DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mermaid Shell

Hekluð poncho peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S – XXXL.

DROPS 199-35
DROPS Design: Mynstur mb-056
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – L/XL – XXL/XXXL

EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-600-750 g litur 06, gleym-mér-ei

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.2.
Mynsturteikning A.3 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.4.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 48) = 2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla um sömu lykkju á eftir annan hvern stuðul.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er heklaður í hring í lokin.

BERUSTYKKI:
Heklið 112-119-126 loftlykkjur með heklunál 5 með Big Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja af fyrstu 6 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 15-16-17 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 96-102-108 stuðlar + 3 loftlykkjur.
Heklið síðan mynstur þannig:
Sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.2A alls 16-17-18 sinnum í umferð – í umferð merktri með ör er auki út um 48-54-60 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 144-156-168 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
A.2A er endurtekið 24-26-28 sinnum á breidd.
Þegar A.2A hefur verið heklað til loka, heklið A.2B yfir A.2A – í umferð merktri með ör er aukið út um 48-54-60 stuðla jafnt yfir = 192-210-228 stuðlar.
A.2B er endurtekið 32-35-38 sinnum á breidd.
Þegar A.2B hefur verið heklað til loka, heklið 6 fyrstu umferðirnar í A.2A yfir A.2B – í umferð merktri með ör er aukið út um 48-54-60 stuðlar jafnt yfir = 240-264-288 stuðlar.
A.2A er endurtekið 40-44-48 sinnum á breidd. Haldið áfram til og með 6. umferð í A.2A (= umferð á eftir umferð með ör) = 80-88-96 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 32 cm í öllum stærðum.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að hekla):
Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 13-15-16 loftlykkjubogum (= hálft bakstykki), annað prjónamerki er sett á eftir næstu 14-14-16 loftlykkjubogum (= ermi), þriðja prjónamerki er sett á eftir næstu 26-30-32 loftlykkjubogum (= framstykki) og fjórða prjónamerki er sett á eftir næstu 14-14-16 loftlykkjubogum (= ermi), nú eru 13-15-16 loftlykkjubogar á eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki). Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar við prjónamerki og er heklað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 52-60-64 loftlykkjubogar. Haldið áfram þar til A.2A hefur verið heklað til loka yfir þessar lykkjur JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 24 stuðla jafnt yfir (A.2A er endurtekið 30-34-36 sinnum á breidd) = 180-204-216 stuðlar.
Þegar A.2A hefur verið heklað til loka, heklið A.2B yfir A.2A – í umferð merktri með ör er aukið út um 36-42-48 stuðla jafnt yfir = 216-246-264 stuðlar (A.2B er endurtekið 36-41-44 sinnum á breidd).
Þegar A.2B hefur verið heklað til loka er heklað A.2C yfir A.2B alls 0-1-2 sinnum á hæðina. Klippið frá og festið enda. Fram- og bakstykki mælist ca 14-18-22 cm frá skiptingu.

ERMI:
= 14-14-16 loftlykkjubogar. Byrjið mitt undir ermi og heklið síðan þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, haldið áfram með 7. umferð í A.2A yfir þessar lykkjur (= 7-7-8 sinnum á breidd) og heklið til og með 8. umferð.
Endurtakið síðan 6. til 8. umferð 0-0-1 sinnum til viðbótar. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 3-3-7 cm frá skiptingu.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið í kringum háls þannig – ATH: Það er heklað í loftlykkjurnar þar sem stuðlar voru heklaðir, en ekki hekla í loftlykkjurnar sem hoppað var yfir: Byrjið við miðju að aftan, festið þráðinn við stykkið með 1 keðjulykkju í stuðul, heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3-1-3 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 22-24-25 sinnum, heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 24-26-27 loftlykkjubogar. Heklið síðan A.4 hringinn – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka er klippt frá og endi festur.

Mynstur

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð. Byrjaðu á næstu umferð!
symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja á milli 2 stuðlahópa
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = stuðull á milli 2 stuðlahópa
symbols = umferð byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferð byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Jensine wrote:

Eller kan jeg ændre størrelsen på hæklenålen?

09.09.2023 - 21:43

DROPS Design answered:

Hej igen, ja, hvis du har for mange masker på 10 cm (i forhold til hæklefastheden som står i opskriften), så vælger du en tykkere hæklenål :)

14.09.2023 - 10:46

country flag Jensine wrote:

Ser fantastisk ud, lige en jeg kan bruge. Men hals hullet er for lille til mit hoved og ærmeåbningerne er desværre også for små. Øv kan jeg ligge 7 luftmasker til i starten så hullet blev større, kan se det er forskellen på de forskellige størrelser. Og så kun tage 54 masker ud.

09.09.2023 - 21:30

DROPS Design answered:

Hej Jensine, det er vigtigt at du overholder hæklefastheden som står i opskriften for at få de mål som du finder i måleskitsen nederst i opskriften :)

14.09.2023 - 10:45

country flag Darlene Huber wrote:

Why do your instructions state ‘repeat’ A2B and ‘repeat ‘A2A ? It sounds like we are to go back to the initial round in each of these sections and start, or repeat them from there. It would make much more sense and be far less confusion if the wording read ‘continue’ with the rounds rather than ‘repeat’. Or am I completely off in my understanding?

