Evelyn wrote:
Hallo, der Pullover verzieht sich bei mir in die Häkelrichtung, kann man dagegen etwas tun? Vielen Dank
09.12.2023 - 01:25DROPS Design answered:
Liebe Evelyn, Sie können mal in Hin- und Rückreihen häkeln, am Ende jeder Reihe mit 1 Wettmache enden (wie in Runden) aber dann wenden und abwechslungsweise bei der Vorderseite und bei der Innenseite häkeln. Viel Spaß beim häkeln!
11.12.2023 - 07:44Amelie wrote:
Hallo, ich versuche gerade diesen Pullover in Größe M zu häkeln. Allerdings brauche ich 80 Maschen an der Blende, damit ich es über meinen Kopf ziehen kann. Wie kann ich nun vorgehen, dass ich eine passende Blende habe, aber nicht gleichzeitig einen viel zu großen restlichen Pullover? Muss ich an einer Stelle Maschen abnehmen oder an anderer weniger/keine zunehmen? Aber wenn ja, wo? Vielen Dank im Voraus und liebe Grüße.
18.10.2023 - 22:22DROPS Design answered:
Liebe Amelie, damit die fertigen Maßnahmen für Ihre Größe stimmen die in der Maßskizze soll Ihre Maschenprobe stimmen, dh Sie sollen 14,5 Stäbchen x 8,5 Reihe = 10 x 10 cm haben. Hier lesen Sie mehr über die Maschenprobe - sollte sie verschieden sein, dann sollen Sie die ganze Anleitung nach Ihrer eigenen Maschenprobe neu umrechnen. Viel Spaß beim häkeln!
19.10.2023 - 08:10Marie wrote:
Bonjour, ce chandail a des coutures. Donc, la différence avec un modèle Raglan c'est juste que c'est plus vite à faire. Ou bien, il y a d'autres différences? Je n'ai pas encore décider et comme 1er modèle je pensais que le Raglan est plus facile, est-ce bien le cas?, merci. Marie
08.11.2021 - 16:32DROPS Design answered:
Bonjour Marie, ce modèle n'a aucune couture à faire, il se crochète de haut en bas en divisant l'ouvrage pour les manches à la fin de l'empiècement pour terminer chaque partie (bas du pull puis manches) séparément. Vous pouvez demander l'avis d'autres crocheteuses dans notre DROPS Workshop. Bon crochet!
09.11.2021 - 11:57Mette 2 wrote:
Hej igen Jeg har haft skrevet og fået svar, men jeg synes fortsat ikke at jeg forstår opskriften. Hvis jeg øger med 7x16 som I skriver, svarer det jo til 7 runder hvor jeg tager 16 masker ud på hver runde - det passer med raglan. Men så øger jeg fortsat ikke med de andre udtagninger. Jeg synes jo regnestykket vil se sådan ud (i str. S): 74 + (16+2)+(16+3)+(16+3)+(16+2)+(16+3)+(16+3)+(16+2)= 204, men det passer ikke med de 202 ??
16.09.2021 - 12:12DROPS Design answered:
Hej Mette. Det är kun maskorna till raglan du ska öka som vi förklarade i tidigare svar. Mvh DROPS Design
22.09.2021 - 09:01Mette wrote:
Kan I uddybe maskeantallet på hver runde ved bærestykket, når der udtages til raglan? Jeg hækler str S og jeg kan kun få maskeantallet til at passe, hvis jeg tager ud til raglan UDEN at tage 2-3-3 masker ud yderligere?!
07.09.2021 - 23:11DROPS Design answered:
Hei Mette. Vi har dessverre ikke muligheten til å tilføye maskeantallet etter hver økning i alle størrelser i oppskriften. I str. S har du 74 masker og du øker med 16 masker hver gang det økes til raglan. I str S økes det 1 gang på hver omgang, deretter på hver 2. omgang 3 ganger, og så på hver 3. omgang 3 ganger. Altså du har økt på 7 omganger (1+3+3) og på hver økeomgang øker du med 16 masker = 7x16= 112 økte masker + de 74 maskene du hadde i begynnelsen = 186 masker. mvh DROPS design
15.09.2021 - 13:53Anne Lise Ernst wrote:
Opskrift drops 217-6 Raglan : der står: Tag 2 stgm ud ved at hækle 3 stgm i den første og sidste stgm i A 3. . ? så er der jo taget 4 stgm ud ? Mvh. Anne Lise
21.08.2021 - 11:03DROPS Design answered:
Hei Anne Lise. Jeg skjønner tankegangen din, men her er det ment at det skal økes med 2 masker i hver maske det økes. Altså når du hekler A.3 økes det med 2 masker i den første masken og det økes med 2 masker i den siste masken. mvh DROPS design
27.08.2021 - 09:47Dagmar wrote:
Hallo guten Tag, ich komme bei der Anleitung nicht weiter. Hier steht: 1Stb in jede der 3-3 nächsten fM,dann 2 Stb in die nächste Masche. Bitte was heißt 3-3? Vielen Dank für die Antwort
11.06.2021 - 21:37DROPS Design answered:
Liebe Dagmar, jedes "3" steht für eine Größe, bei der Ärmeln beginnen Sie die Runde in die Luftmasche nach der Markierungsfaden und häkeln Sie 3 Lm, dann 3 Stb (= in 3. + 4. Größe = je 1 Stb in die nächsten 3 Lm), und enden Sie die Runde mit je 1 Stb in die letzten 4 Luftmaschen der Runde. Kann das Ihnen weiterhelfen?
