Karine skrifaði:
Kuidas peab kuduma need 10 silmust , mis on kehaosa vahel ja kuidas neid kahandada?
03.10.2022 - 13:42DROPS Design svaraði:
Tere Karine! Silmused külgedel kootakse samamoodi mustrisse, nagu ülejäänud kehaosal. Kuidas kahandada, on kirjeldatud juhendi alguses - KAHANDAMISE NIPP (külgedel ja varrukatel). Head kudumist!
27.10.2022 - 16:24
Tarja skrifaði:
Muuttaisiko paljo paidan kokoa ja lankamenekkiä jos tekisi paidan kuvion sijasta sileää neuletta?
31.07.2022 - 14:39DROPS Design svaraði:
Jos neulot kohoneuleen sijaan sileää neuletta, puserosta voi tulla hieman leveämpi/pidempi. Langanmenekin tulisi olla suunnilleen sama, lankaa voi mennä hieman vähemmän.
22.08.2022 - 17:16
Colleen Buckley skrifaði:
QUESTION. My local store printed this pattern from the internet. The problem is I cannot find the area giving the pattern for the sweater. I believe the photo is covering it. I would like to know the stitches that form the pattern in order to find the right tension. I am 90 years old and cannot get to the store for help unless I am driven. I have enough wool for two sweaters (xmas gifts) so need to begin soon. Can you Emil me the pattern equine? Thank you Colleen
10.05.2022 - 22:50DROPS Design svaraði:
Hi Colleen, The pattern, which is only 2 stitches wide, is to the right of the measurements chart at the bottom of the pattern. Happy knitting!
11.05.2022 - 07:07
Anneke skrifaði:
Ben klaar met de boord, volgende toer 2 steken gemeerderd, nu 98 steken. Of ik patroon begin averecht of met recht, ik kom op de rugzijde in het midden met 2 dezelfde steken, 2 recht of 2 averecht
25.04.2022 - 00:02DROPS Design svaraði:
Dag Anneke,
In dat geval moet je bij de laatste helft van het achterpand beginnen met een andere steek in patroon, zodat je in het midden goed uitkomt. (Eventueel even uittellen).
28.04.2022 - 09:26
Marei skrifaði:
How do I calculate how many balls of wool I will need to make this in Large size?
09.03.2022 - 03:18DROPS Design svaraði:
Hi Marei, In size L you need 700 g Drops Alaska, which is sold in 50 g balls. You therefore need 14 balls. Happy knitting!
09.03.2022 - 07:24
Flowers skrifaði:
Hvor er diagram A. 1?
28.01.2022 - 12:58DROPS Design svaraði:
Hej, det finder du nederst i opskriften til højre for måleskitsen :)
28.01.2022 - 13:13
Ellie Sims skrifaði:
I loved this pattern. But the neckline is completely different to that shown in the picture. I've just finished it and it's coming out very wide and sitting close to the edge of the shoulders. Why is this?
26.12.2021 - 12:02DROPS Design svaraði:
Dear Ellie, it may be due to your gauge being different from the one in the pattern. You would have been working more loosely, which would have made the neck wider. Happy knitting!
31.12.2021 - 19:46
Julia skrifaði:
Jaki jest rozmiar swetra ze zdjęcia?
12.12.2021 - 15:05DROPS Design svaraði:
Witaj Julio, ten rozmiar to M. Pozdrawiamy!
13.12.2021 - 08:14
Maria skrifaði:
Czy włóczka drops Alaska jest gryząca ? Czy do tego wzoru lepszą była by wloczka Drops big merino ?
04.12.2021 - 13:31DROPS Design svaraði:
Witaj Mario, to jest sprawa bardzo indywidualna. Z całą pewnością Big Merino jest łagodniejsza, ale tutaj trzeba przerabiać bardzo ścisło, aby sweterek się nie wyciągnął po praniu. Zawsze trzeba wykonać próbkę i ją uprać. Powinna być zgodna z próbką podaną we wzorze. Jeśli nie trzeba dopasować druty i wykonać próbkę ponownie. Co do Alaski - spróbuj zrobić np. czapkę na początek, zobaczysz czy poziom podgryzania jest dla Ciebie do zaakceptowania. Pozdrawiamy!
06.12.2021 - 09:07
Anna Nowak skrifaði:
Dzień dobry :-) mogłabym prosić o podpowiedź ile motkow włóczki drops Alaska potrzebowałabym na zrobienie swetra w rozmiarze L?
02.12.2021 - 09:14DROPS Design svaraði:
Witaj Aniu, na ten sweter w rozmiarze L potrzebujesz 700 g włóczki DROPS Alaska, tj. 14 motków. Pozdrawiamy!
02.12.2021 - 09:25
Budding Warmup#buddingwarmupsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með laskalínu úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 219-10 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 9,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um laskalínu): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við öll prjónamerkin (= 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð – það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur á framstykki og bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1, útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kraginn og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Kraginn er prjónaður tvöfaldur og saumaður inn í lokin. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KRAGI: Fitjið upp 80-84-92-96-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Byrjun á umferð = mitt að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, mæla á berustykkið frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 2-6-6-2-10-2 lykkjur jafnt yfir = 82-90-98-98-106-106 lykkjur – sjá ÚTAUKNING-1. Næsta umferð er prjónuð þannig (setjið prjónamerki á milli lykkja): Prjónið 12-14-16-16-18-18 lykkjur eftir mynsturteikningu A.1 (= hálft bakstykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, 14 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 2. prjónamerki, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið 25-29-33-33-37-37 lykkjur eftir mynsturteikningu A.1, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, 14 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 4. prjónamerki, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið 13-15-17-17-19-19 lykkjur eftir mynsturteikningu A.1 (= seinni helmingur af bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 19-20-22-24-26-30 sinnum = 234-250-274-290-314-346 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 19-20-22-24-26-29 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-21-23-25-27-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 34-35-39-42-47-52 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-54-58-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 69-71-79-85-95-105 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-54-58-60-62-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 35-36-40-43-48-53 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 158-162-178-194-214-234 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 10-10-10-12-12-12 nýrra lykkja undir ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram hringinn með mynstur eins og áður (passið uppá A.1 í hliðum, þannig að mynstrið haldið fallega áfram á framstykki og bakstykki). Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 9 cm millibili alls 3 sinnum = 146-150-166-182-202-222 sinnum. Þegar stykkið mælist 31-32-32-32-32-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum þar sem JAFNFRAMT er aukið út um 14-18-14-18-14-18 lykkjur jafnt yfir = 160-168-180-200-216-240 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 5 cm – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 36-37-37-37-37-36 cm frá skiptingu. ERMI: Setjið 48-54-58-60-62-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-10-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-68-72-74-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 10-10-10-12-12-12 nýrra lykkja. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-4-5-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – munið eftir ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 11-12-13-15-15-18 sinnum = 36-40-42-42-44-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-43-41-40-39-38 cm frá skiptingu, aukið út jafnt yfir 4-4-2-6-4-4 lykkjur = 40-44-44-48-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 5 cm – sjá AFFELLING! Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið kragann út að réttu. Saumið niður affellingarkantinn með smáu, fallegu spori frá röngu á peysu (passið uppá að saumurinn sjáist ekki frá réttu og að saumurinn verði ekki stífur). |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #buddingwarmupsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.