Sand skrifaði:
Je conseille à celles (ou ceux :) qui souhaitent tricoter Sky associé à un autre fil de ne pas zapper l'échantillon, le mien est toujours plus petit que celui du modèle, alors que je tricote assez souple et n'ai pas de différence notable d'habitude avec d'autres fils. Curieux...
21.06.2021 - 14:33
Sand skrifaði:
Je conseille à celles (ou ceux :) qui souhaitent tricoter Sky associé à un autre fil de ne pas zapper l'échantillon, le mien est toujours plus petit que celui du modèle, alors que je tricote assez souple et n'ai pas de différence notable d'habitude avec d'autres fils. Curieux...
21.06.2021 - 14:32
Lise-Lotte skrifaði:
Hej Jeg sidder og kigger alternativer til sky garnet, men er i tvivl om jeg skal kigge på løbelængden eller garn gruppe. Vi har kigget på drops Puna, men der er rigtig stor forskel på løbelængden
23.05.2021 - 16:44DROPS Design svaraði:
Hej Lise-Lotte. Se på andra garn i garngrupp B om du vill ha ett alternativ till DROPS Sky (garn i samma garngrupp har samma stickfasthet). Sky är kabelspunnet och därför lättare än t.ex. Puna, så du behöver fler nystan om du byter till Puna. Läs gärna mer om detta här. Mvh DROPS Design
24.05.2021 - 08:00
Anne-Grete Blach skrifaði:
Hej. Er strikkefastheden virkelig korrekt i denne opskrift? Jeg har været nødt til at gå op til pinde nr 8 og kan derefter få maskeantallet til at passe med 15 masker til 10 cm med 1 tråd Drops Sky og 1 tråd Drops Kid-Silk, men antal pinde på 17 til 10 cm kan jeg langtfra nå. Ved 17 pinde får jeg ca 8 cm??? Normalt skal jeg 1/2 pinde op for at nå den korrekte stikkefærdighed - men hele 2 1/2 har jeg aldrig været ude i. Mvh Anne-Grete
16.05.2021 - 11:03DROPS Design svaraði:
Hej Anne-Grethe, jo strikkefastheden er korrekt, vi har tidligere strikket denne kombination med både 14 og 15 masker på 10 cm. Prøv at strikke lidt løsere i glatstrik, så skal du nok få det til at stemme :)
17.05.2021 - 10:56
M-L Gustafsson skrifaði:
Mitt barnbarn vill gärna ha den här modellen, men jag vill inte sticka i ett så dyrt garn och framförallt inte ett med handtvätt! Kan ni ge mig ett förslag på ett alternativ? Inte akryl, bara:)
13.04.2021 - 17:35DROPS Design svaraði:
Hej, du kan testa vår konverterare. Välj Sky, välj gram til barnets storlek, välj 1 tråd och se vilka förslag som kommer upp, sedan gör du samma med Kid-Silk. Det blir ju såklart inte samma textur som denna modellen när du byter ut garnet!
14.04.2021 - 15:14
Sara Metti skrifaði:
Buongiorno, si puo' usare anche solo il filato sky o non e' consigliato? perche' il kid silk a me fa prurito e ho paura anche a mia figlia...altrimenti con cosa potrei sostituirlo? air?
07.04.2021 - 18:32DROPS Design svaraði:
Buonasera Sara, può sostituire Kid-Silk con un filato del grupo A, come Flora, Alpaca, BabyAlpaca Silk. Buon lavoro!
07.04.2021 - 19:05
Rosalie J Smith skrifaði:
My 10 yr old great-granddaughter will love it.
27.03.2021 - 16:13
Rosalie J Smith skrifaði:
Love this pattern, my 10 yr old great-granddaughter will love it.
27.03.2021 - 16:12
Else-Marie Vig skrifaði:
Vedr. halskant: skal de to halskantstyller sættes på rundpinden ved siden af hinanden eller skal der slås masker op imellem de to halskantstykket?
26.03.2021 - 21:46DROPS Design svaraði:
Hei Else-Marie. Det legges opp nye masker mellom disse 2 halskantene. mvh DROPS design
12.04.2021 - 12:12
Martje Veenstra skrifaði:
Is hiervan ook een vergelijkbaar patroon aanwezig voor een vrouw met maat M?
23.03.2021 - 16:15DROPS Design svaraði:
Dag Martje,
Helaas is er geen identieke versie voor dames, maar misschien kun je iets vergelijkbaars vinden tussen de vesten voor dames.
