Tina skrifaði:
Hei, i oppskriften så står det: “ Strikk videre og fell av til ermehull på begynnelsen av hver pinne i hver side slik: Fell av 3 masker 1-1-1-2-2-2 ganger, 2 masker 1-2-3-4-6-8 ganger og 1 maske 2-3-3-2-2-3 ganger = 84-88-94-98-104-108 masker.” Betyr det da at man skal felle av på begynnelsen og slutten av pinnen innsamle rad? For hvis ikke så blir felling vel ujevn?
02.05.2021 - 21:45DROPS Design svaraði:
Hei Tina, Du feller på begynnelsen av hver pinne (begynnelse av pinnen fra retten og begynnelse av pinnen fra vrangen) for hvert tall som er gitt. F.eks. hvis du strikke S, feller du 3 masker 1 gang fra retten og 1 gang fra vrangen, så 2 masker fra retten og 2 masker fra vrangen osv. God fornøyelse!
03.05.2021 - 07:36
José Henkelman skrifaði:
Hoeveel bolletjes wol moet ik aanschaffen voor maat M?
27.03.2021 - 12:13DROPS Design svaraði:
Dag José,
Bovenaan bij de materialenlijst staat dat je 150 gram nodig hebt. 1 bol Flora weegt 50 gram, dus je hebt 3 bollen nodig voor maat M.
02.04.2021 - 11:26
Ingrid skrifaði:
Hei, hvordan er denne i vanskelighetsgrad? jeg er nybegynner
17.03.2021 - 00:05DROPS Design svaraði:
Hej Ingrid, der er flere forskellige teknikker i denne model, men nederst i opskriften har vi videoer på alt man kan tænke sig til denne opskrift, så god fornøjelse!
17.03.2021 - 14:34
Lien Dunnebier skrifaði:
Kan je het patroon 210-35 breien op 2 rechte naalden?
07.03.2021 - 13:33DROPS Design svaraði:
Dag Lien,
Ja, dat zou kunnen. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
09.03.2021 - 11:30
Søs skrifaði:
Hej. Jeg forstår ikke nedenstående. Hvordan strikker man 2 masker ret sammen INDENFOR 1 kantmaske retstrik.. luk af til v-hals ved at strikke 2 masker ret sammen indenfor 1 kantmaske retstrik mod halsen på hver pind fra retsiden..
22.02.2021 - 09:58DROPS Design svaraði:
Hej Søs, når du har 3 masker tilbage før V-halsen, så strikker du 2 masker ret sammen og så den sidste kantmaske som du har strikket hele tiden. God fornøjelse!
23.02.2021 - 14:21
Yvonne Nielsen skrifaði:
Hej Denne vest , kan man ikke strikke for og bagstykke sammen også skifte til 2 pinde ved ærmgab Mvh Yvonne
20.02.2021 - 07:50DROPS Design svaraði:
Hej Yvonne, Ja absolut :)
23.02.2021 - 13:53
Annie Gustafsson skrifaði:
Hej! Har precis beställt garn til denna slipover, där står att man ska använda rundsticka, går det lika bra med vanliga stickor istället? Mvh Annie
17.02.2021 - 18:57DROPS Design svaraði:
Hej Annie, absolut :)
18.02.2021 - 08:37
Sasha Levy skrifaði:
What size vest would fit a bust size 95-97?
12.01.2021 - 17:29DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Levy, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to those in the chart. This will help you to find out the matching size. You will then find the required materials in grams in the header - read more here. Happy knitting!
13.01.2021 - 08:06
Sasha Levy skrifaði:
How many balls do I need for a size L?
12.01.2021 - 17:25
Vibeke skrifaði:
Det står fremdeles ulik lengde opp til ermhull på for- og bakstykke i den norske oppskriften.
