DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 210-35
DROPS Design: Mynstur fl-054
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200-200-200-250 g litur 07, beige

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig neðan frá og upp.
Síðan eru stykkin sett saman á öxlum og í hlið. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjón og kantur í handveg er prjónaður í hring á stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 104-116-128-140-158-176 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Flora. Prjónið stroff með 3 lykkjum slétt, 3 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu jafnframt er fækkað um 12-16-18-18-22-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-110-122-136-150 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með 7-5-5-6-6-6 cm millibili alls 3-4-4-4-4-4 sinnum = 98-108-118-130-144-158 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm. Prjónið áfram og fellið af lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-6-8 sinnum og 1 lykkja 2-3-3-2-2-3 sinnum = 84-88-94-98-104-108 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið yfir fyrstu 25-27-29-31-33-34 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 34-34-36-36-38-40 lykkjur og prjónið yfir síðustu 25-27-29-31-33-34 lykkjur. Prjónið síðan axlir hvora fyrir sig, byrjið með vinstri öxl frá röngu.

VINSTRI ÖXL:
= 25-27-29-31-33-34 lykkjur. Prjónið sléttprjón með byrjun frá röngu og fellið af 1 lykkju við hálsmál í næstu umferð frá réttu = 24-26-28-30-32-33 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu og klippið frá. Nú á að prjóna hægri öxl með byrjun frá réttu.

HÆGRI ÖXL:
= 25-27-29-31-33-34 lykkjur. Prjónið sléttprjón með byrjun frá réttu og fellið af 1 lykkju við hálsmál í næstu umferð frá röngu = 24-26-28-30-32-33 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu og klippið frá.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 104-116-128-140-158-176 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Flora. Prjónið stroff með 3 lykkjum slétt, 3 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu jafnframt er fækkað um 12-16-18-18-22-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-110-122-136-150 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með 7-5-5-6-6-6 cm millibili alls 3-4-4-4-4-4 sinnum = 98-108-118-130-144-158 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fellið nú af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli, í nokkrum stærðum byrjar úrtaka fyrir v- hálsmáli áður en affellingin fyrir handveg er lokið.
Setjið eitt prjónamerki mitt í stykkið, þannig að það séu jafnmargar lykkjur í hvorri hlið (= 48-54-59-65-72-79 lykkjur í hvorri hlið). Látið þetta prjónamerki fylgja með í stykkinu.
Úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar þegar stykkið mælist 28-30-31-33-34-35 cm og er gerð þannig: Byrjið frá réttu (= vinstri öxl), prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan prjónamerki. Prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setið þær lykkjur sem eftir eru á þráð án þess að prjóna þær (= hægri öxl). Hægri öxl er nú prjónuð héðan.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið sléttprjón, haldið áfram að fella af fyrir handveg eins og á bakstykki og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál í hverri umferð frá réttu. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til eftir eru alls 24-26-28-30-32-33 lykkjur. Þegar úrtöku er lokið er prjónað áfram eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRI ÖXL:
Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn. Byrjið frá réttu við prjónamerki: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri) og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál, haldið áfram að fella af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til eftir eru alls 24-26-28-30-32-33 lykkjur. Þegar úrtöku er lokið er prjónað áfram eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju meðfram kanti í hálsmáli. Notið hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu mitt framan í skiptingunni fyrir v-hálsmáli og prjónið upp 128-132-136-140-148-152 lykkjur (verður að vera deilanlegt með 4). Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka, byrjið að prjóna 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju garðaprjón.
Prjónið þar til stroffið mælist ca 2½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Leggið hægri hluta af kanti í hálsmáli mitt framan yfir vinstri hluta, þannig að stykkin skarist. Saumið fallega niður í ystu kantlykkjuna við hálsmál. Endurtakið alveg eins að innanverðu, þannig að vinstra stykkið er saumað við hægra innan á stykkinu.
ATH: Ekki á að sauma í affellingarkantinn.

KANTUR Í HANDVEGI:
Prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju meðfram handveg, notið stuttan hringprjón 2,5.
Byrjið frá réttu við hliðarsaum og prjónið upp 108 til 148 lykkjur (verður að vera deilanlegt með 4). Kantur í handvegi er prjónaður í hring. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjum slétt, 2 lykkjum brugðið þar til stroffið mælist ca 2½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.11.2020
Leiðrétting: FRAMSTYKKI:.. = 98-108-118-130-144-158 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Leiðrétting í úrtöku fyrir V-hálsmáli.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Beth Knoedelseder wrote:

I need clarification where the pattern says to increase 1 stitch inside 1 edge stitch every 5 cm 4 times in total=118 stitches. If I start with 128 stitches, how do I have less stitches if I increase? Thank you for your help with this.

