Ineke Lubbers-telindert wrote:
Voor alle maten de zin "ruimte voor 14 herhalingen " ....waarvan??? 14 keer 6 meerderingen geeft te veel stokjes,want het telpatroon in de hoogte meerdert ook alweer
21.06.2021 - 20:15DROPS Design answered:
Dag Ineke,
Er is ruimte voor 14 herhalingen van A.3 in de breedte tussen A.2 /A.4. A.3 heeft 10 steken in de breedte, dus dat zijn in totaal 140 steken. (plus 3 steken van A.2 en A.4 = 143 steken)
23.06.2021 - 20:58Wil wrote:
Dit truitje gemaakt in xl versie. Heel leuk! Totale lengte aangehouden van 52cm en ook de breedte correspondeert met jullie maten. Van de 12 gekochte bollen, 3 hele bollen over en zelfs nog wat van een andere bol. Dit is duidelijk een fout in de berekening. Gekocht bij Hobbydoos, op 22 mei afgeleverd. Willen jullie mij hierin tegemoet komen? Vrgr Wil
05.06.2021 - 09:23DROPS Design answered:
Dag Wil,
Voor het terugsturen van bollen kun je het beste even contact opnemen met hobbydoos en het probleem uitleggen. Zij kunnen je verder helpen.
07.06.2021 - 20:07Greet Verbruggen wrote:
In het telpatroon staat een ° voor het haken van een bobbel. Je moet deze haken om een stokje. Is dit het stokje dat je net gehaakt hebt op dezelfde rij of is dit een stokje uit de rij eronder?
27.05.2021 - 11:19DROPS Design answered:
Dag Greet,
De bobbel haak je in het stokje eronder, dus het stokje van de vorige toer.
31.05.2021 - 10:44Cécile wrote:
Bonjour, je voudrais bien faire ce modèle, mais en lisant les explications je me rends compte que je ne vois pas le diagramme A1 . Je vois seulement de A2 à A7. Est ce que j'aurais manqué quelque chose ? je vous remercie de votre aide. Cécile
12.05.2021 - 14:42DROPS Design answered:
Bonjour Cécile, vous trouverez A.1 juste sous A.2-A.3-A.4 (au-dessus de A.6), c'est un petit diagramme sur 2 mailles et 2 rangs. Bon crochet!
12.05.2021 - 15:16
Sandy Shores Top |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-40 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.7). Byrjið að hekla í umferð með ör í mynsturteikningu. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta stuðlahópnum í umferð skipt út með 4 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá byrjun á umferð. Í hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun á umferð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 133 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 19. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í 19. hvern stuðul. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju. ÚRTAKA: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er í hring, en stykkinu er snúið við eftir hverja umferð þannig að önnur hver umferð er hekluð frá réttu og frá röngu. BERUSTYKKI: Heklið 105-109-113-118-123-129 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino – sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Tengið loftlykkjurnar saman með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Snúið stykkinu, byrjun á umferð = mitt að aftan. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju umferðina hringinn – sjá HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan = 105-109-113-118-123-129 stuðlar. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 11-12-13-14-13-13 stuðlum, A.1 (= 2 stuðlar eru auknir út til 3) yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðla (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum, A.1 yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðla (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 20-22-25-27-26-24 stuðlum, A.1 yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðla (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum, A.1yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðla (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af þeim 10-11-12-13-12-12 stuðlum sem eftir eru = 133-137-141-146-155-165 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Stærð S og M er lokið, farðu beint áfram í kaflann sem heitir allar stærðir! STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 1 stuðul í hvern af næstu 24-23-25-28 stuðlum, heklið 2. umferð í A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 12 stuðlum, heklið 2. umferð í A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 46-45-50-54 stuðlum, heklið 2. umferð í A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 12 stuðlum, heklið 2. umferð í A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af þeim 23-22-24-27 stuðlum sem eftir eru = 153-162-171-181 stuðlar. Síðasta