DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Urban Autumn Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með einlitu klukkuprjóni og tveggja lita klukkuprjóni í röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-27
DROPS Design: Mynstur ai-220
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-250-250-300-300 g litur 02, hveiti
50-50-50-50-50-50 g litur 27, sægrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 17, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 09, sæblár
50-50-50-50-50-50 g litur 05, brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 06, svartur

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 30 umferðir (15 umferðir talið í sléttri lykkju) á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-6-7-7-7 st.

Litasamsetning sem sýnd er á mynd er (í sömu litaröð sem gefin er upp í efnismagni að ofan):
A) DROPS AIR 02, 20, 28, 05, 07, 06
B) DROPS AIR 02, 26, 19, 05, 12, 06

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 17) = 4,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um lykkjufjölda):
Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er ekki talinn sem 1 lykkja.

TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (fram og til baka):
Randamynstrið er prjónað í klukkuprjóni eins og útskýrt er í A.1 til A.4.
Til að fá tveggja lita áhrifin, eru prjónaðar rendur til skiptis 1 umferð með aðal lit og 1 umferð með auka lit.
* Prjónið 1 umferð frá réttu með aðal lit (H), færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Prjónið síðan 1 umferð frá réttu með auka lit (B).
Prjónið 1 umferð frá röngu með aðal lit (H), færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð frá röngu með auka lit (B) *, prjónið frá *-* til loka.

RENDUR A.1 OG A.2.
Örvar í A.1 og A.2 sýna ef umferðin er prjónuð frá réttu eða frá röng. Örin sýnir einnig ef umferðin er prjónuð með aðal lit (H) eða með auka lit (B).
A: hveiti (H), gallabuxnablár (B).
B: hveiti (H), sægrænn (B).
C: hveiti (H), gallabuxnablár (B).
D: hveiti (H), sæblár(B).

KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI (tveggja lita klukkuprjón):
Þar sem prjónaðar eru 2 umferðir frá réttu og 2 umferðir frá röngu, verður að prjóna lykkjurnar í garðaprjóni þannig: * slétt frá réttu, brugðið frá réttu, brugðið frá röngu, slétt frá röngu *, prjónið frá *-*. Sjá LEIÐBEININGAR-2 að neðan.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um kanta að framan):
Í þeirri umferð þar sem prjónað er tveggja lita klukkuprjón, skiptið um lit innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Kantlykkjur að framan eru einungis prjónaðar í auka lit (B), þ.e.a.s. prjónaðar eru 2 umferðir yfir kantlykkjur að framan áður en skipt er yfir í næsta lit. Til að koma í veg fyrir göt, verður að tvinna þræðina saman við litaskipti.

RENDUR A.3 OG A.4:
Þar sem ekki er ör er prjónað fram og til baka án þess að færa lykkjurnar til baka. Ör sýnir einig um hvort umferðin sé prjónuð með aðal lit (H) eða auka lit (B).

A: sæblár (H/B)
B: sægrænn (H/B).
C: brúnn (H/B).
D: svartur (H/B).
E: sægrænn (H), svartur (B).
F: hveiti (H), brúnn (B).
G: brúnn (H/B).
H: hveiti (H/B).
I: hveiti (H), sæblár (B).
J: hveiti (H), gallabuxnablár (B).

EINLITT KLUKKUPRJÓN:
Prjónið fram og til baka án þess að færa lykkjurnar til baka. Prjónið með litnum hveiti til loka.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með 1 númeri grófari prjónum.

ÚRTAKA (á við um ermar, einungis í stærð L, XXL og XXXL):
Fellið af til skiptis í byrjun og í lok umferðar.
Fækkið um 2 lykkjur í byrjun umferðar frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið fyrstu lykkjuna og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið síðan óprjónuðu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, steypið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett var til baka á vinstri prjón, steypið að lokum yfir þá lykkju sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri).
Fækkið um 2 lykkjur í lok umferðar frá réttu þannig:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, takið fyrstu lykkjuna og uppsláttinn óprjónað á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + lykkja og uppsláttur), steypið síðan óprjónuðu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur saman og prjónið síðustu lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1 cm og 1 sinni til viðbótar þegar stroffið mælist ca 6 cm (vegna uppábrots). Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8-8½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli (með uppábroti), berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-84-88-96-100-100 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 7 cm (= meðtalið uppábrot) – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í hveiti og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-17-13-29-25-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 67-67-75-67-75-83 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, takið 1 lykkju á hægri prjón yfir eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Sjá LEIÐBEININGAR-1.
Prjónið nú TVEGGJA LITA MYNSTUR Í KLUKKUPRJÓNI og RENDUR A.1 og A.2 – sjá útskýringu að ofan, þannig – frá réttu:
Prjónið 5 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI (tveggja lita klukkuprjón) – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 7-7-8-7-8-9 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 151-151-171-179-203-227 lykkjur í umferð. Berustykkið mælist ca 12-12-12-16-16-16 cm mælt eftir kanti í hálsmáli við miðju að framan.
Prjónið næstu umferð í RENDUR A.3 og A.4 – sjá útskýringu að ofan – frá röngu:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4 (= 1 lykkja), prjónið A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 70-70-80-84-96-108 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar berustykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá kanti í hálsmáli við miðju að framan, prjónið næstu umferð frá röngu þannig:
Prjónið fyrstu 25-25-27-30-33-36 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 41-41-45-51-57-63 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 25-25-27-30-33-36 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 99-107-115-127-139-151 lykkjur. Haldið áfram með mynsturteikningu A.3 og A.4 eins og áður, kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram eins og áður - 4-8-8-8-8-8 lykkjur mitt undir ermi eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar (sem ættu að prjónast saman með uppslætti) brugðið. Haldið áfram þar til allt A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina.
Prjónið nú EINLITT KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig – frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 44-48-52-58-64-70 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.6 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm að loka máli) – stillið af eftir umferð prjónaðri frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING!