14.06.2021 - 07:58Dina wrote:
Kan ik deze trui ook met haaknaald drie en halfhaken
25.03.2021 - 15:51DROPS Design answered:
Dag Dina,
Bij de stekenverhouding staat aangegeven hoeveel steken je moet hebben op 10 x 10 cm. Hierop moet je de dikte van de haaknaald aanpassen. Maak eerst een proeflapje met de aangegeven naalddikte in het patroon. Als je te weinig steken hebt op 10 cm, neem dan een kleinere haaknaald, als je te veel hebt een grotere. Maak opnieuw een proeflapje tot je de juiste stekenverhouding hebt.
26.03.2021 - 15:42Julie wrote:
Kan man mon finde opskriften skrevet ‘normalt’ og ikke i diagram?:)
18.02.2021 - 06:58DROPS Design answered:
Hej Julie, vi laver diagrammer til alle vores opskrifter med mønster. Men der findes også altid en video som viser hvordan man gør. Se nederst i opskriften :)
18.02.2021 - 08:34
Breaking Free |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og kaðlalykkjum. Stærð XS - XXL.
DROPS 217-6 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. stuðul frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 66 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 8,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 8. hvern stuðul. LASKALÍNA: Aukið út um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla í fyrsta og síðasta stuðul í A.3. Útauknar lykkjur eru heklaðar í stuðlum á ermum og á framstykki og bakstykki er mynstur heklað þannig: Heklið nýjar lykkjur inn í mynstur A.2. Það eiga alltaf að vera 7-7-7-8-8-8 stuðlar fleiri á milli lóðréttra lína með loftlykkjum (loftlykkjulykkjur eru heklaðar saman við kaðlalykkjur síðar). Þegar 8-8-8-10-10-10 lóðréttar línur með loftlykkjulykkjum, eru útauknar lykkjur sem eftir eru heklaðar í stuðlum. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki þannig: ATH! Passið vel uppá að prjónamerkið sé staðsett í skiptingunni á milli umferða, þannig að úrtakan á eftir prjónamerki komi í næstu umferð. Heklið þar til 4 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregði þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjur á heklunálinni * , heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri), heklið næstu 4 stuðla eins og áður (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja) og fækkið um 1 stuðul alveg eins og fyrra prjónamerki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring frá hlið á bakstykki, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Síðan er fram- og bakstykkið og ermar heklað í hring hvert fyrir sig. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 66-66-70-72-76-80 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 og 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið síðan A.1 í hring í umferð. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið 1 umferð með stuðlum þar sem aukið er út um 8-8-8-12-12-8 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 74-74-78-84-88-88 stuðlar. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er mynstur heklað þannig: Heklið A.2 yfir fyrstu 21-21-21-24-24-24 lykkjur (= 3 einingar) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið fyrstu 4-4-4-4-4-4 tákn í A.2, þ.e.a.s. 1 stuðul + 10 loftlykkjur + 2 stuðlar (= bakstykki), heklið A.3 yfir næstu 2 stuðla (= laskalína), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 8-8-10-10-12-12 stuðlum (= ermi), heklið A.3 yfir næstu 2 stuðla (= laskalína), heklið 1 stuðul í næsta stuðul, heklið A.2 yfir næstu 21-21-21-24-24-24 lykkjur (= 3 einingar), heklið fyrstu 4-4-4-4-4-4 tákn í A.2, þ.e.a.s. 1 stuðul + 10 loftlykkjur + 2 stuðlar (= framstykki), heklið A.3 yfir næstu 2 stuðla (= laskalína), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 8-8-10-10-12-12 stuðla (= ermi), heklið A.3 yfir næstu 2 stuðla (= laskalína), heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í umferð. Haldið svona áfram með mynstur hringinn, jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í hverri umferð 1-2-3-3-4-4 sinnum, í annarri hverri umferð 