DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 946.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

My Fairy Booties

Prjónaðir sokkar með gatamynstri fyrir skírn eða nafnagjöf úr DROPS Cotton Merino. Stærð 15-23

DROPS Baby 29-2
DROPS Design: Mynstur cm-002-by
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: 15/17 - 18/19 - 20/21 - 22/23
Lengd á fót: 10-11-12-13 cm

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-50-100 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 34 umferðir með gatamynstri verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir picotkant.
FYLGIHLUTIR: Ca 1 meter af silkiborða (ca 15 mm breiður).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 946.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 42 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 37 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A (= 2 lykkjur), A.1B (= 12 lykkjur) alls 2 sinnum í öllum stærðum og endið með A.1 (= 11 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1-1-1-2 sinnum á hæðina er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 5-5-1-1 lykkjur jafnt yfir = 32-32-36-36 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðna og 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn (= gataumferð fyrir silkiborða). Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan 1 umferð þar sem fækkað er um 2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 30-32-34-36 lykkjur. Klippið frá.

FÓTUR:
Setjið fyrstu 11-12-12-13 lykkjur í byrjun umferðar og síðustu 11-12-12-13 lykkjur í lok umferðar á þráð = 8-8-10-10 lykkjur eftir á prjóni (= miðja ofan á fæti). Prjónið 20-20-24-28 umferðir í garðaprjóni fram og til baka yfir þessar lykkjur (= ca 4-4-5-6 cm í garðaprjóni). Klippið frá. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 11-12-12-13 lykkjur af þræði í byrjun umferðar, prjónið upp 1 lykkju í hverja rönd með garðaprjóni meðfram hlið á miðjustykki (= 10-10-12-14 lykkjur), prjónið 8-8-10-10 lykkjur framan á fæti, prjónið upp 1 lykkju í hverja rönd með garðaprjóni meðfram hinni hliðinni á miðjustykki (= 10-10-12-14 lykkjur) og prjónið 11-12-12-13 lykkjur af þræði í lok umferðar = 50-52-58-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 8-8-10-10 miðjulykkjur að framan. Prjónið síðan garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í 1. umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin að innanverðu við 2 prjónamerkin þannig að það verða 10-10-12-12 lykkjur á miðjustykki = 52-54-60-66 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 3-3½-4-5 cm frá prjónamerki að framan (endið eftir eina umferð brugðið), prjónið áfram þannig:
UMFERÐ 1: 3 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 14-15-17-20 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt saman, 6-6-8-8 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman og endið með 3 lykkjur slétt (= 8 lykkjur færri og 44-46-52-58 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið.
UMFERÐ 3. 2 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 12-13-15-18 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt saman, 4-4-6-6 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman og endið með 2 lykkjum slétt (= 8 lykkjur færri og 36-38-44-50 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið.
UMFERÐ 5: 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 10-11-13-16 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt saman, 2-2-4-4 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt (= 8 lykkjur færri og 28-30-36-42 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 6: Prjónið brugðið.
Endið hér í stærð 15/17 + 18/19.

STÆRÐ 20/21 + 22/23:
UMFERÐ 7: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 11-14 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt saman, 2-2 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 3 lykkjur í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 8 lykkjur færri og 28-34 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 8: Prjónið brugðið.

ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Skiptið lykkjunum niður á 2 prjóna með jafnmargar lykkjur á hvorum prjóni (= miðja undir fæti). Leggið stykkið saman tvöfalt og saumið saman á lengdina með lykkjuspori – saumið með einu spori í hverja lykkju.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

PICOTKANTUR:
Heklið kant efst á öðrum sokknum. Byrjið frá miðju að aftan og heklið með heklunál 3 þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu lofltykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur á sokknum, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, en endið eftir umferð með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju). Klippið frá og festið enda. Heklið kant á sama hátt á hinum sokknum.

SILKIBORÐI:
Klippið silkiborða í tvo alveg eins hluta. Byrjið við miðju að framan á öðrum sokknum og þræðið silkiborðann upp og niður í gegnum gataumferðina. Hnýtið slaufu við miðju að framan. Gerið alveg eins á hinum sokknum.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Mirjam wrote:

Heb nog steeds niets gehoord, neem aan vanaf middenachter?

06.10.2022 - 12:50

country flag Mirjam Goudswaard wrote:

Goeden avond, Ik ben nu bij de voet en heb 3.5 cm gebreid en heb 54 st. op de naald staan en nu moet ik gaan minderen maar waar op de naald begin je met :NAALD 1: 3 recht,1 steek recht afhalen, 2 recht samen ...... Hoor graag van jullie. Groetjes Mirjam

28.09.2022 - 21:29

country flag Pia Frensdorf wrote:

Starten på sektion A.1.C volder mig problemer. Jeg starter med 11 masker, men ender med 12. Jeg læser diagrammet sektion C således: 2 ret, slå om, 1 maske løs af - strik 1 ret - træk den løse maske over, slå om, 1 ret, slå om, 2 ret sammen, slå om, 2 ret, 1 maske løs af - strik 1 ret og træk den løse maske over. Er det korrekt? Sektion A og B kan jeg godt få til at passe.