15.01.2023 - 19:30

DROPS Design answered:

Hi Beth, After the rib (and changing needles) you knit 1 row from the right side and decrease 18 stitches evenly spaced. You have 110 stitches before starting the stocking stitch. When the piece measures 7 cm you begin increasing on each side x 4, which will leave you with 118 stitches. Happy knitting!

16.01.2023 - 06:56

country flag Lilou wrote:

Bonjour, j'avais ce décalage en terminant la manche et grâce à votre vidéo, j'ai résolu le problème. Merci beaucoup

30.09.2022 - 16:27

country flag Nadège wrote:

Bonjour Lorsqu’il est indiqué « quand l’ouvrage mesure 7cm » (pour le dos) est-ce qu’il s’agit de 7cm depuis le rang de montage ou depuis le début du jersey après les côtes ? Idem pour les autres mesures s’agit-il des cm depuis le rang de montage ? Merci pour votre retour

20.06.2022 - 23:33

DROPS Design answered:

Bonjour Nadège, ces 7 cm doivent être mesurés à partir du rang de montage; comme les autres mesures indiquées, sauf si elles font référence à un endroit précis, ce qui n'est pas le cas ici. Bon tricot!

21.06.2022 - 09:24

country flag Kerstin Wadman Eriksson wrote:

Hur gör man maskstygn för att sy ihop stickade delar??

02.02.2022 - 17:07

DROPS Design answered:

Hej Kerstin. I denna video ser du hur du ska göra. Mvh DROPS Design

04.02.2022 - 11:47

country flag Carla wrote:

Is minderen na 5 cm boord goed ?

13.11.2021 - 12:28

DROPS Design answered:

Dag Carla,

Ja, je mindert inderdaad na 5 cm boord.

17.11.2021 - 14:35

country flag Carla Cohen wrote:

Brei ik de voor en achterkant apart., of met de rondbreinaaldnaald ?

11.11.2021 - 20:38

DROPS Design answered:

Dag Carla,

Je breit de panden apart van elkaar heen en weer.

23.11.2021 - 12:58

country flag May wrote:

Hi! For the neck edge it says to pick up stitches. Does this mean pick up and knit, or just pick up stitches? I'm confused by where it says to work the neck edge back and forth, but then it says to begin by knitting 1 row from the wrong side. Is this a pick up and knit, and at the end of the row you turn around and knit a row from the wrong side? Please clarify, thank you!

28.10.2021 - 04:09

DROPS Design answered:

Hi May, This means just pick up and then knit the first row from the wrong side. Happy knitting!

28.10.2021 - 07:04

country flag Luisa wrote:

Buongiorno, È la prima volta che mi cimento in un maglione/gilet. Non ho capito se le seguenti istruzioni: “Intrecciare ora per gli scalfi, all’inizio di ogni ferro da ciascun lato, come segue: Intrecciare 3 maglie 1-1-1-2-2-2 volte, 2 maglie 1-2-3-4-6-8 volte e 1 maglia 2-3-3-2-2-3 volte “ vanno fatte tutte sul primo ferro o se quando dicono X volte si indicano Ferri successivi …. Grazie mille!

03.10.2021 - 17:52

DROPS Design answered:

Buonasera Luisa, gli intrecci sono indicati per le diverse taglie, deve seguire la taglia corretta: ad esempio per la taglia S deve iniziare intrecciando 3 maglie per 1 volta, poi 2 maglie 1 volta e così via. Buon lavoro!

07.10.2021 - 00:37

country flag Tina wrote:

Hei, i oppskriften så står det: “ Strikk videre og fell av til ermehull på begynnelsen av hver pinne i hver side slik: Fell av 3 masker 1-1-1-2-2-2 ganger, 2 masker 1-2-3-4-6-8 ganger og 1 maske 2-3-3-2-2-3 ganger = 84-88-94-98-104-108 masker.” Betyr det da at man skal felle av på begynnelsen og slutten av pinnen innsamle rad? For hvis ikke så blir felling vel ujevn?

02.05.2021 - 21:45

DROPS Design answered:

Hei Tina, Du feller på begynnelsen av hver pinne (begynnelse av pinnen fra retten og begynnelse av pinnen fra vrangen) for hvert tall som er gitt. F.eks. hvis du strikke S, feller du 3 masker 1 gang fra retten og 1 gang fra vrangen, så 2 masker fra retten og 2 masker fra vrangen osv. God fornøyelse!

03.05.2021 - 07:36

country flag José Henkelman wrote:

Hoeveel bolletjes wol moet ik aanschaffen voor maat M?

27.03.2021 - 12:13

DROPS Design answered:

Dag José,

Bovenaan bij de materialenlijst staat dat je 150 gram nodig hebt. 1 bol Flora weegt 50 gram, dus je hebt 3 bollen nodig voor maat M.

02.04.2021 - 11:26