Corlouer skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas comment reprendre les mailles en attente en les croisant Merci de bien vouloir m'expliquer Corlouer
13.02.2019 - 20:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Corlouer, vous placez les mailles des 2 parties ainsi sur votre aiguille: les 9 premières m de la 1ère partie (celles que vous avez tricoté en 2ème sur 11 cm), puis placez les 9 dernières mailles de la 1ère partie (celles de gauche, vu sur l'endroit) à suivre sur la même aiguille. Entre les 2 parties, vous avez une fente de 11 cm, passez les 19 m de la 2ème partie par-dessus les 9 premières m, dans la fente entre les 2 fois 9 m de la 1ère partie et faites les ressortir pour les glisser sur l'aiguille, à gauche des 18 m de la 1ère partie. Bon tricot!
14.02.2019 - 10:03
Claudette Sabourin skrifaði:
Je voudrais des parton de bonnet queue de cheval me répondre merci
15.01.2019 - 04:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Sabourin, vous trouverez ici un modèle de bonnet avec l'ouverture pour la queue de cheval. Bon tricot!
15.01.2019 - 09:39
Jenny skrifaði:
Can I use Drops Nepal yarn for this hat?
04.01.2019 - 21:21DROPS Design svaraði:
Dear Jenny, DROPS Nepal belongs to the same yarn group of DROPS Nepal, so you can use it as yarn alternative. Just remember to check your gauge before starting! Happy crafting!
04.01.2019 - 22:00
Hilde Knijn skrifaði:
I can leave a message here without problems.
02.01.2019 - 09:11
Rikke Piil Josefsen skrifaði:
Sådan en hue/hat havde min mormor da jeg var lille (ca. 45 år siden) rigtig retro, men den sidder godt på hoved, så hvorfor ikke gen op tage den.
12.07.2018 - 17:18
Garbo#garbohat |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð húfa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með áferð og fléttu að framan.
DROPS 192-12 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 og mynsturteikningu A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu! ÚRTAKA: Prjónið fram að 1 lykkju á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hvert og eitt að þeim prjónamerkjum sem eftir eru = 6 lykkjur færri í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjón í 2 stykkjum frá miðju að aftan, síðan eru stykkin 2 saumuð saman við miðju að aftan og stykkin eru fléttuð við miðju að framan, prjónið síðan upp lykkjur meðfram kanti og prjónað er síðan í hring og lykkjum fækkað. Skipt er yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Prjónið fyrra stykki þannig: Fitjið upp 19 lykkjur á hringprjón 5 með Air. Prjónið mynstur fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 (= 17 lykkjur), 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 21-22 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Snúið og prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið fyrstu 8 lykkjur í A.2 frá réttu áður en þessar 9 lykkjur eru settar á þráð. Prjónið 9 lykkjur í A.2 sem eftir eru (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón = 9 lykkjur. Prjónið síðustu umferð í A.2 til baka yfir 9 lykkjur á prjóni. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður yfir 9 lykkjur á prjóni þar til stykkið mælist 11 cm frá skiptingu (= ca 33-34 cm frá uppfitjunarkanti) – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Setjið lykkjur á þráð. Þessi hluti er merktur með svartri stjörnu í mynsturteikningu A.4. Setjið til baka lykkjur frá hinu stykkinu á prjóninn = 9 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið síðustu umferð í A.2, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 11 cm frá skiptingu (ca 33-34 cm frá uppfitjunarkanti) – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Setjið lykkjur á þráð. Þessi hluti er merktur með hvítri stjörnu í mynsturteikningu A.4. Prjónið seinna stykki þannig: Fitjið upp 19 lykkjur á hringprjón 5 með Air. Prjónið mynstur fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 (= 17 lykkjur), 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stykkið mælist 33-34 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Klippið frá. FRÁGANGUR OG FLÉTTA: Saumið saman 2 uppfitjunarkantana við miðju að aftan. Setjið til baka lykkjur frá báðum stykkjum sem prjónaðar eru á hringprjón þannig: Setjið fyrstu 9 lykkjurnar frá fyrra stykki (= hvít stjarna) á prjóninn, setjið síðan næstu 9 lykkjurnar frá fyrra stykki (= svört stjarna) á prjóninn, setjið 19 lykkjur af seinna stykki yfir fyrstu 9 lykkjurnar (= hvít stjarna) og undir næstu 9 lykkjurnar (= svört stjarna) og setjið inn lykkjur á prjóninn. Stykkin fara yfir hvert annað við miðju að framan eins og útskýrt er í A.4. TOPPUR Á HÚFU: Prjónið nú í hring með byrjun frá réttu og stykki með hvítri stjörnu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjurnar, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri í skiptingunni á milli stykkja með hvítri og svartri stjörnu), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri í skiptingunni á milli stykkja með svartri stjörnu og næsta stykki), prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 15 lykkjur. Nú eru 33 lykkjur í umferð og mynstrið gengur jafnt upp í annarri hverri lykkjur slétt og annarri hverri lykkju garðaprjón. Prjónið nú upp 24-26 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram fyrri hluta að saumi við miðju að aftan og fram að byrjun á umferð = 82-86 lykkjur. Haldið áfram hringinn með mynsturteikningu A.3 og stillið af að mynstrið gangi jafnt upp alla leiðina hringinn yfir lykkjur á stykki sem fléttuð voru saman við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 5-6 cm frá þar sem lykkjur voru teknar upp eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 13-15 lykkjur (þ.e.a.s. á undan sléttri lykkju), setjið síðan næstu 4 prjónamerki eftir 14 lykkjur, nú eru 13-15 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki og það eru 6 prjónamerki í stykkinu, á undan 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10 sinnum = 22-26 lykkjur. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman = 11-13 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24-25 cm. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #garbohat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.