DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 216-30
DROPS Design: Mynstur ai-282
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 10, þoka

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 4-4-4-5-5-5 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 174 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 17,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 16. og 17. hverja lykkju slétt saman.

HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan þegar flíkin er mátuð):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Það er fallegast ef fellt er af fyrir hnappagatið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einni einingu með 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Neðsta hnappagatið er staðsett ca 6 cm frá neðri kanti, efsta hnappagatið er nákvæmlega áður en úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar, staðsetjið 2-2-2-3-3-3 síðustu hnappagötin jafnt yfir miðað við þessi.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er framstykkin og bakstykkið prjónað til loka hvert fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli/kantur að framan/kantar í handveg.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 160-176-188-204-224-244 lykkjur á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5, haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 150-166-178-194-214-234 lykkjur – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan.

Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 35-39-42-45-50-55 lykkjur, fellið af næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur, prjónið næstu 68-76-82-88-98-108 lykkjur, fellið af 6-6-6-8-8-8 lykkjur og prjónið síðustu 35-39-42-45-50-55 lykkjur í umferð. Héðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka hvert fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 35-39-42-45-50-55 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fellið af fyrir handveg í hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum og fellið af 1 lykkju 4-7-8-7-10-14 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli við miðju að framan, prjónið 2 lykkjur slétt saman innan við kantlykkju. Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili alls 13-14-14-15-15-16 sinnum. Eftir allar úrtökur eru 16-16-18-19-21-21 lykkjur eftir í umferð. Fellið af þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (20-21-22-23-24-25 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt.

BAKSTYKKI:
= 68-76-82-88-98-108 lykkjur. Prjónið sléttprjón og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum og fellið af 1 lykkju 4-7-8-7-10-14 sinnum = 56-58-62-66-70-72 lykkjur.

Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm (nú eru eftir ca 2 cm til loka). Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 17-17-19-20-22-22 lykkjur, fellið af næstu 22-24-24-26-26-28 lykkjur og prjónið síðustu 17-17-19-20-22-22 lykkjur. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá – vinstri öxl er prjónuð áfram frá röngu héðan.

VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI:
= 17-17-19-20-22-22 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með byrjun frá röngu og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu = 16-16-18-19-21-21 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af við framstykkin. Fellið af og klippið þráðinn frá.

HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI:
= 17-17-19-20-22-22 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með byrjun frá réttu og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá röngu = 16-16-18-19-21-21 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af við framstykkin. Fellið af og klippið þráðinn frá.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR AÐ FRAMAN/KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið er notað síðar þegar helmingur af lykkjum í kanti að framan/kanti í hálsmáli er talinn. Kantur að framan er prjónaður upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki og það er 1. umferð sem er prjónuð í kringum hálsmál.
Byrjið neðst á hægra framstykki frá réttu og prjónið upp með hringprjón 4 ca 112-118-122-126-130-136 lykkjur meðfram öllum kanti að framan upp að prjónamerki í hnakka – látið prjónamerkið sitja hér.
Haldið áfram að prjóna upp ca 112-118-122-126-130-136 lykkjur meðfram öllum kanti að framan niður að kanti á vinstra framstykki, allur lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 = 224-236-244-252-260-272 lykkjur. Það er mikilvægt að stroffið verði ekki of laust með of mörgum lykkjum, en það má heldur ekki draga kanta að framan saman vegna of fárra lykkja. Prjónið frá röngu í næstu umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist ca 1½ cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu þar sem stykkið skiptist fyrir handveg. Notið hringprjón 4 og prjónið upp ca 84 til 124 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4).
Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið annan kant í kringum hinn handveginn á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Mowy wrote:

Bonjour, Peut-on utiliser des aiguilles droites à la place de circulaires ? Merci de votre réponse

11.03.2024 - 22:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mowy, dans ce modèle, seule la bordure des emmanchures se tricote en rond. Cette leçon vous aidera à faire les ajustements nécessaires si besoin; bon tricot!

