Maj-Britt Vollesen skrifaði:
Jeg kan ikke finde ud af at udføre : strik 5 masker i retmasken !!!
12.11.2019 - 01:16DROPS Design svaraði:
Hej Maj-Britt. Vi har en video på detta, se här. Lycka till!
12.11.2019 - 08:52
Inger Walaker Øvrevø skrifaði:
Jeg holder på med Urban Autumn Hacket i drops air, og strikker str. XL.Jeg er ferdig med diagram 1 og 2, og skal starte på 3 og 4, men det finnes kun i små størrelser. Derimot er diagram til 1 og 2 lagt ut 2 ganger. , så det har jeg to av. Håper dere kan fikse dette fort, så jeg kan få ferdig jakken min før vinteren blir altfor kald.
02.11.2019 - 20:38DROPS Design svaraði:
Hei Inger. Tusen takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. Diagram A.3 og A.4 i str. XL-XXL-XXXL er nå lagt ut. God fornøyelse videre med strikkingen. mvh DROPS design
04.11.2019 - 13:17
Chrissy skrifaði:
Liebes Drops Team Können Sie mir kurz erklären, wie man bei der Passe erreicht, dass der Faden der Hauptfarbe nicht am Reihenanfang liegt sondern vor/hinter den Randmaschen? Im Video wird gut erklärt wie man zweifarbig strickt, aber mir ist nicht klar, wie ich es erreiche, dass nicht Haupt- und Nebenfarbe am Reihenanfang liegen. Danke und liebe Grüsse Chrissy
08.10.2019 - 07:43DROPS Design svaraði:
Liebe Chrissy, die 1. Reihe bei der Passe muss eine Rückreihe sein, dann stricken Sie zweifarbigen Vollpatent und Streifen A.1, A.2, dh der nächste Hinreihe wird mit der Hauptfarbe gestrickt, dann stricken Sie noch 1 Hinreihe mit der Beifarbe, wenden, 1 Rückreihe mit der Hauptfarbe und 1 Rückreihe mit der Beifarbe stricken, dh wie im Video gezeigt. Viel Spaß beim stricken!
08.10.2019 - 10:18
Chrissy skrifaði:
Liebes Drops Team Können Sie mir kurz erklären, wie man bei der Passe erreicht, dass der Faden der Hauptfarbe nicht am Reihenanfang liegt sondern vor/hinter den Randmaschen? Im Video wird gut erklärt wie man zweifarbig strickt, aber mir ist nicht klar, wie ich es erreiche, dass nicht Haupt- und Nebenfarbe am Reihenanfang liegen. Danke und liebe Grüsse Chrissy
08.10.2019 - 07:39
Charlotte Gericke skrifaði:
Kære drops Er nået til A3 og A4 - hvorledes starter man fra samme side med hvede? - bryder man garnet? Tak for et univers af opskrifter og hjælp!
30.09.2019 - 08:45DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, har du set tipset "2-FARVET MØNTER I HELPATENT" hvor vi forklarer hvordan man skubber strikketøjet over i den anden side af rundpinden? Rigtig god fornøjelse!
01.10.2019 - 15:27
Monica skrifaði:
Volgens mij staat er een foutje in het patroon. Bij het begin van de pas staat 1 omslag op de rechternaald, 1 steek averecht afhalen op de rechter naald, 1 averecht. Moet dat niet 1 averecht afhalen op de linker naald zijn?
28.08.2019 - 13:29DROPS Design svaraði:
Dag Monica,
Je haalt 1 steek af van de linker naar de rechter naald. Ik denk dat je hetzelfde bedoelt, maar het is maar net hoe je het bekijkt :)
16.10.2019 - 09:57
Annette Hansen skrifaði:
Når man strikker forkanten på 2 farvepatent stykket. Skal man så både slutte med 2 pinde i bifarven og strikke 2 pinde på kanten når man skifter farve?
04.08.2019 - 19:58DROPS Design svaraði:
Hei Anette. Det er laget en video hvordan stolpen strikkes og hvor det byttes farge. Se; God Fornøyelse!
09.09.2019 - 14:04
Julia Van Rooij skrifaði:
Beste heer/mevrouw, Heeft u misschien ook een patroon van een Bernadette vest met dit drops garen? Ik hoor het graag van u. Met vriendelijke groet, Julja
02.08.2019 - 19:29DROPS Design svaraði:
Dag Julia,
Er staan ontzettend veel patronen op de site. Als je zoekt op garencategorie C, dames en vest zoals hier, zit er hopelijk eentje tussen die naar smaak is.
