Urban Autumn |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í einlitu klukkuprjóni og tveggja lita klukkuprjóni í röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 208-17 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 3,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR (á við um lykkjufjölda): Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er ekki talinn sem 1 lykkja. RENDUR A.1: Örvar í A.1 sýna hvaða lit er byrjað á, annað hvort aðallit (H) eða aukalit (B). Prjónið aðra hverja umferð með (H) og (B). A: hveiti (H), gallabuxnablár (B). B: hveiti (H), sjávargrænn (B). C: hveiti (H), gallabuxnablár (B). D: hveiti (H), sjávarblár (B). RENDUR A.2: Örvar í A.1 sýna hvaða lit er byrjað á, annað hvort aðallit (H) eða aukalit (B). Þegar prjónað er með 2 litum, prjónið aðra hverja umferð með (H) og (B). A: sjávarblár (H). B: sjávargrænn (H). C: brúnn (H). D: svartur (H). E: sjávargrænn (H), svartur (B). F: hveiti (H), brúnn (B). G: brúnn (H). H: hveiti (H). I: hveiti (H), sjávarblár (B). J: hveiti (H), gallabuxnablár (B). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚRTAKA-2 (á við um ermar, einungs í stærð L, XXL og XXXL): Fækkið lykkjum til skiptis á undan og á eftir prjónamerki í umferð með (H). Fækkið um 2 lykkjur í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið yfir fyrstu lykkjuna og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + lykkja og uppsláttur), dragið síðan lyftu lykkjuna og uppsláttinn yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á umferð þannig: Lyftið yfir fyrstu lykkjuna og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, dragið síðan lyftu lykkjuna og uppsláttinn yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni á vinstri prjón, dragið lykkjuna og uppsláttinn yfir lykkjuna sem sett var til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir þá lykkju sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri) ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli (með uppábroti) er prjónaður í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni og einlitu klukkuprjóni, ofan frá og niður frá miðju að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-76-80-88-92-92 lykkjur á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm (= meðtalinn kantur með uppábroti). Skiptið yfir í litinn hveiti og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-20-16-32-28-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 56-56-64-56-64-72 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Sjá LEIÐBEININGAR. Prjónið nú tveggja lita klukkuprjón og RENDUR A.1 – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið A.1 umferðina hringinn (= 7-7-8-7-8-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 140-140-160-168-192-216 lykkjur í umferð. Berustykkið mælist ca 12-12-12-16-16-16 cm mælt frá eftir kanti í hálsmáli mitt að framan. Prjónið síðan A.2 umferðina hringinn (= 70-70-80-84-96-108 mynstureiningar með 2 lykkjum) í RENDUR A.2 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar berustykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá eftir kanti í hálsmáli mitt að framan, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 20-20-22-25-28-31 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 40-40-44-50-56-62 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 20-20-22-25-28-31 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 88-96-104-116-128-140 lykkjur. Haldið áfram eftir mynsturteikningu A.2 eins og áður – þær 4-8-8-8-8-8 lykkjur mitt undir ermi eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjur prjónaðar (sem hefðu átt að prjónast saman með uppslætti) brugðið. Haldið áfram þar til allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Síðan er prjónað einlitt klukkuprjón þannig: Prjónið A.3 umferðina hringinn (= 44-48-52-58-64-70 mynstureiningar með 2 lykkjum) í litnum hveiti. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 36-36-37-37-37-37 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 1 cm er eftir að loka máli) – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, 1 lykkja brugðið, uppsláttur og lykkjan er prjónað slétt saman, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman *, prjónið *-* umferðina hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 30-30-36-34-40-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-8-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-38-44-42-48-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 4-8-8-8-8-8 lykkja undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það merkir byrjun á umferð og er notað síðar þegar fækka á lykkjum. Haldið áfram eftir mynsturteikningu A.2 eins og áður – þær 4-8-8-8-8-8 lykkjur mitt undir ermi eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar (þær sem hefðu átt að prjónast saman með uppslætti) brugðið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi (á einungis við um stærð L, XXL og XXXL) – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 0-0-2-0-2-3 sinnum = 34-38-40-42-44-48 lykkjur. Prjónið þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan einlitt klukkuprjón þannig: Prjónið A.3 (= 2 lykkjur) í litnum hveiti umferðina hringinn. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 46-45-44-42-41-40 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir eina heila mynstureiningu á hæðina. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá uppfitjunarkantinn inn að röngu og saumið niður við kant í hálsmáli að innanverðu með smáu, fallegu spori með litnum svartur – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur og að þessi saumur sé ekki sýnilegur frá framhlið. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Guillermo wrote:
Qué tal! Podrían ampliar la idea de borde de doblaje o indicarme dónde aprender eso para el cuello de esta prenda. Muchas gracias.
13.07.2021 - 00:58DROPS Design answered:
Hola Guillermo, puedes consultar el borde de doblaje en el siguiente vídeo: https://www.garnstudio.com/video.php?id=172&lang=es
15.07.2021 - 00:17Vivian Viste wrote:
Spørsmål: jeg har for mange masker når jeg skal dele opp til armer, rygg og forstykke- er masketallet i oppskriften korekt?
01.06.2021 - 18:26Mikkel wrote:
Hej. Jeg er igang med at strikke efter denne opskrift (XXXL), men frygter at der er nogle fejl. Jeg er nået til ærmer. Jeg ska samle 8 masker op = 54m. Så ska jeg tage 4m ind efter 6cm. = 50m Så står der jeg skal tage ind på samme måde efter 2cm 3 gange mere? Det bliver 12m mindre=38m MEN der står at der så ska være 48m efter indtagningerne? Kan i hjælpe?
02.02.2021 - 21:50DROPS Design answered:
Hei Mikkel. Du har 54 masker og etter 6 cm skal du felle 2 masker midt under ermet (ikke 4 masker som du skriver). Det felles 1 maske før og 1 maske etter merket midt under ermet, les evnt. FELLETIPS-2 i oppskriften. Fell slik på hver 2.cm totalt 3 ganger = 2 felt masker 3 ganger = 6 felte masker = 48 masker. God Fornøyelse!
08.02.2021 - 15:01Silvia wrote:
Hello, I'd like to knit this sweater but I'm confused. I need to knit it with needle nr 8 and then 5 mm or needle 8 mm and then number 8? Thank you
12.11.2020 - 11:25DROPS Design answered:
Dear Silvia, you need needle size 4 mm (= for the ribbed edge on neck/collar) and needle size 8 mm - or size required to get the tension of 10 sts in width and 30 rows in English rib (brioche) = 10 x10 cm - read more about knitting tension here. Happy knitting!
12.11.2020 - 14:10Silvia wrote:
Buongiorno, vorrei fare questo maglione per mio marito, mi viene solo un dubbio, i ferri sono misura 8 quindi 5 mm o 8 mm quindi misura 11?
12.11.2020 - 11:23DROPS Design answered:
Buongiorno Silva, i ferri utilizzati sono 4 mm per il bordo a coste sul collo e i ferri n° 8 mm. Controlli sempre che il suo campione corrisponda a quello indicato. In caso contrario, aggiusti il n° di ferri per ottenere il campione indicato. Buon lavoro!
13.11.2020 - 15:17