No Nonsense Cardigan by DROPS Design

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og V-hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 244-8
DROPS Design: Mynstur ai-465
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-500-550-600 g litur 19, skógargrænn

TÖLUR:
DROPS TALA NR 537: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Galdralykkja – Sjá aðferðina hér
Prjónfesta – Sjá hvernig mæla á prjónfestu og afhverju hér
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------


65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Air mix DROPS Air mix 1364.00 kr /50g
Handverkskúnst
Panta
DROPS Air uni colour DROPS Air uni colour 1364.00 kr /50g
Handverkskúnst
Panta
needles Prjónar & Heklunálar Panta
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912kr. Sjá hér.

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Aukið út á undan / eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og ermi, prjónamerkin sitja á milli þessa 2 lykkja.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð).
Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo, að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli.
Fyrsta hnappagatið er gert 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, fellið síðan af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 7-8-8½-7½-8-9 cm millibili.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.
Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar að framan í garðaprjóni. Síðan eru lykkjur fitjaðar upp á milli þessa tveggja kanta í garðaprjóni að framan fyrir öxl og hálsmál aftan í hnakka. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu og V-hálsmáli. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air.
Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, þar til kantur að framan mælist 17-17-17-19-19-19 cm, endið eftir 1 umferð garðaprjón frá röngu. Geymið stykkið.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 5 með DROPS Air.
Prjónið garðaprjón þar til kantur að framan mælist 17-17-17-19-19-19 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá réttu, en ekki klippa þráðinn frá.
Nú eru fitjaðar upp 68-68-68-74-74-74 nýjar lykkjur í lok umferðar, síðan eru prjónaðar 7 lykkjur frá hægri kanti að framan slétt = 82-82-82-88-88-88 lykkjur. Prjónið eina umferð frá röngu yfir allar lykkjur, prjónið brugðið yfir nýjar 68-68-68-74-74-74 lykkjur, haldið áfram í garðaprjóni yfir 7 lykkjur í hvorri hlið.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið, þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan.
Teljið 9 lykkjur, setjið 1. prjónamerki (prjónamerkið er sett á milli 2 lykkja), teljið 20 lykkjur, setjið 2. prjónamerki, teljið 24-24-24-30-30-30 lykkjur, setjið 3. prjónamerki, teljið 20 lykkjur, setjið 4. prjónamerki, það eru 9 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Haldið áfram með berustykki samkvæmt útskýringu að neðan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og garðaprjóni í kanti að framan, jafnframt því sem aukið er út fyrir V-hálsmáli og laskalínu eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana áður en þú heldur áfram að prjóna. Byrjið mitt að framan og frá réttu.

V-HÁLSMÁL:
Aukið út fyrir V-hálsmáli innan við kanta að framan í 4. hverri umferð alls 11-11-11-14-14-14 sinnum, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, byrjið með affellingu fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.

LASKALÍNA:
Aukið út hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma í 2. hverri umferð (hverri umferð frá réttu = útaukning með 8 lykkjum) alls 6 sinnum – lesið útskýringu að ofan.
Síðan heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) og á ermum í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu). Aukið svona út alls 18-22-26-26-30-30 sinnum á framstykkjum / bakstykki (9-11-13-13-15-15 sinnum á ermum).

STÆRÐ S, M, XL, XXL og XXL (útaukningu í stærð L er lokið):
Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermum er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 2-1-1-1-5 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú hefur verið aukið út alls 26-29-32-33-37-41 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-19-19-21-21 sinnum á ermum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 268-288-308-324-348-364 lykkjur eftir á prjóni.
Haldið áfram í sléttprjóni og með garðaprjóni í kanti að framan þar til stykkið mælist ca 24-26-29-29-33-36 cm, mælt frá uppfitjunarkanti mitt að aftan.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 46-49-52-56-60-64 lykkjur (framstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 46-49-52-56-60-64 lykkjur (framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 188-200-212-232-252-272 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með garðaprjóni í kanti að framan þar til stykkið mælist 18-18-17-19-17-16 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 19-21-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 207-221-233-255-277-299 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið eina brugðna lykkju og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 50-54-58-58-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-64-68-70-76-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 5.-3½.-2½.-2½.-2.-1½ cm alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 48-48-50-50-54-56 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls ca 36-35-33-32-29-27 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 42-41-39-38-35-33 frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman tvo lausu kantana að framan mitt að aftan og saumið kanta að framan við hálsmál aftan í hnakka.

Mynstur

diagram measurements

Vantar þig hjálp með þetta mynstur?

Takk fyrir að velja DROPS Design mynstur. Við erum stolt af því að bjóða mynstur sem eru rétt og auðveld að skilja. Öll mynstrin eru þýdd frá Norsku og þú getur alltaf skoðað upprunalega mynstrið (DROPS 244-8) til viðmiðunar og útreikninga.

Áttu erfitt með að fylgja mynstri? Sjá hér að neðan til að fá lista yfir úrræði til að hjálpa þér að klára verkefnið á skömmum tíma - eða af hverju ekki, læra eitthvað nýtt.

signature-image signature

Áttu erfitt með að fylgja mynstri? Sjá hér að neðan til að fá lista yfir úrræði til að hjálpa þér að klára verkefnið á skömmum tíma - eða af hverju ekki, læra eitthvað nýtt.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Við höfum einnig skref-fyrir-skref leiðbeiningar fyrir mismunandi aðferðir sem þú finnur hér.

1) Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

efst

2) Hvað er garnflokkur?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

efst

3) Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

efst

4) Hvernig nota ég garnreiknivélina?

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

efst

5) Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

efst

6) Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

efst

7) Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

efst

8) Hvað er endurtekning?

