Raspberry Kiss |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-6 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1-A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 36. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 35. og 36. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki og ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.6 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.6, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.6, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 189 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 7,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni á ermum og prjónað er mynstur á fram- og bakstykki. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4 næstu með ca 7-7-8-8-9-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 118-118-123-128-138-143 lykkjur á hringprjón 3 með Belle. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu: 5 kantlykkjur að framan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stroffið mælist 2 cm – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-2-7-1-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 115-115-121-121-137-137 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (5 kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni). BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 0-0-1-1-0-0 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 16-16-16-16-21-21 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= vinstra framstykki), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 yfir næstu 3-3-5-5-7-7 lykkjur, A.3a yfir næstu 14-14-14-14-16-16 lykkjur, A.3b yfir næstu 11-11-11-11-13-13 lykkjur, A.4 yfir næstu 3-3-5-5-7-7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= bakstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 15 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.5 yfir næstu 16-16-16-16-21-21 lykkjur, 0-0-1-1-0-0 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 24-26-29-32-35-38 sinnum = 307-323-353-377-417-441 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina heldur mynstrið áfram alveg eins. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð mælist stykkið ca 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: ATH: Í stærð S og L skiptist stykkið nú fyrir ermar og fram- og bakstykki við prjónamerki. Í stærð M, XL, XXL og XXXL eru prjónaðar nokkrar af lykkjum (= 1-2-1-3 lykkjur) á ermum inn á prjóninn fyrir fram- og bakstykki þannig að skiptingin á milli fram- og bakstykkis og erma er ekki lengur við prjónamerkin: Prjónið fyrstu 47-50-53-58-64-69 lykkjur, setjið næstu 65-67-75-77-85-87 lykkjur á band (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 83-89-97-107-119-129 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 65-67-75-77-85-87 lykkjur á band (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 47-50-53-58-64-69 lykkjur sem eftir eru í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 193-209-227-247-271-295 lykkjur. Prjónið mynstur A.6 (= 8 lykkjur) yfir miðju 8 lykkjurnar undir ermi, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og prjónið áfram með eins margar mynstureiningar með gatamynstri í A.2a/A.2b eins og pláss er fyrir út að hvorri hlið (mynstrið á að passa yfir mynstur á berustykki), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við A.6 í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri) = 189-205-223-243-267-291 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15 cm – stillið af þannig að endað sé eftir heilt gatamynstur á hæðina og e.t.v. nokkrar umferðir með sléttprjóni), aukið út 24-28-35-40-46-47 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 213-233-258-283-313-338. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjón þegar fellt er af. Peysan mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 65-67-75-77-85-87 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-10-12-12-12-14 lykkjum undir ermi = 73-77-87-89-97-101 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og prjónið A.6 yfir miðju 8 lykkjur undir ermi. Þegar stykkið mælist 4-4-3-3-3-2 cm er fækkað um 2 lykkjur undir ermum – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig: Stærð S: Fækkið lykkjum svona til skiptis með 2 og 3 cm millibili alls 11 sinnum. Stærð M: Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 12 sinnum. Stærð L: Fækkið lykkjum svona með 1,5 cm millibili alls 16 sinnum. Stærð XL: Fækkið lykkjum svona með 1,5 cm millibili alls 16 sinnum. Stærð XXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 19 sinnum. Stærð XXXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 20 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir ermi hefur verið gerð til loka eru 51-53-55-57-59-61 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 31-30-29-27-25-23 cm. Aukið nú um 4-7-5-8-6-9 lykkjur jafnt yfir = 55-60-60-65-65-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Ermin mælist ca 33-32-31-29-27-25 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (74)
Vielen Dank für die rasche Hilfe. Jetzt habe ich das Muster gefunden...
30.06.2021 - 13:28Hallo, ich suche den Rapport A6, den man stricken soll, nachdem die Ärmel abgeteilt werden. Kann mir hier jemand helfen? Vielen Dank.
29.06.2021 - 21:02DROPS Design answered:
Liebe Melanie, ja gerne! A.6 finden Sie ganz am Ende der Seite, neben der Maßskizze (unter die linke Ärmel). Viel Spaß beim stricken!
