Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu með ljós gráblár | |
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu með natur | |
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu með svörtum | |
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu með pistasía | |
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu með kirsuberjarauður | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Lamb Dance |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með kindum, litamynstri, stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð 3-12 ára.
DROPS Children 34-1 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prð frajónam og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan á framstykkjum (= 10 lykkjur) = 74 og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 10,5. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 9. og 10. hverja lykkju/10. og 11. hverja lykkju saman. Ef auka á út þá er notaður sami útreikningur, en slegið er þá uppá prjóninn til skiptis á eftir 10. og 11. hverja lykkju. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar með sléttprjóni. ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati eftir 2 cm frá kanti í hálsmáli síðan er fellt af fyrir næstu 5-5-6-6-6 hnappagötum með 6 -7-6½-7-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður, prjónið síðan fram- og bakstykki fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-100-112-116 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós gráblár. Prjónið 4 umferðir umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu (= hægri kantur að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 7-5-5-10-7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-83-95-102-109 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11-12-12-13-14 mynstureiningar með 6-6-7-7-7 lykkjum), prjónið A.2 yfir 1 lykkju og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 209-227-251-271-291 lykkjur í umferð. Haldið áfram með litnum pistasía, í næstu umferð frá réttu er prjónað sléttprjón (garðaprjón yfir kanta að farman) og aukið er út um 13-11-5-1-1 lykkjur í umferð = 222-238-256-272-292 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón (garðaprjón yfir kanta að framan) þar til stykkið mælist ca 18-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN, prjónið 31-33-36-36-37 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-48-51-54-62 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-66-72-82-84 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 44-48-51-54-62 lykkjur á nýjan þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 31-33-36-36-37 lykkjur (= framstykki) og prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 146-154-166-176-180 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) SJÁ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu með 3-4-5-6-7 cm millibili alls 3 sinnum = 158-166-178-188-192 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 12-16-19-22-25 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka). Prjónið 1 umferð sléttprjón frá réttu þar sem aukið er út um 10-6-6-8-12 lykkjur jafnt yfir (ekki auka út yfir kanta að framan) = 168-172-184-196-204 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *. Prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Í næstu umferð frá réttu, fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-48-51-53-62 lykkjur), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-54-57-59-68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. SJÁ ÚRTAKA-2. Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku með 4-3½-4-4-3½ cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 5-7-7-8-10 sinnum = 40-40-43-43-48 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 21-26-29-33-36 cm. Prjónið 1 umferð og aukið út jafnt yfir 4-4-5-4-4 lykkjur í umferð = 44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir í sokkaprjóna 3 og prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11518 mynstur - 7032 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (29)
Gigi skrifaði:
Bonjour je suis rendu à faire les rangs couleur pistache et quand je tricote cette couleur : il y a un décalage de couleur dans les motifs des moutons , pourquoi? Que dois je faire ? Merci
25.02.2022 - 16:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Gigi, avez-vous bien pensé à augmenter au 2ème rang en noir, juste avant le 1er rang en pistache? en fonction de la taille vous aurez ainsi soit 3 m pistache au début de A.1 et 2 m pistache à la fin de A.1 (tailles 3/4 et 5/6 ans) ou bien 2 mailles pistache au début et à la fin de A.1 + 1 augmentation à la fin de A.1 au 1er rang pistache ((7/8, 9/10 et 11/12 ans). Bon tricot!
25.02.2022 - 16:09Gigi skrifaði:
Après avoir fait dans l’empiècement le premier rang avec les jetés aux 6 mailles , le rang sur l’envers je tricote les mailles comme elles se présente mais comment je tricote le jeté pour ne pas avoir de trou ? Quand je reviens en façade je fais le deuxième rang du diagramme endroit sur endroit ? Merci
16.02.2022 - 15:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Gigi, tricotez les jetés torse à l'envers sur l'envers (= en jersey - cf vidéo). Les diagrammes montrent tous les rangs du motif, autrement dit, sur l'envers, lisez le diagramme de gauche à droite et sur l'endroit de droite à gauche. Vous trouverez plus d'infos sur les diagrammes ici>/a>. Bon tricot!