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

efst

9) Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

efst

10) Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

efst

11) Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

efst

12) Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

efst

13) Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

efst

14) Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

efst

15) Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

efst

16) Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

efst

17) Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

efst

18) Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

efst

19) Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

efst

20) Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

efst

21) Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

efst

22) Hvar á flíkinni er lengdin mæld?

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

efst

23) Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

efst

Hefur þú keypt DROPS garn til að gera til þetta mynstur? Þá átt þú rétt á að fá hjálp frá versluninni þar sem þú keyptir garnið. Finna lista yfir DROPS verlsanir hér!
Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga. Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Liv-Marit Strøm Pedersen wrote:

Jeg sendte et spørsmål i går om raglanfellinger og merker. Nå har begynt på nytt og løst problemet ved å forstå at de ytterste merkene IKKE var V-hals, men ermeraglan. V-halsen var ikke markert med merker!

21.09.2023 - 08:03

DROPS Design answered:

Hej igen, flot at du selv fandt ud af det - god fornøjelse!

26.09.2023 kl. 15:17

country flag Liv-Marit Strøm Pedersen wrote:

Jeg har delt inn med antall merker i henhold til oppskriften. Men forstår ikke hvordan den er delt inn i raglan forstykke/bakstykke og ermeraglan. To av merkene er V-hals og da er det bare to merker igjen. Jeg får ikke dette til å stemme... Det skal vel være fire raglanøkninger på bærestykket? Hos meg er det bare to!

20.09.2023 - 14:07

DROPS Design answered:

Hej Liv-Marit, de 4 mærker er til raglan. Når du tager ud til V-hals gør du det indenfor stolperne i hver side (ikke ved mærkerne) :)

26.09.2023 kl. 15:06

country flag Pia wrote:

Hej! Vill gärna sticka denna kofta med 2 trådar i garngrupp A och A, tex alpaca och mohair. Hur mkt garn ska jag då beställa i stl L? Mycket tacksam för svar

19.09.2023 - 09:41

DROPS Design answered:

Hej Pia. Du kan använda vår garnkalkylator för att beräkna hur mycket garn det går åt om du vill byta garn. I detta fall går det år 9 nystan Alpaca och 7 nystan Kid silk. Mvh DROPS Design

19.09.2023 kl. 12:12

country flag Vicki wrote:

Some more questions. 1. Once the bands are both attached, are the bands at a right angle to the stitches in between? 2. Are there two stitches between the raglan increases? After setting markers, do I increase after stitch 9 , then knit two stitches and increase again? 3. Do I start row 1 with increasing both the raglan and the v-neck? Thanks so much, Vicki

14.09.2023 - 18:55

DROPS Design answered:

Dear Vicki, in this video we show a similar kind of jacket (except that the bands are worked with short rows as there are any for this jacket), and then at th end of video, we cast on stitches for sleeves and neck and the other band - we also show some rows of the raglan. Hope it can help you. Increase for raglan before/after 2 raglan stitches with the marker thread in between - see RAGLAN - start increasing for V-neck and Raglan at the same time, but increase for raglan first on every other row while increase for V-neck on every 4th row. Happy knitting!

15.09.2023 kl. 08:22

country flag Merlinde Zoet wrote:

Ik begrijp de uitleg over de twee “losse” voorbiezen niet. Ik heb de rechter voorbies gebreid. Dan staat er “laat het werk rusten”. Wat betekent dat? Met een nieuwe bol de linker voorbies breien? Als ik dat doe, kan ik het stukje: “brei dan de rechter voorbiessteken” niet uitvoeren, want die bies zit op een andere naald en bol. Als ik de steken voor de linker voorbies naast de rechter voorbies opzet en brei, zitten ze aan elkaar vast. Kortom, ik snap het niet :D Hulp?

14.09.2023 - 11:09

country flag Ariane wrote:

Bonjour Pourriez-vous m’envoyer les explications avec des aiguilles droites ? Merci

11.09.2023 - 15:48

DROPS Design answered:

Bonjour Ariane, on utilise ici une aiguille circulaire pour l'empiècement puis pour le dos et les devants pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles; vous pouvez donc utiliser des aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées (gardez bien la bonne tension); pour les manches, cette leçon devrait vous aider à adapter les explications pour des aiguilles droites. Bon tricot!

11.09.2023 kl. 16:10

country flag Eugenia wrote:

Hello !!! I have always use 300 gr for my Air knittings as you advice so I have my usual 300 gr for this cardigan. Why did you write 400 gr instead of 300, was this a mistake or would I have to buy an extra 100 gr ? TIA Eugenia

10.09.2023 - 18:59

DROPS Design answered:

Dear Eugenia, this jacket is slightly wider and longer than usual, the armhole is also much wider, and so is the sleeve. Usual jackets may require 300-350gr depending on the shape, length and pattern. Since this model has larger armholes and sleeves, it may require an extra 50-100gr for the work. Happy knitting!

10.09.2023 kl. 23:17

country flag Vicki wrote:

I have a question about "but every 2nd increase is only the front/back pieces (4 increased stitches ". There are 4 markers, would I increase the stitch before marker 1 BUT not after? Then increase after marker 2 and again before marker 3 and after marker 4? Are these the front and back pieces? Thanks, can't wait to get started on this.

07.09.2023 - 21:34

DROPS Design answered:

Dear Vicky, after you have increased 8 sts on every other row for raglan body and sleeves, you will now increase alternately 4 sts (body only) and 8 sts (body and sleeve), this means increase first only on front pieces and back pieces as before, and on next row from right side increase as before on front pieces, sleves and back piece. Happy knitting!

08.09.2023 kl. 08:08

country flag Irina wrote:

My perfect cardi

07.08.2023 - 06:39

country flag Ima Gardener wrote:

School day cardigan

06.08.2023 - 20:26

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.