Irene wrote:
Hej ! Jag får inte mönstret korrekt efter att ha ökat 6 maskor under armen när jag fortsätter att sticka så blir det ex två rätta brevid varandra efter ökningarna.
23.11.2023 - 17:42DROPS Design answered:
Hej Irene, jo men det vil ændre sig når du tager ud næste gang. Det som er vigtigt er at de nye masker strikkes ind i det mønster som allerede findes :)
24.11.2023 - 15:01Silvia wrote:
Nel raglan, lavorando l’aumento sotto il ritorto con l’A1, e quindi con un rovescio, il motivo viene sfalsato non a “coste” come dovrebbe.
06.11.2022 - 17:03DROPS Design answered:
Buonasera Silvia, le istruzioni sono corrette, non ci sono correzioni in merito. Buon lavoro!
13.11.2022 - 00:20Ulrike Aksoy wrote:
Ich möchte den Pulli in 4 Teile stricken also keine passe. Gibt es eine Anleitung?
12.02.2022 - 20:00DROPS Design answered:
Liebe Frau Aksoy, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage umrechnen. Hier finden Sie unsere Modellen für Kinderpullover mit angenähten Ärmel, sicher können Sie sich davon inspirieren lassen. Viel Spaß beim stricken!
14.02.2022 - 09:42Laura wrote:
I 18 cm (per la taglia più grande) prima di dividere il lavoro vanno misurati comprendendo il bordo a coste? Grazie
30.01.2022 - 10:45DROPS Design answered:
Buonasera Laura, si, le misure si prendono dal bordo di avvio. Buon lavoro!
30.01.2022 - 20:03Thea wrote:
Ik kom niet uit met het patroon na het wegzetten van de steken voor de mouwen. Dit geldt zowel voor het lijf als de mouwen. De mouwen beginnen en eindigen met een rechte, het voor- en achterpand met een averechte, waardoor dit niet op elkaar aansluit. Dit is ook logisch als je een oneven aantal steken apart zet. Hoe is dit het beste op te lossen?
16.11.2021 - 11:20Thea wrote:
Ik kom niet uit met het patroon na het wegzetten van de steken voor de mouwen. Dit geldt zowel voor het lijf als de mouwen. De mouwen beginnen en eindigen met een rechte, het voor- en achterpand met een averechte, waardoor dit niet op elkaar aansluit. Dit is ook logisch als je een oneven aantal steken apart zet. Hoe is dit het beste op te lossen?
15.11.2021 - 21:25DROPS Design answered:
Dag Thea,
Dat is inderdaad niet fraai. Voor het lijf zou je in de eerste of tweede naald twee steken kunnen samen breien in de beide zijnaden om vervolgens het patroon weer te hervatten.
26.11.2021 - 17:24RAQUEL ALVES wrote:
No diagrama do raglan para 9/10 a medida diz 16cm incluindo aumentos e na receita 17cm, qual está certo?
11.05.2021 - 14:16DROPS Design answered:
Bom dia, Sim, está certo, porque na receita, indica que separa o corpo a partir da carreira de montagem das malhas. 16 cm + 1 cm (da gola) do diagrama = 17 cm na receita. Bons tricôs!
12.05.2021 - 11:20Fleur wrote:
Ik ben aangeland bij de onderkant van het lijf. U zou ik 38 steken moeten meerderen, voordat je de boord breit. Dat lijkt mij erg veel, ondanks dat je overstapt op een dunnere naald. Klopt dit??
26.04.2021 - 10:16DROPS Design answered:
Dag Fleur,
Ja, het is inderdaad de bedoeling om 38 steken te meerderen.
29.04.2021 - 14:45Danyelle Lauzé wrote:
Excusez-moi je parlais de la fin du premier paragraphe de la section "Empiècement". Il est bien écrit ds faire un tour à l'envers, mais l'effet que donne ce rang est assez apparent et je ne vois pas la même effet sur le modèle de la photo. Est-ce normal?
19.04.2021 - 11:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lauzé, ce tour envers, combiné au tour endroit précédent où l'on va augmenter à intervalles réguliers, vont former 1 côte mousse entre les côtes du col et le début du raglan de l'empiècement. Cette côte mousse n'est effectivement pas réalisée pour le pull femme; à vous de décider si vous préférez la faire pour marquer le col/l'empiècement ou plutôt ne pas la faire et passer directement au raglan et au point fantaisie. Bon tricot!
19.04.2021 - 13:09
Sky Stripes Jumper |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 34-21 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR OG MYNSTUR: Stykkið er prjónað í mynstri A.1 og A.2 – JAFNFRAMT eru prjónaðar rendur þannig: * Prjónið 3 cm ljós gallabuxnablár (meðtalinn kragi í hálsi) og síðan 2 cm hvítur * - endurtakið þessa litaröð þar til prjónaðar hafa verið 5-5-6-7-8-9 rendur með hvítur á berustykki/fram- og bakstykki og 6-7-8-9-10-10 rendur með hvítum á berustykki/ermi. Prjónið síðan áfram með ljós gallabuxnablár til loka. ÚTAUKNING (á við um jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 138 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (= 26) = 5,3. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 4 lykkjurnar með prjónamerki í hverri umferð frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo að ekki myndist gat. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar inn í mynstur jafnóðum og aukið er út. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (= prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón 3 með ljós gallabuxnablár. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist ca 1 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið nú 4 prjónamerki fyrir LASKALÍNA í stykkið, án þess að prjóna þannig: Setjið 1. prjónamerki í 1. lykkju í umferð, setjið 2. prjónamerki í 33.-35.-37.-39.-41.-43. lykkju, setjið 3. prjónamerki í 47.-49.-51.-53.-55.-57. lykkju, setjið 4. prjónamerki í 79.-83.-87.-91.-95.-99. lykkju. Prjónið síðan RENDUR OG MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og lesið allan næsta kafla áður en prjónað er áfram! Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 30-32-34-36-38-40 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= bakstykki). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= ermi). Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið A.1 yfir næstu 30-32-34-36-38-40 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= framstykki). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi). Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með rendur og mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 212-224-236-248-260-272 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og rendur þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi = 138-146-154-162-170-178 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan mynstur, rendur eins og áður. Þegar stykkið mælist 17-19-22-25-28-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 26-30-34-34-38-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 164-176-188-196-208-216 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt þar stykkið mælist 19-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjón til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 43-45-47-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 49-51-53-55-57-59 lykkjur. Prjónið hringinn og haldið áfram með mynstur A.1 og rendur eins og áður. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 39-39-43-43-47-47 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-23-27-31-35-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 3-3-3-3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 23-27-31-35-39-42 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjóna til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina alveg eins. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Julia wrote:
Casting on only 6 stitches for the underarms results in the pattern being incorrect so I added an extra stitch.
26.12.2021 - 18:06