16.02.2022 - 17:00Christine J Manzagol skrifaði:
Confused as to needle size. The ribbing with the smaller needles is fine, but when i switch to larger needles, it looks like the needles are too bog for the yarn. The project looks loose and holy. I am using lyon brand truboo yarn. Weight 3. Its a rayon from bamboo. I also noticed that the smaller needles fit the gauge that you guys gave. Should i just do the whole thing with the smaller needles? Making the 7/8 size
19.01.2022 - 00:20DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Manzagol, did you check your tension? You should have 21 sts x 28 rows stocking stitch = 10 x 10 cm; sorry we do not know this yarn and cannot help with it; maybe contact the store where you bought the yarn for any further assistance, they should be able to help you. Happy knitting!!
19.01.2022 - 08:50Ilovedogs skrifaði:
Sto lavorando questo delizioso golfino, ma temo che la lana acquistata non sia sufficiente. Avendo contattato il negozio in cui l'ho acquistata, ed avendo ricevuto la risposta che la lana Baby Merino col. 38 ce l'hanno di bagno diverso, volevo chiedere un suggerimento: fare delle righe magari azzurre e bianche dato che sono i colori che ho usato per lo sprone? oppure qualche altra idea? Spero che riusciate a darmi una mano...il bagno che mi serve è il 48322
07.12.2021 - 17:16DROPS Design svaraði:
Buonasera Ilovedogs, può rivolgersi al suo rivenditore DROPS per un'assistenza così personalizzata, oppure può scrivere ad altri rivenditori per vedere se hanno delle rimanenze di quel bagno. Buon lavoro!
07.12.2021 - 21:45Samantha Stevens-Clay skrifaði:
If there are 18 stitches and we increase then what? I've been putting a marker after 18 stitches to I know that that little area is done to keep track of the stitches. When I increase do I move the marker over so I still have 18 stitches? Do I leave it where it is and it is now marking 19 stitches? I can't find anything online to tell me what to do. I've watched a lot of fair isle and I also did an entire secret sweater which had fair isle lettering and I can't figure this out.
21.11.2021 - 15:49DROPS Design svaraði:
Dear Samantha, could you specify why you put a marker in 18 stitches? If you do this to keep track of the pattern repeats, then, when you increase, you'd need to pass it to the next stitch (so you would have 19 stitches instead). If you refer to another part of the pattern, please specify it so that we can help you better. Happy knitting!
21.11.2021 - 20:06Catiuscia skrifaði:
Grazie della cortese risposta. No, non ho fatto il campione. A dire il vero non lo faccio mai e non ho mai riscontrato grosse discrepanza tra la quantità di filato indicata nei vostri modelli e quella occorrente nella pratica. Non credo sia una questione di campione: mi mancano più di 15 cm per terminare la seconda manica. Comunque volevo solo segnalare la cosa :-).
22.09.2021 - 10:12Janet Becker skrifaði:
Size 5/6 Is A2 knitted ONLY after the 12 repetitions have been completed?
28.02.2021 - 22:30DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Becker, in all sizes, ie including size 5/6 years, you first repeat diagram A.1 in width then end the row with A.2 then 5 sts in garter stitch, ie your rows seen from RS will be worked as follows: 5 sts in garter stitch, A.1 x 12 in width, A.2 (= 1 stitch), 5 sts in garter stitch. (from WS work: 5 sts in garter stitch, A.1 (= 1 st), repeat A.1 x 12 (reading from the left towards the right), 5 sts in garter stitch.). Happy knitting!
01.03.2021 - 10:00Nellie skrifaði:
Dank voor je antwoord, ik heb het zelf opgelost door 2 steken meer op te zetten en 6 steken na het boordpatroon te minderen. Het vest schiet ondertussen al mooi op ;-)
24.09.2020 - 16:22Nellie skrifaði:
Zie dat ik een typfout heb gemaakt: 106 steken min aan beide kanten 5 ribbelsteken is 96 over voor boordpatroon 2 r 2 av, dat zijn 96 (26x4) Het moet zijn (24x4)
20.09.2020 - 10:25DROPS Design svaraði:
Dag Nellie,
Het lijkt er inderdaad op dat er een foutje zit in het aantal op te zetten steken. Het is doorgegeven aan de ontwerpafdeling ter controle. Voor jouw maat zou ik dan 104 steken opzetten en in plaatst van 4 steken, 2 steken verdeeld minderen.
24.09.2020 - 13:26Nellie skrifaði:
Vergeten m'n mailadres in te vullen
20.09.2020 - 09:56