DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Lima yarn
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7546.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Fjord Mosaic

Prjónuð peysa og húfa úr DROSP Lima. Peysan er prjónuð ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og norrænu mynstri. Húfan er prjónuð með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 216-28

#fjordmosaicsweater

DROPS Design: Mynstur li-122
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 9020, perlugrár
300-300-350-400-400-450 g litur 6235, gráblár

PEYSA:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-400-450-500-550 g litur 9020, perlugrár
250-300-300-350-400-400 g litur 6235, gráblár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL
Höfuðmál 54/56 - 56/58 - 58/60 cm.

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-100 g litur 9020, perlugrár
50-50-50 g litur 6235, gráblár

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 40 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7546.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.3.
Allt mynstur er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 4,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir ca 4. og 5. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í – í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn með litnum perlugrár. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt með litnum perlugrár, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1 og A.2.

RENDUR-1 (á við um stroff neðst á fram- og bakstykki og ermum):
3 umferðir með perlugrár,
2 umferðir með gráblár,
2 umferðir með perlugrár,
2 umferðir með gráblár,
4 umferðir með perlugrár,
2 umferðir með gráblár.

RÄNDER-2 (á við um stroff neðst á húfu):
4 umferðir með perlugrár,
2 umferðir með gráblár,
2 umferðir með perlugrár,
2 umferðir með gráblár.

ÚRTAKA-1 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um efst á húfu):
Fækkið um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri á eftir prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í umferð).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-96-100-108-112-116 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með litnum gráblár. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar prjónaðar hafa verið 16 umferðir í stroffi með litnum gráblár, prjónið 2 umferðir stroff með litnum perlugrár, 2 umferðir stroff með litnum gráblár og 4 umferðir stroff með litnum perlugrár. Kantur í hálsmáli mælist nú ca 8 cm.
Prjónið 1 umferð slétt með perlugrár þar sem aukið er út um 20-16-12-36-48-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 112-112-112-144-160-160 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = hægri öxl að aftan þegar flíkin er mátuð.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og prjónamerkin eru notuð þegar aukið er út fyrir laskalínu:
Teljið 11-11-11-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínulykkja), teljið 43-43-43-51-59-59 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 11-11-11-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 43-43-43-51-59-59 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju.
Í næstu umferð byrjar mynstur – JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð þannig:
Aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 (= 11-11-11-19-19-19 lykkjur), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við lykkju með prjónamerki í (laskalínulykkjan er alltaf prjónuð með litnum perlugrár), prjónið A.2A (= 9 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 24-24-24-32-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-5-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2C (= 10 lykkjur), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalínulykkju, prjónið A.1 (= 11-11-11-19-19-19 lykkjur), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalínulykkju, prjónið A.2A (= 9 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 24-24-24-32-40-40 lykkjur), prjónið A.2C (= 10 lykkjur), aukið út fyrir laskalínu á undan síðustu laskalínulykkju og prjónið síðustu laskalínulykkju (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Sjá LEIÐBEININGAR og haldið áfram svona með mynstur ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 24-28-32-28-32-36 sinnum.
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 304-336-368-368-416-448 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með mynstur án útaukninga þar til berustykkið mælist 21-23-25-25-27-29 cm frá neðan við kant í hálsmáli mitt að framan (mælt frá skiptingunni á milli tvöföldum kanti í hálsmáli og berustykki) og endið umferð eftir 4. laskalínulykkju.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 60-68-76-76-84-92 lykkjur á þráð fyrir ermi (= lykkjur frá ermi + 1 laskalínulykkja), fitjið upp 4-4-4-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 92-100-108-108-124-132 lykkjur (= framstykki – þessar lykkjur eru lykkjur frá framstykki + 1 laskalínulykkja), setjið næstu 60-68-76-76-84-92 lykkjur á þráð fyrir ermi (= lykkjur frá ermi + 1 laskalínulykkja), fitjið upp 4-4-4-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir þær 92-100-108-108-124-132 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki – þessar lykkjur eru lykkjur frá bakstykki + 1 laskalínulykkja). Klippið þráðinn frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-208-224-240-272-288 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 4-4-4-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í annarri hlið á stykki og haldið áfram með mynstur hringinn – þ.e.a.s. A.2B er síðan endurtekið, en passið uppá að byrja í réttri umferð í A.1B miðað við síðustu umferð á berustykki (= 24-26-28-30-34-36 mynstureiningar með 8 lykkjum).
Prjónið þar til stykkið mælist ca 27 cm frá skiptingu, en endið mynstur eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt með litnum perlugrár þar sem aukið er út um 40-44-48-50-58-60 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 232-252-272-290-330-348 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) og RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, mælist stroffið ca 5 cm. Fellið af með litnum gráblár og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-68-76-76-84-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-88-96-104 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-12-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með mynstur hringinn – þ.e.a.s. A.2B er endurtekið, en passið uppá að mynstrið passi fallega yfir lykkjur á berustykki og að byrjað sé á réttri umferð í A.2B miðað við síðustu umferð í berustykki.
Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 9-4-2½-2-1½-1 cm millibili alls 4-8-12-12-16-20 sinnum = 56-56-56-64-64-64 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 36-35-33-34-33-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, en endið mynstur eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt með litnum perlugrár þar sem fækkað er um 6-4-4-10-10-8 lykkjur jafnt yfir = 50-52-52-54-54-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) og RENDUR-1 alveg eins og á fram- og bakstykki. Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, mælist stroffið ca 5 cm. Fellið af með litnum gráblár og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið inn stroffið í hálsmáli tvöfalt að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði of stífur og beygist út er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