08.08.2019 - 13:56
Urban Autumn Jacket#urbanautumnjacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með einlitu klukkuprjóni og tveggja lita klukkuprjóni í röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-27 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 17) = 4,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR-1 (á við um lykkjufjölda): Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er ekki talinn sem 1 lykkja. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (fram og til baka): Randamynstrið er prjónað í klukkuprjóni eins og útskýrt er í A.1 til A.4. Til að fá tveggja lita áhrifin, eru prjónaðar rendur til skiptis 1 umferð með aðal lit og 1 umferð með auka lit. * Prjónið 1 umferð frá réttu með aðal lit (H), færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Prjónið síðan 1 umferð frá réttu með auka lit (B). Prjónið 1 umferð frá röngu með aðal lit (H), færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninum, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð frá röngu með auka lit (B) *, prjónið frá *-* til loka. RENDUR A.1 OG A.2. Örvar í A.1 og A.2 sýna ef umferðin er prjónuð frá réttu eða frá röng. Örin sýnir einnig ef umferðin er prjónuð með aðal lit (H) eða með auka lit (B). A: hveiti (H), gallabuxnablár (B). B: hveiti (H), sægrænn (B). C: hveiti (H), gallabuxnablár (B). D: hveiti (H), sæblár(B). KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI (tveggja lita klukkuprjón): Þar sem prjónaðar eru 2 umferðir frá réttu og 2 umferðir frá röngu, verður að prjóna lykkjurnar í garðaprjóni þannig: * slétt frá réttu, brugðið frá réttu, brugðið frá röngu, slétt frá röngu *, prjónið frá *-*. Sjá LEIÐBEININGAR-2 að neðan. LEIÐBEININGAR-2 (á við um kanta að framan): Í þeirri umferð þar sem prjónað er tveggja lita klukkuprjón, skiptið um lit innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Kantlykkjur að framan eru einungis prjónaðar í auka lit (B), þ.e.a.s. prjónaðar eru 2 umferðir yfir kantlykkjur að framan áður en skipt er yfir í næsta lit. Til að koma í veg fyrir göt, verður að tvinna þræðina saman við litaskipti. RENDUR A.3 OG A.4: Þar sem ekki er ör er prjónað fram og til baka án þess að færa lykkjurnar til baka. Ör sýnir einig um hvort umferðin sé prjónuð með aðal lit (H) eða auka lit (B). A: sæblár (H/B) B: sægrænn (H/B). C: brúnn (H/B). D: svartur (H/B). E: sægrænn (H), svartur (B). F: hveiti (H), brúnn (B). G: brúnn (H/B). H: hveiti (H/B). I: hveiti (H), sæblár (B). J: hveiti (H), gallabuxnablár (B). EINLITT KLUKKUPRJÓN: Prjónið fram og til baka án þess að færa lykkjurnar til baka. Prjónið með litnum hveiti til loka. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með 1 númeri grófari prjónum. ÚRTAKA (á við um ermar, einungis í stærð L, XXL og XXXL): Fellið af til skiptis í byrjun og í lok umferðar. Fækkið um 2 lykkjur í byrjun umferðar frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið fyrstu lykkjuna og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið síðan óprjónuðu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, steypið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett var til baka á vinstri prjón, steypið að lokum yfir þá lykkju sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri). Fækkið um 2 lykkjur í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, takið fyrstu lykkjuna og uppsláttinn óprjónað á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + lykkja og uppsláttur), steypið síðan óprjónuðu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur saman og prjónið síðustu lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1 cm og 1 sinni til viðbótar þegar stroffið mælist ca 6 cm (vegna uppábrots). Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli (með uppábroti), berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-84-88-96-100-100 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 7 cm (= meðtalið uppábrot) – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í hveiti og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-17-13-29-25-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 67-67-75-67-75-83 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, takið 1 lykkju á hægri prjón yfir eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Sjá LEIÐBEININGAR-1. Prjónið nú TVEGGJA LITA MYNSTUR Í KLUKKUPRJÓNI og RENDUR A.1 og A.2 – sjá útskýringu að ofan, þannig – frá réttu: Prjónið 5 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI (tveggja lita klukkuprjón) – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 7-7-8-7-8-9 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 151-151-171-179-203-227 lykkjur í umferð. Berustykkið mælist ca 12-12-12-16-16-16 cm mælt eftir kanti í hálsmáli við miðju að framan. Prjónið næstu umferð í RENDUR A.3 og A.4 – sjá útskýringu að ofan – frá röngu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4 (= 1 lykkja), prjónið A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 70-70-80-84-96-108 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar berustykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá kanti í hálsmáli við miðju að framan, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 25-25-27-30-33-36 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 41-41-45-51-57-63 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 25-25-27-30-33-36 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 99-107-115-127-139-151 lykkjur. Haldið áfram með mynsturteikningu A.3 og A.4 eins og áður, kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram eins og áður - 4-8-8-8-8-8 lykkjur mitt undir ermi eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar (sem ættu að prjónast saman með uppslætti) brugðið. Haldið áfram þar til allt A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið nú EINLITT KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig – frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 44-48-52-58-64-70 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.6 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm að loka máli) – stillið af eftir umferð prjónaðri frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 30-30-36-34-40-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8. Fitjið að auki upp 3-5-5-5-5-5 lykkjur í byrjun og lok umferðar = 36-40-46-44-50-56 lykkjur í umferð (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Haldið áfram eftir mynsturteikningu A.3 og A.4 eins og áður, kantlykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni – þær 2-4-4-4-4-4 lykkjur í hvorri hlið mitt undir ermi eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjur prjónaðar (eins og prjóna eigi saman með uppslætti) brugðið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm, er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi (á einungis við um stærð L, XXL og XXXL) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 0-0-2-0-2-3 sinnum = 36-40-42-44-46-50 lykkjur. Prjónið þar til A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan EINLITT KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, endurtakið A.5 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 41-39-39-37-35-34 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir umferð prjónaðri frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * uppslátturinn og lykkjan er prjónað saman, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjóni hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermi innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið saum undir ermum. Brjótið uppá affellingarkantinn inn að röngu og saumið kant í hálsmáli niður að innan með smáu, fallegu spori með litnum svartur – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur og passið uppá að þessi saumur sé ekki sýnilegur á framhlið. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #urbanautumnjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.