Johanna skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team, Bei der Anleitung für das Stirnband ist, glaube ich, ein Fehler: nach der ersten Reihe Vollpatent hat man 33 und nicht 23 Maschen, oder? Liebe Grüße, Johanna
08.11.2020 - 21:07DROPS Design svaraði:
Liebe Johanna, nachdem Sie die 1. Reihe gestrickt haben (= 1 Masche KRAUS RECHTS (siehe oben), * 2 Maschen rechts zusammenstricken, 1 Umschlag arbeiten, 1 Masche wie zum Linksstricken abheben *, von *-* wiederholen bis noch 3 Maschen übrig sind, 2 Maschen rechts zusammenstricken, enden mit 1 Masche kraus rechts.) sind es nur noch 23 Maschen (die Umschläge vom Vollpatent sind nicht als Maschen gezählt). Viel Spaß beim stricken!
09.11.2020 - 11:36
Helen Haslock skrifaði:
Looking forward to knitting this :))
19.08.2020 - 23:04
Jannie Wesselink skrifaði:
Super praktisch zo een col sjaal. fijn in de winter onder de jas . Sluit mooi aan. Lekker warm
05.06.2020 - 16:23
Celtic Poetry#celticpoetryset |
|
![]() |
![]() |
Prjónað eyrnaband og hálsskjól úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni.
DROPS 214-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, endið með 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til eftir er 1 uppsláttur og 2 lykkjur, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum hægra megin við miðjulykkju þannig: Prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppslátt sem tilheyrir klukkuprjónslykkjum) slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum vinstra megin við miðjulykkju þannig: Lyftið sléttri lykkju (+ uppsláttur) af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (+ uppsláttur) slétt saman, steypið lyftu lykkjunni (+ uppsláttur) yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn hvoru megin við miðjulykkju með prjónamerki í (= 4 lykkjur fleiri í umferð), þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppsláttinn yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 3 lykkjur (miðju lykkjan af þessum lykkjum = miðjulykkja), prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppsláttinn yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni – en hafið í huga að í fyrstu umferð á eftir útaukningu, kemur önnur útaukna lykkjan til með að prjónast slétt án þess að prjónast saman með uppslætti, þar sem ekki hefur verið gerður neinn uppsláttur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman við miðju að aftan. EYRNABAND: Fitjið upp 34 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1. umferð í KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan = 23 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (séð frá réttu = 1 lykkja slétt). Haldið nú áfram með 2. og 3. umferð í klukkuprjóni, JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu), prjónið MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2 frá réttu þannig: MYNSTUR-1: MYNSTUR-1 er prjónað yfir alls 8 umferðir þannig: Prjónið klukkuprjón eins og áður yfir fyrstu 5 lykkjurnar, fækkið um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA, prjónið klukkuprjón þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri), fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið síðustu 5 lykkjur eins og áður. Prjónið 1 umferð í klukkuprjóni til baka frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir til viðbótar (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu). MYNSTUR-2: MYNSTUR-2 er prjónað yfir alls 8 umferðir þannig: Prjónið klukkuprjón eins og áður yfir fyrstu 3 lykkjurnar, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið klukkuprjón þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við miðjulykkjuna – munið eftir ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri), fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið síðustu 3 lykkjur eins og áður. Prjónið 1 umferð í klukkuprjóni til baka frá röngu. Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu). Haldið svona áfram fram og til baka með til skiptist MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2. Þegar stykkið mælst ca 49 cm (eða prjónið að óskaðri lengd), fellið af með sléttum lykkju. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af slétt eins og eigin lykkja. Klippið frá, en skiljið eftir smá enda til að sauma eyrnabandið saman með. Saumið eina og eina lykkju saman innan við affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum sem saumað er saman á öxlum. Að lokum er kantur prjónaður í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 76-88 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1. umferð í KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan = 51-59 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð (séð frá réttu = 1 lykkja slétt). Haldið nú áfram með 2. og 3. umferð í klukkuprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2 þannig: MYNSTUR-1: MYNSTUR-1 er prjónað yfir alls 8 umferðir þannig: Prjónið klukkuprjón eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, fækkið um 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA, prjónið næstu lykkju eins og áður, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju – sjá ÚTAUKNING, prjónið næstu lykkju eins og áður, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið síðustu lykkjur í umferð eins og áður. Prjónið 1 umferð í klukkuprjóni til baka frá röngu. Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu). MYNSTUR-2: MYNSTUR-2 er prjónað yfir alls 8 umferðir þannig: Prjónið klukkuprjón eins og áður þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið næstu 11 lykkjur eins og áður, JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við miðjulykkjuna – munið eftir ÚTAUKNING, fækkið um 2 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA, prjónið síðustu lykkjur í umferð eins og áður. Prjónið 1 umferð í klukkuprjóni til baka frá röngu. Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir (þ.e.a.s. 3 sýnilegar klukkuprjónslykkjur á hæðina séð frá réttu). Haldið svona áfram fram og til baka með til skiptist MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2. Þegar stykkið mælst 28-30 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 13-17 lykkjurnar og setjið þær á þráð (= hægri öxl), fellið af næstu 25-25 lykkjum (+ uppslátt) – til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er allur uppsláttur felldur af eins og eigin lykkja (= hálsmál), prjónið síðustu 13-17 lykkjurnar eins og áður (= vinstri öxl). Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið síðan áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið þar til stykkið mælist 30-32 cm. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið klukkuprjón og MYNSTUR-1 og MYNSTUR-2 á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 24-26 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 17-21 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð fyrir vinstri öxl, prjónið næstu 17 lykkjur eins og áður og setjið þær á annan þráð fyrir hálsmáli, prjónið síðustu 17-21 lykkjur eins og áður fyrir hægri öxl. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Hægri öxl. Haldið áfram fram og til baka í klukkuprjóni og 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli. Fækkið um 2 lykkjur frá hálsi þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið næstu 2 lykkjur eins og áður, lyftið sléttu lykkjunni (+ uppsláttur) af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (+ uppsláttur) slétt saman, steypið lyftu lykkjunni (+ uppsláttur) yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman (= 2 lykkjur færri), prjónið út umferðina eins og áður. Endurtakið úrtöku í 6. hverri umferð (þ.e.a.s. 3 sýnilegar sléttar lykkjur á hæðina frá réttu) alls 2 sinnum = 13-17 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru settar á þráð fyrir hálsmáli (stykkið mælist ca 30-32 cm alls), fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið allan uppslátt af eins og eigin lykkja. Vinstri öxl: Byrjið frá röngu (þ.e.a.s. frá hálsi) og prjónið klukkuprjón eins og áður með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli. Fækkið um 2 lykkjur við háls þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir við hálsmál, prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppsláttur sem tilheyrir klukkuprjónslykkjum) slétt saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í 6. hverri umferð (þ.e.a.s. hver 3. Sýnilega slétta lykkjan á hæðina frá réttu) alls 2 sinnum = 13-17 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru settar á þrá fyrir hálsmáli (stykkið mælist ca 30-32 cm alls), fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið allan uppsláttinn af eins og eigin lykkja. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt aftan í hnakka með Merino Extra Fine og stuttan hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur frá réttu þannig: Prjónið upp 25 lykkjur fram að lykkjum á þræði mitt að framan (passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja lykkju í hnakka og prjónið upp afgang af lykkjum innan við 1 kantlykkju garðaprjón fram að lykkjum á þræði, prjónið upp 24 lykkjur fram að byrjun á umferð (passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja lykkju í hnakka og að afgangur af lykkjum sé prjónaður upp innan við 1 kantlykkju garðaprjón) = 66 lykkjur. Aðlögun á mynstri er til að klukkuprjónsmynstrið komi til með að halda áfram með klukkuprjónslykkju yfir klukkuprjónslykkju meðfram kanti í hálsmáli. UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina, en yfir 17 lykkjur af þræði mitt að framan er prjónað mynstur eins og áður. Klukkuprjónsmynstrið á að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina, en yfir 17 lykkjur af þræði mitt að framan er prjónað mynstur eins og áður. UMFERÐ 3: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina, en yfir 17 lykkjur af þræði mitt að framan er prjónað mynstur eins og áður. Endurtakið umferð 2 og 3 hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #celticpoetryset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.