------------------------------------------------------

HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) og RENDUR-2 – sjá útskýringu að ofan.
Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, skiptið yfir í litinn perlugrár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-20-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 104-104-112 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt með litnum perlugrár. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 13-13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 15 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið sléttprjón með litnum perlugrár þar til stykkið mælist 19-20-20 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið 8 prjónamerki í stykkið með 13-13-14 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 11-11-12 sinnum = 16 lykkjur eftir í öllum stærðum. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 26-27-28 cm ofan frá og niður.

Mynstur

perlugrár = perlugrár
gráblár = gráblár
1 mynstureining á hæðina = 1 mynstureining á hæðina
Diagram for DROPS 216-28
Diagram for DROPS 216-28
Diagram for DROPS 216-28

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (125)

country flag Elke skrifaði:

Hallo liebes Team, ich habe ein Problem mit den Erscheinungsbild der Raglan-Zunahmen. In der Anleitung steht "die Raglanmasche stets mit Perlgrau stricken". Auf dem Foto besteht die Raglan-Linie aber aus drei weißen Maschen, die beiden Maschen links und rechts daneben sind immer perlgrau. Ich verstehe leider nicht, wie das funktioniert. Vielen Dank für Ihre Hilfe! Elke

27.01.2025 - 07:34

DROPS Design svaraði:

Liebe Elke, die Raglanmaschen sind jeweils mit grau gestrickt, dann werden die Umschläge bei der nächsten Runde auch mit grau gestrickt - siehe 1. + letzte Masche A.1 + erste Masche A.2A und letzte Masche A.2C. So sind es 3 Maschen glatt rechts mit grau an jeder Raglanlinie. Viel Spaß beim Stricken!

27.01.2025 - 17:24

country flag Malgorzata skrifaði:

Robie rozmiar L czyli musze dodac 32 razy oczka na reglan =4 razy przerobiony schemat . Jak zaczac schemat od 35 rzedu i jak zaczac schemat od 43 rzedu prosze napisac bo tego nigdzie nie ma

19.01.2025 - 12:36

DROPS Design svaraði:

Witaj Małgosiu, schemat rozpoczynasz tak samo, tylko stopniowo masz coraz więcej powtórzeń tego samego motywu w środku schematu (schemat się stopniowo rozszerza); np. na rękawie najpierw masz 2 romby, po przerobieniu schematu A.1 jeden raz na wysokość, będą już 3 romby, itd. Ale początek schematu nie zmienia się, spójrz na zdjęcie swetra i na linię reglanu, linia oczek niebieskich jest cały czas w takiej samej odległości od oczka reglanu (tego z markerem). Pozdrawiamy!

21.01.2025 - 09:29

country flag Malgorzata skrifaði:

Skonczylam 17 rzad i co dalej powtarzamy schematy od rzedu 1 ale to oczka sie nie beda zgadzac czy jak nic o tym nie piszecie

19.01.2025 - 07:45

DROPS Design svaraði:

Witaj Małgosiu, o tym pisałam w jednym z Twoich poprzednich pytań. Pozdrawiam!

