DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lamb Dance Sweater

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með kindum, litamynstri, stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð 3-12 ára.

DROPS Children 34-3
DROPS Design: Mynstur me-055-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm.
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-250-300 g litur 26, pistasía
50-50-100-100-100 g litur 19, ljós gráblár
50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50 g litur 02, svartur
50-50-50-50-50 g litur 17, kirsuberjarauður

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-250-300 g litur 7219, pistasía
50-50-100-100-100 g litur 8112, ísblár
50-50-50-50-50 g litur 0100, natur
50-50-50-50-50 g litur 8903, svartur
50-50-50-50-50 g litur 6273, kirsuberjarauður

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 12.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er notaður sami útreikningur, en slegið er þá uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar með sléttprjóni.

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Stykkið skiptist upp við fram- og bakstykki og ermar, fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 80-84-96-108-112 lykkjur á hringprjón 3 með ljós gráblár. Tengið stykkið saman og prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm (= kantur í hálsi).
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 14-12-12-17-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 66-72-84-91-98 lykkjur. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.1, mynsturteikning er prjónuð 11-12-12-13-14 sinnum í umferð. ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 198-216-240-260-280 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er prjónað með pistasía og sléttprjón og aukið er út um 14-8-2-2-2 lykkjur jafnt yfir í umferð = 212-224-242-262-282 lykkjur.
Haldið áfram með pistasía og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 18-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: 62-64-70-77-79 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 44-48-51-54-62 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-64-70-77-79 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-48-51-54-62 lykkjur á nýjan þráð (= ermi) og fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 136-140-152-166-170 lykkjur í umferð.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram í sléttprjóni og pistasía. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) SJÁ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar eftir 4 cm = 144-148-160-174-178 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 12-16-19-22-25 cm (eða að óskaðir lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka).
Prjónið 1 umferð sléttprjón og aukið er út 12-12-12-10-10 lykkjur jafnt yfir = 156-160-172-184-188 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff með 2 lykkjum slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-48-51-53-62 lykkjur), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-54-57-59-68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. SJÁ ÚRTAKA-2!
Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku með 4-3½-4-4-3½ cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 5-7-7-8-10 sinnum = 40-40-43-43-48 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 21-26-29-33-36 cm. Prjónið 1 umferð og aukið út jafnt yfir 4-4-5-4-4 lykkjur í umferð = 44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir í sokkaprjóna 3 og prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

Prjónið hina ermina alveg eins.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.04.2019
Leiðrétting á efnismagni: Merino Extra Fine litur 26 og 19 og Lima litur 7219 og 8112 + leiðrétting á BERUSTYKKI:..Haldið áfram með pistasía og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 18-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Yfirfarið á vefsvæði: 17.06.2019
Leiðrétting - mynsturteikning: A.1 stærð 7-12 ára hefur verið leiðrétt: Uppslátturinn hefur verið færður frá umferð 15 yfir í umferð 14
Yfirfarið á vefsvæði: 25.09.2020
Leiðrétting: Fjöldi lykkja sem er fitjaður upp í 3 stærri stærðunum hefur verið leiðréttur.
Yfirfarið á vefsvæði: 09.02.2021
Leiðrétting: Mynsturteikning A.1 stærð 7-12 ára hefur verið leiðrétt umferð 29, 35 og 36.

Mynstur

symbols = slétt með ljós gráblár
symbols = slétt með natur
symbols = slétt með svartur
symbols = slétt með pistasía
symbols = slétt með kirsuberjarauður
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lamb Dance Sweater

Lieke Alberts, Belgium

Lamb Dance Sweater

Carolana, Argentina

Lamb Dance Sweater

Gvleod, Mexico

s34-3 Lamb Dance Sweater

Margret, Iceland

Lamb Dance

Eva, Denmark

Lamb Dance for a beautiful baby girl

Matilda, United Kingdom

Lamb Dance Sweater

Zara, United States

Lamb Dance Sweater

Céline Momsen, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Ana Maria LEONI wrote:

NO entiendo esta parte de la explicación: "Después de haber tejido A.1 entero, hay 198-216-240-260-280 puntos en la vuelta. En la vuelta siguiente, tejer con pistacho y punto jersey y aumentar 14-8-2-2-2 puntos distribuidos equitativamente en la vuelta = 212-224-242-262-282 puntos." Estoy tejiendo el talle 8, cuantos puntos tengo que aumentar y en que vueltas?

03.08.2021 - 22:49

DROPS Design answered:

Hola Ana Maira, si estas tejiendo el talle 7/8 anos, tienes que aumentar 2 puntos. Tienes que aumentarlos después de haber tejido A.1, en la vuelta siguiente (una sola). Buen trabajo!

