Urban Autumn |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa og húfa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í einlitu klukkuprjóni og tveggja lita klukkuprjóni í röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-26 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 3,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.4 og A.5. LEIÐBEININGAR (á við um lykkjufjölda): Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er ekki talinn sem 1 lykkja. RENDUR A.1 (á við um peysu): Örvar í A.1 sýna hvaða lit á að byrja með, annað hvort aðal lit (A) eða með auka lit (B). Prjónið aðra hverja umferð með (H) og (B). A: hveiti (H), gallabuxnablár (B). B: hveiti (H), sægrænn (B). C: hveiti (H), gallabuxnablár (B). D: hveiti (H), sæblár(B). RENDUR A.2 (á við um peysu): Örvar í A.2 sýna hvaða lit á að byrja með, annað hvort aðal lit (H) eða með auka lit (B). Prjónið aðra hverja umferð með (H) og (B). Með 2 litum, prjónið aðra hverja umferð með (H) og (B). A: sæblár(H). B: sægrænn (H). C: brúnn (H). D: svartur (H). E: sægrænn (H), svartur (B). F: hveiti (H), brúnn (B). G: brúnn (H). H: hveiti (H). I: hveiti (H), sæblár(B). J: hveiti (H), gallabuxnablár (B). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚRTAKA (á við um ermar, einungis í stærð L, XXL og XXXL): Fellið af til skiptis á undan og á eftir prjónamerki í umferð með (H). Fækkið um 2 lykkjur í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið fyrstu lykkjuna og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðin + 1 lykkja og uppsláttinn), steypið síðan óprjónuðu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á umferð þannig: Takið fyrstu lykkjuna og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið óprjónuðu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, steypið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, steypið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem var sett til baka yfir á vinstri prjón, að lokum yfir þá lykkju sem eftir er á hægra prjóni (= 2 lykkjur færri). RENDUR A.4 (á við um húfu): Örvar í A.4 sýna hvaða lit byrjað er með, annað hvort aðal lit (H) eða auka lit (B). Þegar prjónað er með 2 litum, er önnur hver umferð prjónuð með (H) og (B). A: hveiti (H), gallabuxnablár (B). B: hveiti (H), sægrænn (B). C: hveiti (H), gallabuxnablár (B). D: hveiti (H), sæblár(B). E: sæblár(H). RENDUR A.5 (á við um húfu): Örvar í A.5 sýna hvaða lit byrjað er með, annað hvort aðal lit (H) eða auka lit (B). Þegar prjónað er með 2 litum, er önnur hver umferð prjónuð með (H) og (B). A: sægrænn (H) B: brúnn (H). C: svartur (H). D: sægrænn (H), svartur (B). E: vete (H), brúnn (B). F: brúnn (H) ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli (með uppábroti) er prjónaður í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni og einlitu klukkuprjóni, ofan frá og niður frá miðju að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-76-80-88-92-92 lykkjur á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm (= meðtalið uppábrot). Skiptið yfir í litinn hveiti og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-20-16-32-28-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTÖKU = 56-56-64-56-64-72 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Sjá LEIÐBEININGAR-1. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN og RENDUR A.1 – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið A.1 umferðina hringinn (= 7-7-8-7-8-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 140-140-160-168-192-216 lykkjur í umferð. Berustykkið mælist ca 12-12-12-16-16-16 cm mælt eftir kanti í hálsmáli við miðju að framan. Prjónið síðan A.2 umferðina hringinn (= 70-70-80-84-96-108 mynstureiningar með 2 lykkjum) í RENDUR A.2 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar berustykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm eftir kanti í hálsmáli við miðju að framan, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 20-20-22-25-28-31 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 40-40-44-50-56-62 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 20-20-22-25-28-31 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 88-96-104-116-128-140 lykkjur. Haldið áfram eftir mynsturteikningu A.2 eins og áður – þær 4-8-8-8-8-8 lykkjur mitt undir ermum eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar (þær sem eiga að vera prjónaðar með uppslætti) brugðið. Haldið áfram þar til allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan einlitt klukkuprjón þannig: Prjónið A.3 umferðina hringinn (= 44-48-52-58-64-70 mynstureiningar með 2 lykkjum) í litnum hveiti. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 1 cm að loka máli) – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, 1 lykkja brugðið, uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, steypið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 30-30-36-34-40-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-8-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-38-44-42-48-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 4-8-8-8-8-8 lykkja undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það merkir byrjun á umferð og er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum. Haldið áfram eftir mynsturteikningu A.2 eins og áður - þær 4-8-8-8-8-8 lykkjurnar mitt undir ermi eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjur prjónaðar (sem prjónaðar eiga að vera saman með uppslættinum) brugðið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi (á einungis við um stærð L, XXL og XXXL) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 0-0-2-0-2-3 sinnum = 34-38-40-42-44-48 lykkjur. Prjónið þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan einlitt klukkuprjón þannig: Prjónið A.3 (= 2 lykkjur) í litnum hveiti umferðina hringinn. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 41-39-39-37-35-34 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Uppslátturinn og lykkjan er prjónað saman, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Næsta umferð er prjónuð þannig: * lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá affellingarkantinn inn að röngu og saumið kant í hálsmáli niður að innan með smáu, fallegu spori með litnum svartur – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur og passið uppá að þessi saumur sé ekki sýnilegur á framhlið. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Skiptið yfir á hringprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 10 lykkjur á sokkaprjón 5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Sjá LEIÐBEININGAR. Prjónið nú tveggja lita klukkuprjón og RENDUR A.4 – sjá útskýringu að ofan þannig: Prjónið A.4 umferðina hringinn (= 5 mynstureiningar með 2 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 70 lykkjur í umferð. Húfan mælist ca 11 cm ofan frá og niður. Prjónið nú A.5 umferðina hringinn (= 35 mynstureiningar með 2 lykkjum) í RENDUR A.4 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru engir uppslættir á prjóni, einungis 70 lykkjur. Húfan mælist ca 21 cm ofan frá og niður. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð með litnum svartur, þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 105 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt), uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Húfan mælist ca 25 cm ofan frá og niður. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Jantine Lasonder wrote:
Hoi, Hoe begin ik met de twee kleurige Engelse patentsteek. In het patroon wordt gestart met *maak 1 omslag op de rechter naald, 1 steek averecht afhalen op de rechter naald, 1averecht* Start ik daarna zoals in de instructie video met wat ze daar round 2 noemen? En voeg ik hier dus nu de tweede kleur toe?
