DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sky Stripes Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn með röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð 2-12 ára.

DROPS Children 34-20
DROPS Design: Mynstur sk-009-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-100-100-100-150 g litur 13, ljós gallabuxnablár
50-50-50-100-100-100 g litur 01, hvítur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, (Eik) NR 503: 5-5-6-6-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR OG MYNSTUR:
Stykkið er prjónað í mynstri A.1, A.2 og A.3 – JAFNFRAMT eru prjónaðar rendur þannig:
* Prjónið 3 cm með litnum ljós gallabuxnablár (meðtalinn kragi í hálsmáli) og síðan 2 cm með litnum hvítur * - endurtakið þessa litaröð þar til prjónaðar hafa verið 5-5-6-7-8-9 rendur með litnum hvítur á berustykki/fram- og bakstykki og 6-7-8-9-10-10 rendur með litnum hvítur á berustykki/ermi. Prjónið síðan áfram með litnum ljós gallabuxnablár til loka.

ÚTAUKNING (á við um jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 141 lykkjur), mínus kanta að framan (= 131 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (= 27) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í hverri umferð frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur jafnóðum og aukið er út.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), prjónið 2 lykkjur slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 6 -7-6½-7-7-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið 5 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 1 cm, skiptið yfir í hringprjón 4 og fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 95-97-103-105-111-113 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.

Setjið nú 4 prjónamerki fyrir LASKALÍNA í stykkið, án þess að prjóna þannig: Setjið 1. prjónamerki í 18.-18.-20.-20.-22.-22. lykkju, setjið 2. prjónamerki í 32.-32.-34.-34.-36.-36. lykkju, setjið 3. prjónamerki í 64.-66.-70.-72.-76.-78. lykkju, setjið 4. prjónamerki í 78.-80.-84.-86.-90.-92. lykkju.
Prjónið síðan RENDUR OG MYNSTUR með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan og lesið allan næsta kafla áður en prjónað er áfram!

Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir 1 lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 30-32-34-36-38-40 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning fyrir laskalínu). Prjónið A.2 yfir næstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fyrsta útaukningin fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri).
Frá röngu er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1/A.2/A.3 (allar umferðir frá röngu í mynsturteikningu eru prjónaðar brugið) þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með rendur og mynstur og aukið út fyrir laskalínu þar til aukið hefur verið út alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 215-225-239-249-263-273 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur og rendur þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá uppfitjunarkanti.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 28-29-32-33-36-37 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, prjónið 28-29-32-33-36-37 lykkjur mynstur eins og áður og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki) = 141-147-157-163-173-179 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið síðan mynstur, rendur og kantlykkjur að framan eins og áður. ATH! Þegar prjónaðar hafa verið alls 5-5-6-7-8-9 rendur með litnum hvítur á að prjóna afganginn af stykkinu með litnum ljós gallabuxnablár. Þegar stykkið mælist 17-19-22-25-28-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 27-33-31-37-39-41 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 168-180-188-200-212-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 19-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjón til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm, mælt frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 43-45-47-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 49-51-53-55-57-59 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (mitt undir ermi). Prjónið hringinn og haldið áfram með mynstur A.1 og rendur eins og áður (lykkja með prjónamerki er prjónuð slétt í hverri umferð áfram).
Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um af 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) - lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 39-39-43-43-47-47 lykkjur. ATH! Þegar prjónaðar hafa verið alls 6-7-8-9-10-10 rendur með litnum hvítur á að prjóna afganginn af stykkinu með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið þar til stykkið mælist 19-23-27-31-35-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 3-3-3-3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 23-27-31-35-39-42 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjóna til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur.

Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.08.2023
Leiðrétting í ÚRTAKA (á við um ermar) + ERMI.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Caroline Wallbank wrote:

I cannot make the raglan increases fit the number of stitches I cast on for the rib. It means the raglan is placed too far to one side. Surely there should be the same number of stitches for the front right and front left when the markers have been attached?

21.09.2020 - 17:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wallbank, there should be same number of sts on each front piece and on each sleeve - raglan increases are worked on each side of the stitch in stocking stitch(= raglan stitch), new stitches should be worked in pattern, ie 1 stitch in stocking st (= A.1 / 2,nd st in A.2)/1 stitch in garter stitch (1st st in A.2/A.3). You are welcome to tell more about size worked, row etc.. Happy knitting!

22.09.2020 - 11:13

country flag Caroline Wallbank wrote:

The increases for the yoke in the smallest size don't work. Please could you clarify. Is there a mistake?

19.09.2020 - 21:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wallbank, what do you mean with "don't work"? Can you please tell us more? So that we can explain another way how to do. Thanks for your comprehension.

21.09.2020 - 09:37

country flag Kerstin wrote:

De 6 maskorna som läggs upp under ärmen ska de stickas i mönstret? Blir i sådana fall inte jämt.

15.08.2020 - 11:36

DROPS Design answered:

Hej Kerstin. Ja det stämmer, det ska stickas runt och fortsättas med mönster och ränder som förut på alla maskor. Mvh DROPS Design

20.08.2020 - 13:58

country flag Jack wrote:

Bonjour, Que veut dire tricoter au dessus de la maille suivante s'il vous plaît ? Merci d'avance de votre aide. Cordialement

10.08.2020 - 20:04

DROPS Design answered:

Bonjour Jack, quand il est indiqué de tricoter A.3 au-dessus de la maille suivante, vous devez tricoter la maille suivante en suivant le diagramme A.3 (= alternativement 1 maille envers sur l'endroit et 1 maille envers sur l'envers). Bon tricot!

