannig:
Prjónið 1 lykkju fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Útauknar lykkjur eru prjónaðar áfram slétt í næstu umferð. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður, síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-80-88-96-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist ca 12 cm (brjóta á uppá kant í hálsmáli að röngu síðar þannig að hann verði tvöfaldur).
Prjónið 1 umferð slétt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5 og setjið prjónamerki í stykkið í þessari umferð, þau eru notuð síðar til að mæla frá.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið JAFNFRAMT því sem prjónað er þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið mynstur A.1 yfir 12 lykkjur (= ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 lykkja, prjónið mynstur A.1 yfir 24-24-28-32-32-36 lykkjur (= framstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 lykkja, prjónið mynstur A.1 yfir 12 lykkjur, prjónið 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 lykkja og prjónið mynstur A.1 yfir 24-24-28-32-32-36 lykkjur (= bakstykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón.

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan og haldið áfram með mynstur A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til auknar hafa verið út alls 21-24-26-28-31-33 sinnum = 248-272-296-320-344-368 lykkjur.
Prjónið mynstur eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki frá byrjun á umferð (á milli bakstykkis og ermi) þannig: Prjónið 4-3-2-2-4-4 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-56-62-66-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 76-80-86-94-104-112 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-56-62-66-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 72-77-84-92-100-108 lykkjur (= afgangur á bakstykki, nú eru alls 76-80-86-94-104-112 lykkjur á bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 164-172-188-204-224-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið.
Haldið áfram hringinn með mynstur A.1, mynstrið kemur ekki alltaf til með að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, þær 2 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru stilltar af miðað við mynstur á framstykki og bakstykki.
Þegar stykkið mælist ca 4 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA – mynstrið á að halda áfram eins og áður á framstykki og bakstykki og mynstrið er stillt af við hliðar þegar lykkjum er fækkað.
Endurtakið úrtöku með ca 6-8-8-8-8-6 cm millibili alls 4-3-4-4-3-4 sinnum = 148-160-172-188-212-224 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu (prjónið e.t.v. að óskaðri lengd þar til ca 5 cm eru eftir að loka máli) – stillið af að endað sé með 2 umferðir sléttprjón.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið í 5 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 48-56-62-66-68-72 lykkjur af þræði á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5, prjónið að auki upp 6-6-8-8-8-8 í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki= 54-62-70-74-76-80 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðju á 6-6-8-8-8-8 nýjum lykkjum sem prjónaðar voru upp undir ermi = byrjun á umferð. Haldið áfram með mynstur A.1, mynstrið kemur ekki alltaf til með að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, þær 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með ca 2-3-2-2-2-2 cm millibili alls 7-11-15-15-16-18 sinnum = 40-40-40-44-44-44 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 40-39-38-36-35-34 cm frá skiptingu (prjónið e.t.v. að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 5 cm að loka máli) – stillið af að endað sé með 2 umferðir sléttprjón.
Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá kant í hálsmáli inn að röngu. Saumið uppfitjunarkantinn niður með löngu lausu spori frá röngu á peysu (passið uppá að saumurinn sjáist ekki frá réttu og að saumurinn verði ekki stífur).

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Suzana Schiestel wrote:

Guten Morgen Da ich noch nie einen Pullover vom Hals aus begonnen habe....gibt es dieses Strickanleitung auch vom Bund aus ? Vielen Dank

24.03.2024 - 14:25

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schiestel, hier finden Sie alle Pullover, die von unten nach oben gestrickt werden; und hier finden Sie eine Lektion, wo man erklärt, wie ein Pullover von oben nach unten gestrickt wird, es kann vielleicht helfen. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 09:11

country flag Anni Palmgren wrote:

Jeg er ved at strikke Drops 224-2. Jeg er blevet i tvivl om at på første pind efter hals ribben skal begynde forfra på diagrammet efter de 2 ret masker til raglan. På forhånd tak. Vh. Anni

14.03.2024 - 10:23

DROPS Design answered:

Hej Anni, du kan gerne forskyde mønsteret så det stemmer med ribben i halsen :)

19.03.2024 - 11:42

country flag Melissa wrote:

Hei! Jeg sliter med å forstå hvordan jeg skal strikke de nye maskene fra raglan økningen inn i mønsteret uten at det hele blir forskjøvet? Eller skal det bli det?

