DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Carefree Summer

Heklað poncho með gatamynstri úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-16
DROPS Design: Mynstur cl-093
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – L/XL – XXL/XXXL

EFNI:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-750-900 g litur 01, natur

HEKLFESTA:
20 stuðlar á breidd og 10 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS TRÉTALA, Eik NR 501: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur):
Það er mjög auðvelt að hekla loftlykkjur fastar en aðrar lykkjur. 1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju/stuðli/tvíbrugðnum stuðli/þríbrugðnum stuðli o.s.frv. á breiddina. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju dragist aðeins upp á heklunálina þannig að lykkjan verði nægilega laus. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast þá kemur mynstrið til með að verða stíft í þeim einingum þar sem eru margar loftlykkjur.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur.
Í byrjun á hverri umferð með þríbrugðnum stuðlum er fyrsta þríbrugðna stuðli skipt út fyrir 5 loftlykkjur.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni),heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er það þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum ofan frá og niður. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur). Bakstykkið er fyrst heklað fram og til baka í hægri og vinstri öxl, síðan eru stykkin sett saman áður en heklað er áfram. Framstykkið er fyrst heklað fram og til baka í hægri og vinstra framstykki, síðan eru stykkin sett saman og eftir það er heklað alveg eins og bakstykki.

BAKSTYKKI:
Hægri öxl:
Heklið 68-79-86 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Cotton Light – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Snúið og heklið stuðla þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 10-12-13 sinnum = 55-64-70 stuðlar. Klippið frá og geymið stykkið.
Vinstri öxl:
Heklið 68-79-86 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Cotton Light. Snúið og heklið stuðla þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 10-12-13 sinnum = 55-64-70 stuðlar.
UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.1a (= 7 lykkjur), A.1b (= 3 lykkjur) yfir þá 48-57-63 stuðla sem eftir eru á vinstri öxl, heklið 29-29-32 lausar loftlykkjur í lok umferðar (= hálsmál) og haldið síðan áfram með mynstur yfir hægri öxl þannig: A.1d (= 1 lykkja), A.1b (= 3 lykkjur) yfir næstu 48-57-63 stuðla (= þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð), endið með A.1c (= 6 lykkjur).
Nú hafa verið heklaðar saman hægri og vinstri öxl og það eru 29-29-32 loftlykkjur fyrir hálsmáli. Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu þannig:
UMFERÐ 3: A.1c, A.1b yfir næstu 16-19-21 loftlykkjuboga, A.1d, heklið 1 stuðul í hverja af 29-29-32 loftlykkjum, haldið síðan áfram með A.1b yfir næstu 16-19-21 loftlykkjuboga, endið með A.1a = 139-157-172 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú mynstur þannig: A.2a (= 7 lykkjur), A.2b (= 42-48-53 mynstureiningar með 3 lykkjum) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.2c (= 6 lykkjur). Þegar allt A.2-A.2c hefur verið heklað til loka á hæðina er mynstur heklað þannig: A.3a (= 4 lykkjur), A.3b (= 3 lykkjur), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 9-18-17 lykkjum, A.3c (= 18 lykkjur) alls 6-6-8 sinnum, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 9-18-8 stuðla, A.3d (= 3 lykkjur), A.3e (= 3 lykkjur). Þegar A.3a-A.3e hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað mynstur A.2a-A.2c alveg eins og áður í stykkinu, en í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 3-3-0 stuðla jafnt yfir (aukið er út yfir lykkjur í A.2b) – sjá ÚTAUKNING = 142-160-172 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 22 cm.
Nú er heklað mynstur þannig: Heklið A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3-12-18 lykkjurnar (= 1-4-6 mynstureiningar), A.4 (= 42 lykkjur) alls 3 sinnum, A.3d yfir næstu 6-15-21 lykkjur (= 2-5-7 mynstureiningar), endið með A.3e yfir síðustu 3 lykkjur. Heklið umferð með hvítri stjörnu í byrjun á mynstureiningu alls 3-4-5 sinnum á hæðina áður en heklað er áfram og heklið næst síðustu umferð í mynsturteikningu (með hvítri stjörnu) alls 2-3-4 sinnum. Í síðustu umferð er fækkað um 3-3-0 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 139-157-172 lykkjur. Þegar allt A.4 hefur verið heklað til loka mælist stykkið ca 44-46-48 cm.
Heklið A.2a-A.2c alveg eins og áður í stykkinu, en í síðustu umferð er aukið út um 0-3-0 stuðla jafnt yfir = 139-160-172 lykkjur.
Heklið mynstur þannig: A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3-3-9 lykkjur (= 1-1-3 mynstureiningar), A.5 (= 21 lykkjur) alls 6-7-7 sinnum, A.3d yfir næstu 3-3-9 lykkjur (= 1-1-3 mynstureiningar), A.3e yfir síðustu 3 lykkjurnar.
Endurtakið umferð með hvítri stjörnu í byrjun á mynsturteikningu alls 1-2-3 sinnum á hæðina áður en heklað er áfram og endurtakið næst síðustu umferð í mynsturteikningu (með hvítri stjörnu) alls 1-2-3 sinnum. Í síðustu umferð er fækkað um 0-3-0 stuðla jafnt yfir = 139-157-172 lykkjur.
Heklið nú A.2a-A.2c alveg eins og áður í stykkinu. Stykkið mælist ca 69-73-77 cm frá öxl og niður.
Klippið frá og festið enda.

