Patricia skrifaði:
Why do the raglan decreases only lean in one direction?
11.04.2026 - 23:51DROPS Design svaraði:
Dear Patricia, the pattern is correct; the decreases lean in one direction because you only do a double decrease where the marker is located, while the decreases on both directions are when you decrease before and after the marker, on each side. Happy knitting!
12.04.2026 - 20:27
Patricia skrifaði:
Why does one raglan go towards the shoulder and the other one go away from the shoulder!??
11.04.2026 - 21:37DROPS Design svaraði:
Dear Patricia, the raglan should be lined up nicely over the stitch with the marker, this stitch inserted at the beginning of yoke should always be the 2nd of the 3 stitches worked for the decrease - this video should help you to line up nicely the decreases so that you decrease each time 1 stitch on body and 1 stitch on sleeve. Happy knitting!
13.04.2026 - 09:35
Patricia skrifaði:
I keep having to unravel and start again. It seems the raglan instructions decrease more on one side of the sweater than the other. Also, the instructions specifically say to knit to one stitch before the marker then slip 2 yarn over. Nevertheless, when someone asked that question, you said to work three stitches before the marker, not one as the instructions direct. Is something wrong with the English translation of this pattern? I have been knitting more than 60 years, but this one … idk
11.04.2026 - 19:11DROPS Design svaraði:
Dear Patricia, to make the raglan decreases work make sure to line them up just as shown in this videothe middle of the 3 sts should be the one with a marker then decrease just as explained under RAGLAN at the beg. of the written pattern starting when 1 st remains before the stitch with a marker: slip the next 2 sts (the stitch before + the stitch with the marker) as if to K tog, knit 1 and pass over the 2 slipped sts over the knitted stitch = place the marker in this stitch. Happy knitting!
13.04.2026 - 09:09
Margaret skrifaði:
When doing the raglan, where does the stitch marker go once you have passed the 2 slip stitches over?
23.01.2026 - 13:46DROPS Design svaraði:
Dear Margaret, the marker is inserted in one stitch, so you insert the marker in the stitch created by the decrease. Happy knitting!
25.01.2026 - 17:05
Margaret skrifaði:
When doing the raglan, where does the stitch marker go once you have passed the 2 slip stitches over?
23.01.2026 - 13:45DROPS Design svaraði:
Dear Margaret, the marker is inserted in one stitch, so you insert the marker in the stitch created by the decrease. Happy knitting!
25.01.2026 - 17:05
Luna skrifaði:
Hallo, Ich habe auch eine Frage bezüglich der Raglan/V-Ausschnitt - Abnahmen: 1) Wie genau nehme ich 19 Maschen in jeder 2. Reihe für das Raglan ab? Nehm ich dann doch doppelt ab? Oder irgendwo mittendrin? Oder soll das heißen man macht insgesamt 19 Raglan-Abnahmen? || 2) Auch für den V-Ausschnitt heißt es "in jeder 4. Reihe 8x", auch da die Frage, nehm ich dann mittendrin noch irgendwo ab? Nehm ich doppelte Abnahmen? LG
28.10.2025 - 23:19DROPS Design svaraði:
Liebe Luna, Sie nehmen 8 Maschen pro Abnahmereihe als Raglanabnahmen ab. Das machen Sie in jeder 2. Reihe 19x, d.h. Sie stricken insgesamt 19 Reihen mit Abnahmen (und dazwischen natürlich noch jeweils eine Reihe ohne Abnahmen). Für den V-Ausschnitt gilt das Gleiche: Sie machen die Abnahmen (2 Abnahmen pro Abnahme-Reihe, d.h. an jeder Seite eine) in jeder 4. Reihe 8x, d.h. 1 Reihe mit Abnahmen, 3 Reihen ohne Abnahmen, 1 Reihe mit Abnahmen, 3 Reihen ohne, 1 Reihe mit, 3 Reihen ohne usw. bis Sie 8 Abnahmereihen haben. Beachten Sie, dass die Raglanabnahmen und die V-Ausschnitt-Abnahmen teilweise in denselben Reihen stattfinden. Viel Spaß beim Weiterstricken!
28.10.2025 - 23:37
Nadine skrifaði:
Je tricote ce modèle avec brushed Alpaca Silk et avec 16 m aig. 5 je n obtiens que 7cm j ai essayé avec des aiguilles de 4 et j ai 8cm. Sur quelle dimension dois-je partir mais mesure correspondent à du L Merci d avance bonne journée Nadine
27.08.2025 - 09:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Nadine, pour avoir les bonnes mesures finales pour votre taille, il vaudrait mieux essayer de trouver des aiguilles plus grosses, sinon il vous faudra tout recalculer en largeur et en hauteur pour être certaine d'avoir les bonnes mesures. Bon tricot!
28.08.2025 - 18:44
Sophia skrifaði:
Hoe moeten de mouwen op de rondbreinaald gezet worden? Ik heb ze erop gezet, maar kon toen de steken niet gebreid krijgen omdat het veel te krap is. Dus zal ik het fout gedaan hebben. Is er een video van?
