DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Sweet Sea

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-25
DROPS Design: Mynstur bs-165
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 g litur 7219, pistasía

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Endurtakið við hin prjónamerkin (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-136-140-152-164-168 lykkjur á hringprjón 3 með Baby Alpaca Silk. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram þar til stroffið mælist ca 8-9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig:
Byrjun á umferð = mitt að aftan.
Teljið 19-23-23-26-28-29 lykkjur (hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerkið hér (= á milli bakstykkis og ermi).
Teljið 22-22-24-24-25-25 lykkjur og setjið 2. prjónamerki hér (= ermi).
Teljið 38-46-46-52-57-59 lykkjur (= framstykki) og setjið 3. prjónamerki hér.
Teljið 22-22-24-24-25-25 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki hér.
Það eru 19-23-23-26-29-30 lykkjur (= hálft bakstykki) fram að byrjun á umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 26-28-32-36-40-44 sinnum = 328-360-396-440-484-520 lykkjur í umferð.

Prjónið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls.
Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar, byrjið mitt að aftan og prjónið að 2-1-1-1-3-5 lykkjum fram hjá 1. prjónamerki (= hálft bakstykki), setjið næstu 70-76-86-94-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 7 nýjar lykkjur í hlið undir ermi. Prjónið næstu 94-104-112-126-143-157 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 70-76-86-94-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 7 nýjar lykkjur í hlið undir ermi og prjónið fram að byrjun á umferð.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. Takið prjónamerkin frá í stykkinu.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 202-222-238-266-300-328 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22-22-22-23-23-23 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 26-26-26-30-30-32 lykkjur jafnt yfir í umferð = 228-248-264-296-330-360 lykkjur.
Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm í öllum stærðum.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 70-76-86-94-99-103 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-83-93-101-106-110 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7 lykkjum sem prjónaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 12-13-16-20-21-23 sinnum = 53-57-61-61-64-64 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-34-33-31-29-28 cm frá skiptingu – eða prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 1-1-1-1-0-0 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-60-64-64 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm í öllum stærðum. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður, það er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur og að ekki sé saumuð lykkja fyrir lykkju – gerðu aðeins lengri og lausara spor.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Sea

Jolanta, United Kingdom

Sweet Sea

Kasaundra, United States

Sweet Sea

Knits_by_hilde, Belgium

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Elin Östling wrote:

Kan man ändra halskanten till en enkel kant? Varför är nästan alla era modeller med dubbelhalskant?

22.11.2023 - 15:33

DROPS Design answered:

Hej Elin, Det er trendigt med dobbelt halskant just nu, men det bestemmer du jo selv ;)

24.11.2023 - 14:22

country flag Fina wrote:

In one of the comments you have answered that the sleeves are 3/4 length but in the images the sleeves are quite long. So are the images right and the given answer to a comment wrong or how should I understand this? And if the image is showing wrong length, is it a wrong one? Quite confusing...

01.06.2023 - 19:53

DROPS Design answered:

Dear Fina, both pattern and pictures are right, check the measurements for the sleeve in the chart including yoke part + length of sleeve after dividing and adjust depending on the required length if desired. Happy knitting!

02.06.2023 - 08:28

country flag Catherine Pasutto wrote:

Je viens de finir ce modèle et je suis déçue par le résultat qui ne correspond pas du tout à la photo. Je pense que les dimensions ne correspondent pas, qu'il faut faire beaucoup plus grand que les explications, difficile quand ce n'est pas pour soi. C'est dommage car c'est un tricot assez long à réaliser, il faudrait le signaler dans les explications...

15.11.2022 - 19:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pasutto, pensez à toujours bien vérifier votre échantillon, non seulement en largeur, mais aussi en hauteur, car dans ce type de modèle, si vous n'avez pas la bonne hauteur, vous devrez compenser pour le raglan en tricotant soit davantage de rangs, soit moins de rangs entre les augmentations pour conserver les bonnes mesures du schéma. Bonne continuation!

