Unny Hernæs wrote:
Fins det andre fargekombinasjoner? F.eks blått, grått eller noe annet. Trives ikke med brunt/beige
12.07.2020 - 13:18DROPS Design answered:
Hei Unny, Hvis du ser på garnsamlingen vår i Kid Silk er det mange forskjellige blå/grå garn å velge fra. God fornøyelse!
13.07.2020 - 07:30Sanne wrote:
Hvis jeg vil strikke den i ensfarvet hvor mange ngl skal jeg så bruge
08.09.2019 - 15:12DROPS Design answered:
Hei Sanne. Det kommer an på hvilken str du skal strikke. Til str M trenger du 7-8 nøster. God Fornøyelse.
09.09.2019 - 08:52Jaklyne wrote:
Bonjour est il possible de faire ce pull en pull mais pas gilet fermé dans le dos et passé par la têt merci de me dire ? cordialement bonne journée je voudrais trouver des pulls mais pas des gilets à l'envers est ce possible dans les gratuits ?
08.09.2019 - 13:41DROPS Design answered:
Bonjour jaklyne, ce modèle existe en version pull; on le tricote de haut en bas. Bon tricot!
09.09.2019 - 09:13Claudia wrote:
Hallo, ich würde diese Jacke gern einfarbig stricken. Benötige ich für diesen Fall dieselbe Menge Wolle? Liebe Grüße Claudia
31.08.2019 - 21:11DROPS Design answered:
Liebe Claudia, leider können wir jede Anleitung nach jeder individuellen Anfrage anpassen, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden - auch telefonisch oder per E-Mail - weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
02.09.2019 - 10:17Anita Thorsén wrote:
Jeg har brug for noget tyndere garn, men stadig i en lækker blød alpacka, kan i foreslå noget. Det ville jeg blive glad for. Tak. Mvh Anita
18.08.2019 - 14:31DROPS Design answered:
Hei Anita. Ta en titt under GARN og garngruppe A, der vil du finne 5 tynne alpaca/ alpacablandingskvaliteter. God Fornøyelse!
20.08.2019 - 14:36
Story of Autum Jacket |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-6 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR: RÖND 1: 13-13-14-14-15-15 cm (+ 3 cm með stroffi) með 1 þræði grár + 1 þræði ryð (= 2 þræðir). RÖND 2: 13-13-14-14-15-15 cm með 1 þræði öskugrár + 1 þræði ryð (= 2 þræðir). RÖND 3: 13-13-14-14-15-15 cm með 1 þræði öskugrár + 1 þræði malva (= 2 þræðir). RÖND 4: Prjónið síðan með1 þræði grár + 1 þræði dökk fjólublár (= 2 þræðir) til loka. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur) mínus kanta að framan (= 8 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 41. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 41. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið á hinni hliðinni (= 4 lykkjur útauknar í umferð). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 51 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 4,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-10-9-9-9½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 86-90-94-98-102-106 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í litnum grár + 1 þræði í litnum ryð (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGATI í hægri kanti að framan!. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-2-4-6-8-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 86-92-98-104-110-116 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (prjónið slétt yfir 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið). Setjið eitt prjónamerki í síðustu umferð, innan við kantlykkju að framan í aðra hlið á stykki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og prjónið mynstur þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 alls 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar á breidd, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 255-274-293-312-331-350 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm, aukið út um 7-9-9-14-14-23 lykkjur jafnt yfir = 262-283-302-326-345-373 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki og niður meðfram kanti að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu og er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-43-46-50-54-59 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 55-59-63-67-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-79-84-92-101-111 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 55-59-63-67-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 40-43-46-50-54-59 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). Prjónið síðan ermar og fram- og bakstykki hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 164-177-192-208-229-249 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og röndum eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 14 cm = 172-185-200-216-237-257 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26 cm, aukið út um 34-37-42-42-45-49 lykkjur jafnt yfir = 206-222-242-258-282-306 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð í sléttprjóni og haldið er áfram með RENDUR, þ.e.a.s. hver rönd er 13-13-14-14-15-15 cm og síðasta röndin er prjónuð til loka. Setjið til baka 55-59-63-67-68-72 lykkjur af bandi í annarri hliðinni á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 61-65-71-75-78-82 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýju lykkjurnar (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með ca 3-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 6-7-9-10-11-12 sinnum = 49-51-53-55-56-58 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 39-38-36-35-33-32 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 9-11-9-11-8-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-40-39-37-36 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |