Marylou Kaly skrifaði:
Bonjour; Je ne pense pas que TOUTE LA SUISSE par UNIQUEMENT ALLEMAND, donc pensez qu'il y a toute la Suisse Romande qui parle Français( dont je fait partie) En Suisse nous parlons 4 langues / Français-Allemand-Italien / Romanche... Voilà maintenant vous savez alors de grâce n'oubliez pas le Français .....
18.08.2021 - 10:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Marylou, nous n'oublions pas :) Retrouvez la liste de tous les magasins en Suisse ici. Bon tricot!
18.08.2021 - 14:42
Sandra skrifaði:
Leuk patroon, maar hoe brei ik de vermeerderde steken mee bij patroon 2?
26.06.2021 - 18:47DROPS Design svaraði:
Dag Sandra,
Als je klaar bent met A.1 brei je 1 naald recht en meerder je steken in jouw maat zoals aangegeven. Daarna ga je verder met A.2 in de rondte. Als het goed is passen de herhalingen nu precies op het aantal steken. M.a.w. je kunt gewoon het telpatroon volgen.
28.06.2021 - 12:48
Sabine Decke skrifaði:
Welche Größe trägt das Kind auf dem Bild?
22.06.2021 - 18:26DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Decke, das Kleid im Foto sollte eine Größe 12/18 Monate sein. Viel Spaß beim stricken!
23.06.2021 - 08:17
Heidrun skrifaði:
In der Anleitung muss im Diagramm A.2a und später A.3a jeweils am Rundenbeginn zwei Maschen rechts zusammen gestrickt wo nehme ich im Muster die zweite Masche zu damit ich in der dritten Runde wieder zwei Maschen rechts zusammen Stricken kann ?
08.06.2021 - 09:49DROPS Design svaraði:
Liebe Heidrun, wenn man A.2a /A.3a am Anfang der Runde strickt, wird man die 2 ersten Maschen der Runde zusammen rechts stricken, dann A.2b (= 12 M)/A.3b (= 14M) wiederholen und Runde mit A.2c/A.3c enden. Viel Spaß beim stricken!
08.06.2021 - 11:35
Sigurveig Hreinsdóttir skrifaði:
Finnst munstrið ekki stemma við lykkjufjölda, það fækkar um 6 lykkjur í hverjum hring og það gengur ekki upp.
04.06.2021 - 18:03
Eline Schön skrifaði:
Hej! Jag stickar just nu DROPS Baby 38-2 och har stött på problem. Jag stickar just nu fram och bakstycke för strlk 80/86 och har kommit till mönster A2.. då har jag 145 maskor på min rundsticka och skall sticka A2a och A2b över 132 maskor totalt 11 gånger? Vad innebär detta? Vad gör jag med de resterande 13 maskorna och ska jag inte göra A2c förens jag gjort 11 vändor av A2a & A2b. Är helt snurrig...
18.05.2021 - 16:05DROPS Design svaraði:
Hei Eline. Du har 145 masker, så strikker du A.2a 1 gang (= 2 masker), deretter strikker du A.2b 11 ganger (= 132 masker). Du har nå 11 masker igjen som du strikker A.2c over (2 + 132 +11 = 145 masker). mvh DROPS design
19.05.2021 - 11:05
Nicole skrifaði:
Muss ich die Umschläge auch rechts stricken? Ich finde, dass ergibt riesengroße Löcher , zumindest bei mir
14.04.2021 - 00:35DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, die Raglanzunahmen werden bei den Rückreihen links verschränkt gestrickt, um Löcher zu vermeiden; bei dem Lochmuster (Diagrammen) werden sie rechts gestrickt, damit Löcher entstehen. Viel Spaß beim stricken!
14.04.2021 - 07:35
Vigdis Johansen skrifaði:
Har dere drops katalog 38 baby kan jeg få kjøpe en
13.04.2021 - 09:42
Vigdis Johansen skrifaði:
Finnes katalog 38 baby
12.04.2021 - 16:42DROPS Design svaraði:
Hej Vigdis. DROPS Baby & Children 38 innehåller både barn och baby oppskrifter. Mvh DROPS Design
13.04.2021 - 07:30
Sonja Wietasch skrifaði:
Little Miss Daisy ist das Muster Runden übergreifend da die Maschenzahl mit Muster nicht übereinstimmt
11.04.2021 - 20:20DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wietasch, die Diagramme A.2-A.3-A.4 werden alle so in Runden gestrickt: mi a Runden anfangen, b wiederholen und Runden mt c enden - siehe schriftliche Erklärung für jede Größe. Viel Spaß beim stricken!
