Anita Lutken skrifaði:
Hej Drops Jeg er ved at strikke Dancing DiamondsCadigan. Jeg er nu færdig med udtagning bærestykke. Strikker str L . 1. Forstykke 53m, bagstykke 102m ,2. Forstykke 53m ialt 208masker (har sat masker af til ærmer). Ifølg opskriften skal der pludselig være 240masker til ryg og forstykke , pludselig mangler der 32masker ??? Hvor får jeg de masker fra ??? Jeg har hele tiden haft det korrekte antal masker. Hilsen Anita
28.05.2021 - 10:04DROPS Design svaraði:
Hej Anita, Forstykke 53 masker, slå 16 nye masker op under ærmet, strik 102 (ryg), slå 16 nye masker op under ærmet, strik 53 masker = 240 masker :)
28.05.2021 - 13:52
Olaug Ekerhovd skrifaði:
Hei , skal printe ut mønster til Dancing Diamonds Cardigan , men det kommer ikke fram bilde eller symboler for mønsterstrikket . Det blir derfor umulig å strikke mønsteret . Kan dere forsøke å sende på nytt ?
12.05.2021 - 16:18DROPS Design svaraði:
Hej Olaug, for at få alt med, skal du skrive ud ved at klikke på "skriv ut"-knappen som er til højre for Trenger du hjelp-knappen inde på selve opskriften :)
14.05.2021 - 09:39
Nina Kubbe skrifaði:
Nach der Zunahme der Ärmel habe ich deutlich mehr Maschen zwischen den Makierern als 61. muss ich die Markierer gezielt so umsetzten dass es genau 61 sind? Die Zunahme verläuft dann jedoch an einer anderen Stelle, als die bisherigen.
11.05.2021 - 11:22DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kubbe, in S sowie in L sollen Sie 63 Maschen für jede Ärmel haben, dh: 27 Maschen + 18 Zunahmen beidseitig = 63 M, dann legen Sie 1 Markierung in die 1. dieser 63 Maschen und 1 Markierung in die letzte dieser 63 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
11.05.2021 - 13:29
Tanja skrifaði:
Jag hittar inte när det är dags att byta från stickor 2,5 till 3. Är det på ökningsvarvet efter resåren i halsringningen, eller senare?
25.04.2021 - 14:22DROPS Design svaraði:
Hej Tanja. Du stickar resår med sticka 2,5 och slätstickning/mönster med sticka 3, så du byter till sticka 3 direkt efter resåren. Mvh DROPS Design
27.04.2021 - 09:26
Alex Ly skrifaði:
Hazy day
10.01.2021 - 22:05
Jana skrifaði:
Sommerbrise
09.01.2021 - 16:50
Maria Do Céu Teixeira skrifaði:
Lavanda fresh
08.01.2021 - 22:10
Donna skrifaði:
Evening Breeze
08.01.2021 - 13:24
Anna Sarjanen skrifaði:
City chick
07.01.2021 - 21:40
Charlotte skrifaði:
Sommer regn
07.01.2021 - 18:39
Dancing Diamonds Cardigan#dancingdiamondscardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S – XXXL.
DROPS 221-8 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 14 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 2,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (frá röngu): ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-4 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3-3-3-4-4-4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4-4-4-5-5-5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4-4-4-6-6-6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-9-9-9½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. eða 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 122-122-134-146-155-155 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið nú stroff þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) *, prjónið frá *-* yfir næstu 12-12-15-15-18-18 lykkjur, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (= vinstra framstykki), prjónið A.1a (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 27-27-27-33-33-33 lykkjur (= vinstri öxl), prjónið 1 lykkju brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 27-27-33-33-36-36 lykkjur, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (= bakstykki), prjónið A.1a yfir næstu 27-27-27-33-33-33 lykkjur (= hægri öxl), prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 12-12-15-15-18-18 lykkjur og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). A.1a er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 14-14-17-17-20-20 lykkjur og aukið jafnframt út 6-8-3-7-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 27-27-27-33-33-33 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 30-30-36-36-39-39 lykkjur og aukið jafnframt út 10-14-10-16-19-19 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 27-27-27-33-33-33 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 14-14-17-17-20-20 lykkjur og aukið jafnframt út 6-8-3-7-8-8 lykkjur jafnt yfir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 144-152-150-176-190-190 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki eftir kantlykkjur að framan – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að framan, teljið 25-27-25-29-33-33 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 27-27-27-33-33-33 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 40-44-46-52-58-58 lykkjur frá 2. prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 27-27-27-33-33-33 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 25-27-25-29-33-33 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu. Það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað áfram í A.1b á öxlum, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út á eftir 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-3. Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og mismunandi er aukið út frá réttu og frá röngu, þannig að lykkjurnar liggja fallega. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 22-22-27-27-29-32 sinnum = 232-240-258-284-306-318 lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 7-7-8-8-9-10 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið áfram í mynstri eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón. Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 18-19-18-19-18-16 sinnum = 304-316-330-360-378-382 lykkjur. Stykkið mælist ca 18-19-19-20-20-20 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 61-63-61-69-67-63 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 1-4-4-5-7-9 sinnum = 312-348-362-400-434-454 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 18-20-22-23-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið yfir fyrstu 48-53-53-59-66-70 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-73-77-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-16-18-20-22 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 86-96-102-112-124-132 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 65-73-77-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-16-18-20-22 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 48-53-53-59-66-70 lykkjur (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-162-174-186-202-218 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 54-59-61-68-76-81 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 98-108-118-130-144-154 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út lykjum og fækka í hliðum. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 1½ cm millibili alls 5-5-5-5-5-5 sinnum = 186-206-220-246-276-296 lykkjur. Þegar stykkið mælist 11 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorir hlið – sjá ÚTAUKNING-4 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með ca 1 cm millibili alls 9-9-9-8-8-8 sinnum = 222-242-256-278-308-328 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20 cm (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli), aukið út um 11-12-16-21-24-25 lykkjur jafnt yfir = 233-254-272-299-332-353 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 65-73-77-85-89-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 3. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 12-12-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-85-93-103-109-113 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið mynstur eins og áður yfir miðju 27-27-27-33-33-33 lykkjur á ermi. Aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 6-9-12-14-15-15 sinnum = 65-67-69-75-79-83 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 24-23-21-20-18-17 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Aukið nú út 1-2-3-3-2-4 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni (lykkjurnar yfir A.1b eru prjónaðar eins og áður) = 66-69-72-78-81-87 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið nú A.1a yfir A.1b og yfir þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 27-26-24-23-21-20 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dancingdiamondscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.