ERMI:
Setjið 30-30-36-34-40-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8. Fitjið að auki upp 3-5-5-5-5-5 lykkjur í byrjun og lok umferðar = 36-40-46-44-50-56 lykkjur í umferð (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið).
Haldið áfram eftir mynsturteikningu A.3 og A.4 eins og áður, kantlykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni – þær 2-4-4-4-4-4 lykkjur í hvorri hlið mitt undir ermi eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjur prjónaðar (eins og prjóna eigi saman með uppslætti) brugðið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm, er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi (á einungis við um stærð L, XXL og XXXL) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 0-0-2-0-2-3 sinnum = 36-40-42-44-46-50 lykkjur. Prjónið þar til A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina.
Prjónið síðan EINLITT KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig – frá réttu:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, endurtakið A.5 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 41-39-39-37-35-34 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir umferð prjónaðri frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * uppslátturinn og lykkjan er prjónað saman, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjóni hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermi innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið saum undir ermum.
Brjótið uppá affellingarkantinn inn að röngu og saumið kant í hálsmáli niður að innan með smáu, fallegu spori með litnum svartur – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur og passið uppá að þessi saumur sé ekki sýnilegur á framhlið. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.09.2020
Ný mynsturteikning: A.3 og A.4 (búið að fjarlægja ör) + bæta við texta í ÚTSKÝRING Á MYNSTRI: RENDUR A.3 og A.4: Þar sem ekki er ör er prjónað fram og til baka án þess að færa lykkjurnar til baka.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman
symbols = prjónið 5 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt þannig: Prjónið uppslátt og slétta lykkju slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni af prjóni, *sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman án þess að steypa lykkjunni af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 5 lykkjur (þ.e.a.s 4 lykkjur fleiri).
symbols = pjónið með aðal lit (A)
symbols = prjónið með auka lit (B)
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Nicole Blouin-Morin wrote:

Dans le patron, je ne vois pas d'indication pour séparer les mailles destinées aux devants, dos, manches combien pour chaque partie? Où placer les marqueurs?

05.05.2021 - 02:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Blouin-Morin, cette partie figure à la fin de l'empiècement (dernier paragraphe) qui commence par: Tricoter les 25-25-27-30-33-36 premières mailles comme avant (= devant), glisser 30-30-36-34-40-46 mailles suivantes en attente sur 1 fil pour la manche, ... . À quels marqueurs pensez-vous? On n'en place pas pour l'empiècement, mais vous pouvez en mettre pour délimiter les diagrammes A.1 puis A.3 pour mieux vous repérer. Bon tricot!

05.05.2021 - 08:41

country flag Sylvia wrote:

Ich hab ein Problem mit dem Übergang von A1 und A2 zu A3 und A4. Wenn ich mich genau an die Anleitung halte, geht das Patentmuster verloren. Soll ich da dann schon ab hier das einfarbige Patentmuster Stricken? Und später wieder zu, Diagramm wechseln

23.03.2021 - 08:41

DROPS Design answered:

Liebe Sylvia, A.1 wird wiederholt und A.2 wird nur einmal, vor der Blende gestrickt, A.2 wird gestrickt wie die 1. Masche in A.1, so wir das Muster symetrisch an den Blenden. Gleichfalls mit A.3 und A.4, bei den Hinreihen wiederholen Sie A.3 und enden mit A.4, A.4 wird wie die 1. M in A.3 gestrickt so wird das Muster auch symetrisch. Viel Spaß beim stricken!