12.04.2021 - 11:04
Little Miss Daisy#littlemissdaisydress |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað með laskalínu, ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby & Children 38-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu. Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við lykkju með prjónamerki í. Aukið út þannig: Byrjið strax á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að aftan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: 0/1: 2, 5 og 8 cm. 1/3: 2, 5 og 8 cm. 6/9: 2, 5 og 8 cm. 12/18: 2, 6 og 10 cm. 2: 2, 6 og 10 cm. 3/4: 2, 6 og 10 cm. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Prjónað er fram og til baka frá miðju að aftan þar til kantur að aftan hefur verið prjónaður til loka, síðan er stykkið prjónað áfram í hring. HÁLSMÁL: Fitjið upp 62-66-70-74 (78-84) lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (byrjið mitt að aftan – ATH: Prjónið EKKI þegar prjónamerkin eru sett): Hoppið yfir fyrstu 11-12-12-13 (13-14) lykkjur (= hægra bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 9-9-11-11 (13-14) lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 18-20-20-22 (22-24) lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 9-9-11-11 (13-14) lykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu lykkju, nú eru 11-12-12-13 (13-14) lykkjur á prjóninn á eftir síðasta prjónamerki (= vinstra framstykki). BERUSTYKKI: LESTU ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón fram og til baka frá miðju að aftan, en 3 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur fyrir tölur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út í hverri umferð frá réttu alls 11-13-13-14 (16-17) sinnum = 150-170-174-186 (206-220) lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur fyrir tölukant í hvorri hlið í garðaprjóni þar til stykkið mælist 10-11-11-12 (13-14) cm. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 23-26-26-28 (32-34) lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 32-36-38-40 (42-44) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8 (8-8) nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið næstu 40-46-46-50 (58-64) lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 32-36-38-40 (42-44) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8 (8-8) nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 23-26-26-28 (32-34) lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað áfram hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 98-110-114-122 (138-148) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Byrjið mitt að aftan, fitjið upp 3 kantlykkjur að framan frá vinstra bakstykki undir 3 kantlykkjum frá hægra bakstykki (þannig að kanturinn með hnappagati liggi efst). Prjónið 1 umferð slétt hringinn yfir allar lykkjur og prjónið JAFNFRAMT lykkjur frá tveimur köntunum slétt saman 2 og 2 = 95-107-111-119 (135-145) lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn í 1-2-2-3 (3-3) cm. Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 96-108-112-120 (136-144) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið mynstur hringinn eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 13-13-21-25 (21-25) lykkjur jafnt yfir = 109-121-133-145 (157-169) lykkjur. Prjónið síðan mynstur hringinn þannig: Prjónið A.2a (= 2 lykkjur), A.2b (= 12 lykkjur) yfir 96-108-120-132 (144-156) lykkjur (= alls 8-9-10-11 (12-13) sinnum) og endið með A.2c (= 11 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hafa verið auknar út 2 lykkjur í hverri mynstureiningu með gataumferð = 127-141-155-169 (183-197) lykkjur. Prjónið síðan mynstur eins og áður, en nú er prjónað A.3 yfir A.2 þannig: Prjónið A.3a (= 2 lykkjur), A.3b (= 14 lykkjur) yfir 112-126-140-154 (168-182) lykkjur (= alls 8-9-10-11 (12-13) sinnum) og endið með A.3c (= 13 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1-1-1-1 (2-2) sinnum á hæðina (e.t.v. að óskaðri lengd), prjónið A.4 yfir A.3 þannig: Prjónið A.4a (= 1 lykkja), A.4b (= 14 lykkjur) yfir 112-126-140-154 (168-182) lykkjur (= alls 8-9-10-11 (12-13) sinnum) og endið með A.4c (= 14 lykkjur). Eftir A.4 eru 145-161-177-193 (209-225) lykkjur í umferð. Prjónið nú A.5 þannig: Prjónið A.5a (= 1 lykkja), A.5b (= 16 lykkjur) yfir 128-144-160-176 (192-208) lykkjur (= alls 8-9-10-11 (12-13) sinnum) og endið með A.5c (= 16 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað í 3-3-4-7 (3-4) cm, prjónið 4 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur (ATH: Í 5. umferð í A.1 er síðasta lykkjan í umferð prjónuð slétt). Fellið af þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Kjóllinn mælist ca 37-39-41-46 (51-53) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 32-36-38-40 (42-44) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8 (8-8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-46-48 (50-52) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= byrjun á umferð og mitt undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1½ cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 2 sinnum = 34-38-42-44 (46-48) lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, áður en fellt er af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. PICOTKANTUR: Heklið picotkant neðst í kringum báðar ermar með heklunál 3 þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur á ermi, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-*, en endið umferð með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju). Heklið alveg eins picotkant meðfram kanti í hálsmáli í skiptinguna á milli kants í garðaprjóni og sléttprjóni á berustykki – ATH: Kanturinn er heklaður ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Saumið 3 tölur í vinstri tölukant að aftan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlemissdaisydress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.