Ola skrifaði:
Hej, czy przy odejmowaniu oczek te pierwsze pięć oczek przerabiać dżersejem? Czy wyrabiać wzór?
23.05.2025 - 14:23DROPS Design svaraði:
Witaj Olu, przerabiasz wzór przez 6 pierwszych i ostatnich oczek w rzędzie. A zamykasz oczka zgodnie z opisem w części ZAMYKANIE OCZEK. Pozdrawiamy!
23.05.2025 - 14:44
Tizianella57 skrifaði:
Punto fantasia: posso avere descrizione invece del diagramma? Vorrei farlo con ferri lineari
13.02.2025 - 22:03DROPS Design svaraði:
Buonasera Tizianella, può trovare la legenda del diagramma in fondo alla pagina. Buon lavoro!
13.02.2025 - 22:10
Laura Berman skrifaði:
Como seria con agujas..comunes Palillos.. no circulares.gracias
18.09.2024 - 14:06DROPS Design svaraði:
Hola Laura, puedes leer la siguiente lección para más información sobre cómo adaptar este patrón a agujas rectas: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=23.
22.09.2024 - 23:36
Ann Nyholm skrifaði:
Drops 211-10 (pink Shell top) Jeg vil meget gerne bede om hjælp til overgangen mellem rundpind og frem og tilbagestrik på ryg og bagstykke. Skal der fx strikkes 2 r og 1 v på retsiden og vrang på vrangsiden? Hvilket er mest logisk for mig, men hvordan? Kommer der ikke til at mangle en retpind mellem sidste pind på rundpinden og den første pind i frem og tilbage? Jeg vil meget gerne have skåret det ud i pap?
23.07.2024 - 20:54DROPS Design svaraði:
Hej Ann, hvis du sørger for at sidste pind på rundpinden er 2 ret og 1 vrang, så vil pinden fra vrangen være en vrangpind. Hvis du har sidste pind på rundpinden som ret, så skal du strikke 1ret,2vrang fra vrangen for at mønsteret bliver samme :)
01.08.2024 - 08:37
Sandra skrifaði:
Ein tolles Modell... Anleitung war gut verständlich und die fertige Arbeit passt super knd sieht toll aus
24.05.2024 - 22:08
Corina Avram skrifaði:
Hi! How much does the pattern stretches? Based on the measurements (my bust is 88cm) I would be knitting size M, but I am afraid that after a few wearings it would be too loose.
15.04.2024 - 10:39DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Avram, it shouldn't stretch that much, choose the best appropriate size choosing your own ease and make sure to get the correct tension, and then washing the yarn as recommended. Happy knitting!
16.04.2024 - 07:50
Hilde skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team. Ich habe Probleme bei den Abnahmen Auf der linken Seite sieht alles ok aus. Auf der rechten Seite (= 1M abheben/1stricken dann überziehen) sieht es unregelmäßig aus. Woran könnte das liegen? Vielen Dank für einen Rat. MfG
14.06.2023 - 21:19DROPS Design svaraði:
Liebe Hilde, per Ferndiagnose ist es etwas schwierig, einen Fehler zu erkennen.Spannen danach kann helfen, eine regelmäßige Arbeit zu haben. Am besten zeigen Sie Ihrem DROPS Laden Ihr Strickstück; vielleicht kann man Ihnen dort weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
15.06.2023 - 09:03
Claudia Parodi skrifaði:
Come mai nella spiegazione del corpo a deve seguire solo il diagramma A1 e non anche A2 e A3?
04.05.2023 - 12:51DROPS Design svaraði:
I diagrammi A.2 e A.3 vengono utilizzati sul bordo del collo, che ha una lavorazione diversa. Buon lavoro!
04.05.2023 - 17:36
Julia skrifaði:
Dzień dobry. Jestem początkująca i trochę nie rozumiem odejmowania oczek. Rozumiem, że przy rozmiarze s powinnam co czwarty rząd, cztery razy odjąć po jednym oczku na każdej stronie. Pomyślałam sobie, że żeby wyszło jak na zdjęciu powinnam najpierw zrobić oczko brzegowe, później pięć oczek jak w schemacie, a później odjąć oczko. Ale totalnie nie wygląda to jak wzór na zdjęciu. Wydaje mi się, że całkiem źle zrozumiałam wzór. Pozdrawiam
03.04.2023 - 22:52DROPS Design svaraði:
Witaj Julio, w rozmiarze S będziesz zamykać/odejmować: 4 razy 1 oczko z każdej strony co 4 rzędy, dalej 4 razy 1 oczko z każdej strony co 2 rzędy i w końcu 2 razy 2 oczka z każdej strony co 2 rzędy. Jak to robić znajdziesz w części ZAMYKANIE OCZEK (na górze wzoru). Jak wykonać to zamykanie możesz zobaczyć w sekcji video na dole, pod wzorem (kilka filmów na samej górze). W razie problemów pisz. Pozdrawiamy!
04.04.2023 - 08:18
Pink Shell#pinkshelltop |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað með áferðamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 211-10 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu: Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 6 lykkjur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 6 lykkjur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri), prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Toppurinn er prjónaður í hring á hringprjóna upp að handveg. Lykkjur eru felldar af í hvorri hlið fyrir handveg og síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 120-132-144-150-168-192 lykkjur á hringprjóna 5,5 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 60-66-72-75-84-96 lykkjur (= í hliðum). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið A.1 hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 30-32-33-34-35-36 cm – stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé umferð með (2 lykkjur slétt + 1 lykkja brugðið). Prjónið nú næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 4-4-7-7-7-10 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 51-57-60-60-69-78 lykkjur, fellið af næstu 9-9-12-15-15-18 lykkjur (þ.e.a.s. 5-5-5-8-8-8 lykkjur á undan prjónamerki og 4-4-7-7-7-10 lykkjur á eftir prjónamerki), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 51-57-60-60-69-78 lykkjur, fellið af síðustu 5-5-5-8-8-8 lykkjur. Klippið frá. Prjónið síðan framstykki og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 51-57-60-60-69-78 lykkjur. Byrjun frá réttu og prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar úrtaka í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð 4-1-2-3-2-1 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 4-10-9-8-10-12 sinnum og að lokum er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-4 sinnum (= 12-15-15-15-18-21 lykkjur færri í hvorri hlið) = 27-27-30-30-33-36 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: = 51-57-60-60-69-78 lykkjur. Prjónið á sama hátt og framstykki. Þegar bakstykkið hefur verið prjónað til loka, prjónið kant í hálsmáli. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir 27-27-30-30-33-36 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 12-12-12-15-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= band á öxl), prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir 27-27-30-30-33-36 lykkjur á framstykki (setjið til baka lykkjur á prjóninn), fitjið upp 12-12-12-15-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn = 78-78-84-90-96-102 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: * Prjónið A.2 yfir fyrstu 27-27-30-30-33-36 lykkjurnar, prjónið A.3 yfir næstu 12-12-12-15-15-15 lykkjur *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir band á öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkshelltop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.