Martina skrifaði:
Die Maschenanzahl stimmt bei mir, aber ich weiß nicht wie ich die 6 Maschen unter dem Ärmel stricken soll um im Muster zu bleiben (rechts und links dieser Maschen sind rechts Maschen)? Vielen Dank!
26.03.2020 - 13:04DROPS Design svaraði:
Liebe Martina, alle Maschen werden jetzt im Muster gestrickt, dh auch die Raglan-Maschen, die zuvor glatt rechts gestrickt waren, stricken Sie enfach alle Maschen wie zuvor und einfach weiter auf die neuen Maschen unter den Arm. Sollte die Maschenanzahl korrekt sein, dann wird das Muster auch passen. Viel Spaß beim stricken!
26.03.2020 - 13:22
Martina skrifaði:
Ich weiß nicht wie ich unter dem Ärmel im Muster bleiben kann, da ich eine ungerade Anzahl an Maschen für die Ärmel stillege und dann eine gerade Anzahl an Maschen unter die Ärmel aufnehme. Kann mir bitte jemand diesbezüglich helfen? Vielen Dank!
25.03.2020 - 21:33DROPS Design svaraði:
Liebe Martine, die Raglanmaschen wird zu den beiden Vorderteile und zum Rückenteil gestrickt, damit stimmt dann die Maschenanzahl. Viel Spaß beim stricken!
26.03.2020 - 09:47
Annette Pedersen skrifaði:
Hej I skriver at 21 masker i glatstrikket er 10 cm . men trøjen er ikke strikket i glatstrikning hvad er strikkefastheden i mønsterstrik ? Venlig hilsen Annette
24.01.2020 - 16:00
Edith skrifaði:
Hallo, welchen Durchmesser braucht man für die Knöpfe ?
06.01.2020 - 13:45DROPS Design svaraði:
Liebe Edith, hier finden Sie die knöpfe, diese messen 15 mm. Viel Spaß beim stricken!
06.01.2020 - 14:28
Amina skrifaði:
Esque je peux tricoter les Manches en aller-retour car je maîtrise pas tricot en rond ? Merci
21.12.2019 - 18:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Amina, tout à fait, vous trouverez ici quelques informations complémentaires à ce sujet; Bon tricot!
02.01.2020 - 09:36
Amina skrifaði:
Esque je peux tricoter les Manches en aller-retour car je maîtrise pas tricot en rond ? Merci
21.12.2019 - 18:34
Tuula Lehtonen skrifaði:
Todella vaikeaselkoinen ohje. Huono suomennus. En voinut jatkaa.
18.12.2019 - 18:38
Eva skrifaði:
Hei, jeg har funnet ut av mitt tidligere spørsmål om struktur mønster når det strikkes rundt på ermet. Omgangene som på bolen på vrangen strikkes alle masker vrangt, strikkes på ermet alle masker rett? Da ser mønsteret riktig ut. Oppskriften er ikke klar nok synes jeg. Takk
01.12.2019 - 09:25
Eva skrifaði:
Hei, jeg forstår ikke hvordan jeg strikker struktur mønster på ermet når jeg strikker rundt. Takk
30.11.2019 - 08:40DROPS Design svaraði:
Hei Eva! Når strukturmønster strikkes rundt strikkes strukturmønsteret alltid fra rettsiden. Derfor skal masker som er forklart som "vrang fra retten" skal strikkes vrang på hver omgang, mens masker som er forklart som "rett fra retten, vrang fra vrangen" skal strikkes rett på hver omgang. Lykke til!
02.12.2019 - 09:23
Marianne skrifaði:
Det er ikke særlig tydeligt, hvad I mener med de forskellige mønstre - kan I ikke lave en bedre forklaring.
22.11.2019 - 10:57
Sky Stripes Jacket#skystripesjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 34-20 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR OG MYNSTUR: Stykkið er prjónað í mynstri A.1, A.2 og A.3 – JAFNFRAMT eru prjónaðar rendur þannig: * Prjónið 3 cm með litnum ljós gallabuxnablár (meðtalinn kragi í hálsmáli) og síðan 2 cm með litnum hvítur * - endurtakið þessa litaröð þar til prjónaðar hafa verið 5-5-6-7-8-9 rendur með litnum hvítur á berustykki/fram- og bakstykki og 6-7-8-9-10-10 rendur með litnum hvítur á berustykki/ermi. Prjónið síðan áfram með litnum ljós gallabuxnablár til loka. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 141 lykkjur), mínus kanta að framan (= 131 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (= 27) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í hverri umferð frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur jafnóðum og aukið er út. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), prjónið 2 lykkjur slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 6 -7-6½-7-7-7½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið 5 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 1 cm, skiptið yfir í hringprjón 4 og fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 95-97-103-105-111-113 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið nú 4 prjónamerki fyrir LASKALÍNA í stykkið, án þess að prjóna þannig: Setjið 1. prjónamerki í 18.-18.-20.-20.-22.-22. lykkju, setjið 2. prjónamerki í 32.-32.-34.-34.-36.-36. lykkju, setjið 3. prjónamerki í 64.-66.-70.-72.-76.-78. lykkju, setjið 4. prjónamerki í 78.-80.-84.-86.-90.-92. lykkju. Prjónið síðan RENDUR OG MYNSTUR með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan og lesið allan næsta kafla áður en prjónað er áfram! Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir 1 lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 30-32-34-36-38-40 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fyrsta útaukningin fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri). Frá röngu er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1/A.2/A.3 (allar umferðir frá röngu í mynsturteikningu eru prjónaðar brugið) þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með rendur og mynstur og aukið út fyrir laskalínu þar til aukið hefur verið út alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 215-225-239-249-263-273 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og rendur þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 28-29-32-33-36-37 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 28-29-32-33-36-37 lykkjur mynstur eins og áður og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki) = 141-147-157-163-173-179 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan mynstur, rendur og kantlykkjur að framan eins og áður. ATH! Þegar prjónaðar hafa verið alls 5-5-6-7-8-9 rendur með litnum hvítur á að prjóna afganginn af stykkinu með litnum ljós gallabuxnablár. Þegar stykkið mælist 17-19-22-25-28-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 27-33-31-37-39-41 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 168-180-188-200-212-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 19-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjón til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 43-45-47-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 49-51-53-55-57-59 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (mitt undir ermi). Prjónið hringinn og haldið áfram með mynstur A.1 og rendur eins og áður (lykkja með prjónamerki er prjónuð slétt í hverri umferð áfram). Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um af 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 39-39-43-43-47-47 lykkjur. ATH! Þegar prjónaðar hafa verið alls 6-7-8-9-10-10 rendur með litnum hvítur á að prjóna afganginn af stykkinu með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið þar til stykkið mælist 19-23-27-31-35-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 3-3-3-3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 23-27-31-35-39-42 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjóna til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skystripesjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.