04.08.2021 - 09:37

country flag Inger wrote:

Genseren har merkelige mål. Jeg strikket 1. genser i str.3/4 til en liten 1,5 åring. Måtte strikke på 10 cm ekstra på bolen. Nå holder jeg på med genser nr to (3). Rekket opp en gang..oppskriften samsvarer ikke med størrelsen til en vanlig 5 åring. Måtte opp 2 str. og øker lengden på bolen. Tips til andre: Opp 1-2 størrelser og plusse på 10cm lengde på bolen, så blir det bra .

30.03.2021 - 13:47

country flag Wenche Hjelseth wrote:

Får overhode ikke mønster til p stemme på 3-4 år. Starte med 80 masker og felle 16 etter hals. Veldig liten hals. Må vel heller øke når en strikker ovenfra og ned. Skjønner ingenting

12.12.2020 - 18:51

country flag Karen Bell wrote:

When knitting the ribbing it's k2/p2 but the number of stitches for this ribbing is supposed to be divisible by 4 which 160 is NOT...so at the end of the row in the round and the beginning of the next round you end up with 4 knit stitches together. How is that right?

05.12.2020 - 14:32

DROPS Design answered:

Hi Karen, 160 divided by 4 = 40, so it is divisible. Happy knitting!

07.12.2020 - 07:19

country flag Brigitte wrote:

Liebes Drops Team, ich habe den Pullover Lamb Dance Sweater in der Größe für 11/12 Jahre gestrickt. Er ist super gelungen und die Anleitung ist sehr verständlich geschrieben. Vielen Dank. Jedoch die angegebene notwendige Garnmenge ist für diese Größe nicht korrekt. Merino Extra Fine 26 Pistazie + 1 Knäuel also insgesamt 350g und Merino Extra Fine 19 hell Graublau - 1 Knäuel also insgesamt 50g anstelle von 100g wie in der Anleitung beschrieben. Viele Grüße Brigitte

26.11.2020 - 12:03

country flag Vera Kjærstad wrote:

Er det feil i diagram på omg 35 og 36? Hvis ikke blir det litt rart når man strikker diagrammet for andre gang. 1 rosa, grønne, en rosa. Synes ikke dette ser pent ut.

29.10.2020 - 21:37

DROPS Design answered:

Hei Vera. Diagrammet er oversendt til design avd. slik at de evnt kan rette opp i diagrammet og komme med en rettelse. mvh DROPS design

02.11.2020 - 11:41

country flag Annika wrote:

Guten Morgen, kann ich die Zunahmen durch Umschläge auch durch Zunahmen aus dem Querfaden in der nächsten Runde ersetzen? Ich habe etwas Angst, dass sonst ein größeres Loch entsteht und so das schöne Schafmuster stört. Vielen Dank

14.05.2020 - 06:44

DROPS Design answered:

Liebe Annika, es passt auch sicher so, am besten stricken Sie eine Maschenprobe mit den 2 unterschiedlichen Techniken - Maschenprobe waschen und trocknen lassen - und so sehen Sie wie es aussieht (und ob Nadelgrösse stimmt). Viel Spaß beim stricken!

14.05.2020 - 08:05

country flag Karin Seefeldt wrote:

Hallo! Ich möchte gerne das Modell Lamb Dance Sweater mit dem Garn Safran stricken. Kann ich dafür die Umrechnung erhalten? Vielen Dank im voraus! Liebe grüße Karin Seefeldt

30.04.2020 - 18:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Seefeldt, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!

04.05.2020 - 09:43

country flag Marie-France wrote:

Comment joindre la première et la dernière mailles (x80) sur aiguilles circulaires de 60cm de long ??? Je n’y arrive pas. Pourquoi ?

14.01.2020 - 13:11

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-France, vous pouvez utiliser les aiguilles doubles pointes ou bien l'aiguille de 80 cm et tricoter en magic loop. Bon tricot!

14.01.2020 - 14:34

country flag Visi wrote:

En la talla 11/12 dice montar 110 puntos y empieza con una vuelta del derecho se sigue con 2 derechos y 2 revés, no me da pues al final termina con dos derechos igual que al comienzo, o sea que serían 4 derechos seguidos. No se si lo entiendo bien, un saludo

22.12.2019 - 19:56

DROPS Design answered:

Hola Visi. Ya hemos enviado tu pregunta al departamento de diseño. Cuando recibamos una respuesta, corregiremos el patrón.

09.02.2020 - 20:00