23.05.2022 - 18:18

DROPS Design answered:

Hej Pia, A.1C tælles sammen med A.1A, det vil sige at når du tæller antal indtagninger i diagrammet, så stemmer det med at du har samme antal omslag efter hver omgang. God fornøjelse!

25.05.2022 - 13:18

country flag Berbett wrote:

Encore merci ! malgré tout je comptabilise toujours encore 2 m en trop à le fin du rang endroit en décalant les marqueurs. Je dois faire une erreur que je ne parviens pas à comprendre. Bien cordialement. Berbett

08.03.2022 - 11:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berbett, essayons autrement: 2 m ens à l'end (= A); 2m end, 1 jeté, 1 dim, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 1 dim, 1 jeté, 2 m end, 1 double diminution (= 12m = B x 2), 2 m end, 1 jeté, 1 dim, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 1 dim, 2 m end, 1 dim (= 11 m = C); au tour suivant, placez vos marqueurs: après 2 m (A), après 12 m (B) x 2; il reste 11 m (C). Bon tricot!

08.03.2022 - 21:52

country flag Berbett wrote:

Bonjour ! désolée se devoir revenir vers vous... j'ai bien compris votre réponse en décalant le marqueur de A. Mais en continuant j'ai à nouveau 13m dans le 2eim B (au lieu de 12) et 12 m dans C (au lieu de 11). Si je décale les marqueurs j'aurai 2 m en trop à la fin du rang. En tout cas un grand merci à vous pour votre patience.

08.03.2022 - 09:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berbett, la 1ère maille de B est attribuée à A = vous tricotez le 1er B sur 12 mailles (la 1ère maille du 2ème B est attribuée au 1er B), vous tricotez le 2ème B sur 12 mailles, la dernière maille du 2ème B sera la dernière maille de C = vous tricotez C sur 11 mailles, vous avez bien 2 + 12 + 12 + 11 = 37 mailles. Bon tricot!

08.03.2022 - 11:24

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Merci pour votre rapide réponse mais je comprends pas les réponses. Je pose bien les marqueurs lorsque j'ai les 37m. Ex pour A : 2 m. entre les 2marqueurs puis je diminue à la 1ere ligne du diagramme il n'en reste qu'1. Puis tour en m. endroit, 3eim ligne comment diminuer alors qu'il n'en reste qu'1 ? En B 12m. : 2m, 1 j, 2m ens., 1 j, 1 m, 1j, 2 m ens., 1 j, 2 m, 1 m glissée 2 m ens. et glissée les tricotées ens. égal 13 m (1 de trop) ? Bien cordialement. Berbett

07.03.2022 - 13:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berbett, la diminution de A va être compensée par le 1er jeté de B = autrement dit, quand vous tricotez A, tricotez: 2 m ens, 1 m end, placez votre marqueur = 2 m et continuez ainsi; vous devez avoir 12 m pour chaque B et 11 m pour C; ainsi votre nombre de mailles sera toujours juste. Dans vos 13 m de B, la 1ère de ces 13 m doit être la 2ème m de A. Bon tricot!

07.03.2022 - 20:07

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas le diagramme. Je débute avec 37 m et à la fin de la 1 ère ligne j'en ai 39. A = 2 m ens. comment tricoter à nouveau 2 m ens. alors qu'il n'en reste plus qu'1, 2 lignes plus haut. B=12m. j'en ai 13m à la fin idem C=11 j'en obtiens 12. Merci pour votre aide.

05.03.2022 - 22:25

DROPS Design answered:

Bonjour Berbett, pensez à bien faire attention au nombre de mailles pour chaque diagramme, car les mailles vont être attribuées à l'un ou l'autre diagramme, par ex; A. doit être toujours sur 2 mailles, B sur 12 et C sur 11 m. Mettez bien un marqueur après chaque rapport de sorte que vous pouvez bien contrôler votre nombre de mailles, le nombre de diminutions doit correspondre à celui des jetés (12 diminutions au total (avec 2 x B) et 12 jetés). Bon tricot!

07.03.2022 - 09:55

country flag Noomi Thomsen wrote:

D.v.s. Det er kun A.1B (=12m) som skal strikkes to gange 👍🙂

07.06.2021 - 00:03

country flag Noomi Thomsen wrote:

Der står at diagrammet er over 37 masker, men tæller vi masker i diagrammet, så er det over 39 masker ?

06.06.2021 - 22:42

country flag Mirja Hosio wrote:

Samma fråga som Marit Sandal ovan. På mönstervarv 5 går ju B och C ihop och hur skickar jag där?

06.06.2021 - 11:37

DROPS Design answered:

Hei Mirja. Mener du rad 5 eller rad 7, som Marit Sandal skrev? I rad 7 strikker du A+B+B+C. Når B er strikket 1 gang er siste maske: "ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes rett, strikk 2 rett sammen, løft den løse masken over maskene som ble strikket sammen" og første maske når B strikkes for andre gang starter med 1 kast. mvh DROPS design

07.06.2021 - 10:47