FRAMSTYKKI:
Hægra framstykki:
Heklið 68-79-86 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Cotton Light. Snúið og heklið stuðla þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 10-12-13 sinnum = 55-64-70 stuðlar.
Nú er mynstur heklað (frá réttu) þannig: A.7a (= 7 lykkjur), A.7b (= 15-18-20 mynstureiningar með 3 lykkjur) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, A.7c (= 3 stuðlar). Haldið áfram fram og til baka svona þar til 4. umferð (umferð með svörtum ferningi) hefur verið hekluð til loka. Klippið frá.
UMFERÐ 5: Heklið 12-12-15 lausar loftlykkjur, haldið síðan áfram eins og útskýrt er í umferð með ör í mynsturteikningu A.7c, A.7b og A.7a = 70-79-88 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með mynstur A.7a-A.7c eins og áður og heklið 1 stuðul í hverja af 12-12-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli. Þegar A.7a-A.7c hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað þannig: A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3 lykkjurnar, 1 stuðull í hvern af næstu 9-18-9 stuðlum, A.3c alls 3-3-4 sinnum á breiddina. Þegar allt A.3 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram þannig (frá réttu): Heklið A.2a yfir fyrstu 7 lykkjurnar, A.2b alls 21-24-27 sinnum. Haldið áfram fram og til baka svona þar til eftir er 1 umferð í mynsturteikningu. Klippið frá og geymið stykkið og heklið vinstra framstykki.

Vinstra framstykki:
Heklið 68-79-86 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Cotton Light. Snúið og heklið stuðla þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-2-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 10-12-13 sinnum = 55-64-70 stuðlar.
Nú er mynstur heklað (frá réttu) þannig: A.6a (= 7 lykkjur), A.6b (= 16-19-21 mynstureiningar með 3 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.6c (= 6 lykkjur). Haldið áfram fram og til baka svona þar til 5. umferð hefur verið hekluð til loka. Í lok 5. umferðar eru heklaðar 12-12-15 lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli.
UMFERÐ 6: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 10-10-13 lausar loftlykkjur (= 12-12-15 stuðlar yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli), heklið síðan A.6a-A.6c eins og áður = 70-79-88 lykkjur.
UMFERÐ 7: Heklið A.6a-A.6c eins og áður og heklið 1 stuðul í hverja af þeim 12-12-15 lykkjum sem eftir eru fyrir hálsmáli.
Nú er mynstur heklað (frá réttu) þannig: A.3c alls 3-3-4 sinnum á breiddina, 1 stuðull í hvern af næstu 10-19-10 stuðlum, A.3d yfir næstu 3 lykkjurnar, A.3e yfir síðustu 3 lykkjurnar. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.3c hefur verið heklað til loka á hæðina. Heklið nú mynstur (frá réttu) þannig: A.2d (= 1 lykkja), A.2b þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.2c yfir síðustu 6 lykkjurnar. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 1 umferð er eftir í mynsturteikningu.

