Jeanett Ljostveit skrifaði:
Hei! For en utrolig flott genser :)\\r\\nHar ett lite spørsmål: Hvilke type garn vil dere anbefale å bruke dersom man ikke bruker noen form for ull? Kunne tenke meg å teste ut denne oppskriften men er veganer så bruker ikke materiale som kommer fra dyr. Kanskje det finnes noe bambus- eller bomullsgarn som gjør samme nytten? \\r\\nTakk på forhånd! :)
06.12.2018 - 10:24
Norma Deckers skrifaði:
Ik wil mijn vraag annuleren. Ik ben er al uit.
06.11.2018 - 15:26DROPS Design svaraði:
Dag Norma,
Fijn dat je eruit gekomen bent en bedankt voor de terugkoppeling. Veel breiplezier!
07.11.2018 - 15:07
Norma Deckers skrifaði:
Ik begrijp iets niet. Hoe kan ik me aan het patroon houden als ik steeds moet meerderen. Ik heb nu 4 witte steken ipv 3, waardoor het patroon niet gevolgd kan worden. Ik brei met blauw en wit. ik moet 1 steek wit en drie steken blauw breien. boven 3 steken wit en 1 steek blauw. Door die meerdering moet ik nu 2 steken wit en 3 stekenblauw breien, waardoor het patroon er niet meer goed uitziet. Dank u voor uw antwoord.
06.11.2018 - 13:18
Mariarosaria skrifaði:
Il gettato ne colore di sfondo per lo sprone non capisco è senape o panna ? Grazie
22.10.2018 - 19:25DROPS Design svaraði:
Buonasera Mariarosaria. Se il simbolo del gettato è vicino a un quadrato vuoto, lavora il gettato con il colore panna; se è vicino ad un quadrato con il tondo nero, lavora il gettato con il senape. Nel diagramma A.1 per le taglie più grandi, il gettato alla fine della riga 13 è colore panna. Buon lavoro!
22.10.2018 - 21:07
Mathian skrifaði:
Bonjour, Qu'est-ce qu'une rehausse ?
14.10.2018 - 09:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mathian, une réhausse permet de surélever l'encolure dos: on va tricoter des rangs raccourcis dans le dos pour avoir plus de rangs sur le dos et moins sur le devant, l'encolure dos sera ainsi plus haute que l'encolure devant. Vous trouverez ici une vidéo montrant comment faire. Bon tricot!
15.10.2018 - 09:41
Myriam skrifaði:
Mevrouw ik begrijp de uitleg over de verhoging van de hals niet zo goed.\\r\\nMoet ik voor maat 9/10 draaien na 12 20 28 36 en 44 steken?
05.10.2018 - 10:06
Janne skrifaði:
Det er en rigtig flot bluse gode farver.
16.09.2018 - 21:01
Maragda skrifaði:
No encuentro el gráfico A2 nombrado en el patrón...
15.09.2018 - 08:27
Little Missy#littlemissysweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 12 mán – 12 ára.
DROPS Children 32-7 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju saman, eða aukið út á eftir 12. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki ca við miðju að framan (þ.e.a.s. á eftir 33 (36-38-42-42-46-46) lykkjum). Prjónið slétt þar til eftir eru 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 8 (8-8-10-10-12-12) lykkjur í hinni hliðinni, snúið, herðið á þræði og prjónið slétt þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 16 (16-16-18-18-20-20) lykkjur í hinni hliðinni. Haldið áfram að prjóna yfir 8 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið, herðið á þræði og prjónið slétt að miðju að aftan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað sem síðan skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki. Umferðin byrjar ca við miðju að aftan. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72 (76-80-84-88-96-100) lykkjur á sokkaprjóna/hringprjón 3 með litnum sinnep (í 2 minnstu stærðunum verður að fitja upp og prjóna með sokkaprjónum áður en lykkjum fjölgar, í hinum stærðunum er hægt að fitja upp og prjóna með stuttum hringprjón). Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 6 (4-3-0-4-5-9) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 66 (72-77-84-84-91-91) lykkjur. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykki verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða haltu áfram áfram. Prjónið mynstur eftir A.1 - ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11 (12-11-12-12-13-13) mynstureiningar með 6 (6-7-7-7-7-7) lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 176 (192-209-228-240-260-260) lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með litnum sinnep. Í næstu umferð er aukið út um 7 (7-10-7-3-0-11) lykkjur jafnt yfir = 183 (199-219-235-243-260-271) lykkjur. Þegar stykkið mælist 13 (14-15-16-17-18-19) cm mælt við miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli), skiptist stykkið þannig: Prjónið 25 (27-30-32-34-36-38) lykkjur, setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 49 (53-59-63-67-72-75) lykkjur, setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið þær 25 (27-30-32-34-36-38) lykkjur sem eftir eru eins og áður = 115 (123-135-143-151-160-167) lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkja sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi (= 57 (61-67-71-75-80-83) lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 og 9 cm frá skiptingu = 127 (135-147-155-163-172-179) lykkjur. Þegar stykkið mælist 11 (13-16-19-22-25-28) cm frá skiptingu, aukið út um 9 (9-9-9-9-8-9) lykkjur í næstu umferð = 136 (144-156-164-172-180-188) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 34 (37-41-45-49-53-57) cm, mælt frá öxl. ERMI: Setjið lykkjur af þræði á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50 (54-58-62-62-66-68) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur (= mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum sinnep. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½ (2-2-2½-3-3½-3½) cm millibili alls 6 (6-8-8-8-8-9) sinnum = 38 (42-42-46-46-50-50) lykkjur. Þegar ermin mælist 14 (16-21-24-28-31-35) cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir = 36 (40-40-44-44-48-48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm eða að óskaðri lengd. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls ca 18 (20-25-28-32-35-39) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlemissysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.