12.03.2024 - 07:40

country flag Catherine wrote:

When I knit the swatch as suggested (17 sts Wide and 22 rows Height = 10x10 cm) my swatch measures 8 cm W x 9 cm H. In stocking stitch on 5mm needles. What should I do? Thank you.

19.02.2024 - 08:23

DROPS Design answered:

Dear Catherine, do you work with DROPS Air or any alternative? You should then try again with larger needles as your stitches look to be too small. Read more here. Happy knitting!

19.02.2024 - 09:58

country flag Julia Edwards wrote:

I've knitted this pattern as far as the casting off for the armholes. You say the front and back pieces are finished separately, but after the 1st cast off, I'm left with knitting what will be the left front piece from the wrong side, not the right front piece. Do I have to break off the yarn and start knitting from the right front piece?

15.12.2023 - 14:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Edwards, you can put aside without cutting the yarn and work the left front piece afterwards, join yarn to right front piece and finish each piece separately. Happy knitting!

15.12.2023 - 15:44

country flag Samia Shafqaat wrote:

Hello I am quite new to knitting and trying to understand the arm and neck shaping for this pattern. Can you please explain this step for armhole shaping: "Cast off 2 stitches 1-1-1-2-2-2 times and 1 stitch 4-7-8-7-10-14 times." for size medium. thanks

04.12.2023 - 16:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Shafqaat, size M is 2nd size, so that you will follow all 2nd numbers, and you will cast off for armhole at the beginning of every row from the side (from RS on right front piece, from WS on left front piece, at the beg of both row from RS and WS for back piece): 2 stitches 1 time then 1 stitch 7 times. Happy knitting!

05.12.2023 - 08:36

country flag Julia Edwards wrote:

Thank you for your very helpful reply. However, I don't quite understand why I need 8 balls of Nepal wool for this pattern; the pattern says it needs 200g of Air wool, and as each ball of Nepal is 50 g, surely I'd need only 4 balls of Nepal to make up that weight? Air and Nepal both belong to the same group ©

07.08.2023 - 15:17

DROPS Design answered:

Hi Julia, You are quite right, yarns belonging to the same group can be interchanged without adjustments, so you only need 4 balls of Nepal. Happy crafting!

10.08.2023 - 06:50

country flag Julia Edwards wrote:

I am interested in knitting this pattern using some yarn left from another pattern. I have Drops Nepal and Drops Kidsilk, could I use these together for this pattern? And if so, how much of each would I need for size M or L? Thank you!

05.08.2023 - 17:48

DROPS Design answered:

Dear Julia, you can use only Nepal for this; if you want to combine them you could try and see if the gauge will match the one in the pattern. You would need 8 balls of Nepal for this pattern for both sizes. Happy knitting!

06.08.2023 - 21:41

country flag Ruth wrote:

Your CHEST measurements show for a size small to be 48 cm which does not make sense. Is that an error? Thank you

27.01.2023 - 19:13

DROPS Design answered:

Dear Ruth, the measurements in the schematic are for half of the chest. For size S, it's 44 cm, so the actual chest of the garment is 88cm. Happy knitting!

29.01.2023 - 20:13

country flag Maria Elisabete wrote:

Meu tamanho e o M. na linha Air quantos novelos eu preciso usar para fazer esse colete

12.06.2022 - 22:02

DROPS Design answered:

Bom dia, Vai precisar de 4 novelos do fio Air. Bons tricôs!

13.06.2022 - 09:45

country flag Lennart Hägg wrote:

Vad finns för alternativ till drops air?

06.03.2021 - 10:23

country flag SOFIA COELHO wrote:

Bom dia. Há uma gralha aqui: «COLETE – SUMÁRIO DA PEÇA: Tricota-se de cima para baixo, em idas e voltas na agulha circular, a partir do meio da frente até às cavas.» Não se tricota de cima para baixo.

02.11.2020 - 10:58