Lori skrifaði:
I am knitting a small. When I get to the yoke I am confused. Directions say knit 0 rounds. Then work A-1 in the round = (16 repeats of 5 stitches) What does this mean? How do I increase stitches before I begin the pattern? How many stitches should I have when I do start the pattern. I\'ve tried over and over and I have 3 stitches left that do not allow the pattern to finish completely. Thanks for your help. Lori
05.03.2021 - 18:54DROPS Design svaraði:
Dear Lori, this means that in size S you start yoke working A.1 directly (while in other size you would work some rounds before starting diagram). A.1 is a diagram that is worked over 5 stitches and that you will repeat a total of 16 times (= 5 x 16 = 80 sts). Increase with yarn overs just as shown in diagram - read more about diagrams here. Happy knitting!
08.03.2021 - 10:14
Eva Andersen skrifaði:
Endelig fandt jeg et godt mønster på trøje med bærestykke strikket oppefra, men jeg vil ikke have rullekraven, bare en høj halskant.. Drops melody.. Hvordan giver jeg halsudskæringen lidt dybde, så trøjer ikke kravler op i halsen. Vil gerne bruge tyske vendepinde, men kan ikke regne ud hvordan..
10.02.2021 - 22:25DROPS Design svaraði:
Hej Eva, Vi kan ikke skrive opskriften om til dig. Men det kan være at du kan bruge nogle af disse: rundt bærestykke - damer - Melody - ovenfra og ned Og så er det jo bare at klikke på feks x ved Melody øverst hvis du vil have flere forslag i andre kvaliteter. :)
17.05.2021 - 11:49
Anne skrifaði:
Hei, olen työn alkuvaiheessa ja kysyisin nyt kuudennella rivillä tehtävistä lisäyksistä. Tehdäänkö lisäykset siis toistuvasti 5 silmukan ja yhden silmukan jälkeen, vai vain 5silmukan välein?
30.01.2021 - 10:43DROPS Design svaraði:
Hei, lisäykset tehdään vuorotellen 1 ja 5 silmukan välein, eli piirroksen mallikertaa toistetaan ja joka mallikerrassa on 2 lisäystä.
08.02.2021 - 16:53
Alice Vercellino skrifaði:
Buongiorno, Seguendo il diagramma al giro 6, si vedono due aumenti da fare. Quello che mi chiedo é: dovrei fare un diritto, un gettato, 5 diritti, un gettato, un diritto (già nuova ripetizione) e un gettato? Devo ottenere due gettati vicini? E se sí, io lo sto facendo tutto dello stesso colore. Posso distribuire i due gettati in modo uniforme? Grazie per la vostra disponibilità.
17.01.2021 - 19:53DROPS Design svaraði:
Buonasera Alice, la sequenza che ha indicato è corretta. Buon lavoro!
17.01.2021 - 21:07
Dantec skrifaði:
Bonjour j aimerais réaliser le pull modele morocco love, vous parlez d aiguilles circulaires en 40 cm mais s agit t il de la longueur totale ou juste le cable? merci pour votre réponse.
05.01.2021 - 12:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dantec, l'aiguille circulaire doit mesurer 40 cm d'une pointe à l'autre. Bon tricot!
05.01.2021 - 14:36
Anneke Stammeleer skrifaði:
Hoi 🙋♀️ ik heb dit pakket gekocht maar begrijp iets niet goed. Er staat bij de start van patroon A1 herhaal A1 18 keer over de 5 steken. Maar is het dan 18 naalden in totaal of zijn het 36 naalden want als het 36 zijn is de trui toch veel te groot Met dank
17.11.2020 - 22:10DROPS Design svaraði:
Dag Anneke,
Nee, het zijn 36 naalden. Je breit het patroon 1 keer in de hoogte en in de breedte herhaal je het patroon steeds, dus 18 keer 5 steken over de hele toer = 90 steken op de toer. Nadat je A.1 in de hoogte hebt gebreid heb je 234 steken op de toer (18 x 13 steken).
18.11.2020 - 10:00
ANGELICA skrifaði:
Buenos dias, necesito ayuda con la diagrama A1 precisamente con la hebras. Entre los picos de colores (ladrillo, beige , azul) siempre hay un numero impar de puntos, pero si yo tengo que aumentar una hebra no me sale el numero de puntos, osea aumenta. Como hago? AYUDA, POR FAVOR, estoy con mi labor parado. No se como continuar. Socorro! Gracias.
03.05.2020 - 18:05DROPS Design svaraði:
Hola Angelica, el diagrama es correcto. Tienes que trabajar según el diagrama para que te salga el dibujo. Te recomiendo en lugar de aumentar la hebra, sacar la hebra entre los puntos.