10.05.2023 - 23:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Huber, you have to repeat first A.2A in width, this means you work the 6 sts in the diagram a total of 16-17-18 times in the round. Then you work A.2B the same way - in the round. So that you have to repeat the diagram a totall of 16-17-18 times all the round. This lesson will explain you how to read diagrams. Happy crocheting!

11.05.2023 - 07:50

country flag Vasileia wrote:

Oh dear! Below i see the number 16, probably this is the correct one...

17.03.2023 - 13:45

country flag Vasileia wrote:

Hello from sunny Athens! Very nice pattern, indeed! Size SMALL •112 chain stitches •3 chain stitches and *6 double crochets +1 skip chain stitch * 15 times repeated from * to *. How is this possible? Please explain. Many thanks in advance.

17.03.2023 - 13:34

DROPS Design answered:

Dear Vasileia, work as follows: 3 ch, 1 dc in each of the next 6 chains (= 6 dc / 7 chains), then *skip 1 chain, 1 dc in each of the next 6 ch* (= 6 dc / 7 ch) repeat from *-* a total of 15 times (= 90 dc / 105 chains) = 6+90= 96 chains worked over 7 + 105= 112 chains. Happy crocheting!

17.03.2023 - 15:05

country flag Masson wrote:

Je ne comprends pas comment il faut faire pour les augmentations

22.09.2021 - 00:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Masson, cette leçon explique comment répartir des augmentations sur un rang, autrement dit, à la 1ère flèche dans A.2A, vous crochèterez 3 brides dans chaque arceau comme indiqué, mais à intervalles réguliers, vous en crochèterez 4 au lieu de 3. Bon crochet!

22.09.2021 - 07:40

country flag Alexandra wrote:

Hallo, \r\nnachdem ich A2B gehäkelt habe, kommen die ersten 6 Runden von A2A drüber, inklusive Zunahmen. Dann kommen nochmals 6Runden A2A bis zum Pfeil. Da verstehe ich nicht ganz, welche Reihe ich da nun häkeln muss. Im Diagramm A2A bis Ende dann ist da aber kein Pfeil mehr oder wieder die ersten 6Reihen von A2A? Oder das Diagramm zu Ende häkeln plus die ersten 6 Reihen?\r\nVielen Dank

01.09.2021 - 12:56

DROPS Design answered:

Liebe Alexandra, nach A.2B häkeln Sie die 6 eresten Reihen A.2, dh genauso wie die ersten 6 die Sie gehäkelt haben, nun bei der 5. Reihe = Reihe mit dem Pfeil, nehmen Sie regelmäßig verteilt zu, dann häkeln Sie noch die nächste und 6. Reihe. Und dann häkeln Sie A.2B (A.2A wird dieses Mal nicht bis zur Ende gehäkelt). Viel Spaß beim häkeln!

01.09.2021 - 13:06

country flag Antonella wrote:

Cosa è una maglia alta tra due gruppi di.maglie alte?

17.03.2021 - 18:56

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, deve semplicemente lavorare 1 maglia alta. Buon lavoro!

24.03.2021 - 19:50

country flag Chiara wrote:

Ciao, ma quando dice "Poi ripetere A.2A 24-26-28 volte in larghezza." vuol dire che devo ricominciare il modello A.2A dal primo giro o che dopo gli aumenti semplicemente avro, nel mio caso, 24 ripetizioni da fare? Grazie

01.02.2021 - 00:43

DROPS Design answered:

Buonasera Chiara, deve continuare con A.2A fino alla fine del diagramma ma dopo gli aumenti, il diagramma si ripeterà più volte sul giro rispetto all'inizio. Buon lavoro!

01.02.2021 - 19:17

country flag Sessa wrote:

Hej! Nybörjare och har fastnat på A2 rad tre. A1 börjar med tre luftmaskor och sedan på A2 rad tre ser det ut som två luftmaskor, sedan är det två kryss(fastmaska i maskan)ovanpå ett upp-och ner v och sedan två luftmaskor och avslut med stolpe i maskan. Jag förstår inte vad jag ska göra på varvet. HJÄLP. Tack på förhand!

19.06.2020 - 20:32

DROPS Design answered:

Hei Sessa. Du er nå på 2. rad (raden med sort stjerne er allerede heklet og telles ikke med i diagrammet). Du starter med A.1 (3 luftmasker), så hekles A.2 slik: 2 luftmasker, 1 fastmaske i toppen på staven fra forrige omgang, 2 luftmasker, 1 fastmaske i samme stav som den andre fastmasken, 2 luftmasker og 1 stav i fastmaske fra forrige omgang, så gjentar du A.2 omgangen ut og avslutter med 1 kjedemaske i den 3. luftmasken på starten av omgangen. God Fornøyelse!

22.06.2020 - 11:28