Maria skrifaði:
Hola! Me encanta este patrón y lo estoy tejiendo.. pero no entiendo muy bien hasta donde del diagrama he de tejer si confecciono la talla M. Muchas gracias por facilitarnos esta gran cantidad de patrones tan preciosos.
09.02.2020 - 18:47DROPS Design svaraði:
Hola Maria. Cuando la labor mida aprox. 6 cm desde la división en todas las tallas finalizar A.x después de una vuelta del patrón de motas. Continuar en punto jersey en redondo sobre todos los puntos.
09.02.2020 - 20:39
Claudia skrifaði:
Ganz herzlichen Dank für die schnelle Hilfe.
06.02.2020 - 20:07
Claudia skrifaði:
Liebes DROPS Design Team, ich komme mit Reihe 15 im Muster A1 nicht zurecht. In R 14 habe ich je Muster 6 Maschen zur Verfügung; ich weiß nicht, aus welcher M ich die erste der beiden Zunahmen in R 15 stricken soll. Was mache ich falsch?
05.02.2020 - 20:38DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, am Anfang jeder A.1 nehmen Sie zuerst 1 Masche = 3. Symbol (so nehmen Sie 1 Masche in nächsten Maschen zu - siehe Zeit 00:37), dann das Knotchen (wie zuvor) im 1. Maschen stricken, dann eine Masche zunehmen (wie beim 1. Video aber dieses Mal wie bei Zeit 00:15). Viel Spaß beim stricken!
06.02.2020 - 09:50
Tiziana skrifaði:
Buongiorno. Scusate non capisco al punto NOTA dove dice per le altre taglie Ax e Ay devono essere ripetuti fino alla lunghezza corretta , ma nello schema io non vedo il simbolo Ay. Grazie
28.01.2020 - 09:09DROPS Design svaraði:
Buongiorno Tiziana. Abbiamo corretto il testo; c'è solo il simbolo Ax. Buon lavoro!
28.01.2020 - 11:38
Alicia skrifaði:
Gracias por traducirlo a español .. es precioso y seguro que lo tejeré
17.01.2020 - 11:04
Sabine skrifaði:
I shall place a marker, mid front . When I divide sleeves this marker is now mid back. Does it matter? It's just confusing. Nice pattern!
16.01.2020 - 16:58DROPS Design svaraði:
Dear Sabine, when you add the marker after neck it should be inserted in the middle of the round (= not at the beginning of the round). When you divide piece at the end of yoke, the round start on mid back (as before) and your marker should be now in the middle of front piece. Happy knitting!
17.01.2020 - 08:00
Alicia skrifaði:
Una lástima que no esté traducido al español ...aunque se usen traductores al no tener el lenguaje de tejedores .. la traducción es bastante mala
14.01.2020 - 20:50
Dots and Drops#dotsanddropssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, hnútamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-9 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 5,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað er í hring á hringprjón frá hlið, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-110-114-118 lykkjur á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-24-30-30-41-52 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 110-120-130-140-155-170 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 hringinn (= 22-24-26-28-31-34 mynstureiningar með 5 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 220-240-260-280-310-340 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 22-24-26-28-31-34 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2. Eftir síðust útaukningu í A.2 eru 264-288-312-336-372-408 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við háls – ATH: Í minnstu stærðinni er A.2 ekki lokið í þessu máli og í hinum stærðunum verður að endurtaka A.x á hæðina að réttu máli (mynstrið á að halda áfram á fram- og bakstykki og ermum). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 38-42-46-49-55-62 lykkjur í mynstri eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 56-60-64-70-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 76-84-92-98-110-124 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 56-60-64-70-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-46-49-55-62 lykkjur sem eftir eru í mynstri eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-200-216-240-268 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Nú er haldið áfram með mynstur JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað í hliðum á fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan: Prjónið A.x hringinn, en passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við þar sem stykkið skiptist upp og passið uppá að hnútarnir séu staðsettir beint yfir hnúta á berustykki. Þær 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, endið A.x, en endið eftir 1 umferð með hnútum. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 5 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 156-172-188-204-228-256 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 172-188-206-224-250-280 lykkjur (það er aukið aðeins út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi kantinn saman). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 56-60-64-70-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykkinu á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-68-72-80-86-90 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan: Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið A.x hringinn, en passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við þar sem stykkið skiptist og passið uppá að hnútarnir séu staðsettir beint yfir hnútum á berustykki. Þær 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 12 cm frá skiptingu í öllum stærðum, endið A.x, en endið eftir 1 umferð með hnútum. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-1½-1-1 cm millibili alls 7-8-9-12-14-15 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 28-26-25-23-21-20 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 30-28-27-25-23-22 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dotsanddropssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.