DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Hill Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, sléttprjón og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 244-7
DROPS Design: Mynstur ai-464
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-500-550-600 g litur 19, skógargrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, prjónamerkin sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-88-88-104-104-104 lykkjur með DROPS Air yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman.
Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stroffið mælist 12 cm, er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Stykkið er nú mælt héðan.

Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að umferðin sé prjónuð). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja.
Teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, það eru 12-12-12-16-16-16 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki).

HÁLSMÁL:
Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Byrjið mitt að aftan.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðru prjónamerkinu.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan.

Stuttar umferðir hafa núna verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út alls 3 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 112-112-112-128-128-128 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur frá miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út fyrir laskalínu 3 sinnum = 136-136-136-152-152-152 lykkjur. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 18-22-26-26-30-30 sinnum á fram- og bakstykki (9-11-13-13-15-15 sinnum á ermum).

STÆRÐ S, M, og XXXL:
Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermum er nú lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 2-1-4 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú hefur verið aukið út alls 26-29-32-33-37-41 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-19-19-21-21 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli).
Á eftir síðustu útaukningu eru 252-272-292-308-332-348 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 24-26-29-29-33-36 cm, mælt mitt að aftan á eftir stroffi í hálsmáli.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 38-41-44-48-52-56 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (framstykki), setjið næstu 50-54-58-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 38-41-44-48-52-56 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 172-184-196-216-236-256 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 18-18-17-19-17-16 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 208-224-240-264-288-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 50-54-58-58-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-64-68-70-76-78 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 5.-3½.-2½.-2½.-2.-1½ cm alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 48-48-50-50-54-56 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls ca 36-35-33-32-29-27 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4.
Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 42-41-39-38-35-33 frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Sirpa wrote:

Mä en ymmärrä tuota Raglan lisäystä. Oon kaksi kertaa tehnyt nuo lisäykset ja silti edessä ja takana toisessa kainalon/lapaluun kohdalla se lisäyskohta ei tule kainaloa kohden vaan jää kauemmas kuin toisilla puolilla

08.03.2024 - 19:08

DROPS Design answered:

Hei, raglanlisäykset tehdään aina joko ennen kappaleiden rajakohdan 2 silmukkaa tai niiden jälkeen.

12.03.2024 - 17:15

country flag Clement wrote:

Bonjour, cette laine est magnifique, le pull que j'ai tricoté rend très bien sauf que je ke trouvé un peu juste pour moi. Est ce que cette laine se détricote bien afin que je puisse recommencer ? Merci à vous pour votre réponse

08.03.2024 - 18:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Clement, DROPS Air se détricote normalement relativement bien, mais lorsque vous recommencerez, pensez à bien vérifier votre échantillon au préalable pour obtenir les bonnes mesures finales (plus d'infos sur les tailles et le schéma des mesures ici). Bon tricot!

11.03.2024 - 07:38

country flag Suzanne Boudreau wrote:

Bonjour, je fais ce modèle et l'empéicement faut-il que je fasse un rang sans augmentation après chaque rang d'augmentation ? Ou je fais les augmentations rang après rang merci pour votre aide

15.02.2024 - 15:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boudreau, les augmentations de l'empiècement se font d'abord tous les 2 tours (1 tour avec augmentations, 1 tour sans), puis vous augmenterez ainsi (1 tour en augmentant uniquement sur le dos/le devant, 1 tour sans augmenter, 1 tour en augmentant dos, devant et manches, 1 tour sans augmenter). Bon tricot!

16.02.2024 - 07:31

country flag Sarah wrote:

Juhu, ich glaub, ich habs jetzt verstanden! Bei der Drops-Anleitung zum Pulli SEA MAIDEN SWEATER ist der Prozess viiiiel klarer und verständlicher formuliert! Danke trotzdem für Ihre Hilfe! Ich hoffe, ich schaffe den Rest jetzt noch alleine ;-)

23.01.2024 - 23:10

country flag Sarah wrote:

...Und die Wendestelle liegt ja dann (außer nach d. 1. Reihe) immer bei Markierungsfaden 1 (+angegebene Maschen) oder? Dadurch komme ich doch häufiger bei Mark.faden 1+2 vorbei als an 3+4 für die linke Schulter und produziere dort mehr Strickreihen als an der anderen Schulter??? Ich versteh's leider einfach nicht. Tut mir leid!

