Laura wrote:
I just want to be sure about A2 rows 7&8. In row 7, I slip the first 2 stitches onto the right needle -so the beginning of the row moves 2 stitches to the left. I then knit row 7 according to the pattern. At the end of row 7, I include the first 2 slipped stitches in the pattern and then end the row with a yarn over. This means that row 8 starts after the yarn over, correct?
19.10.2022 - 17:37DROPS Design answered:
Dear Laura, correct, but the 8th row starts then with the stitch remaining from the decrease (1st st on the round) + the yarn over (2nd st on the round). Happy knitting!
20.10.2022 - 09:44Conni wrote:
Forstår ikke A2 omgang 7 ved pilen. Jeg får flere masker på denne omgang, og på næste omgang 8 kommer jo så heller ikke til at passe. Kan I forklare det så en nybegynder kan forstå det. Har prøvet flere metoder, men kan ikke få det til at passe. Mvh Conni
08.09.2022 - 10:00DROPS Design answered:
Hej Conni, på starten af 7.omgang løfter du 2 masker over på højre pind uden at strikke dem og så strikker du 7ret, 1omslag, tag 1 maske løs af pinden som om den skulle strikkes ret, strik 2 ret sammen, løft den løse maske over maskerne som blev strikket sammen, 1 omslag, 7ret osv, og afslutter omgangen med omslag og indtagning :)
09.09.2022 - 13:11Rosario Elias Liñero wrote:
Hola Quería preguntarte cómo se tejen lis dos puntos deslizados al principio de A2 donde está la flecha En cada repetición se deslizan los dos puntos o solo al principio de la vuelta? Y al final de la vuelta como tejí lis dos puntos sin tejer? Es que no entiendo cómo tejerlos Muchas gracias
21.05.2022 - 04:42DROPS Design answered:
Hola Rosario, no es un deslizamiento de los puntos, sino un desplazamiento del diagrama. Esto quiere decir que la repetición comienza y termina dos puntos más hacia la izquierda que en la vuelta anterior.
22.05.2022 - 23:18Dagmar wrote:
Wenn ich mit dem Rumpf beginne, soll ich laut Anleitung gleich A3 stricken. Auf den Fotos sieht es aber so aus, als würde A3 erst später beginnen. Muss ich am Anfang des Rumpfes nicht erstmal ein paar Zentimeter glatt rechts stricken?
24.02.2022 - 08:01DROPS Design answered:
Liebe Dagmar, auf dem Foto sieht man nicht wirklich die Teilung der Passe, aber so ist es richtig, nach der Teilung stricken Sie A.3. Viel Spaß beim stricken!
24.02.2022 - 10:43Chantal wrote:
Bonjour entre le huitième et le neuvième rang du diagramme A2 N’y a-t-il pas un autre tour ?Merci pour votre réponse cordialement
27.02.2021 - 13:19DROPS Design answered:
Bonjour Chantal, les diagrammes sont justes ainsi, autrement dit, aux tours 7 à 13, on va tricoter un motif tous les tours (on diminue aux tours 8, 10 et 12 et on va augmenter aux tours 9, 11 et 13). Bon tricot!
01.03.2021 - 10:40Chantal wrote:
Que veut dire le rond noir sur le diagramme A1Merci pour votre retour cordialement
25.02.2021 - 11:59DROPS Design answered:
Bonjour Chantal, il s'agit du 2ème symbole dans la légende, autrement dit, une maille à tricoter à l'envers (= sur l'endroit car on tricote en rond). Bon tricot!
25.02.2021 - 12:03Raili wrote:
Nuolen jälkeisellä kierroksella vähenee silmukat kuviosta kahdella, miten seuraavan kierroksen saa täsmäämään?!?
17.05.2020 - 16:55DROPS Design answered:
Kyseisellä kerroksella ei tehdä kavennuksia, joten silmukkaluku pysyy samana.