Snúið við og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu samtímis sem 2 framstykkin eru hekluð saman í eitt framstykki (frá röngu) þannig: Heklið A.2c yfir fyrstu 6 lykkjurnar, heklið A.2b (þ.e.a.s. 1 stuðul í hvern stuðul) út umferðina á vinstra framstykki, jafnframt er aukið út um 1-1 stuðul í stærð S/M og L/XL og fækkað er um 2 stuðla í stærð XXL/XXXL, haldið síðan áfram yfir hægra framstykki með A.2b (þ.e.a.s. 1 stuðul í hvern stuðul) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, jafnframt er aukið út um 1-1 stuðul í stærð S/M og L/XL og fækkað er um 2 stuðla í stærð XXL/XXXL, endið með A.2a yfir síðustu 7 lykkjurnar í umferð = 142-160-172 lykkjur.
Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3-12-18 lykkjurnar (= 1-4-6 mynstureiningar), A.4 (= 42 lykkjur) alls 3 sinnum, A.3d yfir næstu 6-15-21 lykkjurnar (= 1-4-6 mynstureiningar), A.4 (= 42 lykkjur) alls 3 sinnum, A.3d yfir næstu 6-15-21 lykkjurnar (= 2-5-7 mynstureiningar), endið með A.3e yfir síðustu 3 lykkjurnar. Heklið umferð með hvítri stjörnu í byrjun á mynstureiningu alls 3-4-5 sinnum á hæðina áður en heklað er áfram og heklið næst síðustu umferð í mynsturteikningu (með hvítri stjörnu) alls 2-3-4 sinnum. Í síðustu umferð er fækkað um 3-3-0 stuðla jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 139-157-172 lykkjur. Þegar allt A.4 hefur verið heklað til loka mælist stykkið ca 44-46-48 cm.
Heklið A.2a-A-2c alveg eins og áður í stykkinu, en í síðustu umferð er aukið út um 0-3-0 stuðla jafnt yfir = 139-160-172 lykkjur.
Heklið mynstur þannig: A.3a yfir fyrstu 4 lykkjurnar, A.3b yfir næstu 3-3-9 lykkjurnar (= 1-1-3 mynstureiningar), A.5 (= 21 lykkjur) alls 6-7-7 sinnum, A.3d yfir næstu 3-3-9 lykkjurnar (= 1-1-3 mynstureiningar), A.3e yfir síðustu 3 lykkjurnar.
Endurtakið umferð með hvítri stjörnu í byrjun á mynstureiningu alls 1-2-3 sinnum á hæðina áður en heklað er áfram og endurtakið næst síðustu umferð í mynsturteikningu (með hvítri stjörnu) alls 1-2-3 sinnum. Í síðustu umferð er fækkað um 0-3-0 stuðla jafnt yfir = 139-157-172 lykkjur.
Heklið nú A.2a-A.2c alveg eins og áður í stykkinu. Stykkið mælist ca 69-73-77 cm frá öxl og niður.
Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma í lykkjur eina og eina þannig að saumurinn verði eins ósýnilegur og hægt er. Saumið tölur í hvora hlið á framstykki: Saumið tölu innan við 2 stuðla og í miðju umferð í A.4 (þ.e.a.s. í umferð þar sem blómið er sem breiðast). Heklið eina hneslu fyrir tölu í hvorri hlið á bakstykki þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í miðju umferð í A.4 (sömu umferð og talan var fest í), heklið 8 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í kanti. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Í HÁLSMÁLI OG Í OPI VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju neðst niðri í opi við miðju að framan, heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* upp að kanti í hálsi, heklið 1 auka loftlykkjuboga í hornið og haldið síðan áfram með loftlykkjuboga í kringum allt hálsmálið, heklið 1 auka loftlykkjuboga í hornið í hinni hliðinni í kanti í hálsi við miðju að framan og heklið niður að byrjun á umferð. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju sem var hekluð. Klippið frá og festið enda.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 4 þræði ca 1,5 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda á snúrunni og klippið endana til þannig að það verði jafn og fallegur dúskur báðum megin. Gerið aðra snúru til viðbótar á sama hátt. Þræðið snúrurnar í gegnum heklaða kantinn í horni við hálsmál í hvorri hlið.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = Heklið 2 STUÐLA SAMAN (í lykkju) þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju, en dragið þráðinn í gegn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = Heklið 2 STUÐLA SAMAN (um loftlykkjuboga) þannig: Heklið 1 stuðul um loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar um sama loftlykkjuboga, en dragið þráðinn í gegn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni

symbols = Heklið 2 STUÐLA Í 1 STUÐUL (í lykkju) þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar í næstu lykkju, en dragið þráðinn í gegn í lokin í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = Heklið 2 HÁLFA STUÐLA SAMAN þannig: * Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta loftlykkjuboga, sækið þráðinn *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 hálfur stuðull færri)
symbols = Heklið 1 FIMMFALDAN STUÐUL þannig: Bregðið þræðinum 5 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni í lykkjuna sem hekla á í , bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegn (= 7 lykkjur á heklunálinni), * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu/næstu lykkjur á heklunálinni *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni
symbols = heklið 12-12-15 lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = í lok þessarar umferðar er þráðurinn klipptur frá - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = í fyrri umferð hefur þráðurinn verði klipptur frá og nú hafa verið heklaðar 12-12-15 lausar loftlykkjur – haldið áfram með mynstur héðan
symbols = byrjið á næstu umferð í mynsturteikningu. Þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir hvernig næsta umferð er hekluð í mynsturteikningu
symbols = umferðin er endurtekin á hæðina áður en heklað er áfram – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Vasileia wrote:

Unfortunately still cannot understand this point of the project as well as how can the next row can be worked. Is there any relevant and helpful video?