20.11.2020 - 20:46
Agnes skrifaði:
Heisann, jeg trenger litt hjelp med å forstå begynnelsen: «Legg opp (...) med 2 tråder drue. Ta bort den ene tråden og strikk videre med 1 tråd drue». Hvorfor skal jeg legge opp med dobbel tråd hvis den skal strikkes med enkel? Og hva menes med «ta bort den ene tråden» – skal den klippes, festet, henge løs? Takk for hjelpen!
11.04.2020 - 00:47DROPS Design svaraði:
Hej Det är för att kanten ska bli lite mer elastisk man lägger upp med dubbel tråd. Den tråd du inte stickar vidare med klipper du bara av och fäster senare. Mvh DROPS Design
22.04.2020 - 09:30
Feeb skrifaði:
This seems very retro. Love it!
14.03.2020 - 00:30
Elena Illa skrifaði:
No entiendo qué pasa con las medidas. Tengo una talla L, estoy haciendo este jersey con las indicaciones de talla S y agujas del 6 y está saliendo extremadamente grande. Lo he tenido que deshacer. Me pasó lo mismo con el modelo Blue Jeans. ¿Puede ser que las medidas sean erróneas?, me extraña que me haya pasado con dos modelos diferentes de Drops.
21.01.2020 - 13:12DROPS Design svaraði:
Hola Elena. Para elegir la talla correcta hay que comparar tus medidas con las medidas de la prenda que vienen en el diagrama bajo el patrón. En el caso de este modelo, el jersey tiene un corte muy amplio. El modelo 205-42 también tiene un corte amplio. No te fijes solamente en la talla, sino que en las medidas a las que se corresponde cada una.
29.02.2020 - 23:01
Morocco Love#moroccolovesweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-5 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 26) = 2,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca hver og önnur hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með tvöföldum þræði. Eða að fella af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hár kragi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. HÁR KRAGI: Fitjið upp 54-60-60-66-66-72 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 2 þráðum vínber. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði vínber. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10-10-11-11-12-12 cm (eða að óskaðri lengd á kraga). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-20-30-24-44-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 80-80-90-90-110-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan) – berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 0-1-3-3-3-4 umferðir sléttprjón með litnum vínber. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 16-16-18-18-22-22 mynstureiningar með 5 lykkjum). Aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki í hálsi. Nú er lokið við síðustu útaukningu og það eru 208-208-234-234-286-286 lykkjur í umferð. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan – ATH: A.1 er ekki lokið í öllum stærðum, en mynstrið er prjónað áfram á fram- og bakstykki og ermum (ef A.1 er lokið, prjónið sléttprjón með litnum dökk gallabuxnablár yfir allar lykkjur). Prjónið A.1 yfir fyrstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar með 13 lykkjum á ca hálfu bakstykki), setjið næstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar með 13 lykkjum), fitjið upp 4-10-4-10-4-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með A.1 yfir næstu 65-65-78-78-91-91 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 13 lykkjum á framstykki), setjið næstu 39-39-39-39-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar með 13 lykkjum), fitjið upp 4-10-4-10-4-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið A.1 yfir þær 26-26-39-39-39-39 lykkjur sem eftir eru á bakstykki (= 2-2-3-3-3-3 mynstureiningar með 13 lykkjum). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-150-164-176-190-198 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 4-10-4-10-4-8 lykkjum undir ermi í annarri hlið á stykki. Haldið áfram með A.1 hringinn, en nýjar lykkjur undir hvorri ermi eru prjónaðar með litnum dökk gallabuxnablár (ef A.1 er lokið á berustykki, er prjónað sléttprjón með litnum dökk gallabuxnablár yfir allar lykkjur). Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón hringinn með litnum dökk gallabuxnablár yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 29 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 10 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-6-2-2-4-6 lykkjur jafnt yfir = 132-144-162-174-186-192 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-39-39-39-52-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-10-4-10-4-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-49-43-49-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-10-4-10-4-8 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.1 hringinn, en nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar með litnum dökk gallabuxnablár (ef A.1 er lokið á berustykki, prjónið sléttprjón hringinn með litnum dökk gallabuxnablár yfir allar lykkjur). Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón hringinn með litnum dökk gallabuxnablár yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-4-10-4-2½-2 cm millibili alls 5-7-3-6-9-10 sinnum = 33-35-37-37-38-40 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 32-30-29-27-26-24 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 10 cm að loka máli mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 30-36-36-36-36-42 lykkjur (S: Fækkið um 3 lykkjur, M: Aukið um 1 lykkju, L og XL: Fækkið um 1 lykkju, XXL: Fækkið um 2 lykkjur, XXXL: Aukið um 2 lykkjur). Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-40-39-37-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moroccolovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.