DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sandy Shores

Heklaður kjóll með hringlaga berustykki úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri, tölum og vösum. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-17
DROPS Design: Mynstur cm-116
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-700-750-850-900-1000 g litur 28, púður

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.7). Byrjið að hekla í umferð með ör í mynsturteikningu.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli í umferð skipt út fyrir 3 loftlykkjur.
Í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðli í umferð skipt út fyrir 4 loftlykkjur.
Í hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 133 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 19.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 19. hvern stuðul.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju.
FRAMKANTUR:
Heklið 1 stuðul í hverja af 5 lykkjum fyrir kant að framan, en í umferð með tvíbrugðnum stuðlum í A.8, heklið tvíbrugðna stuðla í kant að framan í stað stuðla – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR.

ÚRTAKA:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

HNAPPAGAT:
Heklið hnappagat í hægir kant að framan (þegar flíkin er mátuð).
Heklið hnappagöt með því að skipta út 4. stuðli frá kanti með 1 loftlykkju.
Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull um loftlykkju. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í lok 1. umferðar á berustykki. Heklið síðan 9 næstu hnappagöt með ca 7½-7½-8-8-8½-8½ cm millibili – stillið af að hnappagötin komi í umferð með stuðlum og ekki í umferð með tvíbrugðnum stuðlum eða fastalykkjum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL MEÐ TÖLUM – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka og festar undir ermi með 1 keðjulykkju í lok umferðar.

BERUSTYKKI:
Heklið 138-142-147-153-159-166 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino. Snúið við og heklið þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Munið eftir HNAPPAGAT í lok þessarar umferðar – sjá útskýringu að ofan. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 22-22-23-24-25-26 sinnum, heklið 1 stuðul í hverja af 2-6-5-5-5-6 loftlykkjum = 114-118-122-127-132-138 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 15-16-17-18-17-17 stuðlum – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, A.1 (= 2 stuðlar auknir til 3) yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðla (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum, A.1 yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðlum (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 20-22-25-27-26-24 stuðlum, A.1 yfir næst 14-14-14-14-16-18 stuðlum (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum, A.1 yfir næstu 14-14-14-14-16-18 stuðla (= 7-7-7-7-8-9 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af þeim 15-16-17-18-17-17 stuðlum sem eftir eru = 142-146-150-155-164-174 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Nú er stærð S og M lokið, heklið áfram frá næsta kafla að neðan. Í stærð L, XL, XXL og XXXL er heklað áfram þannig:
Heklið 1 stuðul í hvern af næstu 28-27-29-32 stuðla, A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 12 stuðlum, A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 46-45-50-54 stuðla, A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 12 stuðla, A.1 yfir næstu 6-8-8-8 stuðla (= 3-4-4-4 stuðlar fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af þeim 28-27-29-32 stuðlum sem eftir eru = 162-171-180-190 stuðlar. Síðasta umferð sem er hekluð er hekluð frá réttu. Klippið frá þannig að næsta umferð komi einnig frá réttu (= 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri. Þetta er gert til að kúlurnar í mynstri sem koma síðar í stykkinu komi frá réttu).

Allar stærðir.
Heklið nú mynstur (frá réttu) þannig:
Heklið A.2 (= kantur að framan), A.3 þar til 8 stuðlar eru eftir í umferð, jafnframt er aukið út um 1-7-1-2-3-3 stuðla jafnt yfir - sjá ÚTAUKNING-1, A.4 yfir næstu 3 stuðla, endið með A.2 yfir þá 5 stuðla sem eftir eru í umferð (= kantur að framan). Nú eru 143-153-163-173-183-193 stuðlar í umferð og nú er pláss fyrir 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar A.3 á breiddina á milli A.2/A.4. Haldið áfram þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, en í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 1-0-1-0-1-0 stuðul í umferð – sjá ÚTAUKNING-2 = 209-223-239-253-269-283 stuðlar í umferð.

Heklið nú áfram þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 5 stuðlum (= kantur að framan), heklið A.5 yfir næstu lykkju, A.6 yfir næstu 28-32-34-38-40-44 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 22-22-24-26-26-28 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 58-64-72-74-86-88 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 22-22-24-26-26-28 stuðla, A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 10 stuðla, A.6 yfir næstu 28-32-34-38-40-44 stuðla, 1 stuðul í hvern af næstu 5 stuðlum. Haldið áfram fram og til baka svona þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú eru 249-271-287-317-333-355 stuðlar í umferð. Heklið nú áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 14-16-18-20-22-24 cm (nú er eftir 1 umferð á berustykki + ein umferð með stuðlum þar til kantur í hálsmáli er lokið), JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 6-15-23-16-20-27 stuðla jafnt yfir = 255-286-310-333-353-382 stuðlar.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 38-41-44-49-54-58 stuðla (= hálft framstykki), heklið 8-8-10-10-12-14 lausar loftlykkjur, hoppið yfir næstu 57-65-72-76-79-83 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 65-73-77-87-95-105 stuðla (= bakstykki), heklið 8-8-10-10-12-14 lausar loftlykkjur, hoppið yfir 57-65-72-76-79-83 stuðla (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern af þeim 38-41-44-49-54-58 stuðlum sem eftir eru (= hálft framstykki). Berustykkið mælist nú ca 15-17-19-21-23-25 cm frá kanti í hálsmáli og niður meðfram kanti að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hvern og einn af 8-8-10-10-12-14 nýjar loftlykkjur undir hvorri ermi = 157-171-185-205-227-249 stuðlar. Nú er mynstrið heklað fram og til baka þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 5 stuðlum (= kantur að framan), heklið A.8 þar til 6 lykkjur eru eftir, heklið fyrstu lykkju í A.8, 1 stuðull í hvern af þeim 5 stuðlum sem eftir eru (= kantur að framan). Haldið svona áfram fram og til baka, jafnframt er heklaður KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan og í umferð með hvítri stjörnu er lykkjum fækkað jafnt yfir – sjá ÚRTAKA þannig:
Stjarna-1: Fækkið um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 151-165-179-199-221-243 lykkjur.
Stjarna-2: Fækkið um 4-4-4-6-6-6 stuðla jafnt yfir = 147-161-175-193-215-237 lykkjur.
Í umferð með svartri stjörnu er aukið út um 6-6-6-6-6-6 stuðla jafnt yfir (en ekki yfir 5 stuðla í kanti að framan í hvorri hlið) = 153-167-181-199-221-243 lykkjur. Aukið svona út með ca 2 cm millibili alls 10-10-10-10-11-12 sinnum = 207-221-235-253-281-309 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina er haldið áfram með stuðla þar til stykkið mælist 52 cm. Heklið 1 umferð þar sem aukið er út um 4-2-4-2-6-2 stuðla jafnt yfir = 211-223-239-255-287-311 stuðlar. Heklið nú kant þannig: A.9 (= kantur að framan), A.10 þar til 6 stuðlar eru eftir í umferð, A.11 yfir næsta stuðul, endið með A.9 (= kantur að framan). Haldið áfram fram og til baka svona þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Heklað er í hring, en snúið er við í hverri umferð og heklað fram og til baka í umferð til að áferðin verði eins allan tímann. Í hverri umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Byrjið á að hekla mitt undir ermi. Byrjið í 5.-5.-6.-6.-7.-8. loftlykkju af 8-8-10-10-12-14 loftlykkjum sem heklaðar voru undir ermi. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 4-4-5-5-6-7 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern og einn af stuðlum undir ermi (= 57-65-72-76-79-83 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af 4-4-5-5-6-7 loftlykkjum = 65-73-82-86-91-97 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 22-22-21-23-23-24 stuðlum, heklið 2 og 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA, yfir næstu 22-30-42-42-46-50 stuðla (= 11-15-21-21-23-25 stuðlar færri), heklið 1 stuðul í hvern og einn af þeim stuðlum sem eftir eru í umferð = 54-58-61-65-68-72 stuðlar.
UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

VASAR:
Heklið 29 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í næstu loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 23 stuðlar.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til vasinn mælist ca 13 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið annan vasa alveg eins. Staðsetjið vasana ca 8-9-10-11-12-13 cm frá kanti að kanti að framan og með efri kant á vasa ca 24 cm frá skiptingu. Festið vasana með smáu ósýnilegu spori. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið í fyrstu lykkju frá réttu og heklið umferð með stuðlum þannig: Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju, en hoppið yfir loftlykkjur sem hoppað var yfir í fyrstu umferð á berustykki = 114-118-122-127-132-138 stuðlar. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = heklið 1 kúlu um stuðul þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 3 tvíbrugðna stuðla, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hverjum og einum af tvíbrugðnu stuðlunum (= 5 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul, en dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 6 lykkjurnar á heklunálinni.
symbols = úrtöku umferð – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Leena Marjamäki wrote:

Hi I don't understand where the 5th bobble should be crocheted (row 5 on A3) because it says to do it on a treble but there are only 4 of them? Also the names in English deviate from the norm, double crochet instead of single, etc. Thank you anyways this pattern is so beautiful :)

10.01.2023 - 18:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Marjamäki, make sure first you are reading appropariate English since UK- and US- get different crochet terminology (click on the scroll down menu below the picture to edit language). The bobles on this row are worked around the treble (UK)/double crochet (US) you just workedbefore (= 1 treble/dc around the ch-space, 1 boble around this treble). Happy crocheting!

