DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dancing Diamonds

Prjónuð peysa úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S – XXXL.

DROPS 221-7
DROPS Design: Mynstur bm-086
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 24, ljós himinblár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 14 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 2,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 3-3-3-4-4-4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4-4-4-5-5-5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4-4-4-6-6-6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. eða 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 114-114-126-140-146-146 lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, M og L:
Prjónið * 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið * yfir næstu 12-12-15 lykkjur, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (= ½ bakstykki), prjónið A.1a (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 27-27-27 lykkjur (= hægri öxl), prjónið 1 lykkju brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 27-27-33 lykkjur, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið (= framstykki), prjónið A.1a yfir næstu 27-27-27 lykkjur (= vinstri öxl), prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 15-15-18 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff hringinn í 2 cm (A.1a er endurtekið á hæðina).

Stærð XL, XXL og XXXL:
Prjónið * 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið * yfir næstu 18-18-18 lykkjur, 1 lykkja slétt (= ½ bakstykki), prjónið A.1a (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 33-33-33 lykkjur (= hægri öxl), * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 36-39-39 lykkjur, 1 lykkja slétt, (= framstykki), prjónið A.1a yfir næstu 33-33-33 lykkjur (= vinstri öxl), prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 18-21-21 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff hringinn í 2 cm (A.1a er endurtekið á hæðina).

Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 14-14-17-19-19-19 lykkjur og aukið jafnframt út 5-7-5-7-9-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið mynstur A.1a eins og áður yfir næstu 27-27-27-33-33-33 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-30-36-37-40-40 lykkjur og aukið jafnframt út 10-14-10-15-18-18 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur A.1a eins og áður yfir næstu 27-27-27-33-33-33 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 16-16-19-18-21-21 lykkjur og aukið jafnframt út 5-7-5-8-9-9 lykkjur jafnt yfir = 134-142-146-170-182-182 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.

BERUSTYKKI:
Setjið eitt prjónamerki eftir 66-70-72-86-90-90 lykkjur (= ca mitt að framan) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja.
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti.
Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 19-21-22-26-28-28 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Annað prjónamerki: Teljið 27-27-27-33-33-33 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 40-44-46-52-58-58 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 27-27-27-33-33-33 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Nú eru 21-23-24-26-30-30 lykkjur eftir fyrir ½ bakstykki á eftir 4. prjónamerki.
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu. Það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar!
Stykkið er prjónað áfram í A.1b yfir A.1a, og sléttprjóni á framstykki og bakstykki.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnframt út í hverri umferð alls 22-22-27-27-29-32 sinnum = 222-230-254-278-298-310 lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 7-7-8-8-9-10 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Prjónið áfram í mynstri eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-19-18-19-18-16 sinnum = 294-306-326-354-370-374 lykkjur.
Stykkið mælist ca 18-19-19-20-20-20 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 61-63-61-69-67-63 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2.
Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 1-4-4-5-7-9 sinnum = 302-338-358-394-426-446 lykkjur.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 18-20-22-23-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið yfir fyrstu 42-47-50-56-61-65 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 65-73-77-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-16-18-20-22 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 86-96-102-112-124-132 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-73-77-85-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-16-18-20-22 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 44-49-52-56-63-67 lykkjur (= ½ bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 196-216-236-260-288-308 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýju lykkjuna sem fitjuð var upp í hlið undir ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 98-108-118-130-144-154 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki og framstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út lykjum og fækka í hliðum.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 1½ cm millibili alls 5-5-5-5-5-5 sinnum = 176-196-216-240-268-288 lykkjur. Þegar stykkið mælist 11 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorir hlið – sjá ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út í hverjum cm alls 9-9-9-8-8-8 sinnum = 212-232-252-272-300-320 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli), aukið út um 13-14-15-16-18-19 lykkjur jafnt yfir = 225-246-267-288-318-339 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 65-73-77-85-89-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 3. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 12-12-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-85-93-103-109-113 lykkjur.
Setjið prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Prjónið mynstur eins og áður yfir miðju 27-27-27-33-33-33 lykkjur á ermi. Aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 6-9-12-14-15-15 sinnum = 65-67-69-75-79-83 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 24-23-21-20-18-17 cm frá skiptingu, aukið út 2-3-4-4-3-5 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni (lykkjur yfir A.1b eru prjónaðar eins og áður) = 67-70-73-79-82-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið nú A.1a yfir A.1b og yfir þær lykkjur sem eru eftir er prjónaðar í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 27-26-24-23-21-20 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = útaukning á axlarsæti
symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Daniela wrote:

