DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cloudscape

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með rönguna út og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-20
DROPS Design: Mynstur z-871
Garnflokkur A + A + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-100-100-150 g litur 0601, dökk brúnn
50-100-100-100-100-100 g litur 2020, ljós kamel
50-50-50-50-50-100 g litur 517, milligrár
50-50-50-50-50-100 g litur 4010, ljós lavender
50-50-50-50-50-100 g litur 5575, sæblár
50-50-50-50-50-50 g litur 3800, bleikfjólublár

Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-75-100-100-100 g litur 02, svartur
75-75-75-75-100-100 g litur 10, grár
50-75-75-75-75-100 g litur 22, öskugrár
25-25-25-25-50-50 g litur 09, ljós lavender

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði Alpaca + 2 þráðum Kid-Silk (3 þræðir) = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 70 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 68 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 11,3.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur).
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um hliðar á ermi):
Öll úrtaka er gerð frá röngu!
Fækkið lykkjum svona á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI (stykkið er prjónað neðan frá og upp):
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með rönguna út (prjónið brugðið frá réttu og slétt frá röngu) og prjónið með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk eins og útskýrt er að neðan (= 3 þræðir). A = Alpaca KS = Kid-Silk.
5-6-7-7-7-7 cm með 1 þræði sæblár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði öskugrár KS.
10-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði dökk brúnn A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði öskugrár KS.
8-8-8-9-9-9 cm með 1 þræði dökk brúnn A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS.
4-4-4-4-4-5 cm með 1 þræði bleikfjólublár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS.
5-5-5-5-6-6 cm með 1 þræði milligrár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS.
4-4-4-4-4-5 cm með 1 þræði milligrár A + 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS.
9-9-9-9-9-9 cm með 1 þræði ljós lavender A + 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS.
Prjónið síðan með 1 þræði ljós kamel A + 1 þræði grár KS + 1 þræði ljós lavender KS til loka.

RENDUR ERMAR (stykkið er prjónað ofan frá og niður):
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með rönguna út (prjónið brugðið frá réttu og slétt frá röngu) og prjónið með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk eins og útskýrt er að neðan (= 3 þræðir). A = Alpaca KS = Kid-Silk.
9-9-8-8-7-7 cm með 1 þræði ljós lavender A + 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS (= efst á ermi).
4-4-4-4-4-3 cm með 1 þræði milligrár A + 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS.
5-5-5-5-4-4 cm með 1 þræði milligrár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS.
4-4-4-4-4-3 cm með 1 þræði bleikfjólublár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS.
8-7-7-7-7-7 cm með 1 þræði dökk brúnn A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS.
9-9-9-8-8-8 cm með 1 þræði dökk brúnn A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði öskugrár KS.
Prjónið síðan með 1 þræði sæblár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði öskugrár KS til loka.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í hlutum og saumað saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 70-78-82-90-98-106 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 6 með 1 þræði sæblár Alpaca + 1 þræði svartur Kid-Silk + 1 þræði öskugrár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið allar lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju slétt.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 6-8-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 64-70-76-82-90-98 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og passið uppá að fyrsta röndin verði 9-10-11-11-11-11 cm að stroffinu meðtöldu.

Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónamerkin merkja hvar handvegurinn byrjar. Haldið áfram með rendur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fellið af fyrir öxl, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: Fellið af 14-17-18-21-24-28 lykkjur fyrir öxl (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur), prjónið sléttprjón með rönguna út yfir næstu 36-36-40-40-42-42 lykkjur, setjið síðan þessar 36-36-40-40-42-42 lykkjur á þráð, fellið af þær 14-17-18-21-24-28 lykkjur sem eftir eru fyrir öxl. Geymið stykkið og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp jafn margar lykkjur og á framstykki og prjónið á sama hátt og framstykki. Þ.e.a.s. framstykki og bakstykki eru alveg eins.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.
Fitjið upp 52-54-56-60-62-64 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 7 með 1 þræði ljós lavender Alpaca + 1 þræði öskugrár Kid-Silk + 1 þræði grár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið RENDUR ERMI með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 11-12-12-13-14-14 sinnum í hvorri hlið = 30-30-32-34-34-36 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 45-44-43-41-39-37 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli – ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, þar sem aukið er út um 4-4-2-4-4-2 lykkjur jafnt yfir = 34-34-34-38-38-38 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 6. Haldið áfram með lit frá síðustu rönd og prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið allar lykkjur slétt.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 4 cm, en endið eftir umferð frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 49-48-47-45-43-41 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
Saumið ermar í á milli prjónamerkja fyrir handveg – saumið innan við 1 kantlykkju á framstykki/bakstykki.
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið innan við 1 kantlykkju.