11.01.2023 - 09:23

country flag Brigitte Jansen wrote:

Hallo, er staat geschreven dat de pas in hoogte 14 cm meer. Het is mij niet duidelijk of dit met halsrand en laatste toer is of zonder deze beide?

27.01.2021 - 13:31

DROPS Design answered:

Dag Brigitte,

Als er een hoogte wordt aangegeven is dit altijd vanaf de opzetnaald, tenzij anders omschreven. In dit geval dus ook vanaf het opzetten en tot waar er aangegeven wordt dat het werk 14 cm meet. Dus als er staat 'het werk meet 14 cm, dan zou het werk op dat moment in het patroon 14 cm moeten meten.

31.01.2021 - 19:57

country flag Lena Hammarsund wrote:

Jag håller på att virka själva mönstret till detta plagg. Svårt mönster att riktigt förstå. En viktig fråga är: när jag har virkat varv från rätsidan (höger sida på mönstret) och skall börja att virka tillbaka (baksidan) vänster sida på mönstret, skall jag då fortsätta att virka från höger igen på mönstret (rätsidan) eller skall jag börja virka från vänster mot höger? Avvaktar svar snarast. Vänligen Lena Hammarsund

03.12.2020 - 18:38

DROPS Design answered:

Hej Lena, her ser du tydeligt hvordan du gør: Hur man läser virkdiagram :)

09.12.2020 - 14:50

country flag Ingegerd wrote:

Förstår ej hur jag gör under ärmen. När jag virkat dom första 4 stolparna under ärmen så kommer jag inte vidare till den första av dom 65 stolparna utan att det blir ett stort hål. (alltså ett hål mellan 4 stolpen under ärmen o den första av dom 65 stolparna.. ) Jag kan skicka en bild hur det ser ut om det behövs. TACK!

15.12.2019 - 17:10

DROPS Design answered:

Hej Ingegerd, Vi kan inte se var du är i mönstret, men se vår video hur du delar vid ärmerna:

How to crochet the body under round yoke from Garnstudio Drops design on Vimeo.

17.12.2019 - 13:34

country flag Willa wrote:

On A.3 row 4, what does the symbol between the sc stand for?

17.08.2019 - 19:41

DROPS Design answered:

Dear Willa, this symbol is the 3rd from diagram key = 6 chain stitches. Happy crocheting!

19.08.2019 - 09:49

country flag Jorgette Loup wrote:

Comment gère ton les espacement dans A3.A2 une maille dans chaque maille mais dans A3 elles sont espacées et on ne voit pas de ma en l'air. merci

23.05.2019 - 22:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Loup, vous trouverez ici comment lire des diagrammes - dans A.3 on crochète des mailles en l'air (soit 1 = 1er symbole au 1er rang par ex), soit plusieurs (avec le même symbole) soit représentées par le 2ème et le 3ème symbole de la légende. Bon crochet!

24.05.2019 - 07:48

country flag Fabienne wrote:

Bonjour, je voulais juste signaler que ce modèle est dans les tricots mais c'est du crochet !

29.04.2019 - 17:53

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne et merci pour votre retour, l'icône va être modifiée. Bon crochet!

30.04.2019 - 10:19

country flag Lotta Svensson wrote:

Var finns mönstret för A10? saknar det i beskrivningen.

21.04.2019 - 16:26

DROPS Design answered:

Hej. Nu finns samtliga diagram till mönstret (A.1 - A.11) längst ner på sidan. Mvh DROPS Design

23.04.2019 - 10:14

country flag Joanna wrote:

Where are the diagrams A.9, A.10 and A.11? They all are necessary to finish the dress.

15.04.2019 - 10:28

DROPS Design answered:

Witaj Joanno! Dziękuję za zwrócenie uwagi. Zostało to już zgłoszone, a korekta zostanie naniesiona po świętach, najwcześniej 23 kwietnia. Pozdrawiamy!

15.04.2019 - 18:39

country flag Maja Lyngbakke wrote:

Hvor finder jeg mønster a9 -a11 Mvh Maja

12.04.2019 - 07:26

DROPS Design answered:

Hei Maja. Nå skal alle diagrammene være tilgjengelige. Beklager det, og god fornøyelse videre.

23.04.2019 - 13:16