umferð sem er hekluð var frá réttu. Klippið þráðinn þannig að næsta umferð verði einnig frá réttu (= 2 umferðir frá réttu eftir hvora aðra. Þetta er gert svona til að kúlurnar í mynstri í stykki komi næst frá réttu). ALLAR STÆRÐIR: Heklið nú mynstur þannig (fyrsta umferð er frá réttu): Heklið 1 lykkju í A.2 (skiptið þessari lykkju út eins og útskýrt er í HEKLLEIÐBEININGAR), A.3 þar til 2 stuðlar eru eftir í umferð, jafnframt er aukið út um 0-6-0-1-2-2 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, A.4 yfir síðustu 2 stuðla. Nú eru 133-143-153-163-173-183 stuðlar í umferð og það er pláss fyrir 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar með A.3 á breiddina á milli A.2/A.4. Haldið áfram fram og til baka þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, en í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 2-1-2-1-2-1 stuðla í umferð – sjá ÚTAUKNING-2 = 200-214-230-244-260-274 stuðlar í umferð. Heklið nú áfram þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, heklið A.5 yfir næstu lykkju, A.6 yfir næstu 28-32-34-38-40-44 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 22-22-24-26-26-28 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 58-64-72-74-86-88 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 22-22-24-26-26-28 stuðla, A.7 (veldur mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir síðustu 28-32-34-38-40-44 stuðla. Haldið svona áfram fram og til baka þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú eru 240-262-278-308-324-346 stuðlar í umferð. Heklið nú 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 14-16-18-20-22-24 cm (nú er eftir 1 umferð á berustykki + ein umferð með stuðlum þar til lokið er við kant í hálsmáli), JAFNFRAMT í síðustu umferð eru auknir út 6-16-24-18-26-30 stuðlar jafnt yfir = 246-278-302-326-350-376 stuðlar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 33-37-39-43-48-52 stuðlum (= hálft bakstykki), heklið 8-8-10-10-12-14 lausar loftlykkjur, hoppið yfir næstu 57-65-72-76-79-83 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 66-74-79-87-96-105 stuðlum (= framstykki), heklið 8-8-10-10-12-14 lausar loftlykkjur, hoppið yfir 57-65-72-76-79-83 stuðlar (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern af þeim 33-37-40-44-48-53 stuðlum sem eftir eru (= hálft bakstykki). Berustykkið mælist nú ca 15-17-19-21-23-25 cm frá kanti í hálsmáli og niður. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja af 8-8-10-10-12-14 nýjum loftlykkjum undir hvorri ermi = 148-164-178-194-216-238 stuðlar. Heklið nú mynstur fram og til baka eftir mynsturteikningu A.8, JAFNFRAMT í umferð með hvítri stjörnu er lykkjum fækkað jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, þannig: Stjarna-1: Fækkið um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 142-158-172-188-210-232 lykkjur. Sjarna-2: Fækkið um 4-6-6-4-4-4 stuðlar jafnt yfir = 138-152-166-184-206-228 lykkjur. Í umferð með svartri stjörnu er aukið út um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 144-158-172-190-212-234 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina, haldið áfram með stuðla og aukið út um 4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir í umferð með ca 3 cm millibili alls 3 sinnum = 156-170-184-202-224-246 lykkjur. Heklið stuðla þar til stykkið mælist ca 24-24-24-24-24-24 cm frá skiptingu. Klippið þráðinn frá. ERMI: Það er heklað í hring, en snúið við í hverri umferð og heklað er fram og til baka í umferð til að áferðin verði alveg eins og á fram- og bakstykki og berustykki. Byrjið á að hekla mitt undir ermi. Byrjið í 5.-5.-6.-6.-7.-8. loftlykkju af 8-8-10-10-12-14 loftlykkjum sem heklaðar voru undir ermi. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 4-4-5-5-6-7 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir ermi (= 57-65-72-76-79-83 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja og eina af 4-4-5-5-6-7 loftlykkjum = 65-73-82-86-91-97 stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 22-22-21-23-23-24 stuðlum, heklið 2 og 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA, yfir næstu 22-30-42-42-46-50 stuðla (= 11-15-21-21-23-25 stuðlar færri), heklið 1 stuðul í hvern af stuðlum sem eftir eru í umferð = 54-58-61-65-68-72 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið í fyrstu lykkju frá réttu = mitt að aftan. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hverja loftlykkju frá byrjun á umferð. Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |