Andriana Papantoniou skrifaði:
I need help! I am working this pattern size 11/12. For the sleeve, I have the initial 18sts of saddle shoulder. Plus 8sts + 8sts from saddle shoulder increases. Plus 5sts + 5sts from body-sleeve increases. Totaly 44sts. How can I place 52sts on thread for the sleeve? And the body separated sts are more than supposed! Do we give all the increased sts from yoke increases to the sleeve? Thank you for support in advance. Andriana.0
10.11.2024 - 19:01DROPS Design svaraði:
Dear Andriana, at the yoke increases you move the markers so the previous stitches increased for the sleeves and the saddle shoulders are now included in the body sections. Even though you have 44 stitches for each sleeve after the increases, you still take some of the body stitches from the previous sleeve increases to get to 52, to obtain the desired shaping. When dividing the piece for body and sleeves you can ignore the new marker placings, since they have been displaced from the original sleeve/body transitions and were only necessary for the yoke increases. Happy knitting!
10.11.2024 - 23:05
Marianna Sheehan skrifaði:
Yoke Increases - I placing the 4 markers at the outermost stitch of the front and the back with 34 stitches for the sleeve. Since there is a left and a right front as well as a back I need to place 6 markers to have markers at the outermost stitch of the front and the back. I have looked at your referenced video but that does not tell me where to place my markers. If I leave my markers where they are as I finish the sleeve increases they all appear to be in the proper place. What am I missin
01.11.2024 - 03:32DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Sheehan, you just need 4 markers, place the first marker in the last stitch on left front piece, the 2nd marker in the first stitch on back piece (there should be 34 sts for the left sleeve between both stitches with each a marker); then insert the 3rd marker in the last stitch on back piece and the 4th marker in the first stitch of front piece (there should be 34 sts for right sleeve between both stitches with each a marker). Happy knitting!
01.11.2024 - 09:54
Anette Törnkvist skrifaði:
Jag förstår inte okökningen på tiny cloud cardigan hur jag ska flytta markörerna
18.10.2024 - 12:31DROPS Design svaraði:
Hei Anette. Ta en titt på hjelpevideoene (Hur man ökar maskor till ärmarna på sadelaxel & Hur man ökar till oket på ett plagg med sadelaxel), hvordan man strikker en sadelskulder og hvordan man flytter markørene. Du finner vidoene ved å klikke på Videor til høyre eller under bildet. mvh DROPS Design
23.10.2024 - 09:08
Marianna Sheehan skrifaði:
I’m sorry to ask again but when do I knit and purl as it states in the instructions for the double neck.? You have explained I should knit the double neck in a garter stitch to create a ridge. I can’t do both and the picture shows knit and purl for the neck. I’m totally lost/confused. Thanks
16.07.2024 - 01:30DROPS Design svaraði:
Hi Marianna, only edge stitches (first and last stitch in each row) are worked in garter stitch (knit in all rows), all the remaining stitches are worked in simple rib - knit 1, purl 1. See the photo. Happy knitting!
16.07.2024 - 09:54
Tove skrifaði:
Hej, jag får inte ihop hur ärmen bara ska bestå av 34 maskor efter ärmökningen då plagget ska bestå av 34 maskor. Verkar vara något fel i maskantalet som anges i beskrivningen under okökning. ”Det är nu 34-34-32-32-34-34 maskor mellan maskorna med markör i på varje ärm.”
15.07.2024 - 22:30DROPS Design svaraði:
Hej Tove. Innan du börjar sticka där det står OKÖKNING så har du 193 maskor totalt (i minsta storleken). Du flyttar sedan markörerna så att du har 34 maskor på varje ärm mellan markörerna. Vi har flera videor som visar sadelaxel som nog kan vara till hjälp, du hittar de på video-sidan genom att söka på sadelaxel. Mvh DROPS design
17.07.2024 - 12:58
Marianna Sheehan skrifaði:
One row in and I’m already lost. The neck edge refers me to,the ridge/garter stitch reference which says to knit all rows. The double neck says knit purl which appears on the sweater. I assume when I go to the wrong side it then is knit purl? Do I just do one knit at the start of each row to create the ridge? Isn’t the ridge just a knit stitch, or am I missing something. Help. Anxious to start this.
13.07.2024 - 00:51DROPS Design svaraði:
Dear Marianna, after you knitted the first row (with purl stitches), you should knit the edge stitches on both side with garter stitch: Happy Stitching!
16.07.2024 - 00:50
Sandra Clements skrifaði:
Hi, the markers numbered 1-4 on the knit side , do I reverse on the purl side and start with marker 4-1? Thank you
24.05.2024 - 03:28DROPS Design svaraði:
Hi Sandra, Yes, any increases by the markers from the wrong side are worked from marker 4 and back to marker 1. Happy knitting!
24.05.2024 - 06:33
Margit skrifaði:
Püüan teha kõige suuremat varianti ja paraku ei tule silmuste arvutamine välja. Loon 99 silmust (ei lisa juurde 10 silmust, sest saan aru, et need on juba 99 silmuse sisse arvestatud?). Kasvatan 22 silmust ja kokku on 121 silmust. Passe jaoks pean jagama silmused 24+18+37+18+30, aga see on kokku 127 silmust. Kust need 6 silmust juurde tulid? Kui ma looks alguses 99 silmust + nööpaugu 10 silmust, siis ei tule ka 127 silmust vaid 131 silmust. Kas siin on viga?
03.07.2023 - 15:29DROPS Design svaraði:
Tere Margit! Mõlemal hõlmal peab olema ühepalju silmuseid. Viga parandatud, tänan teatamast! Alati võib kontrollida numbrite õigust norrakeelsest originaaljuhendist. Head kudumist!
29.07.2023 - 21:34
Annika skrifaði:
Vad blir skillnaden om alla sadelökningar görs från rätsidan? Inga ökningar på det aviga varvet alltså. Mycket enklare och vad jag kan se blir det samma resultat?
28.04.2023 - 20:07DROPS Design svaraði:
Hei Annika. Det skal økes på hver pinne og da må det økes både fra retten og fra vrangen. Økes det bare fra retten, økes det bare på hver 2. pinne og du får for få masker. mvh DROPS Design
02.05.2023 - 10:01
Wendy Burt skrifaði:
In yoke increases I don’t understand where I place markers
24.04.2022 - 21:56DROPS Design svaraði:
Dear Wendy, the following video may help you understand how to place the markers: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1581&lang=en Happy knitting!
24.04.2022 - 22:38
Tiny Cloud Cardigan#tinycloudcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og axlarsæti. Stærð 3 - 14 ára.
DROPS Children 40-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 77 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá RÉTTU): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá RÖNGU): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka (þ.e.a.s. í skiptingunni á milli kants í hálsmáli og berustykkis). Fellið síðan af fyrir 4-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7-7-7½-7-7-7½ cm millibili. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 87-89-91-93-95-99 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á stuttan hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm. Síðar á að brjóta kantinn upp tvöfaldan og við frágang er kanturinn í hálsmáli ca 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 18-20-22-24-22-22 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 105-109-113-117-117-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt = kantur að framan). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerkið við hálsmál til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að framan, teljið 22-23-23-23-23-24 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 14-14-16-18-18-18 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 33-35-35-35-35-37 lykkjur frá 2. prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 14-14-16-18-18-18 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 22-23-23-23-23-24 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (= framstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu eru auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3. Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og það er aukið út mismunandi frá réttu og frá röngu, til að lykkjurnar liggi fallega. Aukið svona út í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 12-14-16-20-22-26 sinnum = 153-165-177-197-205-225 lykkjur - útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 4-5-6-7-8-9 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-10-8-7-8-8 sinnum = 193-205-209-225-237-257 lykkjur. Stykkið mælist ca 11-12-12-12-14-15 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Nú eru 34-34-32-32-34-34 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-5-5-4 sinnum = 233-245-257-265-277-289 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 15-16-16-16-17-18 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 38-40-42-44-46-48 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 46-48-50-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 38-40-42-44-46-48 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 153-161-169-181-189-197 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka eins og áður með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist 15-18-21-24-25-26 cm frá skiptingu. Nú eru ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjóna 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-48-50-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. í miðju af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-3-3-4-4 cm millibili alls 7-8-8-9-9-10 sinnum á hæðina = 38-38-40-40-42-42 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 21-25-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 24-28-33-37-41-45 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tinycloudcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.