16.11.2022 - 09:52

country flag Florine wrote:

I'm really enjoying the pattern, but I have a question about the sleeves. It says I have knit until the total length from the separation is 37cm for a size small. Right now the sleeves are much too short, too short to reach the desired length with the 4cm edge I think it needs about 10cm more. Now I'm wondering if I should continue knitting to reach the desired length or of the work will grow sufficiently. I am using the recommended yarn with a slightly tighter tension, can you help me?

16.10.2022 - 09:43

DROPS Design answered:

Dear Florine, these sleeves are shorter than usual sleeves (almost 3/4 sleeves). The total length of the sleeve is 41 cm (37 + the 4cm edge). So work without decreases until you reach your desired final length (regardless of it being 37 or more cm) minus the 4 cm edge. Happy knitting!

17.10.2022 - 00:32

country flag Catherine Pasutto wrote:

Merci beaucoup !!! Je pense que je vais m'en sortir avec ces bonnes explications, en fait j'étais perdue car je croyais que le 1er fil marqueur était au demi-dos donc je ne comprenais pas pourquoi ce n'était pas les mailles de la manche qu'il fallait mettre en attente... Merci !!!

04.07.2022 - 10:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pasutto, effectivement, ce tour commence au milieu dos, jusqu'à 2-1-1-1-3-5 mailles après le 1er fil marqueur, mais ensuite la technique sera la même que dans la leçon indiquée. Bonne continuation!

04.07.2022 - 16:23

country flag Catherine Pasutto wrote:

Bonsoir, je ne comprends pas ce que signifie "monter 7mailles sur le côté sous la manche" Est-ce que je dois monter ces 7 mailles sur une nouvelle aiguille ou sur un nouvel arrêt de mailles ou à la suite des 70 mailles en attente ? Merci beaucoup pour votre aide !

02.07.2022 - 23:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pasutto, cette leçon montre comment tricoter un pull de haut en bas, vous retrouverez à partir de la photo 9 comment on va diviser l'ouvrage en glissant les mailles de la manche en attente (photos 10 et 13) et comment monter les mailles sous la manche (photos 11 et 14) et comment continuer en rond (photos 15 et 16). En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!

04.07.2022 - 08:03

country flag Catherine Pasutto wrote:

Merci beaucoup, en fait je n'avais pas compris ce qu'était un jeté torse, maintenant que je les fais les trous sont nettement plus petits, c'est un joli modèle !

17.03.2022 - 18:35

country flag Catherine Pasutto wrote:

Bonjour, je n'arrive pas à faire les emmanchures raglan sans qu'il y ait des trous, pouvez vous me dire comment faire ? Merci beaucoup

13.03.2022 - 08:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pasutto, il peut rester quelques petits trous quand on augmente avec des jetés, même en les tricotant torse. Pour qu'ils ne soient pas trop grands, essayez de ne pas faire des jetés trop lâches, et si vous ne voulez vraiment pas de trous, utilisez une autre technique, cf par exemple cette vidéo. Bon tricot!

14.03.2022 - 11:02

country flag Martha Laila Gjøvik wrote:

Er det ikke beregnet at genseren skal bli lavere i halsen foran. Bildet av modellen viser at den er lavere foran eller i nakken. Lengden på genseren er også lengre på bildet eller det oppskriften viser.Er det feil, modell på bildet i forhold til oppskriften,?

03.03.2022 - 10:24

DROPS Design answered:

Hei Martha. Denne genseren har ingen beskrivelse på forhøyning bak og kan ikke se at bildet viser det, men modellen sitter litt foroverlendt (kanskje det du reagerer på?) I oppskriften står det at i f.eks str. S at lengden på genseren er ca 52 cm, det samme målet som står i oppskriften. Så ingen feil bilde til oppskriften. mvh DROPS Design

07.03.2022 - 14:02

country flag Tina62 wrote:

Wie bekomme ich ein ebenmäßiges Strickbild hin, muss der Pulli vielleicht erst gewaschen werden und die Maschen sehen dann nach dem ziehen alle gleich aus oder hat jemand eine Idee?

01.02.2022 - 06:25

DROPS Design answered:

Liebe Tina62, also ja stimmt, nach dem Waschen werden die Maschen mehr regelmäßig aussehen. Bitte beachten, die Hinweise auf der Banderolle richtig folgen - hier lesen Sie noch mehr. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2022 - 09:07