20.12.2020 - 11:31DROPS Design svaraði:
Hej Vibeke. Tack för info, detta är nu rättat. Mvh DROPS Design
22.12.2020 - 08:46
Minimalist#minimalistvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover með v-hálsmáli úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-35 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig neðan frá og upp. Síðan eru stykkin sett saman á öxlum og í hlið. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjón og kantur í handveg er prjónaður í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-116-128-140-158-176 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Flora. Prjónið stroff með 3 lykkjum slétt, 3 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu jafnframt er fækkað um 12-16-18-18-22-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-110-122-136-150 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með 7-5-5-6-6-6 cm millibili alls 3-4-4-4-4-4 sinnum = 98-108-118-130-144-158 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm. Prjónið áfram og fellið af lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-6-8 sinnum og 1 lykkja 2-3-3-2-2-3 sinnum = 84-88-94-98-104-108 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið yfir fyrstu 25-27-29-31-33-34 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 34-34-36-36-38-40 lykkjur og prjónið yfir síðustu 25-27-29-31-33-34 lykkjur. Prjónið síðan axlir hvora fyrir sig, byrjið með vinstri öxl frá röngu. VINSTRI ÖXL: = 25-27-29-31-33-34 lykkjur. Prjónið sléttprjón með byrjun frá röngu og fellið af 1 lykkju við hálsmál í næstu umferð frá réttu = 24-26-28-30-32-33 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu og klippið frá. Nú á að prjóna hægri öxl með byrjun frá réttu. HÆGRI ÖXL: = 25-27-29-31-33-34 lykkjur. Prjónið sléttprjón með byrjun frá réttu og fellið af 1 lykkju við hálsmál í næstu umferð frá röngu = 24-26-28-30-32-33 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu og klippið frá. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 104-116-128-140-158-176 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Flora. Prjónið stroff með 3 lykkjum slétt, 3 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu jafnframt er fækkað um 12-16-18-18-22-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-110-122-136-150 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með 7-5-5-6-6-6 cm millibili alls 3-4-4-4-4-4 sinnum = 98-108-118-130-144-158 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fellið nú af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli, í nokkrum stærðum byrjar úrtaka fyrir v- hálsmáli áður en affellingin fyrir handveg er lokið. Setjið eitt prjónamerki mitt í stykkið, þannig að það séu jafnmargar lykkjur í hvorri hlið (= 49-54-59-65-72-79 lykkjur í hvorri hlið). Látið þetta prjónamerki fylgja með í stykkinu. Úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar þegar stykkið mælist 28-30-31-33-34-35 cm og er gerð þannig: Byrjið frá réttu (= vinstri öxl), prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan prjónamerki. Prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setið þær lykkjur sem eftir eru á þráð án þess að prjóna þær (= hægri öxl). Hægri öxl er nú prjónuð héðan. VINSTRI ÖXL: Prjónið sléttprjón, haldið áfram að fella af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál í hverri umferð frá réttu. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til eftir eru alls 24-26-28-30-32-33 lykkjur. Þegar úrtöku er lokið er prjónað áfram eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn. Byrjið frá réttu við prjónamerki: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri) og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál, haldið áfram að fella af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til eftir eru alls 24-26-28-30-32-33 lykkjur. Þegar úrtöku er lokið er prjónað áfram eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju meðfram kanti í hálsmáli. Notið hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu mitt framan í skiptingunni fyrir v-hálsmáli og prjónið upp 128-132-136-140-148-152 lykkjur (verður að vera deilanlegt með 4). Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka, byrjið að prjóna 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið þar til stroffið mælist ca 2½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Leggið hægri hluta af kanti í hálsmáli mitt framan yfir vinstri hluta, þannig að stykkin skarist. Saumið fallega niður í ystu kantlykkjuna við hálsmál. Endurtakið alveg eins að innanverðu, þannig að vinstra stykkið er saumað við hægra innan á stykkinu. ATH: Ekki á að sauma í affellingarkantinn. KANTUR Í HANDVEGI: Prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju meðfram handveg, notið stuttan hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu við hliðarsaum og prjónið upp 108 til 148 lykkjur (verður að vera deilanlegt með 4). Kantur í handvegi er prjónaður í hring. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjum slétt, 2 lykkjum brugðið þar til stroffið mælist ca 2½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #minimalistvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.