Bruyere Cam Tu skrifaði:
Il semble qu'il n'y est pas d'ouverture pour passer la tête de l'enfant plus facilement
02.11.2026 - 10:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cam Tu, si votre tension est correcte, les mailles du col doivent être suffisantes pour y passer la tête, attention toutefois à ne pas trop serrer le rang de montage, retrouvez différentes techniques qui vous permettront un montage moins serré ici, en vidéo. Bon tricot!
03.11.2026 - 08:54
ESSI skrifaði:
Miksi ohjeessa kerrotaan,että valkoista lankaa kuluu 150g kokoon 5-6,kun sitä kului vain 50g??????
31.10.2026 - 19:56DROPS Design svaraði:
Hei, tarkistamme tarvittaessa langanmenekin.
02.11.2026 - 16:34
Bente Soelberg skrifaði:
Hej. Jeg skal til at strikke Little Missy og er i tvivl om hvor jeg skal starte mønsteret, når den strikkes rundt og oppefra. Venlig Hilsen Bente Bendtsen
14.09.2026 - 20:04DROPS Design svaraði:
Hej Bente, du starter nederst i højre side af diagrammet og strikker første pind rundt. Næste række i diagrammet strikket på næste pind :)
16.09.2026 - 15:25
Carolien skrifaði:
I would like to make a folded neckline, should I change the amount of stitches?
06.09.2026 - 20:18DROPS Design svaraði:
Dear Carolien, if you wish to work a double ribbed neckline, which is folded towards the inside. you can simply make double the rib, so work 6cm in rib. The number of initial stitches doesn't need to change. To make a better folding edge, you can work the neck as indicated, ending with the 3cm in rib. Then purl 1 round to make a folding edge and continue with 3 more cm in rib. The rounds before the purled round will be folded towards the inside. Happy knitting!
06.09.2026 - 20:28
Gena Andreasen skrifaði:
For anyone struggling with the design and increases at the yoke, use stitch markers! I can’t believe the difference it made in understanding how the design would work out. I read it in the comments after ripping out the first 4 rows numerous times. What a difference it makes! Thank you for the tip!
01.08.2026 - 16:47
Andrea skrifaði:
Ifølge som jeg forstår. Vi skal begynne å strikke den mønster nedenfra. Når jeg kommer til rad 5 stemmer ikke overs de økning etter diagrammer. Uansett man øker med bunnfarge eller ikke. Det gjelder alder 7/8 år.
23.07.2026 - 21:49DROPS Design svaraði:
Hei Andrea. På 5. omgang i diagram A.1 ser man at det i farge natur enten blir 3 masker eller 3 masker + 1 kast mellom 1 maske sennep, slik at det i 6. omgang enten blir 1 maske eller 2 masker med fargen natur med 3 masker sennep mellom. Dette er riktig på denne modellen. mvh DROPS Design
05.08.2026 - 07:14
Andrea skrifaði:
Hei! Det gjelder diagrama for 7/8 år. Jeg slitter med når skal øker masker. Dette stemmer ikke med de antall total masker som skal vare etter den diagrama.
16.07.2026 - 10:58DROPS Design svaraði:
Hei Andrea, På noen rad i diagrammet øker du 1 maske i hver rapport (f. eks. rad 1, 5 og 9). I andre rad øker du 2 masker (f. eks. rad 7 og 15). På slutten av diagrammet skal det være 20 masker i hver rapport. Hilsen Drops Team.
16.07.2026 - 12:47
Louise-marie skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas la phrase du diagramme : faire 1 jeté entre 2 mailles avec la couleur de fond de la rayure (en ligne 4 sur le diagramme 3/4 ans je ne sais pas laquelle des couleurs je dois utiliser
07.07.2026 - 19:35DROPS Design svaraði:
Bonjour. Louise-Marie, pour préciser la réponse précédente, au 4ème rang en taille 3/4 ans vous ferez le jeté en naturel = couleur principale du rang (les motifs sont en moutarde). Bon tricot!
