Helena Maine skrifaði:
Hello again, When increasing in the body (e.g. small size) it says the first increase is after 3cm measured from the body and the second increase is after 4cm. Is this 4cm from the start of the body or 4cm after the first increase? Thank you
27.05.2019 - 18:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Maine, the 2nd increase will be worked 4 cm after the first one (= 7 cm from the division). Happy knitting!
28.05.2019 - 09:05
Helena Maine skrifaði:
Hi In A1, (for the smallest size) when starting row number 15, the row starts with a YO before the black colour stitches - which colour should be the yarn over, please?
25.05.2019 - 16:03DROPS Design svaraði:
Hello Helena. You work the yo with the black colour. Happy knitting!
25.05.2019 - 19:04
Lena Hemmingsson skrifaði:
Helt fel mått från armhåla till full längd på fram- och bakstycke. Stickar man enl. mönstret slutar tröjan i midjehöjd. Beräkningen av garnåtgång är helt fel. Mycket tråkigt!
06.04.2019 - 13:27DROPS Design svaraði:
Hei Lena. Dette er en kort modell, som går ca til bukselinningen. Vi har nå likevel lagt til litt på lengden. Vi har også justert garnmengden opp i grønn og blå. Takk for beskjed, god fornøyelse
11.04.2019 - 14:59
Trine skrifaði:
Veldig kjedelig at oppgitt garnmengde ikke stemmer - verken på denne eller «voksenmodellen».
31.03.2019 - 20:54
Gabriele skrifaði:
Hallo,ich möchte bitte wissen für was , -A2-, benötigt wird.
24.03.2019 - 21:17DROPS Design svaraði:
Liebe Gabriele, A.2 wird für den Pullover nicht benutzt, Anleitung wird korrigiert, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
26.03.2019 - 08:02
Lamb Dance Sweater#lambdancesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með kindum, litamynstri, stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð 3-12 ára.
DROPS Children 34-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 12. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er notaður sami útreikningur, en slegið er þá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Stykkið skiptist upp við fram- og bakstykki og ermar, fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 80-84-96-108-112 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós gráblár. Tengið stykkið saman og prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 14-12-12-17-14 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 66-72-84-91-98 lykkjur. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.1, mynsturteikning er prjónuð 11-12-12-13-14 sinnum í umferð. ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 198-216-240-260-280 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er prjónað með litnum pistasía og sléttprjón og aukið er út um 14-8-2-2-2 lykkjur jafnt yfir í umferð = 212-224-242-262-282 lykkjur. Haldið áfram með litnum pistasía og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 18-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: 62-64-70-77-79 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 44-48-51-54-62 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-64-70-77-79 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-48-51-54-62 lykkjur á nýjan þráð (= ermi) og fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 136-140-152-166-170 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram í sléttprjóni með litnum pistasía. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar eftir 4 cm = 144-148-160-174-178 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 12-16-19-22-25 cm (eða að óskaðir lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð sléttprjón og aukið er út 12-12-12-10-10 lykkjur jafnt yfir = 156-160-172-184-188 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-48-51-53-62 lykkjur), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-54-57-59-68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2! Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku með 4-3½-4-4-3½ cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 5-7-7-8-10 sinnum = 40-40-43-43-48 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 21-26-29-33-36 cm. Prjónið 1 umferð og aukið út jafnt yfir 4-4-5-4-4 lykkjur í umferð = 44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir í sokkaprjóna 3 og prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lambdancesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.