Hallo liebes Team, es gibt in der Anleitung einen Rechenfehler. Schlage ich für die Halsblende 126 Maschen bei Größe L an und verteile die nachher auf je 27 Maschen für die Ärmel, 33 Maschen für das Vorderteil und 15+18 Maschen für je ein halbes Rückenteil, sind das 120 Maschen. liebe Grüße

24.02.2024 - 05:17

country flag Conni wrote:

Man kan ikke vælge alternativt garn, det virker ikke har prøvet i flere dage Mvh Conni

07.10.2023 - 14:54

country flag Mme Soares wrote:

Que veut dire répéter au dessus des 12 premières mailles pour les tailles S M L il est écrit 1 m endroit 2 m envers répéter de *-* au dessus des 12-12-15 premières mailles

25.05.2023 - 20:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Soares, vous tricotez 4 fois *1 m endroit, 2 m envers*, soit 12 mailles au total en côtes 1m end/2 m env. Bon tricot!

26.05.2023 - 10:03

country flag Luísa Seabra wrote:

Sorry I´m wrong. It´s like you say.

29.04.2022 - 21:51

country flag Luísa Sofia Seabra wrote:

The instructions translation are wrong. In english: BEFORE THE MARKERS: The new stitch twists to the right. Use the left needle to pick up the back strand between 2 stitches from the previous round and knit in the front loop. AFTER THE MARKERS: The new stitch twists to the left. Use the left needle to pick up the front strand between 2 stitches from the previous round and knit in the back loop. and in portuguese is the wrong way what should be before the marker is after

29.04.2022 - 21:21

country flag Alcy wrote:

Hola, no entiendo el término 1 hebra entre 2 puntos. No sé cómo se tejen o qué se les hace a los puntos antes y después de la lazada que se crea. No entiendo tampoco el diagrama porque evidentemente la lazada abarca 2 puntos y no sé cómo hacerlo. Gracias!!

04.03.2022 - 00:03

DROPS Design answered:

Hola Alcy, la lazada se trabaja entre 2 puntos, por eso se muestra entre 2 símbolos del diagrama (no abarca los 2 puntos). Por ejemplo, cuando se tiene un cuadrado blanco, símbolo de hebra y cuadrado blanco, significa 1 derecho, hacer 1 lazada y 1 derecho (por el lado derecho). Los puntos antes y después de la lazada pueden ser de diferentes tipos: 2 puntos juntos, derechos o reveses...

06.03.2022 - 12:41

country flag Louise wrote:

Jeg er nået til udtagning af bærestykke og skal flytte de fire mærketråde. Jeg har 306 masker i hele arbejdet, som jeg skal have, men jeg får 65 masker på hver af mit ærme, hvad har jeg gjort forkert?

07.02.2022 - 16:05

DROPS Design answered:

Hej Louise, det lyder til at det stemmer, hvis du har 1 mærke i 1.maske og 1 mærke i 65. maske, så har du 63 masker imellem maskerne med mærker i :)

09.02.2022 - 11:12

country flag Anne wrote:

In de Nederlandse versie lijkt de tip voor het meerderen-2 verkeerd vertaald? Bij het meerderen VOOR de markeerdraad moet de draad van achteren opgenomen worden, en bij het meerderen NA de markeerdraad juist van voren. (Dit staat in de Noorse, Engelse en Duitse versie.)

12.10.2021 - 23:34

country flag Theresa wrote:

Hallo sind die beiden Videos zu der sattelschulter Zunahme und der Ärmel zunahme das selbe ? Ich erkenne da keinen Unterschied wie sie die Maschen aufnimmt . Ich hänge gerade an der Ärmel Zunahme und komme überhaupt nicht weiter weil ich nicht weis wie ich das aufnehmen muss im Vergleich zu zuvor bei der Schulter Zunahme.

05.09.2021 - 07:51

DROPS Design answered:

Liebe Theresa, wie man die Maschen aufnimmt wird hier das selbe sein, der Unterschied wird nur wo diese Maschen zugenommen werden; beim Sattelschulter haben Sie vor 1./3. Mark. und nach 2. und 4. Mark zugenommen, jetzt nehmen Sie nach 1. und 3. und vor 2. und 4. Markierungen. Kann das Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!

06.09.2021 - 07:36

country flag Ruth Leibbrandt wrote:

Is this a front button down Cardigan. Also is it waist length and can it be easily adjusted to be a little longer? I would like to knit it with your yarn but I need to have an answer to these two questions. I saw one picture where it seemed front buttoning but on another it did not seem like it. My eyes are not so good any more!! Many thanks.

12.07.2021 - 22:09

DROPS Design answered:

Dear Ruth, this pattern is a sweater (ppullover. There is a cardigan version of it HERE. Since this is a top down sweater / cardigan, you can easily adjust the length by adding some rows at the bottom. Happy Stitching!

13.07.2021 - 01:52