DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spiced Breeze

Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 211-15
DROPS Design: Mynstur w-807
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 65, ryð

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um handveg):
Fækkið lykkjum innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu:
Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjur í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 2 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 2 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Að lokum eru axlasaumar saumaðir.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 136-148-164-180-200-220 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 68-74-82-90-100-110 lykkjur. Prjónamerkin merkja hliðar á fram- og bakstykki.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 10-10-14-14-20-24 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerin sitja mitt í þessum 10-10-14-14-20-24 lykkjum – aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni).
Í fyrstu umferð á eftir 4 umferðum garðaprjón, fellið af fyrir handveg þannig:
Fellið af 3-3-5-5-8-10 lykkjur, prjónið 62-68-72-80-84-90 lykkjur sléttprjón, fellið af 6-6-10-10-16-20 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6-6-10-10-16-20 lykkja), prjónið 62-68-72-80-84-90 lykkjur sléttprjón og fellið af þær 3-3-5-5-8-10 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Framstykkið og bakstykkið er nú prjónað hvort fyrir sig til loka.

FRAMSTYKKI:
= 62-68-72-80-84-90 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka og 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-5-5-7-7-8 sinnum í hvorri hlið = 54-58-62-66-70-74 lykkjur eftir. Á eftir síðustu úrtöku fyrir handveg, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm.
Í næstu umferð frá réttu, fellið af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón, fellið síðan af næstu 34-38-42-38-42-46 lykkjur fyrir hálsmáli (fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur), prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Nú eru 10-10-10-14-14-14 lykkjur eftir í hvorri hlið fyrir hlýra. Hlýrarnir eru prjónaðir til loka hvor fyrir sig.

HLÝRI:
= 10-10-10-14-14-14 lykkjur. Prjónið stroff fram og til baka eins og áður með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til allt stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm frá uppfitjunarkanti (eða að óskaðri lengd). Fellið af.
Prjónið hinn hlýrann á sama hátt.

BAKSTYKKI:
= 62-68-72-80-84-90 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka og 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (ekki í hverri umferð eins og á framstykki) alls 4-5-5-7-7-8 sinnum í hvorri hlið = 54-58-62-66-70-74 lykkjur.
Á eftir síðustu úrtöku fyrir handveg, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm.
Í næstu umferð frá réttu, fellið af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón, fellið síðan af næstu 34-38-42-38-42-46 lykkjur fyrir hálsmáli (fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur), prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Nú eru 10-10-10-14-14-14 lykkjur eftir í hvorri hlið fyrir hlýra. Hlýrarnir eru prjónaðir til loka hvor fyrir sig á sama hátt og á framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Spiced Breeze

Madlin, United States

Spiced Breeze

Rian, Netherlands

Spiced Breeze

@phrancesknits, Italy

Spiced Breeze

Angie, France

Spiced Breeze

Juliette, United Kingdom

Spiced Breeze by DROPS Design

Svetlana Cox, United States

211-15 Spiced Breeze

Ivica, Croatia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Laveda Loose wrote:

Etsy listing 999106815 beginner-easy-sleeveless-vest-tank Are you guys allowing Etsy merchants to sell your patterns? I just bought this off this Etsy merchant and found it on your site for free.

27.12.2023 - 23:59

DROPS Design answered:

Dear Laveda, thank you for the information. We will communicate this to the corresponding department for them to analyse and respond.

28.12.2023 - 22:41

country flag Christine Løkkebø wrote:

This pattern is being sold on Etsy, this is the item-link (without the website url): /listing/792038227/knitting-pattern-beginner-easy\r\n\r\n I have reported the item, but think the studio itself should do the same :) The Etsy seller is: VintagePatternFaves

25.11.2023 - 18:32

country flag Jessica wrote:

Hello! I have a question about the body portion of the pattern. I am working size M so I need the piece to measure 8 3/4". Do I measure from the cast on edge or top of rib pattern?

08.08.2023 - 22:02

DROPS Design answered:

Dear Jessica, measure from the cast on edge, ie total measurements. Happy knitting!

09.08.2023 - 08:15

country flag Cameron wrote:

Someone on etsy is selling this pattern. Is there someone I should contact about this?

05.08.2023 - 18:09

DROPS Design answered:

Dear Cameron, please help us reporting this on Etsy. Thank you very much for your help!

07.08.2023 - 09:46

country flag Nidhi Srivastava wrote:

Thank you. Your explanation has cleared my confusion.

21.07.2023 - 09:58

country flag Nidhi Srivastava wrote:

I am knitting Spiced Breeze size M (148sts). I am stuck at following two places. Please guide me. 1. Should there be 10 stitches on either side for the marker threads for making garter stitches in the middle. 2. I do not have equal number of stitches between the stitches cast off. After casting off 3 stitches on first round I have 71 stitches and after 6 stitch cast off I have exact 68 stitches. What have I done wrong here please help Regards

18.07.2023 - 14:00

DROPS Design answered:

Dear Nidhi, 1. you work over the middle 10 stitches in each side with the marker in the middle, so you should have 5 stitches in garter stitch on each side of the markers. 2. When casting off, you should have the following: beginning at the marker cast off 3 stitches, work 68 stitches, cast off 3 stitches (3 before the marker and 3 after the marker), 68 stitches and cast off 3 stitches. 3+68+6+68+3=148, the same number you have cast on. Check that you have cast on the correct number of stitches and that you didn't decrease anywhere. Happy knitting!

20.07.2023 - 13:31

country flag Norma Van Der Sijs wrote:

Welke steek is het mooist om te gebruiken bij het sluiten van de schouderbandjes?

17.05.2023 - 12:03

DROPS Design answered:

Dag Norma,

Deze zou je met onzichtbare maassteken dicht kunnen naaien. Hiervan staat een link van een video onderaan het patroon.

17.05.2023 - 17:36

country flag Louisa wrote:

Hallo! Bezieht sich die Angabe von 22 cm bei Größe M auf die Länge ab dem Rippenmuster oder auf die Gesamtlänge der Arbeit ab dem Anschlag?

24.04.2023 - 17:09

DROPS Design answered:

Liebe Louisa, messen Sie diese 22 cm ab dem Anschlag. Viel Spaß beim stricken!

25.04.2023 - 08:03

country flag Gabriella Castellanos wrote:

Would making the body 3-5 cm longer affect the pattern/fitting?

17.03.2023 - 20:35

DROPS Design answered:

Dear Gabriella, you can lengthen the body at the beginning, when you work stotking stitch in the round for 13-14-15-16-17-18 cm (until it measures 21-22.... cm). Since you don't increase the amount of stitches, it shouldn't affect the pattern. Happy knitting!

19.03.2023 - 22:56

country flag Sophia wrote:

I would like advise as to where to place the decrease for the armhole. The instructions say "Decrease for armhole inside 2 edge stitches" so should I k1 garter edge, decrease 1 stitch, and then k1 garter edge or do I k2 garter edge stitches then decrease. I am confused as the instruction mention decreasing "after" and "before" edge stitches but also mention doing the decrease "inside" two edge stitches.

22.07.2022 - 18:09

DROPS Design answered:

Dear Sophia, decrease after or before 2 edge sts, so that the outermost 2 (edge) stitches are always preserved and form a continuous edge. Happy knitting!

22.07.2022 - 18:57