21.01.2025 - 09:21

country flag Malgorzata skrifaði:

A co ze schematem A.2B po skonczeniu zaczynamy od poczatku czy jak i ile potem robimy powtorzen dalej ponad 24 oczkami czy wiecej. I co to znaczy konczyc okrazenie za 4 oczkiem reglanu

19.01.2025 - 05:30

DROPS Design svaraði:

Witaj Małgosiu, gdy schemat A.2B powtarzasz ponad 24 oczkami, a schemat ten ma 8 o. tzn. że przerabiasz go 3 razy w rzędzie, jeden po drugim. Zobacz koniecznie kurs DROPS TUTAJ. 4-te oczko reglanu to jest początek okrążenia - miejsce gdzie było włożony 4-ty marker, czyli w przejściu między tyłem i prawym rękawem. Pozdrawiamy!

21.01.2025 - 09:20

country flag Malgorzata skrifaði:

Schemat ma 16 rzedow to wychodzi ze 8 razy dodamy oczka na reglan i co wtedy zaczynamy schemat od nowa czy jak bo nie rozumiem

18.01.2025 - 21:07

DROPS Design svaraði:

Witaj Małgosiu, dalej przerabiasz schematy, ale skoro masz o 8 o. więcej to np. w schemacie A.1 będziesz już miała 3 motywy (romby) w rzędzie. Pozdrawiamy!

21.01.2025 - 09:09

country flag Bettina skrifaði:

Fehler gemerkt :-)

17.01.2025 - 15:49

country flag Bettina skrifaði:

Ich soll 32x die Raglanzunahmen stricken, bei der Maschenzahl, die ich erhalten soll, muss ich aber 64x zunehmen. Was stimmt jetzt?

17.01.2025 - 15:44

DROPS Design svaraði:

Liebe Bettina, in 3. und 5. Größe sollen Sie insgesamt 32 Mal in jeder 2. Runde zunehmen, dh Jeweils 8 Maschen (256 Zunahmen insgesamt), und 64 Runden insgesamt. Viel Spaß beim Stricken!

17.01.2025 - 16:05

country flag Ida Billgren skrifaði:

Hej! Sitter med oket, är på ökning 22 och den mäter redan 21 cm. har ju fyra varv kvar. Så fortsätter jag bara att sticka och ignorerar längden? Bästa hälsningar Ida

09.01.2025 - 20:18

DROPS Design svaraði:

Hei Ida. Har du sjekket strikkefastheten din i høyden at den stemmer med det som står i oppskriften. Om du fortsetter, slik at den blir nye lengre kan det påvirke blant annet plagges form. mvh DROPS Design

13.01.2025 - 13:49

country flag Juliet skrifaði:

Hi, I have knit this jumper a few times as presents and love it. I have finally got around to knitting one for myself and have decided to knit it longer. I have got to the rib at the bottom and want to make it wider so it’s not tight but I don’t know how many stitches to increase before switching to the smaller needle size. Is there a way of working this out? Thank you 😊

29.12.2024 - 08:20

DROPS Design svaraði:

Dear Juliet, you could work a swatch in rib to see how many stitches in rib stitch you will have in 10cm and calculate the number of rib stitches necessary for the desired width. Then you can use this calculation to increase in the lower edge of the body. Happy knitting!

30.12.2024 - 01:56

country flag Erika skrifaði:

Hej, har precis följt diagrammet alla 16 varv i höjden för stl Xxl, förstår att jag ska börja om på diagrammen för att fortsätta öka, men vilken ordning ska diagrammen vara för att det ska stämma men mönstren och alla maskor som jag ökat?

28.12.2024 - 13:53

DROPS Design svaraði:

Hei Erika. Strikk i samme rekkefølge, og når du har strikket diagrammene 1 gang i høyden = 16 omganger = 8 økte masker ved hver raglanlinje = du strikker A.2B 1 gang mer. Altså, når diagrammene er ferdig strikket i høyden, strikk A.2A over de første 9 maskene fra forrige A.2/A.1, gjenta deretter A.2B til det gjenstår 10 m før raglanmasker og strikk A.2C over disse 10 maskene. mvh DROPS Design

06.01.2025 - 12:49