26.03.2021 - 16:24
Feeling Whimsy#feelingwhimsycardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og vösum. Stærð 3 til 14 ára.
DROPS Baby & Children 38-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 10. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo að ekki myndist gat. Lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út alls 8 lykkjur í hverri útaukningsumferð. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 5 kantlykkjur að framan og 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út alls 2 lykkjur í hverri útaukningsumferð (1 lykkja í hvorri hlið). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónaðir 2 stakir vasar, þeir eru síðar settir í stykkið. Það eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsi. Þeir eru settir inn á hringprjóninn áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskriftinni (kantar í hálsmáli eru síðar saumaðir saman mitt að aftan og síðan saumaðir við hálsmál aftan í hnakka). Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður og það eru prjónaðir vasar. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. VASAR (fyrri helmingur): Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á sokkaprjóna/hringprjón 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm fellið kantlykkjur af = 20-20-22-22-24-24 lykkjur. Setjið lykkjurnar á þráð. Prjónið annan vasa alveg eins. Geymið vasana og prjónið berustykkið. Seinni helmingur á þessum 2 vösum er prjónaður þegar peysan hefur verið prjónuð til loka og frágangur er gerður í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 5,5 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og prjónið garðaprjón fram og til baka (1. umferð = rétta). Prjónið garðaprjón í 8-8-8-10-11-11 cm. Klippið þráðinn frá og geymið kant í hálsi til hliðar. Prjónið annan kant í hálsmáli á sama hátt. Setjið lykkjur á hringprjón 5,5, ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 36-36-36-46-48-48 lykkjur á sama hringprjón strax eftir kant í hálsmáli og prjónið síðan sléttar lykkjur frá réttu yfir 5 lykkjur frá hinum kanti í hálsmáli = 46-46-46-56-58-58 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir allar lykkjur. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: LESTU ALLAN KAFLANN UM BERUSTYKKI ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR AÐ PRJÓNA! Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 7 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 8-8-8-12-12-12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-18-20-20 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-12-12-12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 7 lykkjur eftir í öllum stærðum á eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 14-16-16-17-17-18 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. JAFNFRAMT í 4. umferð (þ.e.a.s. í 2. umferð frá réttu) er aukið út fyrir V-HÁLSMÁL í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan, þannig: Aukið út í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-8-8 sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og eftir alla útaukningu fyrir v-hálsmáli mælist stykkið ca 16-19-19-20-20-21 cm frá uppfitjunarkanti og það eru 170-186-188-206-210-218 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið 27-29-30-31-32-33 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 36-40-40-46-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 44-48-48-52-54-56 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 36-40-40-46-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 27-29-30-31-32-33 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-124-130-134-142 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 13-14-18-18-21-23 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, setjið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð (seinni helmingurinn af vasanum er prjónaður hér, aðeins síðar), prjónið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði á öðrum vasanum (passið uppá að prjónað sé áfram frá réttu á vasanum), prjónið þar til 31-31-33-35-37-37 lykkjur eru eftir í umferð, setjið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð (seinni helmingurinn af vasanum er prjónaður hér, aðeins síðar), prjónið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði á hinum vasanum (passið uppá að prjónað sé áfram frá réttu á vasanum) og prjónið síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjur í umferð. Prjónið áfram í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 21-22-26-28-31-33 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 120-128-136-144-148-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 46-50-54-58-61-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-40-40-46-46-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-46-48-54-54-58 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3½-3-3½-3½ cm millibili alls 6-7-7-10-9-10 sinnum = 30-32-34-34-36-38 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 23-25-30-33-38-42 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-8-6-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 29-31-36-39-44-48 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka á hringprjóna. Setjið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði frá hægra framstykki á prjón 5,5. Í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 22-22-24-24-26-26 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist 8-8-8-10-10-10 cm, fellið laust af. Prjónið vasa á vinstra framstykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið vasana saman innan við 1 kantlykkju í kringum allan vasann. Festið síðan vasana að innanverðu á peysuna með nokkrum smáum, fínum sporum í hvert af 2 neðstu hornunum (þetta á ekki að sjást frá réttu á peysunni). Saumið kant í hálsmáli saman mitt að aftan þannig að saumurinn snúi inn. Strekkið aðeins á kantinum og saumið við hálsmál aftan í hnakka. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #feelingwhimsycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.