10.07.2025 - 13:39DROPS Design svaraði:
Dag Sophia,
Het handigst om juist een iets te lange rondbreinaald te nemen en dan de magic loop techniek toe te passen, zie hier.
11.07.2025 - 20:46
Fanny skrifaði:
Is there an error on raglan decrease. Only decrease before marker, seems both sides stitches not matching.
05.06.2025 - 06:42DROPS Design svaraði:
Dear Fanny, you don't decrease only before marker, you will decrease 2 sts starting before marker as shown in that video. Happy knitting!
05.06.2025 - 15:25
Carmen skrifaði:
I’m unsure of the diagram measurements. Please could you tell me what size is 42 inch chest. Yours with kindness Carmen.
04.06.2025 - 14:55DROPS Design svaraði:
Dear Carmen, the best way to find the right size is to measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the one in the chart (convert into inches here); read more about sizes here. Happy knitting!
04.06.2025 - 16:09
Autumn Pathways#autumnpathwayscardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-11 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 45 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 5,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Lykkjum er fækkað um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur að framan mælist 5 cm frá neðst á fram- og bakstykki (= í skiptingunni á milli stroffs og einingar með sléttprjóni á fram- og bakstykki), fellið síðan af fyrir næstu 3 hnappagötum með ca 8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykki er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig þar til stroffið neðst hefur verið prjónað til loka. Síðan eru öll stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er fram og til baka frá miðju að framan upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Síðan eru ermarnar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Að lokum eru fitjaðar upp lykkjur fyrir kant að framan og kant í hálsmáli sem er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 91-101-109-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 5 cm. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 47-51-55-59-65-71 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 5 cm. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki þar til stykkið mælist 5 cm – stillið af að endað sé eftir umferð frá röngu. Ekki klippa þráðinn frá. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjóni nú stykkin saman. Prjónið yfir hægra framstykki frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 45-49-53-57-63-69 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-9-10-10-11-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu lykkjuna á hægra framstykki slétt saman með fyrstu lykkju á bakstykki (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 89-99-107-115-127-139 lykkjur á bakstykki og fækkið jafnframt um 17-21-23-23-25-27 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu lykkjuna á bakstykki slétt saman með fyrstu lykkju á vinstra framstykki (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 45-49-53-57-63-69 lykkjur og fækkið jafnframt um 8-9-10-10-11-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu lykkjuna í sléttprjóni = 150-162-174-190-210-230 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 34-37-39-43-47-51 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= handvegur), prjónið næstu 66-72-76-84-92-100 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= handvegur), prjónið síðustu 34-37-39-43-47-51 lykkjur (= vinstra framstykki). Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 46-48-50-52-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Air. Prjónið nú hringinn þannig: Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið á að fylgja með í stykkinu og er notað síðar þegar auka á út undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 11-10-10-10-7-7 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 10-10-12-13-15-15 sinnum = 58-60-66-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-41-41-39-39-38 cm, fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkið) = 50-52-56-60-62-62 lykkjur. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 234-250-266-290-310-326 lykkjur. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 30-32-34-38-41-44 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 54-58-62-66-70-72 lykkjur (= ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 60-64-68-76-82-88 lykkjur (= bakstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 54-58-62-66-70-72 lykkjur (= ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-32-34-38-41-44 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón (= vinstra framstykki). Lykkjur með prjónamerki í merkja skiptingu á milli fram- og bakstykki og ermar. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Fækkið síðan lykkjum fyrir laskalínu og V-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. LASKALÍNA: Þegar prjónaðar hafa verið 4-4-2-2-2-2 umferðir á berustykki, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 19-21-23-25-27-29 sinnum. V-HÁLSMÁL: Þegar prjónaðar hafa verið 2-4-4-4-4-4 umferðir á berustykki, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 kantlykkju garðaprjón. Fækkið lykkjum aftur svona eftir 7 umferð og síðan í 4. hverri umferð 8-9-9-10-11-12 sinnum = alls 10-11-11-12-13-14 úrtökur fyrir V-hálsmáli í hvorri hlið. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir laskalínu og v-hálsmáli, eru 62-60-60-66-68-66 lykkjur eftir í umferð. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 56-54-54-60-62-60 lykkjur – fækkið jafnframt um 12-8-8-12-13-9 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón = 48-50-50-52-53-55 lykkjur. Fellið af. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki með hringprjón 4 og prjónið upp 123 til 147 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkja) innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram fram- og bakstykki og alveg upp að miðju aftan á bakstykki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu – aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem fyrsta úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði með því að prjóna þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 2 sinnum (= 2 lykkjur fleiri) – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 1-1½ cm. Fellið nú af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist alls 3-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp 123 til 147 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkja) frá réttu innan við 1 kantlykkju garðaprjón, með byrjun frá miðju aftan á bakstykki og niður meðfram vinstra framstykki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu – aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem fyrsta úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjaði með því að prjóna þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 2 sinnum (= 2 lykkjur fleiri) – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 3-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman kant að framan að miðju aftan í hnakka innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnpathwayscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.