DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Raspberry Kiss Jumper

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-5
DROPS Design: Mynstur vs-059
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 11, bleikfjólublár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------


MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 18,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 17. og 18. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um fram- og bakstykki og ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.4 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.4, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.4, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 20. og 21. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni á ermum og prjónað er mynstur á fram- og bakstykki.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður.

PEYSA:
KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 105-110-115-120-130-135 lykkjur á hringprjón 3 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-6-3-8-2-7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 104-104-112-112-128-128 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: * setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir næstu 3-3-5-5-7-7 lykkjur, A.2a yfir næstu 14-14-14-14-16-16 lykkjur, A.2b yfir næstu 11-11-11-11-13-13 lykkjur, A.3 yfir næstu 3-3-5-5-7-7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= bakstykki/framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 15 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= ermi) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 24-26-29-32-35-38 sinnum = 296-312-344-368-408-432 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina heldur mynstrið áfram alveg eins. Þ.e.a.s. prjónið A.1/A.3 við hverja laskalínu á fram-/bakstykki og það er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri af A.2a á breiddina. Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir laskalínu mælist stykkið ca 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: ATH: Í stærð S og L skiptist stykkið nú fyrir ermer og fram- og bakstykki við prjónamerkin. Í stærð M, XL, XXL og XXXL eru nokkrar af lykkjum prjónaðar (= 1-2-1-3 lykkjur) á ermum inn á prjóninn fyrir fram- og bakstykki, þannig að skiptingin á milli fram- og bakstykkis og erma er ekki lengur við prjónamerkin: Prjónið fyrstu 83-88-97-105-118-126 lykkjur, setjið næstu 65-67-75-77-85-87 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-12-12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 83-89-97-107-119-129 lykkjur, setjið næstu 12-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 0-1-0-2-1-3 lykkjur sem eftir eru á prjóninn. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 182-198-218-238-262-286 lykkjur. Prjónið mynstur A.4 (= 8 lykkjur) yfir miðju 8 lykkjur undir ermi og haldið áfram með eins margar mynstureiningar með gatamynstri í A.2a/A.2b eins og pláss er fyrir út að hvorri hlið (mynstrið á að passa yfir mynstur á berustykki), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við A.4 í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 = 178-194-214-234-258-282 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15 cm – stillið af þannig að endað sé eftir heilt gatamynstur á hæðina og e.t.v. nokkrar umferðir í sléttprjóni) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 27-31-36-41-47-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 205-225-250-275-305-330 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjón þegar fellt er af. Peysan mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 65-67-75-77-85-87 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-10-12-12-12-14 lykkjum undir ermi = 73-77-87-89-97-101 lykkjur. Haldið áfram hringinn með sléttprjóni og prjónið A.4 yfir miðju 8 lykkjur undir ermi. Þegar stykkið mælist 4-4-3-3-3-2 cm er fækkað um 2 lykkjur undir ermum – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig:
Stærð S: Fækkið lykkjum svona til skiptis með 2 og 3 cm millibili alls 11 sinnum.
Stærð M: Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 12 sinnum.
Stærð L: Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili alls 16 sinnum.
Stærð XL: Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili alls 16 sinnum.
Stærð XXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 19 sinnum.
Stærð XXXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 20 sinnum.
Þegar öll úrtaka fyrir ermi hefur verið gerð til loka eru 51-53-55-57-59-61 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 32-30-29-27-25-23 cm. Aukið nú um 4-7-5-8-6-9 lykkjur jafnt yfir = 55-60-60-65-65-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Prjónið hina ermina alveg eins. Ermin mælist ca 34-32-31-29-27-25 cm.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = Hnútur: Prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til aukið hefur verið út frá 1 til 5 lykkjur. Nú eru 5 lykkjur á hægri prjón. Steypið 2. lykkju (næst ysta lykkjan á hægri prjóni) yfir ystu lykkjuna, steypið 3. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 4. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 5. lykkju yfir fyrstu lykkju (= 1 hnútur).
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Raspberry Kiss Jumper

Vanessa, United States

Raspberry Kiss Jumper

Christina, Canada

Raspberry Kiss Jumper

Joyce, United States

Raspberry Kiss

Ana, Spain

Summer knit

Sif, Denmark

Cute Cotton Sweater

Ingrid, United States

my summer sweater

@cohlb, Hungary

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Karine wrote:

Bonjour! Dans la partie empiècement, comment ajouter le motif A2a en largeur tél que décrit dans le texte suivant : « Quand A.1 à A.3 sont terminés, continuer de la même façon; c'est-à-dire tricoter A.1/A.3 après/avant chaque raglan du devant/dos; on a suffisamment de mailles pour tricoter 2 motifs de A.2a en plus en largeur. » Au début du rang et à la fin ou bien on le tricote 3 fois de suite, ce n’est pas clair. Merci!

28.07.2023 - 18:22

DROPS Design answered:

Bonjour Karine, quand les diagrammes ont été tricotés 1 fois en hauteur, vous avez augmenté suffisamment de mailles pour tricoter 2 motifs de plus de A.2a, autrement dit, vous allez ensuite tricoter:A.1 puis 3 fois A.2a, tricotez ensuite A.2b et terminez par A.3. Si vous n'avez pas encore terminé les augmentations du raglan après cette 2ème fois, recommencez les diagrammes et cette fois, tricotez 5 fois A.2a. Bon tricot!

