Spring Symmetry Jacket#springsymmetryjacket |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-27 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu (athugaðu vel að í hluta á umferð í mynsturteikningu er mynstur prjónað í hverri umferð, þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Öll útaukning er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 119 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með þeim 109 lykkjum sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Hneppt er í gegnum fyrsta hnappagat í gegnum gataumferð í kanti í hálsi. Fellið af fyrir öðru hnappagati þegar stykkið mælist ca 8-9-9-9-9-10 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið síðan af fyrir 5 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-8½-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 119-123-127-131-135-139 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Muskat. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig (= ranga): Prjónið A.1A (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með A.1B (= 1 lykkja). Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út um 36-36-38-40-40-42 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING-1, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 155-159-165-171-175-181 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni og uppsláttur er prjónaður snúinn brugðið). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT er aukið út eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 34-44-50-58-60-62 lykkjur jafnt yfir = 189-203-215-229-235-243 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-10-11 cm frá uppfitjunarkanti, er aukið út um 32-38-46-52-56-58 lykkjur jafnt yfir = 221-241-261-281-291-301 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A (= 10 lykkjur), prjónið A.2B þar til 16 lykkjur eru eftir í umferð (= 19-21-23-25-26-27 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2C (= 11 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: Athugið vel að í 8., 10. og 12. umferð er mynstur einnig prjónað frá röngu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 263-287-311-335-347-359 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT er aukið út eins og útskýrt er að neðan. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-20-21 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 14-20-22-24-32-34 lykkjur jafnt yfir = 277-307-333-359-379-393 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 14-14-20-22-32-34 lykkjur jafnt yfir = 291-321-353-381-411-427 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Nú skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 49-51-55-60-67-71 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 53-63-71-75-77-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 87-93-101-111-123-131 lykkjur í sléttprjóni eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 53-63-71-75-77-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 49-51-55-60-67-71 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 201-211-231-251-281-301 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A (= 10 lykkjur), prjónið A.3B þar til 16 lykkjur eru eftir á prjóni (= 17-18-20-22-25-27 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3C (= 11 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 211-221-241-261-291-311 lykkjur. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 14-14-14-14-16-16 cm frá skiptingu = 221-231-251-271-301-321 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A (= 10 lykkjur), prjónið A.3B þar til 16 lykkjur eru eftir á prjóni (= 19-20-22-24-27-29 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3C (= 11 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru ca 4 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 62-70-74-84-90-100 lykkjur jafnt yfir = 283-301-325-355-391-421 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 53-63-71-75-77-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 61-71-81-85-89-91 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það er notað síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið 0-0-0-2-4-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3A (= 10 lykkjur), prjónið A.3B yfir næstu 40-50-60-60-60-70 lykkjur (= 4-5-6-6-6-7 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3C (= 11 lykkjur) og endið með 0-0-0-2-4-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið síðan sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 5-9-13-13-14-14 sinnum = 51-53-55-59-61-63 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga upp í A.3 þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til ermin mælist 29-27-26-24-23-21 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-19-17-19-17-21 lykkjur jafnt yfir = 66-72-72-78-78-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 33-31-30-28-27-25 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springsymmetryjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.