17.11.2020 - 16:32Germana wrote:
Buongiorno non riesci a capire come proseguire il motivo A2 dopo il rigo con la freccia..cioè devo lavorare il giro successivo senza considerare le 2 maglie spostate? Grazie
22.03.2020 - 14:25Emma wrote:
Can you please explain the instructions for A2 where there is an arrow? It says to displace two stitches and then work A2 in the round. The 2 stitches that were slipped onto the right needle are worked in the last repeat of A2. When it says the next round starts as usual does it mean that in effect the next round starts 2 stitches along? Thanks!
09.03.2020 - 21:27DROPS Design answered:
Dear Emma, at the beg of this round slip the first 2 stitches of the round onto right needles without working them, then work A.2 as before: the last stitch in each A.2 will be worked with the first 2 stitches next A.2/A.3, when you will will work last repeat on the round, work the last st last repeat together with the first 2 stitches first repeat of the round (the 2 sts you slipped without working). Happy knitting!
10.03.2020 - 10:22
Spring Symmetry |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-26 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4 (athugaðu vel að í hluta á umferð í mynsturteikningu er mynstur prjónað í hverri umferð). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Muskat. Prjónið A.1 hringinn. Haldið svona áfram þar til A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-36-38-40-40-42 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 144-148-154-160-164 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT er aukið út eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 30-44-50-58-60-62 lykkjur jafnt yfir = 174-192-204-218-224-232 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-10-11 cm frá uppfitjunarkanti, er aukið út um 26-38-46-52-56-58 lykkjur jafnt yfir = 200-230-250-270-280-290 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 20-23-25-27-28-29 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, en í umferð merktri með ör í A.2, færist byrjun á umferð um 2 lykkjur til vinstri, þ.e.a.s. lyftið 2 fyrstu lykkjum yfir á hægri prjón án þess að prjóna þær, prjónið síðan A.2 hringinn. Þær 2 lykkjur sem lyftar voru yfir á hægri prjón koma til með að vera prjónaðar í endurtekningu með A.2. Næsta umferð byrjar eins og venjulega. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 240-276-300-324-336-348 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT er aukið út eins og útskýrt er að neðan. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-20-21 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 20-20-22-24-28-30 lykkjur jafnt yfir = 260-296-322-348-364-378 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 10-14-20-22-26-28 lykkjur jafnt yfir = 270-310-342-370-390-406 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanrti við miðju að framan. Nú skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 41-46-50-55-59-63 lykkjur fyrir sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 53-63-71-75-77-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-92-100-110-118-126 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 53-63-71-75-77-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-46-50-55-59-63 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-200-220-240-260-280 lykkjur. Byrjið umferð í annarri hlið á stykki, mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjum undir ermi. Prjónið A.3 hringinn (= 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, en í umferð merktri með ör í A.3 færist byrjun á umferð um 2 lykkjur til vinstri alveg eins og í A.2. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 190-210-230-250-270-290 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 14-14-14-14-16-16 cm frá skiptingu = 200-220-240-260-280-300 lykkjur. Prjónið nú aftur A.3 hringinn (= 20-22-24-26-28-30 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 64-74-78-88-92-96 lykkjur jafnt yfir = 264-294-318-348-372-396 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 53-63-71-75-77-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 61-71-81-85-89-91 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það er notað síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið 0-0-0-2-4-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4A (= 10 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 40-50-60-60-60-70 lykkjur (= 4-5-6-6-6-7 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.4C (= 11 lykkjur) og endið með 0-0-0-2-4-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið síðan sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6 -2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 5-9-13-13-14-14 sinnum = 51-53-55-59-61-63 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga upp í A.3 þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til ermin mælist 29-27-26-24-23-21 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-1-5-1-5-3 lykkjur jafnt yfir = 54-54-60-60-66-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 33-31-30-28-27-25 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Maritsantos wrote:
Har strikket str. XL og har 2 hele nöster igjen, nesten 3 (130 gr). Dere beregner for mye garn. Det gaar igjen i mange av oppskriftene. Jeg strikker mye og sitter derfor igjen med mye restegarn.
07.09.2021 - 17:57