12.03.2023 - 23:52

DROPS Design answered:

Dear Vasileia, all the videos related to this pattern are linked at the bottom of the instructions. Happy Crafting!

13.03.2023 - 00:58

country flag Vasileia wrote:

Hello there! Front piece. Row 5: says 12 chain stitches but the diagram shows 13 chain stitches! Then the stitches become 79. Please explain. Thanks in advance. Then

12.03.2023 - 22:23

DROPS Design answered:

Dear Vasileia, the chart shows a symbol which is a circle (right before the arrow), and corresponds to the 12-12-15 chain stitches, as you can see in the diagram instructions. These chain stitches count as stitches when adding up to 79. Happy crocheting!

12.03.2023 - 22:57

country flag Wilma Snel wrote:

Ik heb op 25-12-2021 een vraag gesteld maar heb nog steeds geen antwoord

19.01.2022 - 21:23

country flag Le Dang wrote:

Hi, For the Row 3 in Back Piece, shouldn’t it be: “ROW 3: A.1c, A.1d, A.1b over the next 16-19-21 chain-spaces, work 1 treble crochet in each of the 29-29-32 chain stitches, continue with A.1b over the next 16-19-21 chain-spaces and finish with A.1a = 139-157-172 stitches.” If I understand it well, A.1d should be done before doing A.1b over the next 16 chain-spaces. Could you please check it? Many thanks!

23.07.2020 - 13:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Le Dang, pattern is right like this, from WS you will work the diagram in the reversed order - read more about diagrams here. Happy crocheting!

29.07.2020 - 09:13

country flag Susan wrote:

Working on pattern Carefree Summer and have 2 questions: #1: if I am told to do A.1a and A.1b do I do first row of A.1a and then first row of A.1b and then second row of A.1a and A.1b? #2: why do I end up with 6 stitches at the end of Row 2 and then chain 29?

28.06.2020 - 23:40

DROPS Design answered:

Dear Susan, you work first row of A.1a, then repeat first row of A.1b over the remaining stitches (on next row work row 2 in A.1b, then row 2 in A.1a - read more about diagrams here). At the end of left shoulder you will crochet 29 chains for the neck and continue row working over the stitches from right shoulder. Happy crocheting!

29.06.2020 - 09:03

country flag Myrte wrote:

Be carefull, so many translation page are incorrect. They write you use treble crochet but if you use it, the shirt will be too long. So you should stay to the original pattern. You HAVE to use double crochet. A magyar erp-t ír helyesen, viszont van benne elírás.

16.04.2020 - 01:00

DROPS Design answered:

Dear Myrte, make sure you are reading the appropriate English pattern, 1 treble crochet (UK-English) = 1 double crochet (US-English). read more here. Happy crocheting!

16.04.2020 - 10:09

country flag Fátima wrote:

MUITO LINDA !!!!!

16.03.2020 - 13:16

country flag Marie Bonche wrote:

Mille excuses : j'ai retrouvé mes 2 mailles manquantes. Étourdie ! Lol

04.08.2019 - 14:50

country flag Marie Bonche wrote:

Bjr, je suis au 3 ème rg du dos et je trouve 137 m : 6m de A1c, 3x16 brides=48m de A1b, 29 brides de l'encolure, 48 brides de A1b et 6m de A1c. Ai je oublié des mailles ou s'agit il d'une erreur ? Merci de votre réponse. Bien cordialement

04.08.2019 - 14:43

country flag Helen wrote:

Ik kom op het achterpand niet uit bij patroon 3, wat ik ook doe ik kom niet aan die 157 steken. Alvast bedankt!

02.08.2019 - 21:10

DROPS Design answered:

Dag Helen,

Na het opzetten van beide schouders heb je 64 steken van de rechter en 64 steken van de linker schouder na TOER 1, als je dan toer 2 haakt komen er nog 29 lossen bij om beide delen met elkaar te verbinden, waardoor je op een totaal van 157 steken komt. Bij TOER 3 haak je A.1c (= 6 steken), A.1b over 19 lossenlussen (= 57 steken), A.1d (= 1 steek), 29 stokjes over de 29 lossen, A.1d (= 1 steek), A.1b over 19 lossenlussen (= 57 steken), A.1c (= 6 steken). Hierdoor kom je op een totaal van 157 steken.

10.08.2019 - 18:08