3-3-3-3-4-5 sinnum og í 3. hverri umferð 3-3-3-3-3-3 sinnum = 186-202-222-228-264-280 lykkjur. Heklið áfram þar til berustykkið mælist 20-20-22-23-26-28 cm frá prjónamerki sem var sett eftir kant í hálsmáli. Nú eru heklaðar loftlykkjulykkjur í A.3 saman við kaðlalykkjur þannig: Stingið heklunálinni niður í 1. loftlykkjulykkju efst að hálsmáli frá réttu, dragið 2. loftlykkjulykkju í gegnum 1. loftlykkjulykkju, stingið heklunálinni niður í 2. loftlykkjulykkju og dragið 3. loftlykkjulykkju í gegnum 2. loftlykkjulykkju. Haldið svona áfram þar til allar loftlykkjulykkjur hafa verið heklaðar saman. Endurtakið við þær mynstureiningar sem eftir eru með A.3 í umferð. Setjið e.t.v. þráð í gegnum síðustu loftlykkjulykkju þannig að hún haldist og rakni ekki upp. Loftlykkjulykkjur á framstykki og bakstykki eru heklaðar saman alveg eins síðar. Í síðustu umferð er heklað eins og útskýrt er að neðan. Loftlykkjulykkjur í A.2 og A.3 eru ekki taldar með í lykkjufjölda og hekluð er 1 fastalykkja um síðustu loftlykkjulykkju í A.3 þannig að hún rakni ekki upp (síðan er hoppað yfir þessa fastalykkju, þ.e.a.s. hún er ekki talin með í lykkjufjölda áfram í stykkinu): Heklið mynstur eins og áður yfir fyrstu 39-41-43-46-50-53 lykkjur, heklið 6-6-8-8-10-10 laustar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 38-42-48-48-58-60 stuðla (= ermi), heklið mynstur eins og áður yfir næstu 55-59-63-66-74-80 (= framstykki), heklið 6-6-8-8-10-10 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 38-42-48-48-58-60 stuðla (= ermi), heklið mynstur eins og áður yfir þá 16-18-20-20-24-27 stuðla sem eftir eru. Klippið frá. Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 124-132-144-150-170-182 stuðlar (+ loftlykkjulykkjur). Setjið eitt prjónamerki í aðra hliðina mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 loftlykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 3-3-4-4-5-5 nýjar loftlykkjur hvoru megin við prjónamerki). Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í loftlykkju eftir prjónamerki og heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið hringinn með mynstri eins og áður, þ.e.a.s. það eru heklaðir stuðlar og loftlykkjulykkjur eins og áður yfir loftlykkjulykkjur á fram- og bakstykki. Haldið áfram hringinn svona þar til fram- og bakstykki mælist 24-26-26-27-26-26 cm frá skiptingu. Heklið nú loftlykkjulykkjur saman alveg eins og á berustykki. Þegar allar loftlykkjulykkjur hafa verið heklaðar saman, heklið næstu umferð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul, en um hverja loftlykkjulykkju er hekluð 1 fastalykkja þannig að loftlykkjulykkjur rakni ekki upp. Heklið nú kant þannig: Heklið A.1 hringinn í umferð. Endurtakið síðustu umferð í mynsturteikningu þar til kanturinn mælist 5 cm. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 loftlykkjur undir ermi (= í byrjun á umferð). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Festið enda með 1 keðjulykkju í lykkju á eftir prjónamerki, heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 2-2-3-3-4-4 loftlykkjum, heklið 1 stuðul um næsta stuðul (= í hornið á milli loftlykkja og stuðla sem hoppað var yfir fyrir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af 38-42-48-48-58-60 stuðlum, heklið 2 stuðla um næsta stuðul (= í hornið á milli loftlykkja og 38-42-48-48-58-60 stuðla sem hoppað var yfir fyrir ermi), heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 3-3-4-4-5-5 loftlykkjum = 48-52-60-60-72-74 stuðlar. Haldið áfram hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð 0-0-1-3-10-10 sinnum og í annarri hverri umferð 4-5-7-5-3-3 sinnum = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 33-34-32-32-29-27 cm frá skiptingu. Heklið nú kant þannig: Heklið A.1 hringinn í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið síðustu umferð þar til kanturinn mælist 5 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Dina wrote:
Kan ik deze trui ook met driehalf haken
25.03.2021 - 15:48