DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Pathways Sweater

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-12
DROPS Design: Mynstur ai-279
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500 g litur 05, brúnn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 91 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 lykkjur þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónamerkið situr hér, herðið aðeins á þræði þannig að það verði ekki of stórt gat á milli úrtöku, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið um 3 lykkjur þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 4 lykkjur snúnar slétt saman (= 3 lykkjur færri), prjónamerkið situr hér, herðið aðeins á þræði þannig að það verði ekki of stórt gat á milli úrtöku, prjónið næstu 4 lykkjur slétt saman (= 3 lykkjur færri).
Fækkið um 4 lykkjur þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 5 lykkjur snúnar slétt saman (= 4 lykkjur færri), prjónamerkið situr hér, herðið aðeins á þræði þannig að það verði ekki of stórt gat á milli úrtöku, prjónið næstu 5 lykkjur slétt saman (= 4 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykki er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig þar til stroffið og klauf í hvorri hlið hefur verið prjónað til loka. Setjið síðan bæði stykkin á sama hringprjón og prjónað er í hring upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að handveg. Síðan eru ermarnar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli á stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 91-101-109-117-129-141 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúna brugðið, 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 14 cm. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið framstykki.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stroffið mælist 14 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjóni nú framstykki og bakstykki á hringprjón 4 þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 90-100-108-116-128-140 lykkjurnar á framstykki og fækkið jafnframt um 16-20-22-22-24-26 lykkjur jafnt yfir - sjá ÚRTAKA, prjónið síðustu lykkju á framstykki slétt saman með fyrstu lykkjunni á bakstykki (= 1 lykkja færri), setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 89-99-107-115-127-139 lykkjur á bakstykki og fækkið jafnframt um 16-20-22-22-24-26 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu lykkjuna á bakstykki slétt saman við fyrstu lykkju á framstykki, setjið eitt prjónamerki hér (= í hlið og þetta er byrjun á umferð).
Nú eru 148-160-172-188-208-228 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm, fellið af 8-8-10-10-12-12 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið). Nú eru 66-72-76-84-92-102 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 46-48-50-52-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið á að fylgja með í stykkinu og er notað síðar þegar auka á út undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-8-7-8-8-8 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 10-10-12-13-15-15 sinnum = 58-60-66-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 39-38-37-35-34-32 cm, fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerkið) = 50-52-56-60-62-62 lykkjur. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 232-248-264-288-308-332 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt aftan á bakstykki (= 33-36-38-42-46-51 lykkjur hvoru megin við prjónamerki á bakstykki).
Þetta er núna byrjun á umferð.
Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Síðar á að fækka lykkjum hvoru megin við þessi prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-5-6-5-6-5 cm, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 8. hverri umferð mismunandi eftir stærðum:

Stærð S og XXL
Fækkið um 2 lykkju 1-1 sinni og 4 lykkjur 4-5 sinnum (= 19-23 lykkjur færri hvoru megin við prjónamerki í hverri laskalínu) = 80-124 lykkjur á prjóninum.

Stærð M og L:
Fækkið um 4 lykkjur 5-5 sinnum (= 20-20 lykkjur færri hvoru megin við prjónamerkin í hverri laskalínu) = 88-104 lykkjur á prjóninum.

Stærð XL og XXXL:
Fækkið um 2 lykkjur 1-1 sinni og 4 lykkjur 5-6 sinnum (= 22-26 lykkjur færri hvoru megin við prjónamerki í hverri laskalínu) = 112-124 lykkjur á prjóninum.

Allar stærðir:
Nú eru 80-88-104-112-124-124 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-12-24-28-36-32 lykkjur jafnt yfir = 74-76-80-84-88-92 lykkjur.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innan verðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.11.2020
Leiðrétting: BERUSTYKKI... Allar stærðir: Nú eru 80-88-104-112-124-124 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni...

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Autumn Pathways Sweater

Barbara, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Eyssartier Marie-noelle wrote:

Bonjour J'aime beaucoup votre site il y a de beaux modèles N'ayant pas les moyens financiers d'investir dans des aiguilles circulaire Je trouve dommage que les explications ne soient pas aussi écrites pour faire les modèles des aiguilles droites Bonne journée

26.03.2024 - 12:48

country flag Eyssartier Marie-noelle wrote:

Bonjour Je vous remercie pour votre réponse pour les dimensions du raglan mais je ne comprends pas car je n'ai pas 264 mailles sur mon aiguille droite Dans l'attente je vous remercie de votre compréhension

21.03.2024 - 09:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Eyssartier, vous devez avoir 264 mailles au total = 76 pour le devant et pour le dos + 56 pour chaque manche - et vous diminuez 4 mailles pour le raglan au début et à la fin de chaque pièce (dos,devant, manche), avec 2 mailles jersey de raglan/transition entre les diminutions. Bon tricot!