31.07.2023 - 09:59

country flag Vladimíra Fidrmucová wrote:

Dobrý den, děkuji za vaše krásné stránky o pletení a háčkování. Některé modely ze starších katalogů nejsou přeloženy do českého jazyka . Mohla bych vás poprosit o přeložení tohoto svetru do českého návodu ? Děkuji Vlaďka

23.05.2023 - 15:47

DROPS Design answered:

Dobrý den, Vlaďko, díky za zpráci a za tip - český návod přidáme během 1-2 dnů. Hezký den! Hana

23.05.2023 - 18:06

country flag Sophie D wrote:

Merci de votre réponse mais je ne suis pas plus avancée dans ma problématique ! Pourriez_vous au moins dire quelle est la taille du mannequin et celle tricotée du modèle qu'elle porte ?

01.03.2023 - 11:35

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie, nos modèles portent en général soit du S soit du M, mais comme chacune a sa propre morphologie, seules comptent les mesures d'un vêtement analogue que vous avez déjà et dont vous aimez la forme, vous pourrez ainsi choisir la taille et l'aisance qui vous correspondent. Bon tricot!

01.03.2023 - 13:28

country flag Sophie D wrote:

Bonjour, Je voudrais tricoter ce très joli modèle mais j'ai un gros doute sur la taille à choisir. Le schéma indique un tour de poitrine, (exemple pour la taille S : 43*2 = 84 cm): les mesures ainsi écrites comportent-elles déjà l'aisance du pull ou bien faut-il rajouter une aisance et si oui de combien pour avoir le même rendu que le modèle de présentation ? Merci d'avance et bonne journée Sophie

01.03.2023 - 10:00

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie D, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma, vous pourrez ainsi choisir la taille qui convient ainsi que l'aisance que vous souhaitez. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

01.03.2023 - 10:08

country flag Anna wrote:

Witam, jeszcze jedno pytanie, jak rozdziele już rękawy to jak ułożyć schematy? Na przodzie i tyle mam po 95 oczek. Jak ułożę tak jak wcześniej wielokrotność A2a i na końcu A2b to z jednej strony nie będzie wzoru.Dodam że robię ażur tylko z przodu.

09.01.2023 - 19:58

DROPS Design answered:

Witaj Aniu, schemat jest już wykonywany w robótce jakiś czas, więc po prostu możesz go dopasować, tak aby dobrze wyglądał na sweterku. Pozdrawiamy!

10.01.2023 - 08:28

country flag Anna wrote:

Witam, jak skończę przerabiać schemat A1-A3 to zaczynam schematem A1 i powtarzam schemat A2a odpowiednia ilość razy, następnie schemat A2b i schemat A3, zgadza się? Jeśli po schemacie A2a będzie schemat A3 to dwa kwiatki będą obok siebie.

05.01.2023 - 20:12

DROPS Design answered:

Witaj Anno, jest dokładnie tak jak piszesz. Ten kwiatek w schemacie A.2a i następnie kolejny w A.2b nie będą obok siebie, będzie między nimi różnica 11 oczek. W schemacie A.2b jest tylko jeden kwiatek, zaś w schemacie A.2a jest ich 2. Pozdrawiamy!

06.01.2023 - 17:53

country flag Eef wrote:

Kloppen het aantal steken voor het achterpand en voorpand wel ? Ik ben al lang voorbij de 83, maar nog niet aan mijn 19 cm. Mijn stekenverhouding is correct.

21.12.2022 - 21:36

DROPS Design answered:

Dag Eef,

Ja, het aantal steken zouden moeten kloppen. Komt jouw stekenverhouding overeen met die in het patroon? Heb je iedere 2e naald gemeerderd voor de raglan? Dus de ene naald wel en de andere naald niet.

22.12.2022 - 07:50

country flag Halina wrote:

Dziekuje, a co robie z motywem A 2b?

14.06.2022 - 17:16

DROPS Design answered:

Witaj Halino, jest przerabiany jak wcześniej. Pozdrawiamy!

15.06.2022 - 08:20

country flag Halina wrote:

Przerobilam schemat A1 do A3 jeden raz. Jak dalej robic schemat? A1, A2a, a dalej jak? Mam przeciesz wiecej oczek, prosze o wyjasnienie

13.06.2022 - 18:29

DROPS Design answered:

Witaj Halino, Gdy schematy A.1 - A.3 są zakończone, dalej przerabiać w taki sam sposób; tj. przerobić schematy A.1/A.3 za/przed każdym reglanem przodu/tyłu; jest teraz wystarczająca liczba oczek, aby przerobić o 2 motywy wg schematu A.2a więcej na szerokość. Czyli te dodatkowe oczka, które masz będziesz przerabiać wg schematu A.2a, będzie tych powtórzeń A.2a coraz więcej wraz postępem robótki. Pozdrawiamy!

14.06.2022 - 08:13

country flag Halina wrote:

Det gäller Ok. När a1 till a3 är klara en gång på höjden finns det plats för 2 rapporter med 2a på bredden står det i beskrivningen men vad gör jag med 2b, ska det fortsättas med bara en rapport av 2b

12.06.2022 - 07:22

DROPS Design answered:

Hej Halina, diagrammerne hører sammen, når du er klar med A.1 og A.3 så er du også klar med raglanudtagningerne :)

16.06.2022 - 09:04