KRAGI:
Setjið 36-36-40-40-42-42 af þræði á framstykki og 36-36-40-40-42-42 lykkjur af þræði á bakstykki saman á stuttan hringprjón 7 = 72-72-80-80-84-84 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón hringinn með rönguna út með 1 þræði ljós kamel A + 1 þræði grár KS + 1 þræði ljós lavender KS. Þegar kraginn mælist ca 17-17-19-19-21-21 cm, prjónið 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Mariángeles wrote:

Hola, he trabajado la talla L bien pero al usar el modelo, pesa y se abre, hay algún truco para mantener las medidas?

02.12.2023 - 17:49

DROPS Design answered:

Hola Mariángeles, parece ser un problema de la tensión del tejido. Puedes poner una cinta bies por las partes de las costuras (en los hombros, sisas, lados y la unión del cuello con el cuerpo).

03.12.2023 - 20:02

country flag Dorota wrote:

Hola, tengo una duda, comencé a tejer el suéter Cloudscape, ¡ya tengo 20 cm! Sin embargo, me di cuenta de que debería haber elegido la talla L, no M. ¿Está permitido hacer una de las partes (delantera o trasera) más ancha, 2 cm? ¿Quizás haya otra solución? Gracias de antemano por su consejo.

29.09.2023 - 11:19

DROPS Design answered:

Hola Dorota, en principio no, ya que se moverían las costuras laterales y podrían quedar más visibles.

01.10.2023 - 00:00

country flag Dorota wrote:

Witam, mam pytanie, zaczęłam robić sweter Cloudscape, mam już 20 cm! Zdałam sobie jednak sprawę, że powinnam była wybrać rozmiar L, a nie M. Czy jest dopuszczalne jeśli jedną część (przód lub tył) zrobię trochę szersza o 2 cm? Może istnieje inne rozwiązanie? Dziękuje z góry za poradę.

29.09.2023 - 11:17

DROPS Design answered:

Witaj Doroto, 2 cm to nie dużo. Są 2 opcje: 1. pruć, 2. nie pruć, tylko dobrać oczka na bokach (do rozmiaru L) i później zrobić pęknięcia na dole swetra. Co o tym myślisz?

30.09.2023 - 15:15

country flag Ruth wrote:

Ich stricke nicht nach der Anleitung, sondern nur nach Diagramm. Dieses ist sehr gut dargestellt, aber bei Drops fehlt immer die Armweite unten am Handgelenk Warum? . Wieviel cm hat sie bei Modell "Cloudscape"?

12.08.2023 - 20:07

DROPS Design answered:

Liebe Ruth, wahrscheinlich eine Gewohneit, ,diese Maßnahmen können Sie immer von der Anleitung mit der Hilfe von der Maschenprobe kalkulieren, z..B. in die 1. Größe sind 34 Maschen nach Abnahmen übrig- 2 Randmaschen (für die Naht) = 32 M / 1,3 (= 13 Maschen für 10 cm) = ca 25 cm. Vie Spaß beim stricken!

14.08.2023 - 09:43

country flag Suzanne Sirjacobs wrote:

Hallo! Waar is de tekening van het patroon naartoe? Voor de afmetingen

20.03.2022 - 16:22

country flag Sabine Marse wrote:

Kan het garen kid silk ook door iets anders vervangen worden? Ik ben nml allergisch voor mohair.

12.07.2021 - 11:57

DROPS Design answered:

Dag Sabine,

Ja, deze zou door een ander garen uit groep A vervangen kunnen worden. Bijvoorbeeld nog een draad Alpaca of BabyAlpaca Silk. Het heeft dan natuurlijk wel wat een ander effect; minder pluizig/harig.

13.07.2021 - 18:43

country flag Annelieke Limahelu wrote:

Volgens mij staat er een fout in het patroon. Onder de beschrijving van het voorpand staat ‘ribbelsteek’ maar dat moet mijns inzien zijn: ‘tricotsteek met de averechte kant aan de goede kant’, Dank voor de leuke patronen!

24.01.2021 - 09:24

country flag Vibeke Christoffersen wrote:

Farve 601 er udgået - hvilken farve vil være et godt alternativ?

05.01.2021 - 13:11

DROPS Design answered:

Hej Vibeke, jeg ville have valgt burgunder 6736 DROPS Alpaca men det er jo en smagssag. Du kan også bruge DROPS Fabel 300 brun :)

08.01.2021 - 11:10

country flag Elisabeth Fernandez wrote:

Bonjour, le colorie 601 en alpaca est supprimé, les gris 10 et 22 de kid_silk ne sont ni en stochk ni commandés que puis_je aire pour conservé l'harmonie des couleurs et des textures ? Merci de me répondre

24.11.2020 - 23:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fernandez, n'hésitez pas à contacter - même par mail ou téléphone - votre magasin qui pourra vous conseiller les meilleures couleurs correspondantes. Bon tricot!

25.11.2020 - 07:53

country flag Věra wrote:

Zdravím.....tak mi to tady nikdo ani po roce nepřeložil.....jen hlídací pes se nabízí,ale to bych musela být génius abych to pochopila.....

15.10.2020 - 12:17