11.08.2020 - 08:44

country flag Johanne Rivard wrote:

Bonjour, désolé je ne comprends bien vos explications. Est-ce que toutes les augmentations se tricotent tous à l'endroit sur l'endroit. Pourriez-vous me donner un exemple où une augmentation se tricote à l'envers sur le côté endroit ? J'ai essayé de tricoter les augmentations au fur et à mesure en point fantaisie ( A1/A2/A3) mais ça ne fonctionne pas. Merci pour votre aide et patience.

14.07.2020 - 21:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rivard, tout à fait, lorsque l'augmentation est une maille que l'on doit tricoter en jersey (= comme la 1ère, la 3ème, la 5ème etc...) on la tricotera à l'envers sur l'envers. Les 2èmes, 4èmes, 6èmes ... augmentations se tricoteront au point mousse. Ainsi, le point fantaisie continuera toujours sans discontinuer. Les augmentations se font de part et d'autre de la maille jersey et vont se tricoter alternativement en jersey et au point mousse. Bon tricot!

15.07.2020 - 07:35

country flag Laila Susan Josefsen Møller wrote:

Barn - Sky Stripes Jacket: Efter raglanudtagning er der 263 masker. der skal strikkes til arb måler 17 cm uden indtagning eller andet. næste afsnit deles arbejdet... når maskeantallet lægges sammen bliver det til 275 masker - men I skriver, at der nu er 173 masker tilbage. Det er også dette tal i går videre med i opskriften. Hvordan kommer man fra 275 masker til 173 masker?

14.07.2020 - 13:25

DROPS Design answered:

Hej Laila, de 263 masker deler du arbejdet op til forstykker og bagstykke ifølge opskrifter, du sætter ærmerne på en tråd, slår 6 nye masker op under hvert ærme. Når du har gjort det har du 173 masker på pinden. God fornøjelse!

30.07.2020 - 14:09

country flag Johanne Rivard wrote:

Après avoir fait les augmentations du raglan, vous dites de tricoter en faisant le point fantaisie ( A1 , A2 , A3 ) . Comme le A2 a parfois 10 mailles, 12 mailles ou 30 . Pouvez-vous préciser quelle genre de mailles ( endroit ou envers ) doit-ont faire avec les augmentations car ils se situent toujours de chaque côté de la maille avec le marqueur. J'espère que je suis assez claire dans ma demande. Merci pour le beau patron et les explications.

14.07.2020 - 02:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rivard, les augmentations du raglan se tricotent en suivant le point fantaisie, autrement dit, quand on augmente au début de la manche/du dos/devant, on va tricoter la nouvelle maille comme la précédente du diagramme et quand on augmente à la fin du devant/dos/des manches, on tricote la nouvelle maille comme la maille suivante du diagramme. Par ex, à la première augmentation, vous aurez: 1 augm à tricoter en jersey, *1 m point mousse, 1 m jersey end*, 1 m point mousse, 1 augm à tricoter en jersey. L'augm. suivante sera à tricoter au point mousse. Bon tricot!

14.07.2020 - 09:15

country flag Anne wrote:

Skal det ikke være mønster A. 2 og ikke mønster A. 1 på ærmerne?

01.07.2020 - 00:13

DROPS Design answered:

Hej Anne. Jo det stämmer, du ska sticka mønster og striber som før (A.1 har nu tagits bort från texten där). Mvh DROPS Design

01.07.2020 - 12:27

country flag Sandra wrote:

In Größe 134/140 stricke ich die 19 M Raglanzunahmen folgendermaßen am Beispiel eines Vorderteils... nach den BlendenM 1x A1, 14x A2, 1x A3, dann die 19 M Zunahmen mustergemäß i. j. 2. R... Die 1. ZunahmeM wird im Muster re gestrickt, die 19. ZunahmeM dann ebenfalls re... die RaglanM auch re... bei den ÄrmelM gilt das selbe... wie soll das im weiteren Verlauf also gehen... 3 M re um die RaglanM? Es passt einfach nicht... ich hab ohne Fehler gestrickt...

14.05.2020 - 18:56

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, die 4 Raglanmaschen = die 4 Maschen mit einem Markierer, werden glatt rechts gestrickt, und die anderen Maschen werden immer im Muster gestrickt: 5 BlendeM, A.1 (= 1 M), A.2 (über 14 M wiederholen), A.3 (=1 M) => jetzt haben Sie 16 Maschen im Muster gestrickt - 1 Masche zunehmen, die Raglanmasche glatt rechts stricken, 1 Masche zunehmen, und jetzt wieder Muster: A.2 wiederholen und mit A.3 enden usw. Die Zunahmen stricken Sie dann immer weiter im Muster, dh abwechslungsweise 1 Masche kraus recht (= die 1. Masche in A.2 und die Masche in A.3, 1 Masche glatt rechts. Viel Spaß beim stricken!

15.05.2020 - 08:37

country flag Sandra wrote:

Die Ärmel werden lt. Ihren Angaben in der Anleitung nur mit Diagramm A1 gestrickt... vllt sollten Sie gemäß Ihrer unten genannten Antwort die Anleitung anpassen...

14.05.2020 - 17:06