24.03.2021 - 08:44

country flag Donatella Torcoletti wrote:

Buongiono ho bisogno di un chiarimento. In riferimento ai diagrammi A1 e A2 quando finisco il ferro diritto corrispondente alla riga 1 e faccio scorrere le maglie in modo che ne lavoro ancora uno a diritto, questo ferro corrisponde alla riga due del diagramma? Grazie per l'attenzione

12.11.2020 - 11:01

DROPS Design answered:

Buongiorno Donatella, è corretto. Buon lavoro!

13.11.2020 - 15:49

country flag Anne Helseth wrote:

Jag har nu kommit till diagram A3 och A4. Ser det är frågat om detta tidigare, men tycker inte det verkar riktigt att man ska sticka två stickor från avigsidan och sedan två stickor från rätsida. Det blir ju så många extra trådar att fästa, förstår att det måste göras när det är två färger, men inte när det är en färg

25.08.2020 - 21:53

DROPS Design answered:

Hej Anne, du har ret, det behøver du ikke gøre når Hoved og Bifarve er samme. God fornøjelse!

03.09.2020 - 12:06

country flag Gitte wrote:

På bærestykket er jeg nået til striber A.3 og A.4 str. XXL. Jeg skal starte fra vrangen med marineblå = helt ok. Iflg. diagram A.4 skal 2. pind også være fra vrangen og med marineblå? Skal jeg bryde garnet og strikke en vrangpind igen? Hvordan strikker jeg når flere pinde skal være samme hovedfarve? Strikker man frem og tilbage eller er det 2 pinde ret og 2 pinde vrang og så skal man bryde garnet?

09.02.2020 - 08:46

DROPS Design answered:

Hei Gitte. På alle diagram i denne oppskriften er det markert hvor du skal starte og med hvilken farge (hoved eller bifarge) og fra hvilken side (rett eller vrang). Det er markert med hvit eller sort "diamant" og med pil. God Fornøyelse!

10.02.2020 - 19:26

country flag May-Britt Blomli wrote:

Hei, strikker urban Autumn jacket i str S. Skal nå strikke ermene, men det får ikke mønsteret til å stemme overens med resten av jakken. Ser på bildet at mønsteret skal kunne gå rett over fra jakken til ermene. Har dere noen tips/hjelp?

04.02.2020 - 16:27

DROPS Design answered:

Hei May-Britt, Når du begynner på ermene, fortsetter med neste rad i mønsteret fra der du delte bærestykke til ermene og bolen. God fornøyelse!

05.02.2020 - 07:55

country flag Bente wrote:

Beste, Zou het kunnen dat er een fout in het patroon zit? Is er een gecorrigeerde versie? Bente

06.01.2020 - 18:26

DROPS Design answered:

Dag Bente,

Als er correcties op een patroon zijn, worden deze gelijk doorgevoerd in het online patroon. Dit patroon heeft geen correcties.

08.01.2020 - 09:59

country flag Maj-Britt Vollesen wrote:

Jeg fik den 5/12 en mail om at jeg har fået svar på mit sidste råb om hjælp . Jeg skrev tilbage med det samme at der ikke VAR noget svar !!!! Og nu sidder jeg her - 5 dage senere og ved ikke hvordan jeg skal komme videre .

10.12.2019 - 21:17

country flag Maj-Britt Vollesen wrote:

Jeg prøver igen !! Skrev til jer for 2 dage siden. Mit problem er A3og A4. Der hjælper den video I henviser til IKKE (. Jeg kan godt A1 og 2 nu ) Jeg skal strikke ensfarvede striber. Kan ikke få diagrammet til at passe( til A 3 og 4) . Starter og gennemfører 1 pind på vrangen men så passer pind 2 ikke + at de 5 kantmasker får en stribe af den foregående farve .

05.12.2019 - 03:14

country flag Maj-Britt Vollesen wrote:

Jeg prøver og prøver men kan ikke komme igang med: Striber A3 og A4 !!! Jeg kan ikke finde ud af retningen - altså starte på vrangsiden eller forsiden. Det der hvide 'diamant' tegn kan jeg ikke få til at passe med at man skal starte næste omgang i samme side ( som man skal i A1 og A2- men hvor diamanten er sort. Jeg synes jeg har prøvet alle muligheder, men så opdager jeg jo at den retstrikkede kant er forkert stribet . Håber I kan hjælpe mig ! "Den desperate"

02.12.2019 - 19:17

DROPS Design answered:

Hej Maj-Britt, det har vi også en video som viser - prøv at lave en lille strikkeprøve først, så du kan se systemet:

How to knit 2-coloured English rib with second colour in the edge and colour change from Garnstudio Drops design on Vimeo.

03.12.2019 - 11:23