21.03.2024 - 15:51

country flag Marie-noelle Eyssartier wrote:

Bonjour j'ai commencé ce pull sur de aiguilles droite en taille L je ne comprend pour les diminutions du raglan combien de mailles de chaque cotés faut il diminuer dans l'attente de je vous remercie de votre compréhension Mm eyssartier

21.03.2024 - 07:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Eyssartier, en taille L, vous allez diminuer (tous les 8 tours) 5 fois 4 mailles (soit 4 mailles de chaque côté de chaque fil marqueur, autrement dit vous diminuez 32 mailles à chaque fois) - vous trouverez sous le paragraphe RAGLAN comment diminuer 4 mailles - vous aviez 264 mailles - 5 x 32 = il reste 104 mailles. Bon tricot!

21.03.2024 - 08:54

country flag Marie-noelle Eyssartier wrote:

Bonjour les explications sont pour des aiguilles droites ou circulaires dans l'attente je vous remercie de votre compréhension

16.03.2024 - 16:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Eyssartier, on tricote d'abord le dos et le devant séparément pour les fentes côtés, puis on les tricote en rond jusqu'aux emmanchures, on met en attente et on tricote les manches en rond puis on tricote l'empiècement en rond jusqu'au col. Cette leçon pourra vous aider pour savoir comment adapter sur aiguilles droites si besoin. Bon tricot!

18.03.2024 - 08:55

country flag Sarah wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum Rumpfteil. Inder Anleitung steht: Bei einer Länge von 27-27-28-28-28-28 cm je 8-8-10-10-12-12 Maschen für die Armausschnitte an beiden Seiten des Rumpfteils abketten. Ist die cm Angabe zuzüglich der 14 cm, die am Anfang gestrickt wurden? Vielen Dank schon einmal für die Antwort :-)

10.11.2023 - 18:37

country flag Kim wrote:

I am making size medium. For the body, do I measure 10 5/8 from the start of the stockinette section or the bottom of the ribbed portion? It seems too short if measured from the bottom of the ribbing.

02.09.2023 - 15:16

DROPS Design answered:

Dear Kim, the 27 cm/ 10 5/8 are from the cast on edge: you can see it in the schematic. This model is quite shorter than other sweaters; you can lengthen the pattern before working the Body if you would prefer it. Happy knitting!

03.09.2023 - 23:00

country flag Alike Baaij wrote:

Bij de mouw ( xl) moet ik 2 5x 2 steken meerderen. Ik begin met 44 steken. En volgens het patroon eindig ik met 70 steken. Maar als ik 15 x 2 (totaal 30) steken meerder kom ik op 74 uit.... Doe ik iets verkeerd....

21.04.2023 - 19:45

DROPS Design answered:

Dag Alike,

Voor maat xl is het de bedoeling dat je 13 x 2 steken meerdert, dus in totaal 26 steken. Dan kom je op 70 steken in totaal.

24.04.2023 - 20:54

country flag Martina Berndtsson wrote:

Hej stämmer det att det är 38cm på varje varv från upplägget- blir väldigt korta armar. Stickat ytterligare en tröja med 38cm blir för kort i armen tack för svar

26.03.2023 - 17:07

DROPS Design answered:

Hej Martina, du ser i måleskitsen nederst i opskriften hvordan målene hænger sammen. Selve ærmegabet bliver da 23 cm. Mål gerne i forhold til en trøje som du ved passer dig :)

12.04.2023 - 07:49

country flag Trisha wrote:

Sleeves instructions say to make first increase at 2 3/4" (or 7 cm) and then increase every 1 3/4" (or 2 1/2 cm) from there for a total of 12 times. (I'm making size L.) That would make the sleeve 21" long . . . When I compare cm to inches, my tape measures show 2 1/2 cm is 1", not 1 3/4", which would result in a sleeve approximately 17" long. Is there a misprint in the instructions? Should the increases after 2 3/4" be every 1" and not 1 3/4"? Thank you!

27.12.2022 - 17:43

DROPS Design answered:

Dear Trisha, size L is 3rd size, this means you will increase on every 2,5 cm = on every 1". Or do we misunderstand your question?

04.01.2023 - 14:15

country flag Hannah wrote:

Hej. Jeg tænkte på, om man kan strikke denne sweater i Drops Brushed alpaca silk i stedet? Og hvis ja, hvordan ændrer det fastheden af sweateren? :)

28.11.2022 - 22:15

DROPS Design answered:

Hej Hannah, ja det kan du, men du skal sørge for at holde strikkefastheden på 16 masker på 10 cm som det står i opskriften, da vil du også få samme mål som i opskriften :)

30.11.2022 - 15:06