Richtje skrifaði:
Ik mis een telpatroon:A1. Dit is alleen over de eerste drie steken, ik begrijp het niet. Graag antwoord!
21.05.2019 - 12:05DROPS Design svaraði:
Dag Richtje,
A.1 staat naast de schematekening met de maten. Als er staat 'Haak A.1 over de eerste 3 steken' dan haak je dus 3 stokjes :)
23.05.2019 - 21:36
Gabriele skrifaði:
Und noch ein sehr schönes Objekt das ich nacharbeiten werde!
26.02.2019 - 00:15
Blue Annabelle#blueannabellejacket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð síð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-33 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. Fækkið um 1 lykkju með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í hlutum, ofan frá og niður og saumað saman í lokin. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður og saumaðar saman í lokin. BAKSTYKKI: Heklið 176-200-224 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja og eina af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 146-166-186 stuðlar. Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, endurtakið A.3a þar til 3 lykkjur eru eftir (= 7-8-9 sinnum á breidd), endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar A.3a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3b og síðan A.3c, A.1 er endurtekið á hæðina til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.5 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 9-10-11 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 150-166-182 lykkjur í umferð merktri með Ö-1 – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina er endurtekið A.x 0-0-1 sinni á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.y 0-0-1 sinnum til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 146-166-186 lykkjur. Þegar allt A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.3b þar til 3 lykkjur eru eftir (= 7-8-9 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar. Þegar allt A.3b hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.5 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 9-10-11 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 150-166-182 lykkjur í umferð merktri með Ö-1. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.x 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.y 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 146-166-186 lykkjur. Þegar allt A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina er klippt frá og endar festir. Stykkið mælist ca 71-75-79 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 80-93-104 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 4-5-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 66-77-86 stuðlar. Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGUM, endurtakið A.3a þar til eftir eru 3-14-3 lykkjur (= 3-3-4 sinnum á breidd), heklið A.4a (= 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar A.3a og A.4a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3b og A.4b, A.1 er endurtekið á hæðina til loka – JAFNFRAMT er aukið út um 10-7-6 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með Ö-3 = 76-84-92 lykkjur. Þegar A.3b og A.4b hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3c og A.4c – JAFNFRAMT er aukið út um 3-2-3 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með Ö-4 = 79-86-95 lykkjur. Þegar allt A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.5 þar til eftir eru 12-3-12 lykkjur (= 4-5-5 sinnum á breidd), heklið A.6 (= 9 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum og endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina er endurtekið A.x 0-0-1 sinni til viðbótar á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina er A.y endurtekið 0-0-1 sinni til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 77-86-97 lykkjur. Þegar allt A.5 og A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, heklið A.4b (= yfir 11 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum, endurtakið A.3b þar til 3 lykkjur eru eftir (= 3-3-4 sinnum til viðbótar á breiddina) og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar. Þegar allt A.3b og A.4b hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, heklið A.6 (= 9 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum, endurtakið A.5 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 4-5-5 sinnum á breidd), endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 79-86-95 lykkjur í umferð merktri með Ö-1 – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.x 0-1-1 sinni á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.y 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 77-86-97 lykkjur. Þegar allt A.5 og A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 71-75-79 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 80-93-104 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 4-5-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 66-77-86 stuðlar. Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGUM, heklið A.2a (= 11 lykkjur) alls 0-1-0 sinnum, endurtakið A.3a þar til 3 lykkjur eru eftir (= 3-3-4 sinnum á breiddina) og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjurnar. Þegar A.2a og A.3a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.2b og A.3b, A.1 er endurtekið á hæðina til loka – JAFNFRAMT er aukið út um 10-7-6 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með Ö-3 = 76-84-92 lykkjur. Þegar A.2b og A.3b hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.2c og A.3c – JAFNFRAMT er aukið út um 3-2-3 lykkjur jafnt yfir í umferð merktri með Ö-4 = 79-86-95 lykkjur. Þegar allt A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.8 þar til eftir eru 12-3-12 lykkjur (= 3-3-4 sinnum á breidd), heklið A.7 (= 9 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum og endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina er endurtekið A.x 0-0-1 sinni til viðbótar á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina er endurtakið A.y 0-0-1 sinnum á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 77-86-97 lykkjur. Þegar allt A.7 og A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, heklið A.3b þar til 14-3-14 lykkjur eru eftir (= 3-3-4 sinnum á breidd), heklið A.2b (= yfir 11 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum og endið með að hekla A.1 yfir síðustu 3 lykkjur. Þegar allt A.2b og A.3b hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (fyrsta umferð byrjar frá röngu): Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, endurtakið A.8 þar til 12-3-12 lykkjur eru eftir (= 4-5-5 sinnum á breidd), heklið A.7 (= 9 lykkjur) alls 1-0-1 sinnum og endið með A.1 yfir síðustu 3 lykkjur – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 79-86-95 lykkjur í umferð merktri með Ö-1. Þegar A.x hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.x 0-1-1 sinni á hæðina. Þegar A.y hefur verið heklað til loka á hæðina endurtakið A.y 0-1-1 sinni til viðbótar á hæðina. Í umferð merktri með Ö-2 er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að auka/fækka lykkjum jafnt yfir til 77-86-97 lykkjur. Þegar allt A.5 og A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 71-75-79 cm. ERMI: Heklið 99-123-123 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 5-3-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferð = 82-102-102 stuðlar. Heklið þannig (fyrsta umferð byrjar frá réttu): Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, endurtakið A.3a þar til 1 lykkja er eftir (= 4-5-5 sinnum á breidd) og endið með A.1 yfir síðustu lykkju. Þegar A.3a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.3b og síðan A.3c, A.1 er endurtekið á hæðina til loka. Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Byrjið ca 23-28-28 cm niður frá öxl og saumið hliðarsauma, skiljið eftir ca 30 cm neðst niðri fyrir klauf. Saumið sauma undir ermum og saumið ermar í. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði Cotton Merino ca 6 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Leggið snúruna saman tvöfalda, þræðið lykkjunni í gegnum eitt af götunum á hægra framstykki (ca 25-26-27 cm niður frá öxl). Þræðið síðan endana í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Gerið aðra snúru til viðbótar og festið á vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueannabellejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.