16.05.2024 - 17:20Janne Knudsen wrote:
Hej Drops.\r\nHar i farvekoderne til den røde og den grønne udgave?\r\nNår jeg vælger en af de opskrifter, er det stadig farvekoderne til den blå udgave, der kommer frem
27.01.2024 - 20:27DROPS Design answered:
Hej Janne, Ja farvekombinationerne finder du i opskriften lige under Materiale - Pinde :)
02.02.2024 - 12:21Kathrin wrote:
Hallo! Ich würde das Modell gerne nachstricken, lege aber Wert auf 100% Naturfaser, weshalb ich das Garn Air nicht verwenden möchte. Ich könnte laut oben stehenden Angaben auch Garne der Kategorie A zweifädig verwenden. Das würde ich gerne tun - können Sie mir sagen, welche Garnmengen ich dann benötige, wenn ich Drops Alpaca verstricken möchte?
16.11.2021 - 04:10DROPS Design answered:
Liebe Kathrin, benutzen Sie unser Garnumrechner, so finden Sie alle Garnalternativen von der Garngruppe C (auch mit 100% Naturfasern wie Alaska oder Nepal z.B.) oder mit 2 Fäden Garngruppe A je nach Wunsch; eine Maschenprobe immer zuerst stricken und bitte beachten, daß unterschiedliche Zusammensetzungen/Wollen können unterschiedliche Ergebnisse geben. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden am besten weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
16.11.2021 - 09:10Nikki Melvin wrote:
I'm working on the 3XL pattern. For A.2 it says that G and H are one color. It's true if you are working the S-M-L diagram. XL-2XL-3XL says two colors for G and H. For the second color, what should go there?
23.11.2020 - 18:20DROPS Design answered:
Hi Mrs Melvin, sorry for late answer, the diagram has been edited,. Happy knitting!
26.04.2021 - 13:40Rianne wrote:
Thank you! I was just looking for a project with this patent stitch, for me a new style of knitting. This pattern catch me, even I didn't know it was this stitch. What a beautiful sweater!
08.05.2020 - 09:46Rianne wrote:
What are the numbers of the colours of the two other combinations with red and green, shown in te little pictures under the main picture?
07.05.2020 - 21:54DROPS Design answered:
Dear Rianne, Colour combinations shown are (in the same order as the materials list): A) DROPS AIR 02, 20, 28, 05, 07, 06 - B) DROPS AIR 02, 26, 19, 05, 12, 06. Happy knitting!
08.05.2020 - 09:01Michaela wrote:
Hallo, danke für die Anleitung zu diesem wunderschönen Pulli! Eine Frage habe ich dazu: Ist es korrekt, dass der Pulli mit 8mm Nadeln, die Mütze aber mit 5mm Nadeln gestrickt werden?
11.01.2020 - 22:10DROPS Design answered:
Liebe Michaela. Es ist korrekt, Wir stricken die Mütze mit 5 mm Nadeln und der Pulli mit 8 mm. Viel Spaß beim stricken!
12.01.2020 - 23:32Svetlana wrote:
Jeg får ikke fin overgang fra en til andre farge når jeg strikker striper A.2, det blir store hull mellom første og siste masken på bærestykke. Lurer på om jeg strikker for løs. Savner en video der man kan få se en sånn overgang, når man strikker striper.
02.09.2019 - 10:39Tina wrote:
Liebes Drops-Team, ich habe ein Problem mit der letzten Runde vor dem Abketten des Rumpfes: es heißt *1 M rechts, 1M links, den Umschlag und die M links zusammen stricken...*. Zwischen der linken Masche und dem Umschlag hab ich aber noch eine rechte Masche... Kann das sein? Vielen Dank für die vielen tollen neuen Anleitungen u und all die Arbeit, die drin steckt!!
28.08.2019 - 09:38DROPS Design answered:
Liebe Tina, eine Korrketur erfolgt, hier sollen Sie so stricken: *1 Masche rechts, 1 M links, 1 Umschlag, 1 Masche wie zum Linksstricken heben, die nächste Masche und den Umschlag links zusammen stricken* . Viel Spaß beim stricken!
09.09.2019 - 11:20Elina Ruuni wrote:
Is this pattern reversible and what briocheknitting patterns you have reversible brioche top down?Thank you for these lovely patterns 🥰
18.08.2019 - 10:15DROPS Design answered:
Dear Mrs Ruuni, due to the pattern, this jumper might be reversible - you will find all our knitted pattern with English rib aka brioche here. Happy knitting!
19.08.2019 - 10:21