30.06.2021 - 07:13The buttons called for in the pattern measure 15mm. Not including that basic info in the pattern, or answering the question directly (instead of, or in addition to, merely posting a link to all available buttons), is pretty lame imho
31.05.2021 - 19:18Sorry, toch nog n aanvulling op mijn vraag: ik zie op de foto’s toch echt duidelijk gaatjes bij de meerderingen. Die zie ik niet in mijn werk als ik de omslagen gedraaid averecht brei.
13.05.2021 - 12:25DROPS Design answered:
Dag Barbara,
Toch zitten er geen gaatjes in de raglanlijn. Als er gaatjes zouden zitten, dan zouden die even groot zijn als de gaatjes in het patroontje. Doordat de meerderingen elkaar snel opvolgen kan er daar wel ietwat een 'minigaatje' ontstaan, maar het is dus niet de bedoeling om daar gaatjes te maken.
15.05.2021 - 14:43Hartelijk dank voor het antwoord! Maar ... bedoel je met ‘gedraaid recht’ niet ‘gedraaid averecht’? En wat wordt bedoeld met ‘in tricotsteek’? Is dat op de verkeerde kant gewoon averecht?
13.05.2021 - 08:58DROPS Design answered:
Dag Barbara,
Ja, excuses, ik bedoelde gedraaid averecht natuurlijk. Tricotsteek is recht op de goede kant en averecht op de verkeerde kant.
15.05.2021 - 14:41Onder RAGLAN staat: ‘Brei op de volgende naald (verkeerde kant) de omslagen gedraaid averecht om gaatjes te voorkomen. Brei dan de nieuwe steek in tricotsteek op de mouwen en brei in patroon op het voor- en achterpand.’ Wat wordt bedoeld met de nieuwe steek in tricotsteek breien op de mouwen? Brei ik alleen de omslagen op voor- en achterpand verdraaid averecht en brei ik de omslagen op de mouwen anders? Alvast hartelijk dank! Groetjes, Barbara
11.05.2021 - 22:13DROPS Design answered:
Dag Barbara,
Nee, je breit op zowel de panden als de mouwen de omslagen gedraaid recht op de volgende naald. Door de meerderingen komen er steeds meer steken bij op zowel de panden als de mouwen, deze steken brei je op de panden in patroon en op de mouwen in tricotsteek.
12.05.2021 - 21:17Efter resårkanten vid halsen står det att ska det minskas 7 m i stl XL. Det stämmer inte. Det ska minskas 5 m för att det sedan ska stämma med antalet maskor mellan markörerna.
25.04.2021 - 02:18DROPS Design answered:
Hej Sylvia. Det ska minskas 7 maskor så att du får 121 m i storlek XL. Det stämmer med beskrivningen i oket där det blir 121 m + 8 ökade m (=omslagen) när du har satt ut alla markörer. Mvh DROPS Design
30.04.2021 - 07:42Pour le col ,lorsque l’on a monté nos mailles ne sommes nous pas sur l’endroit du travail lorsque l’on débute ? Donc dois-je le tricoter en jersey endroit si je veux l’obtenir envers sur l’envers ?
21.12.2020 - 16:08DROPS Design answered:
Bonjour Mme Hébert, juste après avoir monté les mailles, vous devez tricoter un rang envers qui sera sur l'envers (= et donc vous aurez 1 rang endroit visible sur l'endroit), avant de commencer les côtes dont le 1er rang sera l'endroit de l'ouvrage. Vous aurez ainsi juste avant les côtes 1 rang jersey endroit. Bon tricot!
22.12.2020 - 09:23Hi. My question is regarding sleeves. I completed body. For size small, decrease tip 2. Follow diagram A. 8. Where is that diagram.
08.12.2020 - 05:18DROPS Design answered:
Hi Meeta, You can find diagram A.8 to the right of the measurement diagram. Happy knitting!
08.12.2020 - 07:01Hi, I am a knitting instructor living in Israel. Recently due to COVID lockdown I'm working on a kal based on this gorgeous pattern and since my free live guidance on social media is all in Hebrew It is necessary for me to translate some parts of the pattern. I would like to ask your approval to translate and use some of the original patterns charts and diagram abbreviation in my Hebrew guidance instruction. Looking forward to receiving your response.
28.10.2020 - 19:02DROPS Design answered:
Dear Mrs Paran, could you please send your request at media@garnstudio.com? Thank you!
29.10.2020 - 08:54