08.07.2026 - 08:12
Louise-marie skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas la phrase du diagramme : faire 1 jeté entre 2 mailles avec la couleur de fond de la rayure du jacquard
07.07.2026 - 19:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Louise-Marie, faites 1 jeté à l'endroit indiqué (la plupart du temps au début ou à la fin de A.1, mais attention parfois vous allez le faire après la 1ère maille ou avant la dernière maille du motif à répéter), faites ce jeté avec la couleur de fond, autrement dit, au 1er tour on va le faire en moutarde (car le tour est en moutarde), mais au 5ème tour (A.1 en taille 12/18 mois et 2 ans), vous le ferez en naturel car le rang est tricoté en naturel en couleur de fond et moutarde pour le jacquard. Bon tricot!
08.07.2026 - 08:11
Bente skrifaði:
Hvordan skal jeg dele opp arbeidet til framstille, ermer og bakstykke når jeg har 216m?
24.06.2026 - 11:44DROPS Design svaraði:
Hei Bente, Du har nesten samme antall masker som størrelse 2 år, så du kan følge instruksene der med 1 maske ekstra på bakstykket og 2 masker ekstra på forstykket. God sommer!
26.06.2026 - 06:05
Little Missy#littlemissysweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 12 mán – 12 ára.
DROPS Children 32-7 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju saman, eða aukið út á eftir 12. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (merkið er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út við bæði merkin (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki.ræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuð lykkjuna (= 2 lykkjur færri). UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Prjónið 6 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 12 lykkjur brugðið (= 6 lykkjur fram hjá merki), snúið, herðið á þræði haldið áfram að prjóna yfir 8 (8-8-10-10-10-10) lykkjur framhjá fyrri snúningi í hvert skipti sem snúið er við 3 sinnum til viðbótar í hvorri hlið (= alls 4 snúningar í hvorri hlið). Á eftir síðasta snúiningi, prjónið sléttprjón að miðju að aftan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað sem síðan skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki. Umferðin byrjar ca við miðju að aftan. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72 (76-80-84-88-96-100) lykkjur á sokkaprjóna/hringprjón 3 með litnum sinnep DROPS Merino Extra Fine (í 2 minnstu stærðunum verður að fitja upp og prjóna með sokkaprjónum áður en lykkjum fjölgar, í hinum stærðunum er hægt að fitja upp og prjóna með stuttum hringprjón). Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 6 (4-3-0-4-5-9) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 66 (72-77-84-84-91-91) lykkjur. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykki verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða haltu áfram áfram. Prjónið mynstur eftir A.1 - ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11 (12-11-12-12-13-13) mynstureiningar með 6 (6-7-7-7-7-7) lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 176 (192-209-228-240-260-260) lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með litnum sinnep. Í næstu umferð er aukið út um 7 (7-10-7-3-0-11) lykkjur jafnt yfir = 183 (199-219-235-243-260-271) lykkjur. Þegar stykkið mælist 13 (14-15-16-17-18-19) cm mælt við miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli), skiptist stykkið þannig: Prjónið 25 (27-30-32-34-36-38) lykkjur eins og áður, setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 49 (53-59-63-67-72-75) lykkjur eins og áður, setjið næstu 42 (46-50-54-54-58-60) lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið þær 25 (27-30-32-34-36-38) lykkjur sem eftir eru eins og áður = 115 (123-135-143-151-160-167) lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 merki mitt á milli 8 lykkja sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi (= 57 (61-67-71-75-80-83) lykkjur á milli merkja á framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út hvoru megin við bæði merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 og 9 cm frá skiptingu = 127 (135-147-155-163-172-179) lykkjur. Þegar stykkið mælist 11 (13-16-19-22-25-28) cm frá skiptingu, aukið út um 9 (9-9-9-9-8-9) lykkjur í næstu umferð = 136 (144-156-164-172-180-188) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 34 (37-41-45-49-53-57) cm, mælt frá öxl. ERMI: Setjið lykkjur af þræði á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50 (54-58-62-62-66-68) lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8 lykkjur (= miðja undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum sinnep. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½ (2-2-2½-3-3½-3½) cm millibili alls 6 (6-8-8-8-8-9) sinnum = 38 (42-42-46-46-50-50) lykkjur. Þegar ermin mælist 14 (16-21-24-28-31-35) cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir = 36 (40-40-44-44-48-48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm eða að óskaðri lengd. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls ca 18 (20-25-28-32-35-39) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlemissysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.