28.02.2024 - 21:47

DROPS Design answered:

Hej Melissa, du strikker mønsteret som tidligere, og så strikker du den nye maske som den maske du er kommet til ifølge diagrammet. Du udgår altid fra det etablerede mønster :)

05.03.2024 - 11:41

country flag Oudinet wrote:

Bonjour dans le modele 224-2 pourriez vous me dire comment garder le dessin avec les augmentation sans decalage ? Je n´y arrive pas je me retrouve avec soit trop de mailles endroit ou envert dans le dessin Merci

17.02.2024 - 17:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Oudinet, vous devez augmenter le motif de part et d'autre, en prenant par ex 12 mailles = on répète 3 fois les 4 mailles de A.1, la 1ère augmentation va se tricoter comme la dernière maille de A.1 (= à l'endroit) (= on commence un nouveau motif par la dernière maille), tricotez le 2ème rang de A.1 et tricotez l'augmentation à la fin comme la 1ère maille de A.1 (= on commence un nouveau motif par la 1ère maille), autrement dit, sur ce tour, vous aurez plusieurs mailles endroit à suivre en comptant les mailles des raglans, placez bien vos marqueurs et comptez toujours les 2 mailles des raglans en jersey, elles ne comptent pas dans le point fantaisie. Bon tricot!

19.02.2024 - 09:08

country flag Oudinet wrote:

Bonjour Je cherche un complement d´explication en ce qui concerne le raglant de ce modele je ne comprends pas les augmentations ainsi que la position des marqueurs Merci par avance

13.02.2024 - 16:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Oudinet, les marqueurs se trouvent au milieu des 2 mailles jersey des raglans, vous augmenterez de chaque côté de ces 2 mailles jersey soit avant/après ces 2 mailles jersey (avec le marqueur entre les 2) - cf RAGLAN au début des explications. Vous augmentez ainsi 8 mailles tous les 2 tours 21 à 33 fois au total selon la taille. Bon tricot!

14.02.2024 - 07:50

country flag Mathilde wrote:

Ang. den skrå linjen som dannes av raglanøkningen: På foto ser det ut som at denne linjen danner en fortsettelse av rette masker i halsen. Det er fint. I mitt strikkearbeid starter den skrå raglanlinjen på en rett og en vrangmaske i halsen. Evt kan jeg forskyve alt en maske, men da vil skrålinjen starte i rettmasker på den ene siden av brystet og vrange masker på den andre siden. Hva er rett?

16.01.2024 - 21:24

DROPS Design answered:

Hej Mathilde, der er ikke noget ret eller fejl, hvis du vil anpasse ribben til raglanlinjen, så kan du justere maskeantallet mellem raglanlinjerne :)

17.01.2024 - 13:22

country flag Susanne wrote:

Hallo, liebes Drops-Team, stimmen die Angaben zu den Raglanzunahmen? Muss es nicht umgekehrt sein? Also erst bis eine Masche vor(!) den Markierer stricken und dann einen Umschlag, dann nach der ersten Masche nach(!) dem Markierer den zweiten Umschlag?! Viele Grüße

10.01.2024 - 05:13

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, die Angaben für die Raglanzunahmen gelten für dieses Modell ab der Rundbeginn, aber die werden ja genau vor/nach 2 Maschen glatt rechts gestrickt, die 1. Masche am Anfang der Runde ist eine Raglanmasche, so strickt man 1 Masche nach der Markierung (Anfang der Runde), 1 Umschlag, dann stricken Sie bis 1 Masche vor nächsten Markieurng übrig ist, 1 Umschlag, 1 Masche rechts, 1 Umschlag, bei den anderen Markierungen genauso stricken und die Runde mit 1 Umschlag enden. Viel Spaß beim stricken!

10.01.2024 - 09:32

country flag Cecilie Naundrup wrote:

Hvilke mål høre til størrelserne? kan ikke finde det i opskiften

07.01.2024 - 20:36

DROPS Design answered:

Hej Cecilie, jo, nederst i opskriften finder du måleskitsen. Brystmålet til den mindste størrelse er da 48cm x 2 = 96 cm i omkreds :)

08.01.2024 - 14:06

country flag Lizzie wrote:

Please can you tell me what size chest is the XXL. is in inches or cms please. Thankyou.

14.12.2023 - 06:25

DROPS Design answered:

Hi Lizzie, If you are using the US English page, then the measurements are in inches. If you are using the UK English, they are in cms. The size chart with all the measurements for the different sizes is at the bottom of the page. Happy knitting!

14.12.2023 - 06:44

country flag Birgit Flor wrote:

Hallo, ich möchte den Pullover gerne stricken ,scheitere aber an de den Zunahmen. Wenn ich in der Zweiten rechten Reihe einen Umschlag gemacht habe, ist die nächste Reihen eine in der der Umschlag eine Masche wäre, die li zu stricken ist. Egal wie ich sie abstricke ,es entsteht ein Loch. oder ,wenn ich sie re verschränkt abstricke kommt das Muster nicht mehr hin. Hilfe bitte. Vielen Dank im Voraus.

11.04.2023 - 15:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Flor, die Umschläge werden zuerst rechts verschränkt gestrickt, dann im Muster, so an der nächsten Reihe nach den Zunahmen wird das Muster nicht über diese Maschen gestrickt, erst bei der nächsten Runde, und dann soll sich das Muster auf beiden Seiten erweitern (entweder rechts oder links wie im Diagram). Viel Spaß beim stricken!

11.04.2023 - 17:00