23.01.2024 - 11:06

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, nach den 7 Reihen haben Sie die selbe Maschenanzahl am jedem Schulter gestrickt, da man genauso viel mehr Maschen am Ende jeder Reihe (HIn- sowie Rückreihe) strickt; da die Runden in die hintere Mitte beginnen, strickt man zuerst die rechte Schulter, dann beide Schulter (2. bis 6. Reihe) und bei der letztee Reihe strickt man nur die linke Schulter. Viel Spaß beim stricken!

24.01.2024 - 07:50

country flag Sarah wrote:

Danke für Ihre Versuche mir zu helfen! Leider geht es immer noch nicht auf. Ich frag mich auch, warum man Anleit. nicht deutlicher schreiben kann? Mal heißt es "Markier. 1+2", dann sind aber mit d. "ersten beiden Markierungen" wieder Nr. 3+4 gemeint, weil sie die ersten in der Rückreihe sind? Daher noch unklar für mich: Ist hier nun in Reihe 2 mit "3 M nach dem letzten Markierungsfaden" MARKIER. NR. 1 gemeint (weil letzter i.d. Rückreihe?) oder doch MARK. NR. 4 (insges. letzter?)

23.01.2024 - 11:01

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, die Nummer für die Markierung sind diejenigen, die man am Anfang der Runde eingesetzt hat, so in der Strickrichtung: die 1. und die 2. Markierung bei der linke Ärmel = 1. Hin-Reihe vom Halsausschnitt; bei der 2. Reihe (Rückreihe) strickt man die Maschen bis 3 Maschen nach der letzten Markierung in der Strickrichtung: 2., 1. hintere Mitte, 4. 3. Markierung, bei der nächsten Hin-Reihe nimmt man 1 M beidseitig von jeder Markierung, die Ruckreihe stricken (4. R), noch 5. und 6. Reihe stricken mit jeweils mehr Maschen + Zunahmen bei der Hin-Reihe, und bei der 7. Reihe strickt man nur die Maschen für die linke Ärmel: 3. + 4. Markierung bis hintere Mitte. Ist es klarer so?

24.01.2024 - 07:45

country flag Sarah wrote:

...und auch in der 6. Reihe dürfte es doch nicht heißen, dass man bis zur letzten Wendestelle zurück muss (das wäre ja wieder ein ganzer Kreis über alle Markierungen zurück, sondern nur zurück bis Markierer 3 plus paar Maschen stricken und ab dort dann die 7. Reihe starten oder? Andernfalls käme man ja wieder in der Hinreihe bei Markierer 1 und 2 vorbei... Verwirrend! :)

22.01.2024 - 23:41

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, bei den 2 ersten verkürzten Reihen strickt man 3 Maschen nach der Markierung (beidseitig), dann strickt man 2 Maschen mehr als die vorige verkürzte Reihe, so bei der 6. Reihen stricken Sie 2 Maschen mehr als die vorige verkürzte Reihe/Wendestelle. Viel Spaß beim stricken!

23.01.2024 - 07:44

country flag Sarah wrote:

Danke, danke, danke, dass Sie so schnell versucht haben mir zu helfen!!! ♡ Wenn ich Sie nun aber richtig verstanden habe, wird in der 7. Reihe (=li. Schulter, wenn getragen) erst beim 3. und 4. Markierer zugenommen und eben NICHT wie in der Anleitung genannt, nochmal "beidseitig der 2 ersten Markierungsfäden arbeiten" (denn Mark. 1+2 wären ja erneut rechte Schulter wie schon in der 1. Reihe...)?

22.01.2024 - 21:56

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, das sind hier selbe Markierungen, bei der 7. Reihe stricken Sie die linke Schulter = 3. und 4. Markierung, das sind aber die 2 ersten Markierungen der Reihe, so wird man nur an diesen beiden Markierungen zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

23.01.2024 - 07:39

country flag Sarah wrote:

Bitte löschen Sie diese und meine letzte Nachricht, es hat nicht funktioniert hier ein Bild einzufügen... Jetzt steht da alles chaotisch durcheinander ;-)

21.01.2024 - 12:00

country flag Sarah wrote:

< Hintere Mitte Mark. 1 Mark. 4 Re. Ärmel v ^ Li. Ärmel Mark. 2 > Mark. 3

21.01.2024 - 11:58